Feykir


Feykir - 27.11.2008, Blaðsíða 16

Feykir - 27.11.2008, Blaðsíða 16
16 Jófebli»*.v;V*' Jólin hans afa : Jólasaga úr æsku Axels Þorsteinssonar frá Litlubrekku Þegar trölliö kom Ég vaknaði við jafnar og taktfastar strokur þvottarins á stóra glerbrettinu. í draumnum sem enn var Ijós í huga mér hafði þetta verið gjálfur öldunnar við fjöruna þar sem við lékum okkur systkinin. Draumurinn hlaut að eiga rætur í liðnu sumri því nú var vatnið hulið þykkri íshellu og vatnsbakkarnir upp frá fjörunni ákjósanleg sleðabrekka. Það var aðfangadags- morgunn. Nú voru jólin að koma, nú voru þau loksins að koma. Það var ennþá dimmt en ljósið frá eldhúsinu þrengdi sér gegnum rifur á hurðinni og mynduðu eins og mjó strik á veggnum andspænis. Nú var ekki þörf að kúra lengur undir sænginni og bíða þess að hlýnaði inni. Faðir minn hafði farið snemma á fætur og kveikt móeldinn í stóru eldavélinni. Nú var orðið hlýtt og notalegt inni. Ég settist upp og klæddi mig, fýrst í kotið, síðan sokkana sem náðu vel upp fyrir hné. Þá stuttbuxurnar og skyrtuna. Þá var að hneppa sokkaböndum og axlaböndum og loks fór ég í leistana og peysuna og gekk fram í eldhúsið. Móðir mín laut yfir stóra trégirta eikarbalann og nuddaði tauið á glerbrettinu. Við hverja stroku færði hún litla visk af tauinu upp í greip sína uns komið var á enda. Þá var að snúa því og nudda hinum megin, síðan að vinda hvert stykki milli handa sér og færa yfir í stóra pottinn á eldavélinni þar sem þvotturinn var soðinn. Síðan var hann veiddur upp úr suðunni með þvottaprikinu yfir í litla balann og undinn aftur. Þá var eftir að skola hann í læknum og loks að þvo í læknum, bláma hann og hengja út á snúru ef veður leyfði. Áreiðanlega þyrfti þessi þvottur að vera orðinn þurr í kvöld. Ég horfði á móður mína keppast við þvottinn. Yrði nú allt tilbúið í kvöld þegar jólin kæmu? Gæti ég ekki hjálpað eitthvað til? Þá yrði tíminn fljótari að líða: „Mamma! Á ég að þvo í læknum, ég held ég geti það alveg“. „Jæja góði minn. Þú mátt reyna“. Hún bætti köldu vatni í litla balann og vatt tauið upp úr suðunni milli handa sér í fötu sem hún fékk mér: „Gættu þess vel að missa ekki þvottinn undir ísinn. Leggðu hann svo á hreinan snjó, þá sígur fljótt úr honum mesta vatnið. Svo lætur þú hann í fötuna og kemur með hann“. Svo komu jólin Áfram leið dagurinn, undur hægt. Þegar móðir okkar hafði lokið morgunmjöltunum, skilið mjólkina og þvegið öll mjólkurílát vandlega, var farið að þrífa. Því var þó að mestu lokið. Herbergin tvö sem við bjuggum í höfðu verið sandþvegin og nú voru panelþilin skínandi hvít og falleg. Eftir var þó ýmislegt smálegt í eldhúsinu. Allt skyldi vera hreint og sópað þegar jólin kæmu. Við vorum fjögur yngri systkinin, þrír bræður á aldrinum fjögurra til átta ára og systir tíu ára. Hún var leiðtogi þessa hóps í leik og starfi og fórst það ákaflega vel. Einu nafni vorum við nefnd: „litlu krakkarnir". Eitt sinn er rætt var um hvort við gætum unnið eitthvert ákveðið verk svaraði hún ákveðin: „Jú, við getum þetta alveg litlu strákarnir“. Þarna var engin kynjabarátta. En nú var að undirbúa jólin og við vildum hjálpa til. Móðir okkar kom þá með hnífaparaskúffuna og fægilöginn i bláa, fallega bauknum sem geymdur var uppi í háa skápnum. Hvert okkar fékk sinn klút. „Jæja nú skulið þið fægja þetta vel og vandlegá'. Við settumst og fægðum af kappi, líka sá yngsti. Móðir okkar og eldri systir þrifu og fægðu lampana. Það var mikið vandaverk þvi að ekkert mátti brotna eða bila. Ef lampaglas brotnaði á aðfangadag yrði ekki úr því bætt fyrr en eftir jól. Þá yrði einhvers staðar skuggi þar sem ljós átti að vera. En nú gekk allt vel. Einnig þrifu þær týrurnar og skiptu um kveik ef þurfti. Og jólin áttu líka að vera hjá kúnum og kindunum. Fjárhúslugtin var sótt og gamli lýsislampinn úr fjósinu. Hann var úr kopar og glóði nú eins og gull þegar búið var að fægja hann og setja í hann nýjan kveik úr fífunni sem sótt var út á mýrina í sumar. Svo var sett á hann hreint og tært lýsi. Það yrðu áreiðanlega jól hjá kúnum. Við lukum við að fægja hnífapörin og nú var komið hádegi. Nú hafði tíminn liðið hratt. Á aðfangadag var aðeins léttur hádegismatur, skyr og sneið af hinu eina sanna pottbrauði sem bakað var á löngum tíma, grafið í ösku frammi í hlóðum. Það þótti okkur öllu öðru rúgbrauði betra og því fylgdi væn sneið af nýstrokkuðu smjöri. Eftir matinn spurði móðir okkar hvort nú myndi ekki vera gott sleðafæri. „Jú, jú!