Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 6

Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Málgagn bænda og landsbyggðar Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 7.500 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.750. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Auður Laila Jónasdóttir audur@bondi.is – Sími: 563 0303 – Frágangur fyrir prentun: Prentsnið. Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621 LEIÐARINN Það er margt skrítið sem fram kemur í samfélagsumræðunni þar sem fjölmiðlun á rafrænum vefmiðlum er flestum aðgengi- leg. Það er þó verra þegar slík lítt ígrunduð og ábyrgðarlaus umræða er tekin upp sem grunn- ur að umræðu og jafnvel ákvarð- anatöku stjórnmálamanna. Íslendingar hafa í auknum mæli horft upp á slíkt í umræðunni á Alþingi Íslendinga á liðnum árum. Þar hefur Alþingi sett niður fyrir botnlausan fíflagang og upphafn- ingu á umræðuhefð sem ekki einu sinni leikskólabörn myndu nokkru sinni temja sér. Alvarlegt dæmi um slíkt var þegar afleiðing samfélagsum- ræðunnar var tilefni samþykkt- ar borgarstjórnar Reykjavíkur á dögunum sem fól í sér viðskipta- bann borgarinnar á ísraelskar vörur. Það er ekkert við það að athuga að fólk tali um slíkt sín á milli á samskiptasíðum, en að stjórn heils sveitarfélags vaði út á sömu braut að mjög illa ígrunduðu máli, gengur bara alls ekki. Það sem alvarlegra er að þarna fór meirihluti stjórnar höfuðborgar- innar langt út fyrir sitt lögbundna valdsvið með ákvarðanatöku um utanríkismál. Það var ekkert skrítið að mörgu landsbyggðarfólki hafi verið brugðið við þessi tíðindi. Engu var líkara en yfirstjórn borgar- innar væri með þessu að undir- strika alvarlegan klofning höfuð- borgar og landsbyggðar þar sem Reykjavík var allt í einu orðið að sérstöku borgríki. Fíflalegri ákvarðanatöku hafa landsmenn sjaldan horft upp á, en vissulega virðingarvert að borgar- stjóri og hans sveit sæi loks að sér á endanum, þó með semingi væri. Annar angi af heiftúðugri sam- félagsumræðu lýtur að stuðningi við flóttamenn. Mjög hávær hópur hrópaði í samfélagsmiðlum um að íslensk stjórnvöld yrðu að sinna þessu fólki betur en gert hefur verið. Til Íslands „yrði“ að flytja fimm hundruð, þúsund eða fimm þúsund manns. Meira að segja var nefnt á Austurvelli að ekki væri lífvænlegt á Íslandi fyrr en tala íbúa væri komin í eina milljón. Sem sagt að flytja ætti inn 700 þúsund flóttamenn. Þegar svo einhver nefndi að það þyrfti nú kannski að íhuga hvað þyrfti til í félagslegri aðstoð og peningum til að halda uppi svo og svo miklum fjölda, að sá sami var umsvifalaust dæmdur argasti rasisti. − Já, menn sjá greinilega oftar flísar í augum náungans en ekki heilu bjálkana í sínum eigin augum. /HKr. LOKAORÐIN Hraða verður búvörusamningum Stjórnvöld kynntu síðdegis á fimmtu- dag nýjan samning sem þau hafa gert við Evrópusambandið. Samningarnir fela í sér að tollkvótar sem heimila tollfrjálsan innflutning á búvörum frá ESB hingað til lands eru stækkaðir verulega, sem og kvótar fyrir ýmsar búvörur sem flytja má tollfrjálst héðan til ESB. Einnig var samið um niðurfellingar eða lækk- anir tolla á fjölda vara og gagnkvæma viðurkenn- ingu á afurðaheitum. Frekari grein er gerð fyrir efnisatriðum samningsins annars staðar í blaðinu. Bændum þótti illa fram hjá sér gengið á lokastigi samningaviðræðnanna, að málinu skyldi lokað án samráðs. Vissulega hafði legið fyrir lengi að við- ræður væru í gangi en það kom óþægilega á óvart að heyra fyrst af niðurstöðum þeirra í fjölmiðlum. Ekki síst vegna þess að viðræður um búvörusamn- inga voru nýhafnar og þar stóð til að ræða um fyrirkomulag tollverndar á samningstímanum. Það er rétt eins og fram hefur komið að afurða- fyrirtæki bænda fóru árið 2010 fram á aukinn mark- aðsaðgang fyrir íslenskar búvörur á ESB-markað. Með samningnum verður hægt að auka útflutning á ýmsum búvörum frá Íslandi, aðallega skyri og lambakjöti, en einnig fleiri afurðum ef markaðir finnast. Þau tækifæri sem samningurinn geym- ir felast vitanlega þar og vonandi verða þau vel nýtt. Útflutningur á öðrum vörum byggir á því að ásættanlegir markaðir finnist. Gagnkvæm viðurkenning afurðaheita Í samningnum er samið um gagnkvæma viður- kenningu afurðaheita. Við viðurkennum og skuldbindum okkur til að vernda tæplega 1.300 afurðaheiti sem skráð hafa verið í ESB og hafa landfræðilega skírskotun. Engin heiti hafa verið skráð hér enn samkvæmt okkar löggjöf um slíkar skráningar. Ástæða er til að hvetja þær greinar sem eiga sóknarfæri á markaði ESB til að skoða þessa möguleika – ekki síst skyrið og lambið. Fjölmörg dæmi eru um skráningar á afurðum sem skírskota til heilla landsvæða, t.d. hafa