Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Fréttir
Þann 16. september síðastliðinn
sendi Mjólkursamsalan (MS) frá
sér tilkynningu þar sem sú áherslu-
breyting var kynnt að smærri
framleiðendur mjólkurafurða
verði styrktir með því að lækka
verð á hrámjólk til þeirra um rúm
11 prósent.
Frá og með
1. október
næstkomandi
munu því þeir
sem framleiða
úr mjólk bjóð-
ast allt að 300 þúsund lítrar á sama
verði og MS greiðir bændum, en
það eru tæpar 85 krónur fyrir hvern
lítra sem bændur framleiða.
Í tilkynningunni kemur fram að
ákvörðun um þetta sé tekin til að
koma til móts við sjónarmið um
að nauðsynlegt sé að fleiri aðilar
komi að framleiðslu í mjólkuriðnaði
og með því verði hagur neytenda
bættur og ýtt sé undir fjölbreytta
framleiðslu og nýsköpun. Gert er
ráð fyrir að þetta fyrirkomulag nái
til næstu þriggja ára og framhaldið
ráðist af því hvernig hefur tekist til.
Samfélagsleg skylda
Mjólkursamsölunnar
Vonar MS að þetta muni leiða til þess
að framleiðsla á mjólkurvörum verði
enn fjölbreyttari og gróskumeiri
en áður og í kjölfarið muni fleiri
spennandi vörur líta dagsins ljós.
„Jafnframt má segja að þessi jöfn-
un á aðstöðu stórs og lítilla aðila sé
mikilvægt sanngirnismál og að MS
sé að mæta samfélagslegri skyldu
með hliðsjón af markaðsstöðu sinni
og stærðarhagkvæmni.
Einnig er þessi ákvörðun
tekin með hagsmuni eigenda
Mjólkursamsölunnar í huga en það
eru 650 kúabændur um allt land.
Þeir munu áfram selja jafnmikla
mjólk og áður en vonandi til fleiri
framleiðenda sem vilja spreyta sig
á því að þróa nýjar og áhugaverðar
vörur sem unnar eru úr mjólk. Það
gæti haft jákvæð áhrif á mjólkursölu
frá bændum.
Jafnframt þessu hefur MS
áhuga á að vinna með aðilum sem
myndu vilja kaupa vörur á mismun-
andi framleiðslustigi, til að vinna
áfram undir eigin vörumerki. Það
gæti verið áhugavert fyrir frum-
kvöðla, t.d. aðila í ferðaþjónustu
eða veitingastarfsemi,“ segir í til-
kynningunni.
Styrkir rekstrargrundvöllinn hjá
BioBúi
„Þessi verðlækkun kemur sér mjög
vel fyrir okkur,“ segir Helgi Rafn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
BioBús, sem framleiðir lífrænt vott-
aðar mjólkurvörur. „Við borgum um
45 prósent meira fyrir þá mjólk sem
við vinnum úr, en Mjólkursamsalan
sér um að sækja hana á þá tvo bæi
sem framleiða fyrir okkur; Búland
í Austur-Landeyjum og Neðri-Háls
í Kjós. Þetta gerir okkur kleift að
byggja betur undir reksturinn.
Möguleikar okkar til að breikka
vörulínuna takmarkast samt aðal-
lega við framleiðslumagnið sem
er í boði á lífrænt vottaðri mjólk.
Það eru svo fáir slíkir kúabændur
og ég sé ekki fram á að það breyt-
ist mikið í nálægri framtíð. Við
höfum verið að kaupa rúmlega
þrjú hundruð þúsund lítra á ári af
Mjólkursamsölunni, þannig að við
erum að fá þarna lækkun á verði á
hrámjólk um 11 prósent á ársgrund-
velli og erum þakklátir fyrir það.
Það gefur okkur vissulega einhverja
aukna möguleika í vöruþróun því
það er dýrt ferli. Við höfum ekki
gefið út neina verðhækkun á vörun-
um á síðustu mánuðum þrátt fyrir
nýja kjarasamninga og verðhækk-
anir frá Mjólkursamsölunni. Þessi
lækkun verður líklega til þess að
við getum sleppt því í bili.“
Ánægður með tóninn í
tilkynningu MS
Hálfdán Óskarsson er fram-
kvæmdastjóri hjá Örnu á
Bolungarvík, sem sérhæfir sig í
vinnslu á laktósafríum mjólkur-
afurðum.
„Ég er mjög ánægður með þetta
útspil hjá Mjólkursamsölunni. Við
reiknum með að vinna úr um milljón
lítrum á þessu ári, svo við fáum þarna
verðlækkun á um þriðjungi af þeirri
hrámjólk – og það munar um þessar
nokkrar milljónir sem þar sparast.
