Feykir - 27.11.2008, Blaðsíða 23
23
Jólablaóið leitaói eftir uppskriftum úr smiðju
kvenfélagskvenna á Noróurlandi vestra
■ '
★*, ★
* ★*
JÓIiMM
Hnallþórur aó hætti
kvenfélagskvenna
Það er fátt íslenskara
og betra vil ég leyfa
mér að segja, heldur en
kaffihlaðborð að hætti
kvenfélaganna. Hnallþórur
sem búnar hafa verið tii
af umhyggju ást og stolti
sem ekki fæst keypt fyrir
peninga. Sortir sem við
vorum að mestu hætt
að sjá nóg og oftar en
ekki meira en nóg af öllu.
Jólablaðið fékk fjögur
kvenfélög á Norðurlandi
vestra til þess að gefa
okkur hinum uppskriftir af
hlaðborðinu.
KVENFÉLAG
SKARÐSHREPPS
Sherryterta &
ömmuvöfflur
Fyrir hönd Kvenfélags
Skarðshrepps er það Sigrún
Aadnegard vert í Ljósheim-
um og húsfreyja að Bergs-
stöðum sem býður upp á
uppskriftirnar.
Kvenfélag Skarðshrepps
er eitt af þessum virku kven-
félögum og eru jólahefðir
félagsins margar og ríkar.
Jólatrésskemmtunin er
árviss, kaffihlaðborð að
lokinni aðventumessu, litlu
jól kvenfélagskvennanna og
föndurkvöld eru eins árviss
atburður og sjálf jólahátíðin.
í ár ætla konurnar síðan
að læra að gera konfekt og
kransatoppa, fróðleikinn sækja
þær í smiðju hverrar annarrar.
Sherryterta
meðfromage
Botn:
4 eggjahvítur
200 grsykur
200 gr saxaðar hnetur
1/2 tsk. lyftiduft
Eggjahvíturogsykurþeyttvel saman.
þurrefnunum blandað út í. Sett í
springform sem er 27 cm. í þvermál
- áður er formið smurt vel og hveiti
stráð í það. Bakað í 45 mínútur við
180 gráður. Botninn bleyttur með
sherry.
Sherry fromage
4 egg
5 msk. sykur
3 msk. sherry
6 blöð matarlím
1/21 rjómi
1 pakki möndlumakkarónur
Eggin þeytt með sykrinum. Rjóminn
þeyttur. Matarlímið brætt í 3 msk.
sherry. Kælt aðeins og sett út í
eggjahræruna. Þeyttum rjómanum
bætt út í. Möndlu-makkarónurnar
bleyttar með sherry og settar út í
hræruna.
Þegar kakan hefur kólnað er hún sett
á disk og hringurinn utan af forminu
settur ofan á. Þá er hrærunni hellt
ofan á botninn. Þegar þetta hefúr
stífnað er skreytt með marsipani og
rjóma.
Brauðterta með
sjávarfyllingu
Langskorið brauð, 3 lög.
Fylling:
6 hökkuð harðsoðin egg
340 gr. rækjur
100 gr. reyktur lax í teningum
1 dl. sýrðurrjómi
100 gr. majones
1/2 dl. fínt saxaður blaðlaukur
1/2 dl. fínt klippt ferskt dill eða 1/2
tsk. þurrkað
Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Öllu blandað saman og sett á milli
botnanna - 2 lög (eflögun tertunnar
gerir hana stóra þá þarf að stækka
fyllinguna) skreytt með eftirfarandi:
200 gr. majones
1 dl. sýrðurrjómi
500 gr. rækjur
1-2 msk. rauður eða svartur kúlu-
kavíarfsá svarti kemur betur út með
rækjunni)
Aðferð: Öllu blandað saman nema
kavíarnum hann er hristur mjög
varlega saman við í lokin því
annars springur hann. Skreytt t.d.
með laxarósum, tómatrósum og
gúrkuslaufum.
