Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Vélabásinn liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson Nýr og mikið breyttur Suzuki Vitara Frá því í vor hef ég ætlað að prófa nýja Suzuki-jepplinginn, en nú er Suzuki Vitara orðinn fyrir mér að jepplingi, en var áður í mínum huga jeppi. Tvisvar hef ég prófað eldri árgerðirnar af Suzuki Vitara og líkaði vel þar sem eldri bílarnir voru byggðir á grind og með hátt og lágt drif. Nú er kominn nýr Vitara og mikið breyttur, ekki lengur byggður á grind og ekkert lágt drif, en þrátt fyrir þessar breytingar varð ég ekki fyrir vonbrigðum. Hraðastillirinn virkar vel Ég ákvað að renna austur fyrir fjall og prófa bílinn í langkeyrslu þar sem að í einstaka tilfellum hefur mér ekk- ert líkað vel við bíla í langkeyrslu. Á leiðinni var umferðin á réttum 90 og því stillti ég hraðastillinn á 95 til að ná næsta bíl á undan, en hraðastillirinn (cruse control), er með búnað sem hægir sjálfkrafa á bílnum ef bíllinn fyrir framan fer hægt og eykur hraðann ef bíllinn fyrir framan gerir það. Þegar ég var kominn austur fyrir Selfoss sá ég að bíll með hestakerru beygði upp Skeiðavegamót og fór ég á eftir honum til að prófa betur hraðastillinn. Hestakerrubíllinn ók á um 70 kílómetra hraða og vilj- andi stillti ég hraðastillinn aftur á 95 km. Þegar ég náði bílnum hægði Vitaran sjálfkrafa á sér, en þegar ég gaf stefnuljós til að taka fram úr fór Vitaran sjálfkrafa upp í 95 og hélt þeim hraða þar til að ég var vel kominn fram úr bílnum að ég lækkaði hraðann. Á leiðinni til baka þegar ég kom að hringtorginu við Hveragerði og ég með hraðastillinn á 90 bremsaði skyndilega bíllinn fyrir framan mig löngu áður en hann kom að hringtorginu. Hraðastillirinn í bílnum hjá mér las þetta og brems- aði líka. Eftir því sem ég ók lengra líkaði mér bíllinn betur og betur Á einum stað fannst mér eins og bíllinn væri laus á veginum (rásaði örlítið), ég prófaði að slá af en sama sagan. Næst var bara að prófa hina leiðina, „kitla pinnann aðeins“, og þegar hraðamælisnálin sýndi vel hægra megin við 100 var bíllinn eins og límdur við veginn. Ef eitthvað er, þá fannst mér bíll- inn liggja betur á 100+ en á 80 km hraða. Eftir um 100 km akstur var kominn tími á að snúa við og halda heim þó svo að ég hefði gjarnan vilj- að fara lengra. Í langkeyrslu var ég að eyða um 6 lítrum á hundraðið, en uppgefin eyðsla samkvæmt bæklingi er um 5,6–5,7. Í innanbæjarkeyrslunni var ég að eyða nálægt 7,6 á meðalhraðanum 27. Á milli sætanna er takki sem maður getur snúið á SPORT (snúa til hægri) eða SNOW (til vinstri), en ýtt á takkann niður fyrir AUTO (meðalakstur). Með stillt á SPORT er mun skemmtilegra að keyra bílinn innanbæjar. Ein stilling er svo Lock, en hana prófaði ég ekki. Mikið af öryggisbúnaði Bíllinn sem ég prófaði var með 1,6 lítra bensínvél sem á að skila 120 hestöflum. Beinskiptur með 5 gíra kassa. Í bílnum er meðal annars 7 öryggisloftpúðar, sérstakir styrktar- bitar í hurðum, brekkuhaldari (hill holder), brekkuaðstoð sem virkar sem bremsa niður brattar brekkur og áðurnefndur hraðastillir með hemlaskynjun. Hægt er að fá Suzuki Vitara í 14 mismunandi litaafbrigðum. Einnig er Suzuki Vitara fáanlegur með 1,6 lítra dísilvél sem á að skila 120 hestöflum. Ódýrasti Suzuki Vitara bíllinn (eins og ég prófaði) kostar 4.860.000, en sá dýrasti 6.150.000. Vantar fullvaxið varahjól og alvöru dagljósabúnað Það voru ekki margir hlutir sem ég fann að þessum jepplingi, en ég hefði viljað sjá „fullvaxið“ varadekk, en ekki aumingjadekk. Einnig að bíllinn sé með alvöru dagljósabúnað, en ekki þessar ljóstírur að framan sem eru ekki ásættanlegar í þoku og engin aft- urljós. Ég gáði ekki að mér í þoku á Hellisheiðinni fyrr en að ég var blikkaður af bíl sem kom á móti. Margir kostir Kostirnir eru margir, góður á malar- vegi, heyrist lítið veghljóð inn í bíl- inn, krafturinn er fínn og virkilega gaman að keyra bílinn, sérstaklega ef maður hefur sportstillinguna á. Mikið breyttur nýr Suzuki Vitara. Myndir / HLJ Með hraðastillinn stilltan á 96 hægði bíllinn sjálfkrafa niður í 80 vegna hindr- unar fyrir framan. Öryggistæki sem virkar vel. Björt og góð bakkmyndavél. Meira en 20 cm eru undir lægsta punkt. Var blikkaður í þokunni þar sem ljóstírur framan á bílnum sáust ekki og engin ljós voru að aftan. Gjörsamlega óásættanlegur ljósabúnaður. Farangursrýmið virkar lítið en er ótrúlega stórt. Góður á malarvegi, heyrist lítið veghljóð inn í bílinn, krafturinn er fínn og virkilega gaman að keyra bílinn. Þyngd 1.160 kg Hæð 1.610 mm Breidd 1.775 mm Lengd 4.175 mm Helstu mál og upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.