Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 1
18. tölublað 2015 ▯ Fimmtudagur 24. september ▯ Blað nr. 451 ▯ 21. árg. ▯ Upplag 32.000
Megn óánægja meðal bænda með samning stjórnvalda um niðurfellingu tolla af landbúnaðarvörum við ESB:
Reiðarslag og nær öruggt talið
að margir þurfi að bregða búi
− nýr samningur veitir líka tollfrelsi á viðskiptum með lifandi apa, asna og sjávarspendýr sem og á frosnu hvalkjöti og selkjöti
„Hugmyndin um aukna niður-
fellingu á tollum af innfluttu
kjúklingakjöti er hreint reiðarslag
fyrir framleiðendur kjúklinga-
kjöts á Íslandi,“ segir Jón
Magnús Jónsson, alifuglabóndi að
Reykjum og varaformaður Félags
kjúklingabænda.
„Tollar á magn umfram þessi
þúsund tonn er föst krónutala og ég
hef ekki heyrt neitt um að hún eigi
að breytast umfram það sem hún er í
dag. Gangi þetta eftir er ég hræddur
um að framleiðendur verði alvarlega
að hugsa sinn gang og jafnvel pakka
saman og hætta starfsemi,“ segir Jón.
Samningar á milli Íslands og
Evrópusambandsins um tollaniður-
fellingar á landbúnaðarvörum kom
íslenskum bændum og flestum
öðrum mjög á óvart. Á sama tíma
hafa forsvarsmenn innflutnings-
verslunarinnar fagnað tíðindunum,
en fjölmargt í þessum samningum
vekur samt furðu.
Alvarleg tíðindi
„Þetta eru alvarleg tíðindi fyrir þær
greinar og ég tel að stjórnvöld hafi
vanrækt að meta áhrif samningsins
til fulls. Sama gildir að mörgu leyti
um nautakjötsframleiðsluna. Ég
taldi að það væri vilji stjórnvalda
að efla þá grein en ekki flytja hana
að enn stærri hluta til útlanda,“ segir
Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ.
Hann vekur athygli á því að stjórn-
völd tilkynni um nýjan samning um
tollamál sem stóð til að ræða um í
viðræðum um nýja búvörusamninga.
Hljóta að vera með áætlun
„Svínabændur geta í raun gert lítið
til að bæta sinn hag án aðstoð-
ar ríkisvaldsins verði tillagan um
aukinn innflutning á svínakjöti
samþykkt. Ég tel því víst að þau
hafi hugsað málið til enda og séu
með einhvers konar áætlun í huga,
eða ég vona það að minnsta kosti,“
segir Hörður Harðarson, formaður
Svínaræktarfélags Íslands.
Tollfrjáls viðskipti með hvalkjöt,
selkjöt, apa og asna
Þegar litið ef yfir listann yfir
afnám tolla á einstökum flokk-
um kemur margt undarlegt í ljós.
Ríki Evrópusambandsins hafa á
liðnum árum gagnrýnt Íslendinga
harðlega fyrir hvalveiðar og einnig
selveiðar. Þrátt fyrir það er að finna
í samningnum að tollfrelsi verð-
ur á frosnu og söltuðu hvalkjöti
og öðrum frosnum hvalaafurðum.
Einnig á frosnu selkjöti, sæljónakjöti
og rostungakjöti. Þá verða viðskipti
með lifandi sæljón, rostunga og apa
tollfrjáls. Sem og viðskipti með asna
sem mikil þörf virðist vera talin á í
samningnum. /HKr. /smh /VH
− Sjá einnig bls. 4 og 8
22–23
Þurfum að
fara í öflugt
kynningarátak
Smalamennska og réttir standa nú sem hæst, en þessi mynd var tekin í Skaftárrétt á dögunum. Hér eru Þóranna Harðardóttir og Eyþór Valdimarsson, bændur í Ásgarði við Kirkjubæjarklaustur,
og sonurinn, Hörður Eyþórsson. Þau voru hæstánægð með vænleika lambanna sem nú komu af fjalli. Mynd / Hjörtur Leonard Jónsson.
Eina sérverslunin
í heiminum
með afurðir af
forystufé
26–27 28–29
Sveitastelpa frá
Gunnbjarnarholti
lærir flutningafræði
í Ástralíu