Skotar fengið skráð „Scottish Lamb“ og mörg sambærileg dæmi má finna. Það er um leið skynsamlegt að valið hafi verið að gera samning um gagnkvæmar tollabreytingar en ekki einhliða niðurfellingar eins og hagsmuna- samtök innflytjenda hafa ítrekað farið fram á. Flest ríki og ríkjasambönd eins og ESB líta á tollvernd sem verðmæti og hún er aldrei látin fyrir ekk- ert. Með tollabreytingum samningsins og öðrum tollabreytingum sem stjórnvöld áforma á næstu misserum er sennilega að verða lítið eftir af toll- um yfirleitt til fyrir Ísland að láta á móti bættum markaðsaðgangi eins og til dæmis fyrir fiskafurðir. Fyrir það verður þá að greiða með öðrum hætti. Samkeppnisstaða versnar Samkeppnisstaða bænda mun í mörgum tilvikum versna. Breytingarnar munu koma harðast niður á svína- og kjúklingabændum, en einnig nautakjöts- framleiðslu, sem bændur stóðu í þeirri meiningu að ætti frekar að efla heldur en hitt. Ekki verður séð að stjórnvöld hafi gert neina skipulega athug- un á líklegum áhrifum samningsins, svo sem á samkeppnisstöðu einstakra búgreina, afurðastöðva, annarra úrvinnslufyrirtækja eða matvælaiðnaðar yfirleitt. Meta hefði þurft áhrif á afurðaverð til bænda, líklega þróun á markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu og tekjuleg áhrif að teknu tilliti til áhrifa aukins markaðsaðgangs. Öllu þessu tengjast störf og afkoma – ekki bara bænda heldur líka verkafólks í úrvinnslugreinum. Ekkert tillit er tekið til stærðarmismunar mark- aðanna. Í ESB eru íbúar ríflega 500 milljónir manns en á Íslandi 330 þúsund, eða rúmlega 1.500 á móti einum. Samningurinn veitir því ESB aðgang að margfalt stærri skerf af íslenskum markaði en Ísland fær á móti. Áhrifin af útflutningi íslenskra búvara til ESB á markaði þar verða engin, en þau geta orðið veruleg hér. Nú þegar flytjum við inn tólf sinnum meira af landbúnaðarvörum frá ESB en við flytjum þangað. Almennar heilbrigðisreglur munu gilda áfram en engin krafa er gerð um að innfluttar vörur séu framleiddar við sambærilegar aðstæð- ur. Framleiðsluhættir eru að ýmsu leyti ólíkir á milli Íslands og margra landa í Evrópu. Hér er t.d. bannað að blanda dýralyfjum í fóður sem er leyfilegt víða annars staðar. Sýklalyfjanotkun er ein sú minnsta í Evrópu hér á landi sem er verðmæt staða, ekki síst nú þegar ónæmi fyrir sýklalyfjum er vaxandi vandamál víða um heim. Strangar reglur gilda að auki um dýravelferð. Þessar aðstæður eru eitthvað sem íslenskir neytendur hafa tekið sem sjálfsögðum hlut. Þær eru það hins vegar fjarri því alls staðar og hafa auðvitað kostnað í för með sér. Séu ekki gerðar sambærilegar kröfur til inn- flutnings og innlendrar framleiðslu og um leið og upprunamerking er ekki almenn skylda, skapar það óhjákvæmilega ójafna samkeppnisstöðu. Með því er verðinu þrýst niður og í sumum tilvikum getur það kippt rekstrargrundvellinum undan innlendu framleiðslunni. Tollar eru einmitt oftast notaðir til að leiðrétta ójafna samkeppnisstöðu en með samningnum nú er sú tollvernd þynnt verulega út. Mikilvægt er að breytingar sem samningur- inn hefur í för með sér gagnist neytendum beint. Öflugt verðlagseftirlit er nauðsynlegt til að það gangi eftir. Reynslan sýnir að breytingar á tollum, vörugjöldum eða gengisbreytingar skila sér ekki alltaf í lægra vöruverði. Það hefur til dæmis komið fram í verðkönnunum sem Alþýðusambandið hefur gert. Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins frá því fyrr á þessu ári kemur jafnframt fram að arðsemi stórra fyrirtækja á dagvörumarkaði er 35–40% á Íslandi samanborið við 11% og 13% í Bandaríkjunum og Evrópu. Það er því höfuðnauðsyn að launþega- hreyfingin og neytendur veiti birgjum og smásölum áfram virkt aðhald í verðlagsmálum. Viðræðum um búvörusamninga verði hraðað Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar segir meðal annars: „Ríkisstjórnin lítur á landbúnað sem eina af mikil- vægustu atvinnugreinum framtíðarinnar. Vaxandi eftirspurn eftir mat á heimsvísu skapar íslenskum landbúnaði sóknarfæri með möguleikum á auk- inni framleiðslu og margbreytilegum afurðum. Ríkisstjórnin mun gera íslenskum landbúnaði kleift að nýta þau sóknarfæri sem greinin stendur frammi fyrir. Með það fyrir augum er brýnt að kanna með hvaða hætti er unnt að auka verðmæta- sköpun og nýta sem best tækifærin sem felast í sveitum landsins.“ Í ljósi þessa samnings er það krafa bænda að viðræðum um búvörusamninga verði hraðað. Það þarf að ná niðurstöðu á allra næstu vikum og um hvernig eigi að ná fram ofangreindum markmiðum með tilliti til þeirra breytinga sem tollasamningur- inn hefur í för með sér. /SSS Fíflagangur

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.