Feykir - 15.01.2009, Síða 6
6 Feyklr 02/2009
Fréttaannáll Feykis - síðari hiuti
Óhætt er aó segja aö mikió hafi verió aó gerast á
nýliónu ári hjá okkur á Norövesturlandi. Feykir ætlar aó
rifja upp þaö sem upp úr stóó á árinu og skipta því í
tvo hluta. Fyrri hluti ársins veróur birtur nú en sá síóari í
næsta blaöi Feykis.
Anná 2008
Frá Grettishátið.
Frá Stílnum. Framtíðin er heimsendir.
Tískustúlkan Vala María.
Benedikt Hjartarson sjósundkappi.
Fjölmennt var i Ævintýrinu Skrapatungurétt
Hvítabjörninn á Þverárfjalli íheimsókn.
Gospellkór á Kántrýhátíð.
ísbjörn á Þverárfjalli
Sagt var frá því í byrjun júní að
ungur ísbjörn hafi, öllum að
óvörum, tekið land í Skagafirði.
Þessi ísbjörn átti eftir að valda
miklum deilum hjá fólki og þó
einkum hvernig tekið var á móti
honum. Eins og alþjóð veit var
hann aflífaður eftir nokkurra
klukkustunda umhugsun en það
varsvoÞórunnSveinbjarnardóttir
sem gaf leyfi fyrir því að dýrið
yrði fellt. Mikil pólitískt umrót
skapaðist við þessa aðgerð en
sumir vildu fara aðrar leiðir og
helst ná dýrinu lifandi. Álfheiður
Ingadóttir þingkona Vinstri-
grænna var ein þeirra sem tjáði
sig í fjölmiðlum um atvikið og
sagði m.a. að þarna hafi menn
farið af stað gagngert til að drepa
og að ekki hafi verið til staðar sú
hætta sem menn vildu vera láta.
Listasetur á
Skagaströnd
Á Sjómannadaginn opnaði Nes
listamiðstöð að viðstöddu fjöl-
menni. Eins og segir í fréttinni
þá er óhætt að ætla að sköpunar-
krafturinn muni verða með
mesta móti í fallegu umhverfi og
kraftmiklu samfélagi.
Tindastóll undir valtara
Það gerðist í Visabikarkeppni
KSÍ í leik Tindastóls og Hvatar á
Sauðárkróki siðasta sumar. Þá
unnu gestirnir heimamenn 0-5.
20 störf á tveimur
árum
Ríkisstjórnin samþykkti sk.
Norðvesturskýrslu þar sem gert
er ráð fyrir að til verði rúmlega
20 opinberum störfum á næstu
tveimur árum en ekki var tekin
afstaða til Hólaskóla. Nefndin
skilaði 11 tillögum en alls fékk
hún 146 tillögur til umfjöllunar.
Prestum fækkar í
Skagafirói
Á kirkjuþingi var samþykkt að
leggja Mælifellsprestakall í
Skagafirði niður um leið og séra
Ólafur Hallgrímsson færi á
eftirlaun og prestakallið sam-
einað Miklabæjarprestakalli.
Annar ísbjörn á land
Það ótrúlega gerðist að hvítabj örn
gekk á land í annað sinn á
tveimur vikum. Nú var
dagskipunin að standa betur að
móttökum bangsa en í fyrra
skiptið. Umhverfisráðherra
Þórunn Sveinbjarnardóttir gaf
það út að hún myndi reyna að
gera allt sem í hennar valdi stæði
til að ná dýrinu lifandi og koma
því á heimaslóðir. Kallaðir voru
til helstu sérfræðingar landsins
auk starfsmanns dýragarðs í
Danmörku og sérhannað
bjarndýrabúr flutt til landsins til
að allt gæti gengið samkvæmt
áætlun. En eftir um sólarhrings
yfirlegu og skipulagningu
mistókst að ná dýrinu lifandi og
það fellt eftir að það tók á rás í átt
til sjávar. Ljóst má vera að
tilraunin til að ná dýrinu hleypur
á tugum milljóna króna.
Noróanáttin í Vestur
Flúnavatnssýslu
Fréttavefurinn Norðanátt.is fór i
loftið í júní. Stallsysturnar Aldís
Olga Jóhannesdóttir og Kristín
Guðmundsdóttir standa að
honum og segja það gríðarlega
mikilvægt hvernig fólk og
fyrirtæki kynna sig á netinu og
mikilvægt að það sé allt á
jákvæðunótunum. Þegarviðtalið
var tekið við þær bjó önnur
þeirra á Bifröst í Borgarfirði og
hin í Kaupmannahöfn.
Ferming í
Ábæjarkirkju
Guðjón Ólafúr Guðjónsson frá
Stekkjarholti fermdist í lok júní í
Ábæjarkirkju. En það sem þótti í
frásögur færandi var að í þeirri
ágætu kirkju sem staðsett er í
eyðidalnum Austurdal að þetta
var fyrsta ferming í 83 ár.
Sjávarleóur hvatt áfram
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra (SSNV) veitti
Sjávarleðri hf. á Sauðárkróki
árleg hvatningarverðlaun til
fyrirtækisins á starfssvæði sam-
takanna. Sjávarleður . hlýtur
verðlaunin fia^þtyj skftlíð-
kvæðis og framsýni sem stjórn-
endur og starfsmenn hafa sýnt
við byggingu þess og þróunar á
gæðavörum sem orðnar eru
eftirsóttar innan lands og utan.
Plúnavaka
Sölufélag Austur Húnvetninga
átti aldarafmæli á árinu.
Hápunktur afmælisins var á
Húnavöku, bæjarhátíð Blöndu-
óss. Á Húnavökunni var margt
um að vera. Vökulögin voru
stórskemmtileg söngvakeppni
þar sem níu glæsileg lög kepptu
um hylli gesta úrslitakvöldsins
sem haldið var í íþróttahúsinu á
Blönduósi. Það lag sem bar sigur
úr býtum var Mér líður svo vel,
lag Þorsteins Jónssonar í flutningi