Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Eyjafjörður og S-Þingeyjarsýsla:
Bróðurpartur af kornuppskeru
sumarsins er ónýtur
− tjón hleypur á tugum milljóna króna, segir Guðmundur H. Gunnarsson hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
Fagráð í nautgriparækt hefur
ákveðið að frá og með 1. október
nk. verður takmörkunum á
dreifingu sæðis úr Bamba 08049
og Flekki 08029 aflétt og þeir til
frjálsra afnota svo lengi sem sæði
úr þeim er til.
Hugsunin með þessari stýringu
var að kalla eftir skipulegu vali
bænda á kúm sem haldið væri undir
þessi naut og tóm gæfist til þess óháð
burðartíma. Það er ljóst að það hefur
tekist og notkun, sérstaklega Bamba,
hefur dreifst á lengri tíma og val
hans á kýr orðið markvissari og betri
en ella. Auk þessa hefur stýringin
tvímælalaust orðið til þess að allir
hafa haft tryggan aðgang að sæði
úr þessum nautum sem annars hefði
reynst örðugra að tryggja. Fagráð í
nautgriparækt vill þakka kúabænd-
um og frjótæknum samstarfið við
þessa stýringu og þann skilning sem
þessi ákvörðun hefur mætt.
Bróðurpartur af allri korn-
uppskeru í Eyjafirði og Suður-
Þingeyjarsýslu fór forgörðum á
einni frostnótt í lok ágúst. Um
er að ræða gríðarlegt tjón fyrir
bændur og hleypur það á tugum
milljóna króna.
Guðmundur
H. Gunnarsson,
s t a r f s m a ð -
ur Búnaðar-
s a m b a n d s
Eyjafjarðar og
ráðgjafi í jarð-
rækt hjá RML,
segir að aðfara-
nótt 30. ágúst
s í ð a s t l i ð i n n
hafi svellköld
frostnótt lagt stóran hluta af
korni á ökrum bæði í Eyjafirði og
S-Þingeyjarsýslu að velli. Frost
mældist þessa nótt -3,9 gráður
á Möðruvöllum í Hörgárdal og
á annarri veðurathugunarstöð í
Eyjafirði, Torfum í Eyjafjarðarsveit,
mældist það -4,5 gráður. Frost var
í allmarga klukkutíma, frá því fyrir
miðnætti og allt fram til morguns.
Seinna sáð en í meðalári
Guðmundur segir að vorið hafi verið
bændum erfitt, kalt var í veðri og
snjókoma í lok apríl bleytti akra sem
þá voru að verða tilbúnir til jarð-
vinnslu. Það varð til þess að sáning
fór víðast hvar ekki fram fyrr en um
eða upp úr miðjum maí, en á síðustu
árum hefur oft verið hægt að byrja
að sá korni hér norðan heiða seinni
partinn í apríl.
„Þetta var um hálfum mánuði
og allt upp í þremur vikum seinna
en vant er. Við tók svo óvenju kalt
sumar, júní og júlí voru sérlega kald-
ir og seinkaði það verulega skriði
kornsins þótt akrarnir litu að öðru
leyti vel út þrátt fyrir kalt vor og
sumar, því víðast hvar var vandað til
verka en margir kornbændur á svæð-
inu sóttu námskeið í kornrækt síð-
astliðinn vetur,“ segir Guðmundur.
Meðalhiti í Eyjafirði var tölu-
vert undir meðallagi þessa sumar-
mánuði, í júní og júlí. Sem dæmi
má nefna að meðalhiti var 8,4
gráður á Möðruvöllum í Hörgárdal
í júlí og 8,7 gráður á Torfum í
Eyjafjarðarsveit.
„Það er nálægt því að vera um
2–3 gráðum undir meðaltali síðustu
ára og hafði vissulega áhrif á þroska
kornsins, sem varð hægari fyrir
vikið,“ segir hann. Kornið var því
víða skammt á veg komið í þroska
þegar frostnóttin umrædda helltist
yfir í lok ágúst.
Gremjulegt því útlit var fyrir
þokkalega uppskeru
„Upp úr miðjum ágúst fór veðrið að
skána verulega norðan heiða og útlitið
var alls ekki slæmt. Margir akranna
voru fallegir þrátt fyrir kalt sumar og
uppskera hefði orðið þokkaleg því
haustið hefur verið ágætt, fínasta
veður í september. Vöxturinn hefði
því tekið vel við sér og uppskera held
ég að hefði síst orðið mikið minni nú
í ár en var í fyrra,“ segir Guðmundur.
