Feykir - 27.11.2008, Síða 7
Jólablaóið Feykir hafói samband við nokkrar leikskólastýrur og
forvitnaöist lítillega úmjólahald þeirra, jólasiöi og uppánalds jólalög
Jólin okkar
80oz aixA3d\nor
Guðrún Lára Magnúsdóttir er leikskólastjóri á Ásgarði
á Hvammstanga. Guörún Lára er gift séra Guðna Þór
Ólafssyni og til samans eiga þau 10 börn. Hann sex og
hún fjögur. Fjórar stúlkur og sex drengir. Guðrún segir aó
börnin þeirra séu skemmtilegt fólk sem gaman sé að
vera innan um svo hún tali nú ekki um tengdabörnin og
barnabörnin.
Æfing jólasálma kemur
meó jólaskapiö
Hvað kemur þér í jólaskap? -Það
er margt sem kemur mér í jólaskap
en ef ég tek eitthvað sérstakt út
þá væri það að æfa jólasálmana í
kirkjukórnum. Einnig ferlið sem fer í
gang þegar ég er að undirbúa jólin.
Baka laufabrauð með fjölskyldunni.
Finna ilminn af heimareykta
hangikjötinu. Eiga samveru með
þeim sem mér þykir vænt um við
kertaljós. Taka upp jólaskraut frá
því að ég var barn, það vekur upp
gamlar og góðar minningar og
kemur mér í enn frekara jólaskap.
Nemendur og starfsfólk leikskólans
koma mér í jólaskap, vegna þess að
það er verið að undirbúa jólin út um
allan skóla þegar líður að jólum.
Jólin eru... tími fjölskyldunnar. Hátíð
kristinna manna. Fyrir mér eru jólin
trúarleg hátíð og því skipar kirkjan
ríkan þátt í mínu jólahaldi, í kirkjunni
finn ég jólin mín þegar ég heyri
jólaguðsspjallið, syng Heims um ból
helg eru jól. Jólin eru tími til að þakka
og ég bið um blessun og frið á jólum.
Hvert er að þínu mati jólalag allra
jólalaga? -Heims um ból
Byrjar þú snemma aö undirbúa jólin?
-Eg er í raun að undirbúa jólin allan
ársins hring. Eg er með stóra fjölskyldu
og er að kaupa jólagjafir yfir allt árið.
Ég vil líka njóta aðventunnar og því er
betra að vera tímalega að hlutunum.
Annars geri ég bara það sem ég kemst
yfir og svo gengur hátíðin í garð og ég
er klár hvort sem ég komst yfir það sem
égætlaði méreða ekki. Mikilvægaster
að fjölskyldan er saman, guðþjónusta,
matur á borðum og eitthvað til að
gleðja börnin.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf í ár?
-Eitthvað sem ergefið með góðum hug
og kostar ekki mikið, ég segi stundum
við börnin þegarégerspurð hugsið um
augnablikið þegar ég mun njóta. Mér
finnst te ogsúkkulaði gott og kertaljós
fær alltaf pláss á mínu borði.
Bakar þú fyrir jólin? -Já ég baka
smákökur, lagkökur og jólabrauð
sem hefur alltaf verið bakað í mínum
búskap.
Hver er uppáhalds smákökusortin
þín? -Þetta er erfið spurning þær eru
allar svo góðar, en mömmukökur eru
einstaklega góðar.
Steinunn Ragnheiður Arnljótsdóttir, leikskólastjóri á
Birkilundi í Varmahlíð. Steinunn er gift Marinó H. Þórissyni
og eiga þau Ragnar Yngva og Sigfinn Andra 10 ára.
Stórar snjóflyksur
í logni
Hvað kemur þér í jólaskap? -Þegar fjölskyldunnar. Við skulum ekki tína
snjóar stórum snjóflyksum í logni. okkur í amstrinu heldur njóta þess að
Jólin eru... hátíð barnanna og vera saman og gera eitthvað saman.
Þegar upp er staðið skiptir ekki máli
hvað við gerðum mikið fyrir jólin eða
hversu stórir pakkarnir voru, heldur
það að okkur líði vel og að við getum
verið með þeim sem okkur þykir vænt
um....
