Feykir - 10.07.2008, Side 10
lO Feyklr 27/2008
Gísli Garðarsson sláturhússtjóri
Miklar breyt-
ingar í slátrun
Sláturhús og sláturaðferðir
hafa tekið miklum
breytingum undanfarna
áratugi, svo ekki sé talað
um í 100 ára sögu
sláturhúss SAH. Menn
koma og fara, stjórnendur
sem verkafólk.
Núverandi sláturhússtjóri er
Gísli Garðarsson ættaður frá
Súðavík, settist að á Blönduósi
1972 og byrjaði að vinna í
sláturhúsinu um haustið. Feyki
langaði að forvitnast um Gísla.
- Ég kom á Blönduós 1972
og fór að vinna hjá bænum en
um haustið fór ég að vinna í
sláturhúsinu. Það var svo árið
1978 sem ég var ráðinn
sláturhússtjóri.
Hverjar hafa verið helstu
breytingar hjá ykkur?
-Þær eru margar og miklar.
Þegar ég byrjaði var svæðið
þaðan sem við fengum sláturféð
eingöngu bundið við Austur
Húnavatnssýslu en er núna er
það allt frá Dýrafirði í vestri til
Kelduhverfis í austri. Árið 1979
var mikið skorið niður vegna
riðu en þá hafði verið slátrað
um 70-71 þúsund íjár. Núna
er þetta um 93 þúsund fjár og af
því er u.þ.b. 51 þúsund utan
sýslunnar. Vélvæðingin er mikil
í dag og nú vinna um áttatíu
manns í sláturtíðinni miðað við
hundrað og tuttugu manns hér
áður en þá var meira treyst á
handaflið. Húsið var mikið
mannað fólki úr sveitinni áður
en núna erlendu starfsfólki
síðustu ár.
Hvaða starfsemi önnur er hjá
SAH en sauðfjárslátrun?
-Stórgripaslátrun er allan ársins
hring. AðaUega nautgripir
héðan úr sýslunni og svo mikil
hrossaslátrun. Við erum í
verktöku í úrbeiningu, reykingu
og sögun. Svo erum við í
fullvinnslu á sviðasultu. Hún er
nokkuð mikil á landsvísu.
Hvernig gengur að manna
vinnsluna utan sláturtíðar?
-Það gengur vel. Hér eru margir
með langan starfsaldur bæði
erlendir og innlendir, hér vinna
nú um fjörtíu manns að
staðaldri og við lítum björtum
augum til framtíðar.
Vísan er ekki
birtingarhæf
Anna Karlsdóttir
Anna Karlsdóttir og er ein
af þeim konum sem sóttu
vinnu f sláturhús SAH á
haustin. Oft var mikil vinna
og uppgrip ef unnió var vel
og lengi. Anna er fædd
árið 1919 hefur upplifað
miklar breytingar í gegnum
tíðina og rifjar upp gamla
og nýja tfma með Feyki.
-Ég bjó á Neðri Lækjardal
til ársins 1964 en hætti þá
búskap og fluttist til Blönduóss.
Ég vann á sláturhúsinu á
haustin, oftast í mörnum
annars bara í því sem þurfti.
Ég var líka með tvo, þrjá karla
í fæði, seldi þeim mat. Það var
annars sama hvað ég gerði,
það er allsstaðar gaman að
vinna. Ég vann til ársins 2000
á sláturhúsinu en þá hætti ég.
Ég sleppti aldrei úr degi, hef
alltaf verið góð til heilsunnar,
aðeins farið tvisvar á sjúkrahús
í gegnum tíðina.
Breytingarnar hafa verið
miklar í sláturhúsinu í þinni
tíð?
-Já. Þær eru rniklar. Runólfur
hét fyrsti sláturhússtjórinn, frá
Krossá í Vatnsdal. Hann var
vel liðinn af starfsfólkinu,
annars er þetta allt saman
ágætis fólk sem ég hef unnið
með. Fólkið kom allt úr
sveitinni hér áður fyrr en núna
kemur það víst eitthvað lengra
að. Annars var það mesta
furða hvað allt var þrifalegt
með innmatinn og skrokkana
þó tæknin væri minni. Þetta
fór alltsaman vel. Það hafa líka
orðið breytingar með
sláturtímann. Áður var byrjað
að slátra um miðjan september
eða eftir réttir en núna er
byrjað miklu fyrr.
Manstu eftir einhverjum
vísum sem voru samdar í
sláturtíðinni?
-Það voru náttúrulega
einhverjar vísur samdar en ég
man þær nú ekki. Ein visa var
reyndar samin um mig eftir að
ég gerði einum manni grikk en
hún er svo ljót að hún er ekki
birtingarhæf.
Hvað hefúr þú haft fyrir
stafni síðan þú hættir að
vinna?
-Ég var alltaf með skepnur í
kiingum mig. Það eru tvö ár
síðan ég fargaði rollunum, var
hætt að geta sinnt þeim ein.
Svo var ég líka með hross.Var
að myndast við að temja og
ríða út og hafði óskaplega
gaman af því. Þegar ég var
krakki náði ég hvaða bikkju
sem var. Ég elskaði það að hafa
hross í kringum mig.
Þú hefur alltaf góða
ástæðu til að heimsækja
Norðurland vestra!
Á DÖFINNI
11,-13. JÚLÍ
Húnavaka:: Blönduós
13. JÚLÍ
Safnadagurinn, Minjahúsið kl. 14:00 :: Sauðárkrókur
13.JÚLÍ
Safnadagurinn, Glaumbær kl. 14:00 :: Skagafjörður
13.JÚLÍ
Markaðsdagur, Lónkot:: Hofsós
13. JÚLÍ
Hóladómkirkja, messa kl. 11:00 :: Hólar í Hjaltadal
13. JÚLÍ
Tónleikar kl. 14:00. Þóra Einarsdóttir sópran og Björn
Jónsson syngja við undirleik :: Hólar í Hjaltadal
15. JÚLÍ
Knattspyrna á Króknum. M.fl. karla - 2. deild, Tindastóll - ÍH
kl. 20:00:: Sauðárkrókur
SAMTOK SVEITARFÉLAGA Á NORÐURLANDI VESTRA
ATVINNUPRÓUN