Feykir - 15.01.2009, Qupperneq 11
02/2009 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Bergur og Rósa kokka
Grillaðar hrossalundir
- hrikalega gott og fljótlegt
Það eru þau Bergur Gunnarsson og Rósa Maiía
Vésteinsdóttir bændur á Narfastöðum í Skagafirði sem
bjóða lesendum Feykis upp á dýrindis uppskriftir og láta
eftirfarandi fylgja með.
Þar sem hér á Norðurlandi eru all víða ræktuð hross
og þar sem efniviðurinn verður ekki alltaf að gæðingum,
fannst okkur upplagt að koma með aðalrétt sem hentað gæti
Skagfirsku matarkistunni. Alls ekki illa meint en gott með í
úrvinnslunni.
sem ykkur finnst gott. í þessa
uppskrift nota ég gjarnan: rófur,
sætar kartöflur, rauðlauk, sveppi,
blómkál, broccoli og 1/2 gróf
saxaðan hvítlauk Setjið olíu á
stóra pönnu og steikið grænmetið
og hvítlaukinn í ca. 4-5 mín.
eða þar til það er farið að glansa
aðeins, kryddið með salti og pipar
og hellið síðan V4 1. rjóma yfír og
látið suðuna koma upp. Setjið
lokið á og slökkvið undir. Geymið
á hellunni þar til aðalrétturinn er
tilbúinn á borðið.
Með kjötinu þarf ekki að bera
ffam sósu frekar en fólk vill þar
sem sósa er með grænmetinu.
Bergur og Rósa skora á þau Véstein Þór og Margréti
dýralækni í Varmahlíð að koma með næstu uppskriftir. Þau
kunna bæði vel til verka í eldhúsinu og verður því væntanlega
eitthvað frumlegt og gott frá þeim eftir tvær vikur.
FORRÉTTUR
‘ Himnesk haustsúpa
- einnig mjögfín flensusúpa,
einföld ogfljótleg;-)
1 msk. ólífuolía
1/3 blaðlaukur skorinn niður
3 hvítlauksrif pressuð
500 gr. niðurskorið grœnmeti að
eiginvali t.d. blómkál, broccoli,
sveppir, gulrœtur
1 tsk. salt
1 tsk. oregano
1 tsk. basil
1/2 tsk. timjan
2 msk. tómatpúrre
1 dós (ca. 400 gr.) niðursoðnir
tómatar
750 ml. vatn
2-3 grœnmetisteningar
Hitið olíuna í potti og mýkið
laukinn, bætið hvítlauknum
saman við og steikið áfram í
ca. 1 mín. Setjið grænmetið og
kryddið út í og blandið þessu
lítið eitt saman. Þar næst fara
niðursoðnu tómatarnir út í ásamt
tómatpúrre, grænmetiskrafti og
vatni. Sjóðið í 20-25 mín.
Ofan á súpuna til skrauts má
nota tómata, skorna í litla teninga
og ferskt saxað basil.
AÐALRÉTTUR
Grillaðar
hrossalundir
- hrikalega gott ogfljótlegt.
Þessi réttur kemur öllum
verulega á óvart. Lundirnar eru
lungamjúkar og minna lítið á
þá ímynd sem hrossakjöt hefur
haft í hugum flestra Islendinga. I
þennan rétt þarf eina meðal feita
lund fyrir ca. 5-6 manns.
Skerið lundina í ca. 150-200
gr. steikur. Beijið létt í sárið með
hnefanum til að pressa steikina
aðeins saman og forma. Stráið
aðeins salti yfir bitana og veltið
bitanum (kantinum) upp úr
svörtum grófmöluðum pipar
og setjið á grillið með sárið upp.
Grillist örstutt (2-3 mín.) við
háan hita og snúið síðan við.
Þegar seinni hliðin er að grillast
er upplagt að strá parmesanosti
yflr kjötið og láta bráðna. Gott
er að meðhöndla kjötið eins
og nautakjöt, steikja hæfilega
lítið þannig að það sé vel rautt
(medium rare) þegar það er borið
fram.
Meðlœti
Meðan grillið er að hitna er
meðlætið gert klárt.
Skrælið og skerið niður í hæfilega
stóra bita allt það grænmeti
EFTIRRÉTTUR
Grillað Gúff
úr Grillbók Hagkaups bls. 201.
Fyrir 5-6
100 gr. rifið súkkulaði
3 stk. kókosbollur
750 gr. ávaxtasalat t.d. jarðarber,
kíwí, bláber, vínber, perur,
bananar og epli.
Ávextirnir eru skornir í bita
og settir í álbakka. Súkkulað-
inu sáldrað yfir. Klessið kókos-
bollunum þar yfir. Grillið í u.þ.b.
