Feykir - 27.11.2008, Qupperneq 18
JófóbWffi V*
*
Búum til okkar eigið nammi fyrir jólin
Brjóstsykurqerð
fyrir byrjenaur
Grunnuppskrift:
450 gr. sykur
125 gr. þrúgusykur
1 dl. vatn
Skrefl. Setjið vatn sykur og
þrúgusykur í þessari röð í stálpott
ogsjóðið þartil blandan nær 162
gráðu hita. Nota þarf hitamæli
sem þolir 200 gráðu hita. Blandan
má ekki fara yfir 165 gráðu hita
því þá brennur hún og ekki undir
157 gráðu hita því þá verður
brjóstsykurinn mjúkur.
Skref 2. Takið góða söikonmottu
og leggið á borð, gott að
setja handklæði undir því
brjóstsykurblandan er mjög heit
og getur því skemmt borðið. Berið
þunnt lag af bragðlausri olíu á
mottuna og áhöld.
Skref 3. Ef sítrónusýra er í
blöndunni ergottað blanda henni
saman við núna. Því næst ert litur
settur í blönduna eftir því sem
við á. Notaðar em plastsköfur og
blandan hrærð inn að miðju.
Skref 4. Þegar búið er að vinna
blönduna í smá tíma verður hún
þykkri. Þá er kominn tími á að setja
bragðefnin út í sem er gert með því
að búa til holu í miðja blönduna
ogsetja bragðefnin þangað ofan í.
Setja síðan hluta af blöndunni ofan
á bragðefnið svo það loku holunni
og blanda síðan vel saman.
Skref 5. Þegar blandan hefúr
kólnað það vel að hægt sé að
vinna með hana í höndunum, gott
er að olíubera hendumar áður en
unnið er með blönduna, er best að
klípa smá skammta af og rúlla upp
í pylsu. Klippið síðan pylsuna niður
og mótið brjóstsykurinn að vild.
Jarðarberja
2 tsk. sítrónusýra
1.5 ml. rauður litur
2 ml. ja rða rberja b ragðefn i
Appelsínu
2 tsk. sítrónusýra
1 ml. appelsínugulur litur
2.25 ml. appelsínubragðefni
Sítrónu
2 tsk. sítrónusýra
4 ml. gulur litur
1.5 ml. sítrónuolía eða bragðefni
(geturverið gott að fylla með súrri
fyllingu)
Þegarfyllingersettíer
brjóstsykurinn flattur út,
rönd af fyllingu sett innan í og
bijóstsykurinn svo rúllaður upp í
pylsu og klipptur niður.
Astaraldin
1 Vi tsk. sítrónusýra
% tsk. hvítur litur
1.5 ml. rauður litur
0.5 ml. blárlitur
3 ml. ásta ra I d i n b ragðefn i
Piparlakkrís
2 ml. svartur litur
3 msk. lakkrísduft
IV2 msk. fínt salt
Vi msk. svartur pipar
2 ml. anísolía (eða stjömuanísolía)
Saltlakkrís
2 ml. svartur litur
3 msk. lakkrísduft
1 msk. fínt salt
2 ml. anísolía (eða stjörnuanísolía)
Góðar en einfaldar
karamellur:
2 % dl. sykur
2 dl. rjómi
2 msk. smjör
3 msk. síróp
Vanilludropar
Aðferð: Hellið rjóma í pott og
bætið smjörinu saman við. Hitið
þar til smjörið er alveg bráðið.
Bætið þá sykri ogsírópi saman við
ásamt vanilludropum. Sjóðið við
vægan hita í 20 mín. og hrærið
reglulega í. Látið með teskeið á
bökunarpappír og kælið.
Til þess að búa til súkkulaðikara-
mellur er gott að bæta 2 msk. af
kakóiútí, m.v. uppskriftfyrir4.
Rjómakaramellur:
3 dl. rjómi, 2 og 1/2 dl. sykur,
1/2 dl. sýróp, 25 gr. smjör og
svo möndlureða kakó til að
bragðbæta!
Rjóma, sykri ogsýrópi blandað
saman og látið sjóða við vægan
hita í 1 klst. Síðan ersmjöri og
möndlum blandað við. Allt sett í
mótogsvoíkæli.
Rott er að pakka karamellunum
inn í sellofon ogskella utan á
jólapakka.
FONDUR FYRIR ALLA
' líkafólk með 10 þumalputta
iinfalt, ódýrt og fljótlegtföndur
Föndur fyrir jólin, eða öllu heldur undirbúningur á jólaskreytingum þarf hvorki að vera
flókinn né dýr. Jólablaðið Feykir tók saman nokkrar fljótleg-ar og ódýrar jólaskreytingar
sem hægt er að vinna út frá. Hugmyndafræðin gengur út á að vinna með það sem við
eigum, inni í skáp, uppi á hillu eða úti í garði. Tíu þumlar eru engin afsökun því þessar
skreytingar geta allir gert.
Það sem til þari er tuja (fæst í blómabúðum), spreylím og kertaglas.
Tujan lögö á blað, spreylíminu spreyjað yfir hana, sfðan er hún límd
á kertaglasið og að lokum snyrt að neðan. Einfalt, ódýrt og fallegt.
Auðvelt er að búa til fallega
jólaskreytingu með þvíað setja
jólakúlur, köngla, epli og
mandarínur á fallegan tertudisk
á fæti, nú eða á smákökufat.
Einnig má skella könglum í glervasa
og nokkrum greinum meö, hengja á
þær jólaskraut og þá er komin þessi
fína jólaskreyting.