Hann telur að þar sem seint var
sáð og kalt var fyrri hluta sumars
hafi kornið ekki staðið af sér áfallið
í kjölfar frostnæturinnar. Korn þoli
að jafnaði eina og eina frostnótt, en
þá þurfi vöxtur að vera lengra kominn
en raunin var.
„Kornið þolir ekki frostið þegar
það er þetta skammt á veg komið
í þroska. Það fór því sem fór og er
verulega gremjulegt. Eftir sitja bænd-
ur með sárt ennið og gríðarlegt tjón,“
segir Guðmundur.
Meðaluppskera í fyrra
um 4–5 tonn á ha
Í fyrrasumar var korn ræktað á
um 460 ha lands í Eyjafirði og
S-Þingeyjarsýslu en Guðmundur
telur að heldur minna land hafi
verið nýtt undir kornrækt nú á liðnu
sumri vegna þess hve seint voraði.
Uppskera í fyrra var að meðaltali um
4–5 tonn á ha. Um 40 krónur fengust
fyrir kílóið í fyrrahaust.
„Jarðabótaúttekt fer fram þessa
dagana, því verki er ekki lokið,
en það er alveg ljóst að um heil-
mikið tjón er að ræða, það nemur
einhverjum tugum milljóna,“ segir
Guðmundur.
Einnig má geta þess að nokkr-
ir akrar á svæðinu skemmdust af
völdum sveppasmits sem upp kom
á ökrunum. Slíkt smit nær meiri
útbreiðslu á köldu og blautu sumri.
/MÞÞ
Takmörkunum aflétt:
Dreifing sæðis úr
Bamba og Flekki
Fréttir
Hólmgeir Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Bústólpa, segir að
félagið bjóði bændum nú í haust
37 krónur á kílólið af byggi, tæpar
46 krónur með virðisaukaskatti.
„Við keyptum 233 tonn af bænd-
um í fyrra og tókum við 41 tonni til
viðbótar til vinnslu fyrir þá, samtals
um 274 tonn,“ segir hann, en mikið
af því korni sem bændur rækta er
súrsað heima á bæ og kemur því ekki
til vinnslu hjá Bústólpa.
Virði þess korns sem kom til
vinnslu hjá félaginu í fyrrahaust var
nær 12,6 milljónir króna með virðis-
aukaskatti. Mun minna var ræktað af
korni á liðnu sumri miðað við sumar-
ið þar á undan, svo Hólmgeir segist
ekki vita hvað raunhæft sé að tala um
hversu mikið hefur glatast.
„Við erum enn ekki farin að fá
neitt korn. Ef sú staða kemur upp
að við fáum lítið eða ekkert bygg
innanlands flytjum við meira inn,
en þetta hefur reyndar frekar lítil
áhrif þar sem lítill hluti af því korni
sem við notum kemur af innanlands-
markaði,“ segir Hólmgeir. /MÞÞ
Framkvæmdastjóri Bústólpa:
Ekki farin að
fá neitt korn
Stjórn Félags sauðfjárbænda
í Strandasýslu stendur fyrir
héraðssýningu á lambhrútum
á Ströndum laugardaginn 10.
október.
Verður hún haldin í tvennu lagi
vegna sauðfjárveikivarna. Annars
vegar í Bæ hjá Gunnari og Þorgerði
klukkan 11.00 og hins vegar á
Heydalsá hjá Ragnari og Sigríði
klukkan 15.00. Allir áhugamenn
um sauðfé velkomnir.
Strandasýsla:
Héraðssýning á
lambhrútum
Smalað var í Miðfjarðarrétt þann 5. september síðastliðinn. Þangað mætti fjöldi fólks auk bænda af svæðinu og var mikill handagangur í öskjunni eins og
Mynd / Jóhann Ágúst Jóhannsson
Hríshóll/Möðruvellir Eyjafjarðarsveit,
dæmi um velheppnaða jarðvinnslu
og sáningu, mynd tekin 23. júní 2015.
Grund I, Eyjafjarðarsveit. Fallegur kornakur ónýtur eftir frostnótt 30. ágúst, mynd tekin 4. september 2015. Mynd / GHG
Guðmundur H.
Gunnarsson.