Bændablaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Frístundabændur á Húsavík tóku
sig til og reistu nýja fjárrétt síð-
sumars. Hún var tekin í notkun
12. september og var hátíðar-
bragur yfir réttardeginum.
Formaður Fjáreigendafélags
Húsavíkur, Aðalsteinn Árni
Baldursson, bauð fjölmarga gesti
velkomna um leið og hann fór yfir
tildrög þess að frístundabænd-
ur á Húsavík byggðu nýja rétt í
Tröllakoti. Fyrri rétt stóð í landi
Bakka en þurfti að víkja vegna
framkvæmda við stóðiðju á vegum
PPC.
Fjáreigendafélag Húsavíkur var
stofnað sumarið 1983 og fjárbænd-
urnir Sigurður Jónsson og Jón Ágúst
Bjarnason, sem hafa verið félags-
menn frá upphafi ásamt Aðalsteini
Árna fjallskilastjóra, gáfu réttinni
nafnið Húsavíkurrétt.
Kristján Þór Magnússon bæjar-
stjóri Norðurþings klippti á réttar-
borðann og naut við það aðstoðar
dóttur sinnar, Aðalheiðar Helgu. Þar
með vígði hann réttina og óskaði
fjáreigendum til hamingju með
glæsilega rétt.
Þá var tekið til við að draga féð
í dilka en um 500 fjár var saman
komið í réttinni, frá Húsavík og
nærliggjandi sveitum, það er frá
Tjörnesi, Kelduhverfi, Reykjahverfi
og Aðaldal. Meðan á fjárdrættinum
stóð buðu fjáreigendur upp á kaffi,
safa og kleinur. Veitingar voru vel
þegnar í einstakri veðurblíðu.
Í lokin var boðin upp falleg
gimbur í tilefni vígslunnar og komu
nokkur tilboð í hana en svo fór að
Torfi Aðalsteinsson bauð hæst og
hlaut gimbrina fögru. Frá þessu er
sagt á vef Framsýnar.
Frístundabændur á Húsavík byggðu nýja rétt
Sigurður Jónsson og Jón Ágúst Bjarnason, sem komu að því að stofna
fjáreigendafélagið árið 1983, gáfu réttinni nafn, Húsavíkurrétt.
Myndir / Aðalsteinn Á. Baldursson
Kristján Þór Magnússon, bæjarstjóri Norðurþings, klippti síðan á réttarborð-
ann með dóttir sinni, Aðalheiði Helgu, og vígði þar með réttina formlega.
Kristján Eiðsson stórbóndi dregur
Baugu sína í nýja dilkinn. Eins og
sjá má virðist Bauga nokkuð ánægð
með nýju réttina.
Þetta er bara gaman, Kristján Þór
bæjarstjóri með fallegan lambhrút.
Aðaldís og María, sem ættaðar eru
til við að draga en þær búa báðar á
-
staklega norður til Húsavíkur til að
taka þátt í réttardeginum.