Feykir - 10.07.2008, Qupperneq 7
27/2008 Feykir 7
Siguröurjóhannesson er framkvæmdastjóri Sölufélags Austur Húnvetninga
svf. og SAH Afuróa ehf. sem nú rekur slátrun og kjötvinnslu á Blönduósi.
Feykir settist niöur meó Sigurói í tilefni þessara merku tímamóta og
forvitnaöist örlítiö um söguna, nútíóina og framtíóina.
Sölufélag Austur Húnvetninga í 100 ár
Kjölfesta og bú-
stólpi í heila öld
Aðspurður segir Sigurður að
Sölufélag Austur Húnvetiniga,
(SAH svf.) standi í dag fyrir það
sama og það hefúr alltaf gert,
það er að þjónusta bændur og
vera um leið ákveðin kjölfesta í
atvinnulífi í Austur Húnavatns-
sýslu. - SAH svf. er í skilgreindri
eigu bænda og mikilvægt að
bændum sé það ljóst, að hver og
einn þeirra á ákveðinn hluta í
félaginu. SAH svf. er því
samvinnufélag í skilgreindri
eigu bænda og hefúr verið það í
heila öld.
Það veitir bændum ákveðna
tryggingu fyrir því að þeir geta
haft áhrif á það hvernig farið er
með þeirra afurðir. SAH svf.
sem varð 100 ára þann 28.
ferbrúar 2008 er í dag rekið sem
fasteignafélag en SAH Afurðir
ehf. er rekstrarfélag sem hefur
öll þau sömu markmið og SAH
svf. hafði á sínum tíma en
mikilvægast er að slátra og selja
afúrðirbændameðhagkvæmum
hætti.
Sölufélag Austur Húnvetn-
inga á allar fasteignir sem
notaðar eru til reksturs SAH
Afúrða ehf. Tilgangurinn með
stofnun þess félags var fyrst og
ffemst sá að geta stofnað til
nánara samstarfs við aðila eins
og Kjarnafæði því SAH svf. sem
slíkt er samvinnufélag og erfitt
að breyta eignaraðild þess. Hins
vegarersami ffamkvæmdastjóri
yfir báðum félögum en þau hafa
alskildar stjórnir og það eru
haldnir stjórnarfúndir í báðum
félögum sem bæði eru virk og
þeim er í raun stjórnað sem sitt
hvoru félaginu, útskýrir
Sigurður.
En hver skyldi nú vera mesta
breytingin í 100 ára sögu
sláturhúss á Blönduósi?
-Breytingarnar hafa auðvitað
verið miklar á þessum eitt
hundrað árum en ef litið er til
fortíðar þá má segja að bygging
sláturhússins á sínum tíma hafi
verið affek þess fólks sem hér
bjó. Sláturhúsið hér er annað
elsta sláturhús landsins en KEA
reið á vaðið 1907 og byggði
sláturhús sem nú hýsir veit-
ingastaðinn FriðrikX.
Næsta bylting og örugglega
sú allra stærsta var síðan árið
1928 þegar byggt var hér
frystihús til að geta fryst og
geymt kjötið. Framsýni og þor
þeirra sem þá voru við
stjórnvölinn er eftirtektarverð,
því þetta var í aðdraganda
heimskreppunnar miklu og
fjárfestingin stór á þeirra tíma
mælikvarða.
Þá skapaðist tæki færi til þess
að frysta og geyma kjöt á annan
hátt en salta það eða þurrka.
Þessi breyting ein og sér er
langstærsta einstaka breytingin
í rekstri félagsins þangað til SAH
Afúrðir voru stofúaðar 2006.
Síðan var síðasta mikla
neyslubreytingin fyrir um 15 -
20 árum síðan þegar farið var í
auknum mæli að selja fyrirfram
kryddað kjöt og eða það sem í
dag er nefnt grillkjöt.
Hins vegar hafa orðið miklar
tækniffamfarir í bæði slátrun
og allri meðferð afúrðanna á
þessum tíma en engin eins
byltingarkennd og þessi. f dag
er sláturhús SAH Afurða mjög
tæknilega fúllkomið, og t.d. þarf
um helmingi færra fólk til
sauðfjárslátrunar en þurfti fyrir
um 15 árum síðan.
Slátur orðið tískuvara
Nú breyttuð þið griðarlega
mikið áherslum upp úr árinu
2000 og dróguð ykkur að
mestu út af smásölumarkaði.
Hvers vegna var það? -Það var
fýrst og fremst vegna fjarlægðar
frá markaði og aukinnar
samþjöppunnar á smásölu-
markaði. Við tókum þá ákvörð-
un um að einbeita okkur að
fyrirtækjamarkaði og seljum nú
um 97 - 98% af okkar vöru til 6
- 7 stórra viðskiptaaðila. Við
erum sem sé með fáa en stóra
viðskiptavini og í því er fólgin
ákveðin sérhæfing sem hefúr
skilaði okkur árangri.
Hvað með slátursöluna er hún
einhver að gagni í dag? -Við
höfúm auðvitað rekið slátursölu
hér í 100 ár þar sem við seljum
allt til sláturgerðar, og reyndar
kjöt og kjötvörur einnig, eftir
því sem við á hverju sinni.
Slátursalan hefúr minnkað ffá
því sem var en það er okkar
tilfinning að hún eigi ekki eftir
að minnka meir en orðið er. Það
er ákveðin tíska fólgin í því að
halda þorrablót og borða súrmat
og þar með ákveðin vakning
gagnvart þvi að þarna sé um
menningararf að ræða. Það er
t.d. draumur minn að útbúa og
markaðssetja einskonar íslensk-
an tapas rétt, sem væri t.d. slátur,
lifrarpylsa, hangikjöt, sviðasulta,
reyktar tungur, rófústappa og
smjör. Góður, ljúffengur
íslenskur matur.
