Feykir - 10.07.2008, Síða 14
14 Feykir 27/2008
íþróttafréttir
Ungt afreksfólk:: Ragnar Frosti Frostason
Sigur og jafntefli hjá
Norðanliðunum
2. deildin í knattspyrnu
Tindastóll tók á móti
Hamarsmönnum á
Sauóárkróksvelli á
laugardaginn var. Hitinn
um 23° og örlítill andvari til
að kæla niður leikmenn.
Hamarsmenn byrjuðu að
krafti allt frá fyrstu mínútu og
áttu nokkur hættuleg færi
sérstaklega á 15. mínútu þá
náðu þeir skoti sem hafnaði í
þverslánni hjá Tindastóli og þar
máttu heimamenn teljast
heppnir. Tindstælingar svöruðu
fyrir sig með ágætum sóknum
sem rötuðu þó ekki í mark
Hamarsmanna. Á 33. mín. dró
til tíðinda þegar Hamarsmenn
náðu góðri sókn og fastur
jarðarbolti kom frá þeim sem
sem hafnaði út við stöng og
Gísli markvörður náði ekki að
verja. StaðanorðinO-1 oghélst
þannig til hálfleiks. í seinni
hálfleik hélt baráttan áfram.
Liðin skiptust á að gera harða
hrið að marki hvors annars,
Hamarsmenn staðráðnir að
halda forystu en Tindstælingar
aðjafna metin.
Þegar klukkan var komin 4
mínútur fram yfir venjulegan
leiktíma átti Halldór Jón (
Donni ) fast skot á markið af
töluverðu færi sem markvörður
Hamars náði ekki að halda og
boltinn fór í markið. Tindastóll
jafnaði leikinn 1-1 og urðu það
lokatölur leiksins.
Hvatarmenn lönduðu
þremur stigum á
Egilsstöðum
Hvatarmenn gerðu góða
ferð austur á Egilsstaði um
helgina er þeir sóttu
Hattarmenn heim.
Hvöt hafði betur í viðureign
þeirra en þeir skoruðu tvö
mörk gegn einu marki
heimamanna. Hvöt var fyrir
leikinn í neðsta sæti en með
sigrinum hífðu þeir sig upp í
það ellefta með jafnmörg stig
og Hamar, sem er í því tíunda
en með betra markahlutfall.
Hattarmenn komust yfir eftir
15 mín. leik effir hornspyrnu
þar sem Vilmar Freyr Sævarsson
náði að pota boltanum inn og
skoraði fyrsta mark leiksins.
Skömmu síðar komst Hvöt í
sókn og Bjarni Pálmason átti
sendingu inn fyrir vörn Hattar
á Mirnes Smajlovic sem lék á
Henrik Bödker í marki Hattar
og skoraði og jafnaði þar með
leikinn. Þegar um fimm
mínútur voru til leikhlés náði
Óskar Snær Vignisson að bruna
með boltann upp völlinn og
skoraði með skoti frá vítateig og
staðan í hálfleik 2 -1 fyrir Hvöt
og urðu það einnig lokatölur
leiksins.
Leik Hvatar og Hamars sem
fram fór á þriðjudagskvöldið
var ekki lokið þegar Feykir fór í
prentun ogþvi verður umfjöllun
um hann að bíða betri tíma. Sá
leikur átti að fara fram í vor en
var frestað vegna j arðskj álft anna
miklu á Suðurlandi.
Frjálsar íþróttir____________
UMSS féll um deild
43. Bikarkeppni FRÍ í frjálsum
íþróttum, 1. deild, fór fram á
Kópavogsvelli dagana 4. -5.
júlí.
Úrslit urðu þau að FH
sigraði í 15. sinn í röð og í 18.
sinn alls, hlaut 180,5 stig, en
síðan komu ÍR (156), Breiða-
blik (141,5), Ármann/Fjölnir
(125), HSÞ (109) og UMSS rak
lestina með 58 stig og fellur því
aftur niður í 2. deild. FH
sigraði einnig bæði í karla- og
kvennaflokki.
Heppnin var ekki með
okkar fólki um helgina en bæði
Meistaramót Golfklúbbsins
Óss á Blönduósi fór fram um
helgina í blíðskaparveðri.
Ágætis þátttaka var í mótinu
og ágætis golf leikið.
Sigurvegari í meistaraflokki
karla varð Jón Jóhannsson en
hann fór dagana þrjá á 245
höggum, annar varð Valgeir
Matthías Valgeirsson á 293
höggum og í þriðja sæti varð
Jón Árni Bjarnason á 327
höggum.
Ragnar Frosti Frostason og
Linda Björk Valbjörnsdóttir
urðu að hætta keppni á fyrri
degi vegna meiðsla.
Af úrslitum í keppninni má
nefna að Gauti Ásbjörnsson
sigraði í stangarstökki (4,40m).
Vilborg Jóhannsdóttir varð í 2.
sæti í kringlukasti (38,13m) og
3. í stangarstökki (2,75m), en
Vilborg keppti í 6 einstakl-
ingsgreinum og varð stigahæst
keppenda liðsins með 16 stig.
