Feykir - 10.07.2008, Síða 16
Allir mættir á toppinn.
Þórdísarganga
Þórdís blessaði
gönguna með sól
Það var ekki mikil
fjallasýn þegar
Skagstrendingar nudduðu
stírurnar úr augunum á
laugardagsmorgun. Þoka
alveg niður í byggö.
En rétt eins og hendi
væri veifað, 15 mínútum
áður en fyrsta Þórdísarganga
menningarfélagsins Spákonu-
arfs átti að fara fram, leystist
þokan upp og sólin vermdi
hlíðar Spákonufjallsins, sem
skartaði sínu fegursta þennan
dag. Ætli Þórdís hafi ekki bara
verið að sýna velþóknun sinni á
þessari göngu henni til heiðurs.
Gangan tókst í alla staði vel og
var þátttaka einstaklega góð,
66 göngumenn héldu á fjallið
Elsti og yngsti þátttakandinn. Toppnum náð og útsýnið dásamlegt.
og allir náðu þeir toppnum
og komu heilir niður, fyrir
utan sólbruna og nokkur
minniháttar hælsæri.
Elsti fjallgöngugarpurinn
var 74 ára og sá yngsti 4 ára.
Ólafur Bernódusson var
leiðsögumaður í ferðinni og
fólst honum það frábærlega
vel úr hendi, enda góður
sögumaður og kann frá mörgu
að segja. Að göngu lokinni var
vel þegið að fá góðar veitingar
í golfskálanum og láta líða úr
sér.
Dagurinn frábær í alla
staði. Allir fengu sérstaka
viðurkenningu fyrir afrekið
og fóru sáttir og sælir heim.
Næsta ganga verður farin á
Kántrýdögum þann 16 ágúst.
n.k.