Bændablaðið - 24.09.2015, Qupperneq 30

Bændablaðið - 24.09.2015, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Frístundabændur á Húsavík tóku sig til og reistu nýja fjárrétt síð- sumars. Hún var tekin í notkun 12. september og var hátíðar- bragur yfir réttardeginum. Formaður Fjáreigendafélags Húsavíkur, Aðalsteinn Árni Baldursson, bauð fjölmarga gesti velkomna um leið og hann fór yfir tildrög þess að frístundabænd- ur á Húsavík byggðu nýja rétt í Tröllakoti. Fyrri rétt stóð í landi Bakka en þurfti að víkja vegna framkvæmda við stóðiðju á vegum PPC. Fjáreigendafélag Húsavíkur var stofnað sumarið 1983 og fjárbænd- urnir Sigurður Jónsson og Jón Ágúst Bjarnason, sem hafa verið félags- menn frá upphafi ásamt Aðalsteini Árna fjallskilastjóra, gáfu réttinni nafnið Húsavíkurrétt. Kristján Þór Magnússon bæjar- stjóri Norðurþings klippti á réttar- borðann og naut við það aðstoðar dóttur sinnar, Aðalheiðar Helgu. Þar með vígði hann réttina og óskaði fjáreigendum til hamingju með glæsilega rétt. Þá var tekið til við að draga féð í dilka en um 500 fjár var saman komið í réttinni, frá Húsavík og nærliggjandi sveitum, það er frá Tjörnesi, Kelduhverfi, Reykjahverfi og Aðaldal. Meðan á fjárdrættinum stóð buðu fjáreigendur upp á kaffi, safa og kleinur. Veitingar voru vel þegnar í einstakri veðurblíðu. Í lokin var boðin upp falleg gimbur í tilefni vígslunnar og komu nokkur tilboð í hana en svo fór að Torfi Aðalsteinsson bauð hæst og hlaut gimbrina fögru. Frá þessu er sagt á vef Framsýnar. Frístundabændur á Húsavík byggðu nýja rétt Sigurður Jónsson og Jón Ágúst Bjarnason, sem komu að því að stofna fjáreigendafélagið árið 1983, gáfu réttinni nafn, Húsavíkurrétt. Myndir / Aðalsteinn Á. Baldursson Kristján Þór Magnússon, bæjarstjóri Norðurþings, klippti síðan á réttarborð- ann með dóttir sinni, Aðalheiði Helgu, og vígði þar með réttina formlega. Kristján Eiðsson stórbóndi dregur Baugu sína í nýja dilkinn. Eins og sjá má virðist Bauga nokkuð ánægð með nýju réttina. Þetta er bara gaman, Kristján Þór bæjarstjóri með fallegan lambhrút. Aðaldís og María, sem ættaðar eru til við að draga en þær búa báðar á - staklega norður til Húsavíkur til að taka þátt í réttardeginum.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.