Feykir - 27.11.2008, Side 17
Mér fannst hann vera að óska
okkur gleðilegra jóla. Síðar á
ævinni hef ég hugleitt hvort
hann hafi í raun ekki tekið
verulegan þátt í uppeldi okkar.
Við lærðum heilræðavísur
hans og bænavers hans lásum
við fyrir svefninn.
Smám saman komu
eldri systkinin inn í stofuna,
allir nýbaðaðir og greiddir í
sparifötunum. Síðast komu
pabbi og mamma og nú var
kveikt á jólatrénu og hvert
okkar fékk sitt kerti. Faðir okkar
seildist upp á hillu eftir Nýja
testamentinu. Allt hljóðnaði
í stofunni. Svo las hann jóla-
guðspjall Lúkasar. Ég horfði í
ljósið mitt, hlustaði og reyndi
að skilja textann. Sá fyrir mér
atburðina á Betlehemsvöllum
þar sem Jesú fæddist meðal
fátæks alþýðufólks.
Lestrinum lauk og allir
óskuðu gleðilegra jóla með
kossi á vangann.
Svo var maturinn borinn
inn, stórt fat, hlaðið hangikjöti
og kartöflur í jafningi og
laufabrauðið sem við höfðum
skorið svo fallega út fyrir jólin.
Á eftir fengum við þykkan
hrísgrjónagraut með rúsínum
og rjómablandi eða berjasaft,
eftir því hvað hver vildi. Við
vorum orðin svöng eftir eril
dagsins og baslið með stóra
sleðann og tókum djarflega til
matarins, vorum áminnt um
að á jólunum borðuðu menn
kurteislega. Við þyrftum ekki
að flýta okkur. Við sátum
því lengi til borðs og nutum
matarins vel. Þegar tekið hafði
verið af borðinu fórum við að
ganga kringum jólatréð. Allir
héldust í hendur og þeir sem
gátu sungu jólalög og jólasálma,
en lítill drengur gekk þögull og
horfði í öll ljósin á trénu. Svo
tókum við okkur hvíld og nú
gáðum við í körfurnar, fengum
okkur einn mola en sælgætið
myndum við geyma eitthvað.
Borða það hægt og njóta þess.
En nú kom sjálf jólalyktin f
stofuna er móðir okkar kom
með epli og gaf hverjum okkar
eitt. Mikið ósköp voru þau
falleg. Við tímdum varla að
bíta í þau strax. Epli sáust ekki
nema á jólum og voru naumt
skömmtuð í versluninni svo
að allir fengju eitthvað. Ég tel
mig muna að stundum væri
eplið bara hálft. Við heyrðum
talað um heimskreppuna en
það orð skildum við ekki litlu
krakkarnir, vorum bara glöð
og ánægð með það sem við
höfðum.
Sem fýrr getur voru
jólagjafirnar að öllu leyti
unnar heima, oft úr ullinni af
kindunum okkar. Ullin var
þvegin, kembd, spunnin og
prjónuð og lituð. Heima voru
gerðar úr henni fallegar og
hlýjar flíkur og þó þær væru
nú jólagjafir, komu þær að
góðum notum í næðingum
vetrarins. Ég minnist þess ekki
frá þessum tíma að jólagjafir
væru keyptar, nema við litlu
krakkarnir fengum saman spil
og nokkur kerti. En við vorum
beðin að spila ekki í kvöld en
það mátti skoða þau.
Áfram leið kvöldið við gleði
og leiki. Svo var borið inn heitt
súkkulaðiogallarkökusortirnar
sem mamma og eldri systurnar
höfðu bakað fyrir jólin. Mikið
voru þær góðar. Þegar við
höfðum drukkið og borðað
af góðgætinu eins og lystin
framast leyfði fór kannski að
heyrast einn og einn geispi og
nokkurværðlagðistyfirhópinn.
Eldri systkinin buðu góða nótt
hvert af öðru og gengu til hvílu
sinnar. Þau höfðu einhvern
veginn útvegað sér bækur og
nú myndu þau eflaust lesa
fram undir morgun. Venja var
að láta ljósin loga á jólanóttina.
