Bændablaðið - 24.09.2015, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Nýr og mikið breyttur Suzuki Vitara
Frá því í vor hef ég ætlað að prófa
nýja Suzuki-jepplinginn, en nú er
Suzuki Vitara orðinn fyrir mér
að jepplingi, en var áður í mínum
huga jeppi. Tvisvar hef ég prófað
eldri árgerðirnar af Suzuki Vitara
og líkaði vel þar sem eldri bílarnir
voru byggðir á grind og með hátt
og lágt drif.
Nú er kominn nýr Vitara og mikið
breyttur, ekki lengur byggður á grind
og ekkert lágt drif, en þrátt fyrir
þessar breytingar varð ég ekki fyrir
vonbrigðum.
Hraðastillirinn virkar vel
Ég ákvað að renna austur fyrir fjall
og prófa bílinn í langkeyrslu þar sem
að í einstaka tilfellum hefur mér ekk-
ert líkað vel við bíla í langkeyrslu.
Á leiðinni var umferðin á réttum
90 og því stillti ég hraðastillinn á
95 til að ná næsta bíl á undan, en
hraðastillirinn (cruse control), er
með búnað sem hægir sjálfkrafa á
bílnum ef bíllinn fyrir framan fer
hægt og eykur hraðann ef bíllinn
fyrir framan gerir það.
Þegar ég var kominn austur fyrir
Selfoss sá ég að bíll með hestakerru
beygði upp Skeiðavegamót og fór
ég á eftir honum til að prófa betur
hraðastillinn. Hestakerrubíllinn ók
á um 70 kílómetra hraða og vilj-
andi stillti ég hraðastillinn aftur á
95 km. Þegar ég náði bílnum hægði
Vitaran sjálfkrafa á sér, en þegar ég
gaf stefnuljós til að taka fram úr
fór Vitaran sjálfkrafa upp í 95 og
hélt þeim hraða þar til að ég var
vel kominn fram úr bílnum að ég
lækkaði hraðann. Á leiðinni til baka
þegar ég kom að hringtorginu við
Hveragerði og ég með hraðastillinn
á 90 bremsaði skyndilega bíllinn
fyrir framan mig löngu áður en hann
kom að hringtorginu. Hraðastillirinn
í bílnum hjá mér las þetta og brems-
aði líka.
Eftir því sem ég ók lengra líkaði
mér bíllinn betur og betur
Á einum stað fannst mér eins og
bíllinn væri laus á veginum (rásaði
örlítið), ég prófaði að slá af en sama
sagan. Næst var bara að prófa hina
leiðina, „kitla pinnann aðeins“, og
þegar hraðamælisnálin sýndi vel
hægra megin við 100 var bíllinn
eins og límdur við veginn.
Ef eitthvað er, þá fannst mér bíll-
inn liggja betur á 100+ en á 80 km
hraða. Eftir um 100 km akstur var
kominn tími á að snúa við og halda
heim þó svo að ég hefði gjarnan vilj-
að fara lengra.
Í langkeyrslu var ég að eyða um
6 lítrum á hundraðið, en uppgefin
eyðsla samkvæmt bæklingi er um
5,6–5,7.
Í innanbæjarkeyrslunni var ég að
eyða nálægt 7,6 á meðalhraðanum
27. Á milli sætanna er takki sem
maður getur snúið á SPORT (snúa
til hægri) eða SNOW (til vinstri),
en ýtt á takkann niður fyrir AUTO
(meðalakstur). Með stillt á SPORT
er mun skemmtilegra að keyra bílinn
innanbæjar. Ein stilling er svo Lock,
en hana prófaði ég ekki.
Mikið af öryggisbúnaði
Bíllinn sem ég prófaði var með 1,6
lítra bensínvél sem á að skila 120
hestöflum. Beinskiptur með 5 gíra
kassa. Í bílnum er meðal annars 7
öryggisloftpúðar, sérstakir styrktar-
bitar í hurðum, brekkuhaldari (hill
holder), brekkuaðstoð sem virkar
sem bremsa niður brattar brekkur
og áðurnefndur hraðastillir með
hemlaskynjun.
Hægt er að fá Suzuki Vitara í 14
mismunandi litaafbrigðum. Einnig
er Suzuki Vitara fáanlegur með 1,6
lítra dísilvél sem á að skila 120
hestöflum. Ódýrasti Suzuki Vitara
bíllinn (eins og ég prófaði) kostar
4.860.000, en sá dýrasti 6.150.000.
Vantar fullvaxið varahjól og
alvöru dagljósabúnað
Það voru ekki margir hlutir sem
ég fann að þessum jepplingi, en
ég hefði viljað sjá „fullvaxið“
varadekk, en ekki aumingjadekk.
Einnig að bíllinn sé með alvöru
dagljósabúnað, en ekki þessar
ljóstírur að framan sem eru ekki
ásættanlegar í þoku og engin aft-
urljós. Ég gáði ekki að mér í þoku
á Hellisheiðinni fyrr en að ég var
blikkaður af bíl sem kom á móti.
Margir kostir
Kostirnir eru margir, góður á malar-
vegi, heyrist lítið veghljóð inn í bíl-
inn, krafturinn er fínn og virkilega
gaman að keyra bílinn, sérstaklega
ef maður hefur sportstillinguna á.
Mikið breyttur nýr Suzuki Vitara. Myndir / HLJ
Með hraðastillinn stilltan á 96 hægði bíllinn sjálfkrafa niður í 80 vegna hindr-
unar fyrir framan. Öryggistæki sem virkar vel.
Björt og góð bakkmyndavél.
Meira en 20 cm eru undir lægsta punkt. Var blikkaður í þokunni þar sem ljóstírur framan á bílnum sáust ekki og engin
ljós voru að aftan. Gjörsamlega óásættanlegur ljósabúnaður.
Farangursrýmið virkar lítið en er ótrúlega stórt.
Góður á malarvegi,
heyrist lítið veghljóð
inn í bílinn, krafturinn
er fínn og virkilega
gaman að keyra bílinn.
Þyngd 1.160 kg
Hæð 1.610 mm
Breidd 1.775 mm
Lengd 4.175 mm
Helstu mál og upplýsingar