Feykir - 10.07.2008, Blaðsíða 15
27/2008 Feykir 15
ÚR ELDHÚSI LESENDA )
Margeir og Sigurlaug kokka
Ef allt klúörast þá er líka
fljótlegt aö panta pizzu
Það eru þau Margeir Frióriksson ogSigurlaugValgarðsdóttir
sem bjóða lesendum upp á létta og fljótlega sumarrétti
í uppskriftum vikunnar. Þau skora á Árna Egilsson og
Þórdfsi Þórisdóttur að sjá um næsta þátt.
Sjávarréttasinfónía
30 gr. smjör
1 stk. laukur
5-6 stk. pressuð hvítlauksrif
200 grömmferskir sveppir
1 stk. fiskiteningur
Svarturpipar eftir smekk og
smá salt.
500 gr. hörpudiskur
300 gr. rœkjurfrá Dögun ehf.
1 stk. lítil dós afkrœklingi
1 -2 matskeiðar sítrónusafi
'A Itr. rjómi
Laukur, hvítlaukur og sveppir
sneiddir niður og brúnaðir á
pönnu. Rjómanumogfiskikrafti
bætt við. Sítrónusafinn kreistur
yfir fiskinn. Hörpudiskurinn
settur út í og látinn malla i
ca. 2-3 mínútur. Að síðustu
kræklingurinn og rækjurnar,
sem á aðeins að hita í gegn
en ekki sjóða. Kryddið með
salti og pipar. Má þykkja með
sósujafnara ef vill.
Þetta er borið fram með
ristuðu brauði.
Saltfiskur með
papriku og
þistilhjörtum
800 gr. saltfiskshnakkar,
útvatnaðir og roðlausir
300 gr. (ein krukka)
niðursoðin paprika í tómat
frá SACLA
250gr. (ein krukka) niður-
soðin þistilhjörtu frá
SACLA
50 gr. bergmynta
(ferskt oregano)
3 stk. hvítlauksgeirar
1 dl. ólívuolía
1 dl. japanskur brauðraspur
(Panko raspurfrá Blue
Dragon)
Svartur pipar
Skerið saltfiskinn í sneiðar.
Kreistið hvítlaukinn yfir og
piprið. Bætið ólívuolíunni og
Panko raspinum saman við og
steikið á heitri pönnu. Sigtið
paprikuna og þistilhjörtun, saxið
gróft og setjið í stóra skál ásamt
saltfiskinum. Saxið bergmyntuna
yfir og blandið öllu saman.
Berið fram með góðu salati
t.d. klettasalti, tómötum, ólívum
og fetaosti. Gott er að hafa
hvítlauksbrauð með þessum
rétti.
Ferskur
ávaxtaréttur
Ferskir ávextir: Ananas, vínber
(rauð og græn), jarðarber,
bláber, melóna osfrv.
Ávextirnir brytjaðir í hæfi-
lega bita og blandaðir saman í
stóra skál. Flott að skreyta með
laufinu á ananasnum. Skerið
toppinn af ananasnum sem er
með laufinu á og setjið í miðja
skálina og brytjaða ávextina í
kring.
Sósa:
2 msk. púðursykur
2 msk. súkkulaðispœnir
2 msk. sýrður rjómi
2 msk. þeyttur rjómi
Leki afGrand Mariner líkjör
(má sleppa)
Allt hrært saman.
Ef allt klúðrast þá er líka fljótlegt
að panta pizzu.
( GUOMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 479
Endurvinnslustefna var mjög svo óvœnt
tekinn upp á Feyki í liðintti viku og var
því birtur aftur vísnaþáttur 470 í stað
þáttar númer 479. Eru lesendur beðnir
velvirðingar á þessum mistökum utn leið
og hinn rétti þáttur er birtur.
Heilir og sælir lesendur góðir.
Ætla mætti að dauft hafi verið yfir
mannlífi í Mývatnssveit þegar Þura í
Garði orti svo:
Einu hvísla égað þér
engutn máttu segja.
Enginn vildi una mér
ein má lifa og deyja.
Það mun hafa verið sá ágæti hagyrðingur,
Sigurður Óskarsson bóndi í Krossanesi í
Skagafirði, sem sendi kunningja sínum
svo ágæta afmæliskveðju:
Á nœsta leiti ellin er
afmors hvatir dvítta.