Við erum alltaf á fullu í vöruþróun
þannig að þetta hefur ekki bein áhrif
þannig. Við höfum verið með sama
verð á vörunum okkar frá því að við
byrjuðum fyrir tveimur árum, þannig
að þetta kemur sér vel að því leyti að
við þurfum þá ekki að hækka í bráð.
Sex manns starfa hjá Örnu og
að sögn Hálfdánar er stöðugt verið
að þróa nýjungar. „Reksturinn var
nokkuð erfiður til að byrja með en
það er alveg hægt að segja að þetta
ár líti vel út. Vörunúmer eru um
18 og við erum alltaf með eitthvað
á prjónunum. Við ætlum að halda
áfram að sérhæfa okkur í laktósafrí-
um vörum og munum koma með
nýjungar strax í þessari viku þegar
við kynnum nýjan fetaost. Í saltlög-
inn sem osturinn verður í er notað
sjávarsalt héðan úr Ísafjarðardjúpi,
sem unnið er í Saltverki hér á
Reykjanesi. Svo koma fleiri áhuga-
verðar nýjungar í október.
Ég er mjög ánægður með
tóninn í fréttatikynningunni frá
Mjólkursamsölunni – þarna er
greinilega alveg nýr hugsunarháttur.
Bændur eiga auðvitað fyrirtækið
og það er þeirra hagur að selja sem
mesta mjólk. Það skiptir máli í
þessu,“ segir Hálfdán.
Mjólkurbúið Kú sendi frá sér til-
kynningu fljótlega eftir að greint
hafði verið frá áherslubreytingu
MS. Þar er þessum tíðindum fagn-
að og lækkunin sögð hafa mikla
þýðingu, ekki síst að geta loks keypt
hráefni til framleiðslu á jafnréttis-
grunni. Um leið er áréttað að fyrir-
tækið hafi þurft að leita réttar síns
hjá samkeppnisyfirvöldum þar sem
málið sé enn til meðferðar.
„Við hjá Mjólkurbúinu Kú
tökum í útrétta sáttahönd nýráðins
forstjóra MS. Við horfum björt fram
á veg og erum staðráðin í að nýta
þetta skref til aukins jafnræðis til
að efla starfsemi okkar íslenskum
neytendum til hagsbóta,“ segir í til-
kynningu Mjólkurbúsins Kú. /smh
Mjólkursamsalan býður smærri afurðastöðvum lægra verð fyrir hrámjólkina
Samstarfsnefnd Samtaka afurða-
stöðva (SAM) í mjólkuriðnaði og
Bændasamtök Íslands (BÍ) hafa
lagt til, við framkvæmdanefnd
búvörusamninga, að greiðslumark
mjólkur fyrir verðlagsárið 2016
verði 137 milljónir lítra. Á þessu
ári er greiðslumarkið 140 millj-
ónir lítra.
Þetta var ákveðið í kjölfar fund-
ar samstarfsnefndar SAM og BÍ
18. september síðastliðinn þar sem
fjallað var um framleiðslu, sölu og
birgðir mjólkurafurða síðustu tólf
mánuði og farið yfir áætlanir fyrir
komandi verðlagsár 2016.
Í sölusamantekt SAM fyrir
tímabilið frá september 2014 til
ágúst 2015 kemur fram að sala
mjólkurafurða umreiknuð á prótein-
grunn, var um 121,7 milljónir lítra,
en umreiknað á fitugrunn var hún
um 131,9 milljónir lítra. Söluáætlun
til loka ársins 2015 gerir ráð fyrir
að sala á fitugrunni verði um 133
milljónir lítra.
Söluáætlun SAM fyrir árið 2016
byggir á söluþróun mjólkurafurða
síðustu tuttugu og fjóra mánuði og
samkvæmt henni er búist við að sala
mjólkurvara árið 2016, umreiknuð
á fitugrunn, verði um 137 milljónir
lítra.
Í tillögu samstarfsnefndar SAM
og BÍ fyrir greiðslumark verðlags-
ársins 2015 var gert ráð fyrir fjórum
milljónum lítra til birgðaaukningar,
en samkvæmt söluáætlun til loka árs
verður birgðaaukning nokkuð meiri.
Ekki er aukningin það mikil að sam-
starfsnefndin telji ástæðu til að gera
tillögu um skerðingu greiðslumarks
til lækkunar birgða vegna verðlags-
ársins 2016.
