Feykir - 13.11.2008, Blaðsíða 8
8 Feyklr 43/2008
( TÖLVUPÓSTURINN )
Menningarráð Noróuriands vestra úthlutaði í lok október
verkefnastyrkjum til fjölmargra aðila sem hafa eða hyggjast setja
upp menningartengda atburói á Noróurlandi vestra. Alls fengu 33
aöilar styrki og var heildarupphæö þeirra 18.85 milljónir. Feykir
sendi styrkþegum spurningar í tölvupósti og forvitnaóist um hvað
þeir hafa á prjónunum.
Sögusetur íslenska hestsins
Arna Björg Bjarnadóttir tekur við styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra.
> >
Hvað nefnist verkefnið?
Sögusetriðfékkstuðningfyrir
tveimur verkefnum, annars
vegar til að koma upp
stafrænu Ijósmyndasafni
um hestinn og hins vegar
vegna myndbandsgerðar
um Skagfirðinginn Þormóð
Eiríksson, en svo nefndist
leikþáttur sem Sögusetrið
setti upp á Tekið til kostanna
sl. vor.
Hverjir standa að verk-
efninu? Sögusetur íslenska
hestsins stendur að báðum
þessum verkefnum. Það
voru þó fjölmargir aðilar sem komu að leikþættinum
um Skagfirðinginn Þormóð, en kvikmyndun og klipping
var í höndum Viggó Jónssonar. Þess má geta að
myndbandið má nálgast á Fótagerðastofunni Tánni og
á Sögusetrinu.
Hvers eðlis er verkefnið? Uppsetning á stafrænu
Ijósmyndasafni um ísienska hestinn er gríðarlega
viðamikið verkefni og er hluti af enn stærra verkefni sem
ersöfnun ogskráning margvíslegra heimilda um íslenska
hestinn. Við uppsetningu á stafræna Ijósmyndasafninu
felst að safna, skanna, skrá og varðveita hestatengdar
Ijósmyndir í sérhæfðum gagnabanka. Haustið 2009 er
ráðgert að gera gagnabankann aðgengilegan almenningi
á Internetinu. Einkaaðilar hafa þegar fært Sögusetrinu
ómetanleg Ijósmyndasöfn sem mikil vinna er framundan
við að vinna úr. í framtíðinni eigum við von á að fleiri
sjái gildi þess að varðveita hestatengdar Ijósmyndir á
Sögusetrinu, eða a.m.k. afrit af myndunum.
Ljósmyndir eru oft á tíðum eina heimildin sem til
er um hina ýmsu hestatengda viðburði. Þær lýsa
vel þróun keppni, reiðmennsku, ásetu, reiðtygja og
reiðfatnaðar. Einnig sýna þær feril plmargra góðhesta
og keppnisfólks. Ljósmyndir endurspegla þannig þróun
þeirrar menningar sem átt hefur sér stað í kringum
íslenska hestakynið síðasta árhundraðið. Ljósmyndirnar
gefa því tilefni til margskonar rannsókna, fræðslu- og
sýningastarfs.
Hvenær hefst verkefnið og hvenær líkur því?
Undirbúningur að stafræna Ijósmyndasafninu um
íslenska hestinn hófst í lok árs 2007. Hér er vonandi
um framtíðarverkefni að ræða, enda afar mikið til
af Ijósmyndum tengdum hestinum sem leynast í
fjölskyldualbúmum eða ofan í skúffu. Myndbandið um
Skagfirðinginn Þormóð, hans góðglaða föður og hrútinn
Kobba lifir vonandi áfram þó svo að verkefninu sé
formlega lokið.
Hversu háa fjárhæð fékk verkefnið frá Menningarráði
Norðurlands vestra? Stafræna Ijósmyndasafnið fékk
1.500.000 kr. og myndbandsgerðin 100.000 kr.
stuðning.
Hversu miklu máli skiptir það verkefnið að hafa
fengið úthlutað styrknum? Stuðningur Menningarráðs
skiptir öllu máli, sérstaklega stóri styrkurinn vegna
Ijósmyndasafnsins. Sá styrkur gerir setrinu mögulegt að
ráðast í verkefnið af fullum þunga, a.m.k. tímabundið,
en við réðum á dögunum starfsmann til verksins, Þóreyju
Helgadóttur. Hún vinnur hörðum höndum þessa dagana
við að skanna og skrá Ijósmyndir í gagnabankann. Það er
von okkar að við náum inn fleiri styrkjum annars staðar frá
til að halda verkefninu áfram sem og öðrum mikilvægum
verkefnum setursins.
Ég vil bæta því við, að ég tel afar áríðandi að hið opinbera
haldi áfram að stýra prmunum í sjóði sem starfræktir eru
heima í héruðunum. Það hefur aldrei verið jafnt mikilvægt
og nú að vökva iitlu sprotafyrirtækin og menningarlífið.