Hvert er að þínu mati jólalag allra
jólalaga? -Mér finnst White Christmas
alltaf skapa góða stemningu, en það er
til svo mikið af góðum jólalögum og fer
eftir aðstæðum hvað mann langar að
hlusta á.
Byrjar þú snemma að undirbúa jólin?
-Eg byrja oft seinni partinn í nóvember,
en ég er samt ekki að hamast neitt
mikið. Geri það sem mig langar til
þegar stundir gefast.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf í ár?
-Það er alltaf gaman að fá bók, t.d.
lífsreynslusögu.
Bakar þú fyrir jólin? -Já, ég baka alltaf
nokkrar smákökusortir og svo tek ég
þátt í laufabrauðsbakstri.
Hver er uppáhalds smákökusortin
þín? -Kúrennukökur
Valbjörg Pálmarsdóttir leikskólastjóri á Glaóheimum
Sauðárkróki. Valbjörg á tvær stelpur, Maríu Ósk 13 ára og
Berglindi Björgu 7 ára.
Aðventukvöldið
í kirkjunni
ómissandi
Hvað kemur þér í jólaskap? -Það eru
ýmsirhlutirsem koma mér í jólaskapið:
T.d. aðventukvöldið í kirkjunni fyrstu
helgina í des, skreyta piparkökur og
föndra jólakort með stelpunum mínum,
hlusta á jólakveðjurnar í útvarpinu á
Þorláksmessu er alveg toppurinn á því
að komast í jólagírinn!
Jólin eru... Tími til að vera með
fjölskyldunni, hátíð Ijóss ogfriðar!
Hvert er að þínu mati jólalag allra
jólalaga?- Það er tvímælalaust lagið
Yfir fannhvíta jörð!
Byrjar þú snemma að undirbúa
jólin? -Eg byrja undirbúninginn þegar
aðventan gengur í garð, Þá fer ég að
setja upp jólaljósin og jólagardínur!
Hitt kemursvo bara í rólegheitunum!
Hvað langar þig að fá í jólagjöf í
ár?- Eitthvað sem kemur skemmtilega
á óvart;)
Bakar þú fyrir jólin? -Já ég geri það
svona 2-3 sortir, mér finnst það partur
af stemningunni að finna kökuilminn í
húsinu þegar líða fer að jólum. Á mínu
heimili eru kökurnar eru að mestu leyti
borðaðar á aðventunni.
Hver er uppáhalds smákökusortin
þín? -Þær heita Orður og eru í miklu
uppáhaldi hjá okkur mæðgunum. Ég
læt uppskriftina fylgja með:
300 gr. smjörlíki.ldl. sykur, 400 gr.
hveiti, 1 egg.
Krem: 50 gr. jurtafeiti, 50 gr. smjör-
iiki, legg, 50 gr. fiórsykur 1 tsk.
vanillusykur.
Jóhanna G. Jónasdóttir, leikskólastjóri á Barnabæ
Blönduósi, er gift Jóni Aóalsteini Sæpjörnssyni og
á þrjú börn Lee Ann, Björgvin og Arndísi.
Ilmur af hangikjöti og pipar-
kökum skapar stemningu
Hvað kemur þér í jólaskap? -
Kertaljós, ilmurinn af hangikjöti og
piparkökubakstri.
Jólin eru ... tími samveru, friðar og
Ijóss.
Hvert er að þínu mati jólalag
allra jólalaga? - Ó, helga nótt,
sérstaklega þegar Egill Olafsson
syngur það.
Byrjar þú snemma að undirbúa
jólin? -Nei, ég er oftast á síðustu
stundu og er farin að sætta mig við
það ífari mínu!
Hvað langar þig að fá í jólagjöf
í ár? - Það er ekkert sérstakt á
óskalistanum þetta árið.
Bakar þú fyrir jólin? - Nei, Lee Ann
dóttir mín sér um það.
Hver er uppáhalds smákökusortin
þín? -fgamla daga voru vanilluhringir
uppáhalds smákökurnar mínar. í
dag eru það Ingibjargaraugu sem
systir mín gaf mér uppskriftina að
og dóttir mín bakar.