Forsendulaus verðhækkun
á greiðslumarki
„Þetta auðveldar þeim sem hafa átt
erfitt með að ná upp í sitt greiðslu-
mark hin síðustu ár, í þeim mikla
vexti sem hefur verið. Þetta þýðir
að greiðslurnar dreifast á heldur
færri lítra. Að öðru leyti held ég nú
að þetta komi lítið við kúabændur,“
segir Sigurður Loftsson, formað-
ur Landssambands kúabænda, um
áhrifin af þessari lækkun. „Það hefur
verið gefið út að það verði áfram
greitt fullt verð fyrir alla mjólk, út
næsta ár, þannig að áhrifin ættu ekki
að verða mikil. Það sem er mikilvæg-
ast í þessu öllu saman er að það er
áfram vöxtur í sölunni – þótt hann
sé ekki eins mikill og hann var – og
birgðastaðan er orðin góð.“
Eftir tilboðsmarkað með greiðslu-
mark mjólkur þann 1. september
síðastliðinn kom í ljós að verð á
greiðslumarki hafði hækkað um 50
krónur á lítrann. Sigurður segir að
kannski spili inn í að það var farið
að tala um að það væri að hægjast á
sölunni. „Að öðru leyti verð ég að
segja að mér finnst þetta forsendu-
laus hækkun. Mér finnst gengið
dálítið langt í það að bjóða í greiðslu-
markið, það er að mínu mati ekki
tilefni til þessarar hækkunar. Það er
til dæmis ekki nema eitt ár eftir af
mjólkursamningnum – það hefur
verið rætt um breytingar og það er
langt síðan farið var að tala um þær.
Svo bætist það líka við að ekki hefur
mátt fyrna greiðslumark frá 2010, til
hagræðingar skattalega.“ /smh
Starfshópur um landnotkun í
dreifbýli og sjálfbæra landnýt-
ingu hefur skilað tillögum sínum til
umhverfisráðherra. Í skýrslunni
er niðurstöðum hópsins skipt í þrjá
meginflokka.
Í fyrsta lagi er fjallað um forsend-
ur skipulags og ákvarðanatöku um
landnotkun. Telur starfshópurinn
meðal annars brýnt að samræma
verklag hjá opinberum stofnunum
við öflun, skráningu, viðhald og
miðl un landupplýsinga á Íslandi.
Þá er lagt til að ríkið móti sér
eigendastefnu um nýtingu og aðra
ráðstöfun landareigna í þess eigu.
Þannig hljóðar upphaf fréttar á
heimasíðu umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytisins.
Í öðru lagi er fjallað um mikil-
vægi stefnumörkunar og lögleiðingar
áætlana fyrir ólíka málaflokka, svo
sem landbúnað, landgræðslu, skóg-
rækt og ferðaþjónustu. Slíkar áætl-
anir fælu í sér stefnumótun til langs
tíma og framkvæmdaáætlanir til
skemmri tíma. Leggur starfshópur-
inn til að mótuð verði stefna um
stuðning ríkisins í þágu sjálfbærrar
landnýtingar og náttúruverndar.
Loks er fjallað um stefnumörkun
sem snýr meðal annars að sveitar-
félögum. Leggur starfshópurinn til
að hvert sveitarfélag móti sér stefnu
um uppskiptingu bújarða, með hlið-
sjón af flokkun landbúnaðarlands,
jarðalögum og eigin atvinnustefnu.
Enn fremur þurfi að fjalla um lofts-
lagsbreytingar, möguleg áhrif þeirra,
aðlögun og mótvægisaðgerðir í áætl-
unum á vegum ríkis og sveitarfélaga,
þar með talið í skipulagsáætlunum
og áætlunum fyrir ólíka málaflokka.
Starfshópinn skipuðu þau Björn
Helgi Barkarson, formaður, Drífa
Kristjánsdóttir, Einar Jónsson,
Níels Árni Lund og Steinunn Fjóla
Sigurðardóttir. /VH
Landnotkun í dreifbýli og sjálfbær landnýting:
Samræma þarf verklag hjá
opinberum stofnunum
Greiðslumark mjólkur fyrir næsta ár verði 137 milljónir lítra:
Það var ekki tilefni til verðhækkunar
á greiðslumarki eins og nú gerðist
– segir formaður kúabænda og bendir á að óvissa sé fram undan með greiðslumarkskerfið
Sigurður Loftsson, formaður Lands-
sambands kúabænda.
Myndir / smh
Hálfdán Óskarsson, framkvæmda-
stjóri Örnu. Mynd / HKr.
Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri
hjá Mjólkurbúinu Kú. Mynd / HKr.
Lagt er til að ríkið móti sér eigendastefnu um nýtingu og aðra ráðstöfun
landareigna í þess eigu.