SAH Afúrðir hafa ákveðna
sérstöðu sem eina fýrirtækið á
stóru svæði sem býður upp á
ekta kalónaðar vambir til sölu
þannig að það er mikil ásókn í
slátursöluna sem við viljum
endilega halda í og efla. Við
höfúm aðeins í tengslum við
hana hugleitt að útvíkka
starfsemina hjá okkur og bjóða
upp á ferskt kjöt og kjöthluta
þegar slátursalan er opin og
jafnvel einhverja tvo daga í
viku.
Björt framtíðarsýn
Sigurðursegiraðframtíðarsýnin
sé sú að halda áfram að þjónusta
bændur og á þann hátt má segja
að framtíðarsýnin í dag sé sú
sama og hún var fýrir 100 árum
þegar SAH svf. var stofnað. -
Rekstur sláturhússins og kjöt-
vinnslunnar er að eflast enn
frekar undir merkjum SAH
Afúrða ehf. og er velta þess
félagsrúmurmilljarðurkróna á
ári með 57 ársverkum. Mark-
rniðið er ekki endilega að fjölga
þeim heldur hafa þau eins mörg
og þau þurfa að vera. Hins vegar
viljum við efla og stækka
viðskiptamannahóp okkar og
fjölga bændum í viðskiptum.
Þó aðstæður á fjármálamarkaði
séu með þeim hætti að erfitt sé
að stækka er það engu að síður
mjög nauðsynlegt. Ég held að
afúrðarstöðvum eigi eftir að
halda áfram að fækka og þær
eigi eft ir að sameinast og stækka
í meiri mæli en við höfúm nú
þegar séð.
Þú heldur ekki að framtíðin
liggi í því að afurðarstöðvamar
fari einnig að sinna hlutverki
ræktandans? -Nei, ég held að
við förum ekki út f það enda tel
ég að það eigi ekki að vera
hlutverk afurðarstöðvarinnar.
Við megum ekki gleyma því að
það eru bændurnir sem eiga
afurðarstöðvarnar flestar
hverjar og eru þær því fram-
lenging á þeirra starfsemi og við
eigum ekki að snúa þeirri
framlengingu við. Eins tel ég
ekki æskilegt að afúrðarstöðvar
séu að lána bændum fé til
t.dkvótakaupa og binda þá í
viðskipti árum saman. Bændur
eiga að hafa frjálst val um það
hvar þeir leggja inn afúrðir þær
afúrðir sem þeir framleiða.
Fyrir rúmum 10 árum varð
sú breyting á að afúrðarstöðvar
fóru i auknum mæli að sækja út
fýrir sín svo kölluðu heimasvæði
og sækja búfénað til slátrunar
landshornanna á milli. -I okkar
huga er landið allt okkar
heimasvæði. SAH svf. var
brautryðjandi í því að sækjast
eftir viðskiptum við bændur
utan skilgreindra „heimasvæða"
Við fórum að sækja í auknum
mæli um land allt á árunum
2000 - 2001 og höfúm síðan þá
haldið áfram á þeirri braut.
Þessi þróun hefúr brotið upp
þetta gamla „heimasvæðá1
fýrirkomulag og gefið bændum
aukið frelsi til þess að velja hvar
þeir vilja eiga sín viðskipti. Hins
vegar er þetta þróun sem verið
hefúr að gerjast um allan heim
og á Nýja Sjálandi er þetta
nákvæmlega eins. En auðvitað
má líka segja það að þetta sé
þróun sem fáa hafi órað fyrir í
lok síðustu aldar.
Hvað með hækkandi olíuverð,
dregur það ekkert úr flutningi
sláturdýra um langan veg?
-Auðvitað kemur hækkandi
olíuverð illa niður á öllum
rekstrarkostnaði bæði hjá
bændum og afúrðarstöðvum.
Hækkun á olíu, plasti og öðrum
umbúðum kallar auðvitað á
hækkanir til bænda og
hækkanir á kjöti til neytenda.
En hefur ekki húsnæðisverð
hækkað? Hefúr ekki brauð
hækkað, hafa ekki laun opin-
berra starfsmanna hækkað? Er
eitthvað sem segir að laun
bænda eigi ekki að hækka?
Tími ódýrra matvæla er liðinn.
íbúar vesturlanda þurfa á
komandi áratugum að gera ráð
fýrir því að eyða eða ætti ég
kannski að segja „nota“ stærri
hluta launa sinna til að
brauðfæða sig heldur en verið
hefur undanfarinn áratug.
Mannkyni fjölgar ört, og á sama
tíma er samkeppni um
uppskeru ræktarlands t.d. til
framleiðslu eldsneytis að aukast.
Matvælaverð hækkar á næstu
árum og þess er skammt að
bíða að það að eiga land og geta
framleitt á því matvæli, verði
mikilvægara en það er í dag. Sú
stétt manna sem stjórnar
heiminum innann fárra ára, eru
þeir sem eiga vatn og mat, eða
geta framleitt vatn og mat..
Sigurður, framundan er
heilmikil afmæhsveisla. Hvað
æflið þið að gera í tilefni
tímamótanna? -Við ætlum að
hafa opið hús hér í húsakynnum
okkar sunnudaginn 13. júlí frá
11 - 15. Ætlunin er að bjóða
fólki að koma og skoða
húsakynnin, fræðast aðeins um
reksturinn og síðan ætlum við
að grilla fyrir gesti og gangandi
auk þess að vera með leiktæki
fýrir börnin. Við vonumst
auðvitað til þess að já sem flesta
þannig að allir geti notið þessara
merku tímamóta hér með
okkur, segir Sigurður að
lokum.