Það var því bætt olíu á lampana
og gengið þannig frá þeim að
engin hætta stafaði af.
Það voru þreytt börn en glöð
*****
1 ^- *
* JótoNiWgS
og hamingjusöm sem háttuðu í
rúmin sín. Við bjuggum fremur
þröngt. I flestum rúmunum
sváfu tveir og í litla óupphitaða
kvistherberginu, uppi á lofti,
var líka sofið. í þessu gamla,
óeinangraða timburhúsi var
stundum kalt um nætur,
upphitunin var eingöngu frá
eldavélinni á daginn og lítilli
kabyssu í stofunni. En það
var engum kalt sem kominn
var undir sæng. Rúmin voru
ákaflega góð, undirsængin
úr fiðri, líklega af fuglinum
sem afi minn kom með frá
Drangey á vorin. Yfirsængin
úr fisléttum dúni. Nýþvegin
og útiþurrkuð sængurfötin
ilmuðu af hreinlæti. Líklega
voru þetta þau sömu sem ég
þvoði í læknum í morgun.
Mikið ósköp voru þetta
kyrrlát og gleðileg jól og þau
voru nú bara að byrja. Jólin
myndu minna á sig fram
yflr áramót. í fyrramálið
myndi mamma færa okkur
morgundrykkinn í rúmið,
kökur og heitt kakó. Um
hádegið yrði kalt, niðursneitt
hangikjöt og heitar kartöflur,
laufabrauð og pottbrauðið
góða.
Eftir matinn færum við
til kirkju. í svona góðu veðri
og færi myndum við fara
öll. Við bjuggum á nyrsta
bænum í sókninni og yrðum
nærri klukkutíma að ganga
til kirkjunnar. Líklega drægi
pabbi með sér litla sleðann.
Þá gætu þeir yngstu hvílt sig
svolítið á leiðinni. Annað kvöld
myndum við ganga í kringum
jólatréð og þá máttum við prófa
nýju spilin. Seinna myndum
við fara í jólaheimboð á næstu
bæi og bjóða affur til okkar
fólki. í þessum heimboðum
var stundum spilað púkk. Þar
gátu allir verið með, ungir og
gamlir. Mikið var það gaman.
Eftirmáli
Þessar jólaminningar hans afa
eru frá árunum 1935-1936
þegar heimskreppan lá yfir af
fullum þunga. Peningarsáustþá
varla, lífsbaráttan snerist raunar
mest um það að afla daglegs
matar og reyndist sumum erfitt.
Varla þarf að taka fram að þá
var ekkert útvarp, sjónvarp eða
sími og lesefni mjög afskornum
skammti. Með dugnaði og
eljusemi tókst þó að laða fram
hina sönnu, kyrrlátu jólagleði.
Síðan hefi ég lifað mörgjól, jól
allsnœgta ogkaupgleði. Ekki eru
það mín jól. Líklega er það svo
að þrátt fyrir tnjög breytilegar
ytri aðstœður eru æskujólin
alltafbest.
GEORG jENSEN*^f
ROYALCOPENHAGEN
★ JOLAVORURNAR I
TSTREYMAINN... itMJ ^ fcí f \
Rosendahl jólalínan - nýjar vörur:: Gjafavara í úrvali frá Georg Jensen JÉ
Fallega gjafavaran frá Holmegaard komin :: Smart lína frá Royal Copenhagen
Skreytingar við öll tækifæri
Sjáumst íjólaskapi
atkáliw
íslensku jólasveinarnir frá Jólahúsinu
STOЄ,
VERKPRÆÐISTOFA
í 20 ár
AÐALGÖTU21•550 SAUÐÁRKRÓKI
SÍMI 453 5050 • FAX 453 6021
www.stodehf.is stod@stodehf.is
SKAGFIRSKI
KAMMERKÓRINN
Jólatónleikar
í l lóladómkirkju
þann 20. dcscmber,
kl. 20:30
Löngumýri
þann 27. dcscmbcr
kl. 1 7:00
Gleöileg jól