Feykir - 27.11.2008, Page 35
Jólablaðið heimsótti
Héraðsbókasafn Skagfirðinga
Jólin á safninu
Þórdfs Friðbjörnsdóttir
er forstöðumaður
héraðsbókasafnsins en
þessa dagana streyma
nýjar bækur inn á safnið.
En þegar blaðið bar að
garði var Þórdís að glugga
í bókatíðindi og velja hvaða
bækur komi inn á safnið þó
að á endanum komi þær nú
flestar inn.
-Bókadeildin í Skagfirð-
ingabúð þjónustar okkur mjög
vel og við fáum bækurnar um
leið og þær koma í fjörðinn,
segir Þórdís.
Aðspurð segirhún
að það sé hluti af
jólastemningu
þegar bækumar
fara að streyma
inn. -Það er um
mánaðarmótin
október/nóv-
ember sem
bækurnar fara
að streyma inn.
Þá förum við
nokkrum sinnum
í viku að sækja
bækur og er þá
misjafht hversu mörg eintök
koma en af þessum vinsælustu
bókum setjum við líka eintak á
bókasafnið á Hofsósi og fram á
Steinsstöðum.
Hvemig er aðsóknin? -Mín
tilfinning er sú að ekki hafi
dregið úr aðsókn og ég held
að bókin haldi í við aðra
afþreyingarmöguleika og
hafi ekki gefið svo mikið eftir.
Það er verið að gefa út mjög
athyglisverðar og skemmtilegar
bækur allt árið um kring eftir að
þessir kiljuklúbbar urðu svona
öflugir og það skilar sér hingað
inn.
Verður eitthvað um að vera
á safninu fyrir jól? -Já, við
vorum með bókmenntakvöld
í fyrra og ædum að endurtaka
það aftur núna. Ædunin er að
lesa upp úr nýjum bókum og
það er draumurinn að fá nokkra
höfunda til þess að koma og lesa
upp úr bókum sínum. I fyrra
fékk ég nokkra bókavini sem
völdu sér nýútkomnar bækur
að lesa úr og það varð mjög
skemmtilegt kvöld.
Aðspurð um vinsælustu
bækurnar segir Þórdís að
Arnaldur sé alltaf vinsæll og
eins Einar Kárason og Árni
Þórarins en ekki séu allar bækur
komnar í hús þetta árið og því
erfitt að segja til um hverjar
verði vinsælastar nú.
í desember verður safhið
síðan skreytt og reynt að skapa
stemningu með
piparkökum og
hlýlegheitum.
Eins er í safninu
til mikið af
tímaritum og
eins dönsku
b 1 ö ð u n u m .
-Við vorum að
fá jólablöðin og
því er tilvalið
fyrir fólk að
koma og glugga
í tímarit hérna
hjá okkur, segir
Þórdís.
Geta allir komið og tekið bók?
-Já, það er ókeypis fýrir upp í 18
ára og eldri borgara og öryrkja.
Síðan geta allir fengið kort sem
kostar 1000 krónur á ári og fyrir
það má taka 10 bæleur í einu,
mánuð í senn. Nema að nýjar
bækur fara á 10 daga lán.
Safnið hefur stækkað ört
síðustu ár og til þess að grynnka
aðeins á birgðum var haldinn
þar á dögunum bókamarkaður
sem Þórdís segir að hafi verið
vel heppnaðan. -Viðtökur voru
góðar og fólki fannst þetta vel
til fundið. Við stefnum því
að því að halda bókamarkað
árlega, segir Þórdís að lokum.
Jólablaðið Feykir hvetur alla
lesendur til þess að nálgast
bókasafnskort á næsta safn og
geta þannig tryggt góð bókajól
í ár. Það er jú fátt jólalegra en
lestur góðrar bókar á jóladag.