Sextugum égsendi þér
samúðarkveðju mína.
Þegar okkar ágæti Dúddi á Skörðugili
varð sjötugur, sendi Sigurður honum
þessa fallegu kveðju:
Þú ert ekki vinur gugginn négrár
gcefatt þérflest eftir lét.
í sambúð við lífið í sjötíu ár
þú sett hefur íslandsmet.
Þegar Sigurður átti á efri árum við
vanheilsu að stríða, orti hann:
Ég er með gigt ogget ekki riðið
þó góðhestur með tygjum standi.
Síst vil ég inn um sáluhliðið
þið sjáið tnig koma fótgangandi.
Þegar brá til betri tíðar með heilsufarið,
orti Siggi þessa:
Nú er gigtin gengin hjá
get égdrukkið, riðið
góðhestinum glaður á
gegnum sáluhliðið.
Þá langar mig að leita til lesenda með
upplýsingar um höfund eftirfarandi vísu:
Hér er ekkert draugadót
dýrðlegsýn tiljarðar.
Breiða faðminn brögnum mót
byggðir Arnarfjarðar.
Aftur er freistandi að rifja upp skagfirskar
vísur. Það er Hallgrímur Jónasson
kennari, sem hugsar til æskuáranna og
yrkir svo snjallar hringhendur um þær
hugleiðingar:
Hlógum, sungum, lékum listir
Ijóð aftunguflugu snör.
Hugir ungir, örir, þyrstir
öllutn drunga viku úr fór.
Létum harma flesta flýja
fyllti barma gleðin heið.
Ykkar vartna vinahlýja
varpar bjarma á mína leið.
Ein vísa í viðbót eftir þennan skagfirska
snilling, sem mun ort um samferðamann
á lífsleið, sem oft mun hafa verið seinn til
svars:
Eigi að merkja œttarslóð
undirlœgju kjörum,
lítið verður landi ogþjóð
lið i hálfum svörum.
Gaman að bregða sér næst í Borgar-
fjörðinn og heyra frá bóndanum á
Snartarstöðum, Helga Björnssyni. Spurði
hann þau tíðindi úr Reykjavíkurhreppi,
að yfirvöld þar hefðu látið þau boð út
ganga, að hreppsbúar hefðu sem bestan
aðgang að drykkjarhæfu vatni:
í Reykjavík vœnkastfer vist
nú verður þar búandifyrst.
Um borgina alla
skal brynningardalla
brúka effólk verðurþyrst.
Á vortímanum mun Helgi hafa ort þessa:
Efeinhver maður um migspyr
annar svarað getur.
Hann er að sjá hvað hrútarnir
hafa gert í vetur.
Einhverju sinni komst sú umræða á
kreik, að hafin væri framleiðsla á svo-
kölluðum fullnægingarpillum fyrir
konur. Orti þá Helgi:
Hjá konu efégfala aðfá það
fljótlega hlýt ég að sjá það
efhún töflu sérfær
og tístir og hlœr,
þá er vonlaust að minnast meira á það.
Verslun í Borgarfirði, sem bar nafnið
Puntstráið, auglýsti sérstaklega barna og
gluggatjaldaefni. Orti þá Helgi:
Puntstráið afbúðum ber
í boði er þar vörufjöldinn.
Sérstaklega auglýst er
efni í börn oggluggatjöldin.
I lok sláttar yrkir Helgi þessa staðreynd:
Úr því verður ekki bœtt
er það ný oggömul saga,
að þegar loks er heyskap hœtt
hangir þurrt í marga daga.
Guðmundur Einarsson, sem kenndur
var við Ytri-Ey, mun á ferðalagi hér fram
í dölum hafa ort svo:
Blöndudalur indœll er
ekki er því að neita.
Bœndur sumir búa hér
betur en til sveita.
Það er skáldið frá Eiríksstöðum, Gísli
Ólafsson sem er höfundur að næstu
vísu:
/ veðri geystu riðar reyr,
rósfœr breyst á kvisti.
En þú veist að aldrei deyr
ástarneistinnfyrsti.
Gaman að enda með þessari ágætu
hringhendu Gísla:
Drangey sett í saltan mar
sífellt mettar snauða.
Báran létta lagar þar
Ijóð um Grettis dauða.
Verið þar
með sœl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154