Eru önnur verkefni á teikniborðinu? Já, við erum með
ótæmandi lista af spennandi verkefnum sem ég hef
trú á að geti haft talsverða þýðingu fyrir samfélagið,
sérstaklega ferðaþjónustuna og ímynd hestsins hvort sem
er hér á svæðinu eða íslandi í hinu alþjólega samhengi.
Stærsta verkefnið framundan er að koma upp fastri
yfirlitssýningu um íslenska hestinn. Ég er einmitt á leið til
Bandaríkjanna til að kynna mér ólíkar hestasýningar og
funda m.a. með sýningahönnuðum (American Museum
of Natural History í New York. Þessi ferð var vitanlega
bókuð fyrir kreppu. Nú þá höldum við fræðslustarfinu
áfram og vindum okkur beint úr nýafstöðnu Hrossablóti,
í önnur viðfangsefni. Síðar í vetur stendur setrið fyrir
ráðstefnu um Sauðárkrókshrossin, málþingi um járningar
á 20. öld og sitthvað fleira. Fljótlega uppúr áramótum
förum við síðan að undirbúa sýningu til að setja upp á
heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Sviss. Þá erum
við í margskonar samstarfsverkefnum og t.d. í fleiru
en einu á sviði ferðamála sem vonandi kemur eitthvað
spennandi út úr. Auk þess emm við að ráðast í stór
rannsóknaverkefni í samvinnu við Hólaskóla ofl., sem eru
afar mikilvæg undirstaða fyrir föstu yfirlitssýninguna sem
og annað fræðslu- og sýningastarf. Framvinda allra okkar
verkefna er þó háð styrkjum, því ekki viljum við nú stofna
til skulda.
á
Upp úr síóustu áramótum hófst á Blönduósi
framleiðsla á kryddum, kryddblöndum og
bökunarvörum eins og hjartasalti o.þ.h. undir
vörumerkinu Prima en þaö er Vilko sem er eigandi
Prima og er Prima rekið sem sjálfstæð deild innan
þess fyrirtækis. Allar uppskriftir, vélar, tæki,
viðskiptasambönd, og lager hráefna og fullunninna
vara var keyptur af Tindafelli í Kópavogi skömmu
fyrir síðustu áramót. Starfsmenn eru tveir þeir
Þórarinn Gestson og Guómundur Sveinsson
framleiðslustjóri.
Fyrirtæki vikunnar
Prima krydd á
Blönduósi í nýtt
og betra húsnæði
Framleiðslunni var fundinn
staður í gamla bakaninu á
Blönduósi til að byrja með
og þar hófst strax mikil
vinna við að framleiða upp
í pantanir sem lágu fyrir.
En nú hefur starfsemin verið
flutt í nýtt húsnæði sem byggt
var við það hús sem hýst hefur
Vilko fram að þessu. Aðstaðan
verður mun betri í nýja
húsnæðinu bæði hvað varðar
við framleiðslu eða lagerpláss en
sömu vélar verða notaðar áfram
við framleiðsluna. Framleiddar
eru um 90 tegundir af kryddi og
er því pakkað bæði í lítil glös
fyrir neytendamarkað svo og í
stærri umbúðir fyrir stóreldhús.
Kaupin á Prima eru liður í því að
efla starfsemi Vilko og til þess að
renna traustari stoðum undir
þann rekstur með því að fara
inn á fleiri svið. O Johnson og
Kaaber sér um dreifmgu á
kryddinu svo og á öðrum vörum
Vilko.
Guðmundur Sveinsson fram-
leiðslustjóri segir að fram-
leiðslustoppið hafi einungis
varað í níu daga meðan verið
var að færa tækin á nýjan stað og
lagerinn var orðinn lítill. -Það
er svo sem gott að eiga lítinn
lager og sitja ekki uppi með
vörur sem eiga að fara á markað,
segir Guðmundur. -Aðalmálið
er að koma sér í nýtt húsnæði
með betri aðstöðu en vélarnar
eru ekki alveg nýjar en duga vel.
Framundan verður mildð að
gera við að koma lagernum í
stand og nú þegar liggur inni
pöntun upp á milli tíu og
fimmtán þúsund kxyddglös.
-Primakrydd framleiðir
hefðbundnar kryddblöndur
sem falla sérstaklega vel að
lcröfum íslenskra neytenda. Við
seljum kryddin í öllum búðum
um land allt og ég veit ekki betur
en að allir séu ánægðir. Flestar
tegundir af kryddinu fara jafnt
út allan ársins hring en sumar
tegundir taka kipp árstíðar-
bundið. Nú fyrir jólin fara
bökunarvörurnar mest, lamba-
og svínakjöt um Páska,
grillkryddið á sumrin og í haust
seldum við mikið af rúllu-
pylsukryddi sem eðlilega
kannski selst ekki mikið á
£ 5 ]fl TTIenningarráð
■ I II Norðurlandsvestra