10 mínútur við lágan hita.
Til að toppa þetta enn frekar
þá er upplagt að bera þettafram
á vöfflulaufi með vanilluís eða
rjóma.
mmmmmmmmmmmm
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 490
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gott að byrja fyrsta þáttinn á nýju ári
með þessari mögnuðu vísu Baldvins
skálda:
Dómarfalla eilífð í
öldþó spjalli minna.
Bceta cettu allir því
eigin galla sinna.
Önnur vísa kemur hér eftir Baldvin
Jónsson sem kallaður var skáldi:
Fögur kallast kann hér sveit
krappurfjalla salur.
Þó hefurgalla það ég veit
þessi Hallárdalur.
Fyrir skömmu hafði samband við mig
einn af lesendum þáttarins og bað mig
birta eftirfarandi vísu:
Hafís, eldgos, óþurrkar,
aflabrestur og landsskjálftar,
slœm á tíðum svifti Frón
sundrung vekur meira tjón.
Taldi lesandinn vísuna vera eftir Björn
Bjarnason bónda í Grafarholti og
langaði til að vita ef einhverjir sem læsu,
teldu það ekki vera rétt.
Sigurður Halldórsson frá Efri - Þverá
í Vestur Hún. mun vera höfundur að
þessari:
Mér hefur klœða brugðist bil
og bakkað angurs vöku.
Ég á ekkertyndi til
utan að smíða stöku.
Önnur kemur hér sem ég held að sé
einnig eftir Sigurð:
Mitt er orðið lítið líf
líkast til áförum.
Banadísin beittum hníf
bregður hreint óvörum.
Það er Ásmundur Kristberg Örnólfsson
á Sigmundarstöðum, sem er höfundur
að þessari:
Óma raddir, ólgar blóð
innst í hjarta mínu.
Ó égfengi rósin rjóð
að rugla á hári þínu.
Önnur vísa er hér eft ir Ásmund:
Efgeðið líður gleðiskort
gerir manninn kátan.
Að geta lesið, eitthvað ort
uppágamla mátann.
Bjarni Vilmundarson á Mófellsstöðum
í Borgarfirði, hlustaði á fyrirlestur um
kanínurækt, þar sem mildl áhersla var
lögð á hvað þær væru hlýlegar:
Vandann leysa vilja menn
svo víst ei hreppist skaðinn.
Kasta bœndur konum senn
en kanínurfá í staðinn.
Til vinkonu yrkir Bjarni:
Ljósadrottning Ijúfog sönn
leikur bœði og syngur,
yfir mittið aðeins spönn
efég teygifmgur.
Staddur á Blönduósi í boði sem kirkju-
kórinn á Hvanneyri þáði af samkórnum
Björk, yrkir Bjarni:
Augað gleðst við opið svið
en ég hrífst affleiru.
Því bjarkarómi og blöndunið
bregðurfyrir eyru.
Björn Jónsson frá Haukagili orti marga
snjalla vísu á sinni lífsleið. Þessar munu
eftir hann:
Við höfum báðir, vinur minn
verið háðir sprundum.
Leitað ogþráð, en léttúðin
leiknum ráðið stundum.
Muna þyngir minn ersest
tnyrkur kringum hreysið.
En tvíllaust þvinga tel ég mest,
tilfinningaleysið.
Er Björn flutti úr sveitinni, varð þessi til:
Eftir margra ára strit
á að liggja í valnum.
Allt sem helstgafljós og lit
lífmu heima í dalnum.
Staddur í Herðubreiðarlindum yrkir
Björn:
Birtast töfrar blárrafjalla
bakvið hraun oggrýttan sand.
Skyldi ennþá einhver Halla
eiga þar sitt griðaland.
Að lokum þessi ágæta vísa eftir Björn,
sem ort er á Kanaríeyjum:
Nú hef ég litið nektarsvœðin
núna hefursést,
að alltaffara Evuklceðin
Evudœtrum best.
Mig minnir að það hafi verið 1972,
sem bannað var í útvarpinu að senda
jólakveðjur í bundnu máli. Um það leit
komst þessi vísa á kreik:
Ábending er okkurgóð
útvarpsspekinganna.
Eru rímuð íslensk Ijóð
arfur villimanna.
Ennþá verða til vísur um hina djöfullegu
kreppu. Ingólfur Ómar á þessa:
Þjakar ýmsa þraut og pín
á því ber nú víða.
Þeirsem minna megasín
mikinn hörgul líða.
Gott að enda með þessari ágætu
vetrarvísu Ingólfs Ómars:
Máninn bjarma á bceinn slcer
Blikar dásemdfögur.
Hélublóm á glugga grœr
glitrar mjallar kögur.
Verið þar
með sœl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
St'mi 452 7154