“, hrópuðum við í kór. „Viljið þið ekki fara út og leika ykkur meðan bjart er. Veðrið er svo gott“. Við náðum okkur í húfu og vettlinga og þustum út. Við áttum saman lítinn sleða en á honum gátu aðeins setið tveir. Það vandamál leystum við þannig að tveir renndu sér en tvö biðu uppi á brekkunni og fóru næstu ferð. En nú var færið svo gott að við tókum hestasleðann. Á honum var nóg pláss fyrir okkur öll en hann var nokkuð þungur að draga upp brekkurnar. Þegar fyrstu kvöldstjörn- urnar birtust yfir fjallinu var kallað á okkur heiman frá bænum. Við rákum upp fagnaðaróp. Nú voru jólin að koma. Ég held við höfum gleymt þeim þegar leikurinn var glaðastur. Við hlupum heim, vissum þó hvað beið okkar fyrst. Þegar við komum inn í eldhúsið stóð stóri eikarbalinn á miðju gólfi og upp af honum stóð gufumökkurinn. Tvær elstu systurnar stóðu við balann og svo kom skipunin: „Úr fötunum, hverri einustu tusku“. Okkur fannst þetta fremur óvirðuleg athöfn og minnti nokkuð á þegar kindurnar voru baðaðar fýrr í vetur. Svo fór sá fyrsti í balann og nú var skrúbbað og þvegið. Stundum heyrðust skrækir og kvartanir frá balanum. Okkur þótti þær nokkuð harðhentar. Þegar sá fyrsti kom hvítþveginn úr balanum var hann vafinn í handklæði og sendur inn í miðbaðstofu. Þar var móðir okkar sem þurrkaði og lét hvert okkar hafa sín föt. Og nú komu jólagjafirnar. Allir fengu nýjar flíkur, fallega peysu og oft nýja sokka og vettlinga. Engar tvær peysur voru eins. Sumar voru með kaðlaprjóni, aðrar með garðaprjóni. Mynsturbekkurinn yfir brjóstið var með ýmsum hætti svo auðvelt var að þekkja þær í sundur. Aldrei minnist ég metings eða öfundar í þessu sambandi. Þetta yrðu sparipeysurnar okkar næsta ár og ég held að hverjum okkar hafi þótt sín flík fallegust. Við fórum líka í vettlingana, svona til að máta þá. Síðan hlupum við upp um hálsinn á mömmu og þökkuðum gjafimar og óskuðum gleðilegra jóla. Við höfðum haft svolítinn beyg af jólakettinum. Hann var hræðilegt dýr, klóraði og át jafnvel börn sem ekki fengu nýja flík á jólunum. En nú átti hann ekkert erindi við okkur. Hann gat sko bara verið heima hjá Grýlu. Við höfðum ekki mátt koma í stofuna síðan í morgun en nú opnaði móðir okkar og bað okkur að gá hvort jólin væru nú ekki bara komin þar. Við gengum inn en stoppuðum innan við dyrnar og strukum hönd yfir augu. Það var svo bjart og það var svo fallegt. Ef til vill skildum við nú betur sálminn sem sunginn var á jólunum: „Hvert fátækt hreysi höll nú er“. Stóri lampinn sem hékk yfir borðinu í gljáfægðri kopargrindinni lýsti svo mikið og fallega. Á miðju gólfi stóð jólatréð. Það var heimasmíðað, grænmálað og skreytt með eini sem eldri bræðurnir höfðu sótt upp í fjall. Öfugt við annan gróður er einirinn fallegastur á veturna og iðjagrænn. Noklcrar glitrandi kúlur héngu á greinunum og efst var falleg jólastjarna sem frænka okkar á Akureyri hafði gefið okkur. Einnig héngu á greinunum litlu bréfakörfurnar sem við höfðum brugðið fyrr í vetur. Hvert okkar átti sína körfu og í þær var jafnan látið eitthvað gott, t.d. 4-5 brjóstsykursmolar og svipað af súkkulaði. Þess var gætt að allir fengju jafnt en við máttum ekki kíkja í þær strax. Yfir jólatréð var svo lagður hjúpur af englahári. Á hverri grein stóðu kertin í ýmsum litum og raðað þannig að efst voru þau bláu, þá hvít og neðst græn og rauð. Mikið lifandi ósköp var jólatréð fallegt. Mér finnst ég aldrei hafa séð fegurra tré. í hverju horni stofunnar voru sveigar úr eini og fjalldrapa. Grænni grein var stungið bak við myndir á veggjunum og yfir stóru myndinni á austurveggnum var fallegursveigur. Afhenni horfði Hallgrímur Pétursson niður til okkar úr prédikunarstólnum. Ef við vorum óþæg var svipur hans strangur og áminnandi en nú var hann hlýr og mildur.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.