Feykir


Feykir - 27.11.2008, Blaðsíða 11

Feykir - 27.11.2008, Blaðsíða 11
Jólablaðió lagói laufléttar jólaspurningar fyrir keppendur í Útsvari Hjón á leið í Útsvar Hjónin Guóbrandur Ægir Ásbjörnsson og Guðbjörg Bjarnadóttir keppa ásamt Ólafi Hallgnmssyni fyrir hönd Skagafjaróar í Útsvari þetta árið. Jólablaðinu Feyki lá forvitni á að vita hversu vel þau eru að sér í jólavæntingum hvors annars. ilmvatn. (Bókin rétt en ekki hitt) Hvað gaf hún þér? Bók og trefil pottþétt! (Bók rétt en ekki hitt.) Ægir um Guöbjörgu: Hvað kemur henni í jólaskap? -Snjórinn og jólaplatan með Dollý Parton og Kenny Rogers. (Rétt svar) Fer hún snemma í jólaskap? -Já. (Rétt svar) Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá Guðbjörgu? -Öll lögin á áður nefndri plötu en aðallega Christmas without you. (Rangt að hluta, uppáhalds lagið er síðasta lagið á þessari plötu.) Hvað gafst þú henni í jóla- gjöf fyrir ári síðan? Bók og Hvað heldur þú að hana langi að fá í jólagjöf þetta árið? Snjógalla og bók. (Bók rétt en ekki hitt.) Hvaða jólasiður ykkar fjölskyldunnar er í mestu uppáhaldi hjá Guðbjörgu? Kirkjuferðin á aðfangadag. (Nokkuð rétt.) Nokkrar fyrir ykkur sameiginlega: Bakið þið mikið fyrir jólin? -Bara mátulega mikið, svona 6 tegundir. Nú eigið þið fimm börn er ekki glatt á hjalla á aðfangadagskvöld? -Jú, mjög. Farið þið í mörg jólaboð? -Við höfum yfirleitt farið í þrjú undanfarin ár. Skötuveislu á Gili á Þorláksmessu, hangikjöt á Freyjugötunni á jóladag og svo sameiginleg veisla á gamlársdag, sem flyst milli heimila stórfjölskyldunnar. Hvernig takið þið jólaundirbúninginn, með stressi og látum eða á rólegu nótunum? -Svona frekar á rólegum nótum. Smá fjör í þrifunum síðustu dagana fyrir jól, annars bara notalegheit. Guöbjörg um Ægi: Hvað kemur honum í jólaskap? Að fara í jólabaðið á aðfangadag. (Ekki alveg sammála) Fer hann snemma í jólaskap? Nei, mest bara þegar hátíðin sjálf brestur á. (Rétt) Hvaða jólalag er í uppáhaldi hjá Ægi ? Eitthvað ljúft með Mahaliu Jackson. (Rétt) Hvað gafst þú honum í jólagjöf fyrir ári síðan? Bók og rakspíra. (Rétt) Hvað gaf hann þér? Hring, bók og sæng. (Mikið rétt) Hvað heldur þú að hann langi að fá í jólagjöf þetta árið? Einhverja góða nýja skáldsögu eða bók um dýr eða veiðiskap. (Rétt) Hvaða jólasiður ykkar fjölskyldunnar er í mestu uppáhaldi hjá Ægi ? -Ætli það sé ekki aðallega eitthvað matartengt. Skatan á Gili á Þorláksmessu, kvöldmáltíðin heima á Suðurgötu á aðfangadag og svo hangikjötið hjá mömmu á jóladag. ( Rétt) Hvort eiga upp á pallborðið stílhrein jól eða þessi skrautlegu? -Svona bæði og. (Rétt) Er eitthvað við jólin sem fer í taugarnar á Ægi og ef svo er hvað er það? -Ég man ekki eftir neinu sérstöku, kannski helst auglýsingamennskan fyrir jólin. (Rétt) Það var ekki hægt að yfirgefa þau heiðurshjón án þess að fá uppskrift af uppáhalds kökum fjölskyldunnar: Efst: Snæfriður og Diljá kunna vel að meta rúsinukökumar. Fyrir ofan: Jólakrossinn upp á Nöfunum er uppáhalds jólakskraut Ægis Til hægri: Keramiktréiö geröi Óla, frænka Cuöbjargar, handa ömmu hennar og Guöbjörg erföi þaö siöan. Tréö eri miktu uppáhaldi og feralltafupp um leiö og fyrstu jölaljós. Lengst til hægri: Guðbjörg og Ægir eru nokkuð vel aó sér i jólavæntingum hvors annars. 2 tsk. matarsódi 2egg. Öllu hrært saman og tekið með skeið á sett á plötu og bakað við 200 gráður þangað til þær verða fallega brúnar. Hvort eiga upp á pallborðið stílhrein jól eða þessi skrautlegu? Stílhrein! (Rétt.) Er eitthvað við jólin sem fer í taugarnar á Guðbjörgu og ef svo er hvað er það? Nei! (Nokkuð rétt.) 1 bolli rúsínur 2 bollar haframjöl 1 bolli smjörlíki Allt hakkað saman, 1 V2 bolli hveiti 2 bollar sykur

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.