Biörgunarsveitir víóa um land treysta á flugeldaglaðar fjölskyldur
til þess aó fjármagna sjálfboóaliöastarf sitt
Fjáröflun og góð
skemmtun í einu
Arnþór Gústavsson og Valdimar
Pétursson hjá Björgunarsveitinni
Skagfiróingasveit eru þessa dagana í
jólaundirbúningi. Jólaundirbúningi sem
þó er frábrugðin hinum hefðbundna, en
félagar f björgunarsveitinni sjá okkur fyrir
flugeldum auk þess að halda skötuveislu á
Þorláksmessu og aðstoða jólasveina.
Undirbúningur flugeldasölunnar er stór liður
í jólaundirbúningi björgunarsveitarmannsins
ekki satt?
-Jú það er rétt. Undirbúningur jólavertíðarinnar
er ekki síður mikilvægur en undirbúningurinn
heima fyrir. Auk flugeldasölu eru fleiri fjáraflanir
í jólamánuðinum, árleg skötuveisla er haldin auk
þess sem við höfum verið jólasveinunum innan
handar þegar illa viðrar.
Kemur skortur á gjaldeyri til með að hafa
einhver áhrif á flugeldasöluna í ár?
-Það leit út fyrir það á tímabili að engir flugeldar
kæmust til landsins en við lofum því að eitthvað
verður til sölu í Sveinsbúð eins og fyrri ár.
Breytist þið í böm þegar kemur að undirbúningi
flugeldasölunnar?
-Það er ekki laust við að það magnist upp ákveðinn
spenningur þegar flugeldavertíðin nálgast. Það er
gaman að sjá og prófa nýtt dót og það er auðvelt
að tapa sér við flugeldakaupin.
Hvað flugeldur en nú í uppáhaldi?
-Stóru terturnar eru í uppáhaldi, raunar hver
annarri betri - bardagaterturnar standa upp úr,
ekki hægt að gera upp á milli þeirra.
Hvaða atriði ber að hafa í huga áður en skoteldar
eru notaðir?
-Númer eitt, tvö og þrjú að vera með
hlífðargleraugu og við viljum minna á að
Skagfirðingasveit gefur hlífðargleraugu með
öllum keyptum flugeldum. Annars ber helst
að hafa í huga að skjóta flugeldum af öruggri
undirstöðu og fýlgja almennum leiðbeiningum.
Ekki má undir nokkrum kringumstæðum breyta
eða taka i sundur flugelda - það er ávísun á slys.
Síðast en ekki síst fer notkun áfengis og vímuefna
ekki saman við notkun flugelda.
Er mikil hækkun á flugeldum á milli ára?
-Óhjákvæmilega verða einhverjar hækkanir á
flugeldum frá því í fyrra þar sem allar skotvörur
eru keyptar inn í dollurum en við vonumst
auðvitað til þess að hægt verði að halda hækkunum
í lágmarki.
Hvar og hvenær fer flugeldasalan fram?
-Eins og síðustu ár fer flugeldasala
Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar fram í
Sveinsbúð að Borgarröst 1 á Sauðárkróki. Flestar
ef ekki allar björgunarsveitir landsins standa
fýrir flugeldasölu fyrir áramótin en hægt er að
nálgast upplýsingar um sölustaði um allt land hjá
Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Er aldurstakmark fyrir flugeldakaupendur, þ.e.
seljið þið hverjum sem er flugelda?
-Bannað er að selja eða afhenda skotelda barni
yngra en 16 ára sé þess getið í leiðbeiningum með
skoteldum.
Öll sala á skoteldum til barna yngri en 12 ára
er óheimil og öll meðferð barna á þeim skal vera
undir eftirliti fullorðinna.
Eitthvað að lokum ?
-Við viljum minna fólk á að flugeldasala
björgunarsveitanna er stærsta fjáröflun ársins,
sem stendur að stórum hluta undir rekstri
sveitanna. Það að skjóta upp flugeldum getur
verið góð skemmtun á sama tíma og það er einn
þráður í öryggisneti samfélagsins.
Cetum bætt við okkur verkefnum