Feykir - 15.01.2009, Page 12
... Guðlaugur Þór í Feykisvidtali ... 1. barn ársins á Nordurlandi vestra ... Liðið hennar Helgu Dóru ... Síðari hluti annáls Feykis ...
Þrettándagleði Hestamannafélagsins Þyts
var haldin í Hvammstangahöllinni
Grýla, leppalúði
og allir hinir
Var mikið fjölmenni í
gleðinni og í blysförinni var
fullt af hressum álfum, þhr
jólasveinar og auðvitað
Grýla og Leppalúði.
Þau fengu far á kerru sem
fylgdi blysförinni alla leiðina
frá Pakkhúsinu og upp að
Hvammstangahöllinni. Á
undan fóru hestamenn,
álfadrottning, álfakóngur
og hirðmeyjar. Sigurður
prestur hélt uppi fjöri með
gítarspili, söng og glensi. Tóta
í Æskulýðsnefndinni stjórnaði
leikjum, teymt var undir
krökkunum og hægt var að
fá sér kaffi, kakó og vöfflur.
GuðmundurHaukurformaður
USVH tilkynnti svo hver var
valinn íþróttamaður ársins
og kom titillinn í hlut Helgu
Margrétar Þorsteinsdóttur.
ÚTi'HLH - ÚTÍHLH - ÚTi'HLH - ÚTi'HLH - ÚTi'HLH - ÚTi'HLHLLLHLH!