Feykir - 15.01.2009, Síða 1
Ráðherra ætlar ekki að
bakka frá sameiningu
heilbrigðisstofnanna
-Hinn kosturinn að
skerða þjónustu
og hækka gjöid
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis-
ráðherra, sat á þriðjudaginn var fund með
forsvarsmönnum Sveitarféiagsins Skagafjarðar
og Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki.
Á fundinum reyndu heimamenn að fá Guðlaug
Þór til þess að snúa til baka með ákvörðun
sína um að sameina Heilbrigðisstofnunina á
Sauðárkróki FSA á Akureyri og fela þess í stað
stjórn hennar í hendur heimamanna. Feykir
settist niður með Guðlaugi eftir fundinn.
sjá bls. 8-9
Hólaskóli - Háskólinn á Hólum_
Tilsjónarmaður stjómar
rekstri Hólaskóla
Gísli Sverrir Árnason hefur
verið skipaður tilsjónarmað-
ur Hólaskóla, Háskólans
á Hólum. Gfsli hefur verið
hér undanfarna daga þar
sem hann hefur meðal
annars fundað með helstu
lánadrottnum skólans.
Líkt og Feykir.is greindi frá
umhelginaútilokaðiÞorgerður
Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra ekki
í þættinum Sprengisandi
á Bylgjunni, að Háskólinn
á Hólum, sem kom að
hennar sögn með mikinn
skuldahala með sér frá
Landbúnaðarráðneytinu,
yrði sameinaður öðrum. í
samtali við Feyki kannaðist
menntamálaráðherra vel
við þessi orð en sagði jafn-
framt að til þess kæmi ekki
nema ef engar aðrar leiðir
væru færar. Ætlunin væri
enn að gera Hólaskóla að
sjálfseignarstofnun.
-Við erum að leita allra
leiða til þess að halda uppi því
þjónustustigi sem verið hefur
og að skólarnir séu opnir
almenningi og bjóði upp á
fjölbreyttar námsleiðir. Eins og
staðan er í dag höfum við ekki
efni á að hugsa þetta þröngt
og erum að leita allra leiða
til þess að halda dampi og í
þeirri vinnu felst að fara vel
yfir alla þætti, segir Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra.
Aðspurður segir Gísli
Sverrir að hann líti á það
sem sitt hlutverk að tryggja
framtíð skólans og segist
hann taka það hlutverk sitt
mjög alvarlega. -Ég mun
leggja mitt að mörkum til þess
að reksturinn komist á rétt
ról en með öðrum hætti er
ekki hægt að tryggja framtíð
skólans, segir Gísli Sverrir
Árnason, ráðherraskipaður
tilsjónamaður Háskólans
á Hólum sem nú fer með
rekstarstjórn skólans.
Norðurland vestra
115 á atvinnuleysiskrá
Á mánudag vom 115
skráðir á atvinnuleysiskrá
á Noróurlandi vestra þar af
49 f Skagafirði. Atvinnuleysi
hefúr aukist mest á
Blönduósi og í Skagafirði
milli mánaða eða um 29
einstaklinga.
Á Blönduósi hafa 10 bæst
á atvinnuleysisskrá, 19 í
Skagaflrði, sex 1 Húnaþingi
vestra, tveir á Skagaströnd
og fimm á Siglufirði.
Hjá Vinnumálastofnun
Norðurlands vestra fengust
þær upplýsingar að þau
úrræði sem boðið væri upp
á væru fyrst og fremst fyrir
atvinnuleitendur, en fleiri en
atvinnuleitendur taka þátt í
sumum þeirra. Úrræði sem
virk eru um þessar mundir,
auk viðtala við starfsráðgjafa
og starfsleitarfunda sem
öllum standa til boða, eru
starfsþjálfunarsamningar,
námssamningar, heilsu-
efling og sjálfstyrking,
áhugasviðsgreiningar,
víðtæk hæfnis- og starfs-
leitarrnámskeið og þátttaka í
Eflum byggð sem er fjögurra
anna samfellt nám í Austur
Húnvatnssýslu.
Samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem Feykir hefur
aflað er erfitt að festa fingur
á það nákvæmlega hver
orsök þessarar aukningar
nákvæmlega er, en það lítur
út fyrir að töluvert sé um að
unga fólkið sé að snúa aftur
heim i foreldrahús og þá án
atvinnu.
íha!
DELL m
dúndurpakkij
Dell hótalarar með bassabox
eru auðvitaS alveg óm ssand
dúndurpakki undir jól^tréð!
TILBOÐ KR. 64Q.qjW
Fulltverðkr. 7990,-
—tTenflil! ehj!3—
TÖLVUDEILD BORGARFIÖT 27 SAUÐÁRKRÓKI t 455 7900
VIÐ BÓNUM 0G RÆSTUM! Daglegar ræstingar og reglubundið viðhald á bóni í fyrirtækjum og stofnunum Bílaviðgerðir hjólbardavidgerðir _. réttingar
f COGÍBlmrifeÍ^/,
Sími: 848 7007 * Netfang: siffo@hive.is 1