Feykir - 27.11.2008, Qupperneq 5
Katrín María Andrésdóttir, atvinnuráögjafi hjá SSNV
Prjónar og heklar
tækifærisgjafir
Katrín María hefur sfóustu vikur
og mánuði dundað sér við að
prjóna og hekla gjafir handa
vinum og ættingjum. Dúkar,
sokkar, morgunskór og bjöllur
utan um seríur er á meðal þess
sem hún töfrar fram og gleður vini
og ættingja með jafnt sem jóla-,
afmælis- og tækifærisgjafir.
Þegar blaðamann bar að garði var
Katrín María í óða önn við að ganga
frá innflutningsgjöf til ffænku sinnar
en gjöfin var rauður heklaður dúkur,
glasamottur og heklaðar bjöllur utan
um jólaseríu. Ég dáist um stund af
handverkinu um leið og ég tjái Katrínu
Maríu að þetta gæti ég aldrei gert. -Jú,
víst, er svarið og því fylgir bros. -Ég sjálf
er skýrasta dæmi um að þetta geta allir.
Handavinnukennararnir mínir myndu
örugglega ekki trúa því að ég væri að
gera þetta í dag, ég geri ráð fyrir því að
þeir veltist um af hlátri ef þeir rekast á
blaðið. Mér gekk illa að læra handavinnu
á sínum tíma og hafði
engan áhuga. Man meira
að segja eftir tilviki þar sem
ég samdi við ömmu mína
um að ég skyldi elda fyrir
hana kjötbollurnar ef hún
prjónaði í skyldustykkinu
fyrir mig, rifjar Katrín
María upp.
En hvað skyldi hafa
breyst? -Ég er svo heppin
að hafa á fúllorðinsárum
umgengist handverksfólk
sem ég hef lært af. Bæði
samstarfskonur mínar
í Ráðhúsinu, Upplýs-
ingamiðstöðinni og eins
úr fjölsk)'ldu og vinahópi.
Katrín María segist nota
tímann yfir sjónvarpinu og
langa fundi til þess að grípa
í hekl og prjón. -Þetta er
fyrir mér bara hluti af því
að slappa af en vera samt að
nýta tíma sem annars hefði
ekki nýst. Það er til dæmis mjög gaman
að sitja yfir kaffibolla og spjalli með
prjónana í hönd og vera svo kannski
þegar spjalli lýkur, búin með heilan sokk
líka.
Aðspurð segist Katrín María aldrei
hafa verið litin hornauga af karlmönnum
þegar hún notar fúndartíma til
handavinnu heldur þvert á móti sýni þeir
þessu áhugamáli hennar mikinn áhuga.
-Mér er minnisstæður fundur þar sem
ég var að hekla bjöllu utan um seríu en
á fundinn sátu margir sveitarstjórnar-
menn á Norðurlandi vestra. Þeir sýndu
þvi sem ég var að gera mikinn áhuga og
spurðu ýmissa spurninga, fóru jafnvel
út í tæknileg atriði eins og hvort ekki
gæti nú kviknað í garninu þegar það
væri komið utan um seríuna, hvernig
ég ætlaði að láta þetta tolla og fleira.
Þannig finn ég eiginlega meiri áhuga en
hornauga -enda eru ekki allir íslendingar
vanir einhverju handverki?, spyr Katrfn
María að lokum.
Þröstur á Eyrinni er jólaljósabarn
3000 perur í garöinum
Þröstur Jónsson, í versluninni Eyri,
er mikið jólaljósabarn eins og
hann orðar það sjálfur en um jólin
f fyrra loguðu eitthvað f kringum
3000 perur í garðinum hjá honum
auk ýmissa ffgúra. Jólablaðið
Feykir spurði Þröst út í þetta
skemmtilega áhugamál.
Aðspurður um hvort áhugamálið sé
nýtilkomið vandamál segir
Þröstur að hann líti ekki
á þetta sem vandamál, alla
vega ekki enn sem komið
er. -Ég hef gaman að þessu
bæði að skreyta sjálfúr og
eins að skoða jólaljósin
annarsstaðar. í fyrra var ég
með eitthvað um 3000 ljós
í garðinum hjá mér en ég
veit ekki hvað ég geri í ár.
En vaninn er að bæta alltaf
einhverju við á hverju ári.
Hvað var það sem kveikti
þennan áhuga hjá þér? -Ég veit það
ekki en mér hefúr alltaf fúndist þetta
flott og marglit Ijós finnast mér flottust.
Til viðbótar við ljósin er Þröstur með
einhverjar fígúrur í garðinum og síðan
eyddi hann heilli helgi í að búa til skilti
utan á garðskúrinn sinn sem stendur
með ljósum Gleðileg jól. -Ég fór niður
í Nýprent og lét útbúa filmu sem stóð
á Gleðileg jól og síðan festi ég hana á
krossvið og boraði og stakk perum í
gegn. Það eru um 200 perur í skiltinu.
Hvað með aðra fjölskyldumeðlimi,
taka þeir þátt í þessu með þér? -Já
oftast gera þeir það nú, krökkunum
finnst sérstaklega gaman að hjálpa til við
ljósin. Enda er þetta hátíð þeirra.
Þröstur segir að nágrannar hans
séu liðtækir í skreytingunum en þó
sakni hann þess að sjá ekki fleiri ljós í
garðinum hjá Gísla i Tengli. Maðurinn
sé nú einu sinni rafvirki. Hann skorar á
hann að bæta við ljósin þetta árið.
Hvað með annan jólaundirbúning,
telcur þú jafn mikinn þátt í honum?
-Já, ég reyni að gera það án þess þó að
eiga þar eitthvað sérstakt hlutverk, ég er
meira svona í að hjálpa til.
Bakar þú? -Nei ég geri það ekki og er
yfir höfúð ekki svo mikið fýrir kökurnar,
meira fyrir jólamatinn sjálfan. Nema
þá einna helst
____— 5
.1». i* it** • * * ; •*' *
rl'. -TriU •
,,,
kornflexkökurnar.
Þröstur er nú þegar farinn að taka
niður kassana með skreytingunum og
farinn að huga að því hvað er í lagi og
hvað ekki. Fyrstu ljósin koma síðan upp
núna um helgina. Það er að því gefnu að
ekkert komi upp á.
i UPPSKRIFTIR )
teGHJ1
4dl. hveiti vanilludropar
1 tsk. natron 4 dl. haframjöl
200 gr. smjörlíki 2 dl. kornflex
2dl. sykur 2 stk. egg
2 dl. púðursykur 1 V2 tsk. 2 dl. kókosmjöl