Ömmu vöfflur
(rósettur)
1-2 egg
1 msk. sykur
1 tsk. salt
1 bolli hveiti
1 bolli mjólk
2 msk. pilsner eða öl
Kvenfélagið Vaka á Blönduósi
bíður upp á uppskriftir
að hætti Bergþóru Hlífar
Sigurðardóttur. Vökukonur
halda ekki jólatréskemmtun
né gera neitt sérstakt fyrir
jólin nema hvað þær fara
saman út að borða og
eiga huggulega stund á
aðventunni. Á þorranum sjá
þær síðan um þorrablótið
á Blönduósi auk þess sem
þær funda einu sinni í
mánuði. Vökukonur héldu
með glæsibrag upp á 80 ára
afmæli félagsins fyrr á árinu.
Hnallþóra með
Snickers- og
peruívafi
2 stk. púðursykurmarengsbotnar
1 stk. svamptertubotn
Uppskrift af marengs
4 eggjahvítur
2 dl. púðursykur
1 dl. sykur
Allt þeytt vel saman, bakað sem
tveir botnar og í annan botninn er
sett saman við blönduna 2 dl. af
rice krispies. Bakað við 130 gráður í
einn og hálfan tíma.
Svamptertubotn
2 egg
100 gr. sykur
Þetta þeytt vel saman. Sigtað og sett
varlega saman við eggjahræruna.
35 gr. hveiti
Egg, sykur og salt þeytt saman.
Þurrefnunum og vökvanum blandað
út í. Bakað með rósettujárni í heitri
feiti. Borið fram með einhverju góðu
ávaxta eða rækjusalati.
E.S. Rósettujárn eru trúlega víða
til í eldhúsum hjá ömmum okkar
auk þess sem hægt er að kaupa þau
í verslun Þorsteins Bergmanns á
Skólavörðustíg.
35 gr. kartöflumjöl
1 tsk. lyftiduft
Smá vanilludropar.
Bakað í um það bil 25 mínúturvið
190 gráðu hita.
Samsetning á kökunni
Fyrst er púðursykurbotn settur
á fat, þessi sem er ekki með rice
krispies. Ofan á hann er settur 3,5
dl. þeyttur rjómi sem búið er að
brytja saman við 1 - 2 Snickers,
magn fer eftir smekk.
Næst er svamptertubotninn
settur ofan á kökuna og þar ofan
á 3,5 - 4 dl. þeyttur rjómi og hálf
dós niðursoðnar perur. Efst kemur
siðan marengsinn með rice krispies
Krem ofan á kökuna:
2 Snickers og smá smjör brætt
saman ípotti
4 eggjarauður og 3 msk. sykur
þeytt vel saman.
Súkkulaðið látið kólna lítillega og
síðan öllu blandað saman og sett
ofan á kökuna sem að lokum er
KVENFÉLAGIÐ BJÖRK
Á HVAMMSTANGA
Báru bomba
Kvenfélagið Björk á Hvamms-
tanga teflir fram uppskrift
úr smiðju Ragnheiðar
Ekta góð rjómaterta
4 egg
200 gr. sykur
75 gr. hveiti
75 gr. kartöflumjöl
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanilludropar
Egg og sykur þeytt mjög vel saman.
Þurrefnin sigtuð saman og blandað
varlega saman við. Sett í tvö
tertumót ca. 26 cm. stór og bakað
í um það bil 25 mínútur við 190
gráðu hita.
Á milli eru settir blandaðir ávextir
úr dós, makkarónukökur og um það
bil 4 dl. þeyttur rjómi. Botnarnir
eru bleyttir aðeins með safanum
úr ávaxtadósinni. Makkarónurnar
muldar og blandað saman við
ávextina og rjómann. Allt sett ofan
á annan botninn og hinn ofan á.
Tertan smurð að utan með þeyttum
rjóma og síðan skreytt fallega með
rjómasprautu, kokteilávöxtum,
súkkulaði eða skrautsykri.
■ KVENFÉLAGIÐ VAKA Á BLÖNDUÓSI
DTO
skreytt með berjum eða að vild.
L