Halldór Örn Kristjánsson stóð
sig mjög vel og varð í 3. sæti í
400m grindahlaupi (59,54sek).
11. flokki karla varð Grímur
Rúnar Lárusson í fyrsta sæti á
322 höggurn, í öðru sæti varð
Ari Hermann Einarsson á 326
höggum og í því þriðja varð
Andri Kristinsson á 342
höggum. Hjá konunum sigraði
Guðrún Ásgerður Jónsdóttir á
263 höggum, í öðru sæti varð
Fanney Zophoníasdóttir á 301
höggi og í þriðja sæti varð
Jóhanna Guðrún Jónasdóttir á
311 höggum.
Markviss
Skotmenn
geraþað
enngott
Liðsmenn Skotfélagsins
Markviss á Blönduósi
kepptu um helgina á
afmælismótl Skotfélags
Akureyrar.
Brynjar Guðmundsson
hafnaði í 2. sæti í 3. flokki
og Guðmann Jónasson
varð í 2. sæti í 1. flokki
og hafnaði í 2. sæti á
mótinu öllu. Sigurvegari
mótsins varð hins vegar
Húnvetningurinn Hákon
Þór Svavarsson ættaður frá
Litladal (SFS) en Hákon
vann með yfirburðum og
náði nreistaraflokksárangri
114/125 og er hann eini
íslenski skotmaðurinn sem
náð hefur þeim árangri
síðastliðin 2 ár. Þess má
geta að ólympíulágmarkið
í greininni er einmitt
114/125.
Þá endaði fjórði Hún-
vetningurinn Guðlaugur
Bragi Magnússon í 4. sæti á
mótinu. Næsta mót verður
haldið á Blönduósi dagana
19. - 20. júlí.
Meistaramót Golfklúbbsins Óss
Meistarataktar
Ætlar að æfa meðan
skrokkurinn endist
Ragnar Frosti Frostason æfir
og keppir í frjálsum íþróttum
með UMSS í Skagafirði.
Sterkustu greinar Ragnars
Frosta er 400 m hlaup auk
þess sem hann hefur 200
metrana sem aukagrein.
Ragnar Frosti býrí Gautaborg
þar sem hann leggur stund á
mastersnám í hugbúnaðar-
verkfræði auk þess að æfa
fþrótt sfna við bestu mögu-
legu aöstæður.
Hvað æfir þú oft í viku? -6-9
sinnum eftir því hvaða tímabil er.
Árinu er skipt upp í ólík
æfingartímabil. Á sumrin þegar ég
ermikið að keppa þá æfi égsvona
þrisvar í viku, keppi tvisvar en hvöi
hina tvo dagana. Þá tek ég líka
léttari æfingar og huga frekar að
gæðum en magni.
Nú æfir þú fjarri félögunum
þfnum í UMSS, með hverjum
ertu að æfa? -Ég æfi með Ullevi í
Gautaborg við mjög góðar
aðstæður. Með mér æfa margar
stjörnur á sænskan mælikvarða
en þekktastur en á efa Christian
Olson heims- og ólimpíumeistari í
þn'stökki.
Hvernig er að koma frá Sauðár-
króki og fara að æfa með svona
nöfnum -Það er fínt, ég æfði með
Jóni Amari hér heima á sínum
tíma svo þetta em ekki mikil
viðbrigði fyrir mig.
Hver er besti árangur þinn á
árinu? -Innanhús er það 48,82 í
400 sem er persónulegt met,
bætti meira að segja utanhús
árangur minn með þessum tíma.
Hins vegar hef ég verið óheppinn
með meiðsli þetta árið og því lítið
getað keppt.
Hvaða mót eru framundan?
-Bikarkeppnin og síðan
meistaramót í lok mánaðar. Ef ég
verð heill stefni ég síðan á að fara
á mót til Hollands, Finnlands,
Englands og Þýskalands en það
fer allt eftir meiðslunum.
Hvað stefnir þú á að halda lengi
áfram í frjálsum ? -Eins lengi og
líkaminn helst heill, alla vega fram
yfir þntugt. Ég er að æfa með einni
núna sem er þntug og hafði verið
meidd í þrjú ári. Hún hefur aldrei
verið sterkari en nú og er því hetjan
mín í dag. Þetta er langt frá því að
vera búið og svo lengi sem ég hef
gaman að þessu þá held ég
áfram. Um leið og maður hættir að
hafa gaman af íþróttinni er þetta
búið.
Hvað með mataræði og lífsstil?
-Það snýst allt í kringum íþróttina,
maður leyfir sér stundum að éta
pizzu en heildarpakkinn verður að
vera réttur. Allt er gott í hófi eins og
maður segir. En þegar æfingar eru
stífar er mikilvægt að borða rétt og
fá inn frá öllum næringarflokkum
annars fer allt fjandans til.
Verður þú eitthvað hér heima í
sumar? -Nei, bara þessa þrjá
daga ogsíðan eru það alltaf jólin.
Hvað með önnur áhugamál er
tími fyrir þau? -Nei, ekki meðan
ég er í námi til fjögur á daginn og
síðan á æfingu til níu, eftir það em
bæði dagurinn og ég búnir.