Bændablaðið - 24.09.2015, Page 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Myndbönd frá Landsmóti hesta-
manna 2014 eru nú aðgengi-
leg áskrifendum WorldFengs.
Samstarfssamningur milli tölvu-
deildar Bændasamtaka Íslands og
Landsmóts ehf. var undirritaður
á dögunum.
Samningurinn felur í sér að
WorldFengur tekur að sér að
varðveita og vinna myndbönd frá
Landsmótum hestamanna og gera
aðgengileg á Worldfeng.
Nú geta áskrifendur uppruna-
ættbókarinnar WorldFeng skoð-
að myndbönd af hrossum frá
Landsmóti hestamanna 2014 með
því að kaupa sérstakan aukaaðgang.
Með tíð og tíma munu þau mynd-
bönd sem eru í eigu Landsmóts ehf.
og Landssambands hestamannafé-
laga fara inn á gagnagrunninn. Mun
það veita hestamönnum og áhuga-
mönnum um ræktun á íslenska
hestinum skýrari upplýsingar um
sögu og þróun íslenskrar hrossa-
ræktar.
Þeir Lárus Ástmar Hannesson,
formaður LH, og Jón Baldur
Lorange , ve rke fnas t jó r i
WorldFengs, undirrituðu samstarfs-
samning vegna verkefnisins þann
17. september síðastliðinn. Mestur
kostnaður felst í að vinna efnið inn
á vefinn en tekjur af áskriftargjöld-
um verða notaðar til að greiða þann
kostnað. Notendur munu sækja um
áskrift af efninu og munu tekjur
skiptast á milli Landsmóts og
WorldFengs í ákveðnum hlutföllum
sem samningsaðilar hafa komið sér
saman um.
Fagmennska, tækni og metnaður
„Við sem störfum innan hesta-
mennskunnar höfum meðal annars
þær skyldur að varðveita allt það
efni sem verður til og gefur mynd
af þróun hestamennskunnar í víðu
samhengi. Allt það myndefni sem
orðið hefur til á Landsmótum er dýr-
mætur hluti sögunnar og gefur mynd
af ræktunargripum og gæðingum og
þróun þeirra. Það var orðið ljóst að
útgáfa CD mynddiska heyrir sögunni
til og því fórum við hjá LH að skoða
hvaða möguleikar væru í stöðunni
þannig að efnið nýttist greininni,
yrði varðveitt og skapaði tekjur,“
segir Lárus Ástmar.
„Ýmislegt var skoðað en fljót-
lega fóru spjótin að beinast að þeim
gagnagrunni sem er okkur hesta-
mönnum svo mikilvægur og í raun
mjög merkilegur í stóru samhengi
sem er WorldFengur. Þar er til stað-
ar fagmennska, tækni og metnaður
sem hentaði okkar markmiði vel.
Fljótlega náðust samningar milli
aðila. Ég er sannfærður um að þessi
samningur á eftir að nýtast okkur
hestamönnum faglega vel, tryggja
varðveislu efnis hjá fagfólki á
öruggum stað og skapa WorldFeng
og Landsmóti tekjur.“
Óumdeildur ávinningur
Markmið WorldFengs er að gagna-
grunnurinn innihaldi upplýsingar, á
hvaða formi sem tiltæk eru hverju
sinni, til að tryggja ræktunarmark-
mið, hreinræktun íslenska hestsins og
aðrar þær ættbókarupplýsingar sem
tryggja stöðu WorldFengs sem upp-
runaættbókar íslenska hestsins, sam-
kvæmt Jóni Baldri. Þannig varðveitir
WorldFengur gögn um stofnskrán-
ingu hrossa, ætt, auðkenni, eigendur,
ræktendur, upprunastað, afkvæmi,
kynbótadóma, kynbótamat, erfða-
mörk (DNA) til ætternissönnunar,
flutningssögu milli landa og fleira.
„Það eru mörg ár síðan farið
var að vista myndir af hrossum
og nú er stórt skref stigið með því
að geyma myndbönd af hrossum
frá Landsmótum hestamanna. Það
er reyndar um áratugur síðan ég
nefndi þetta við fyrirtækið sem þá
sá um upptölur frá Landsmótum
en það skilað ekki árangri þá. Við
byrjum sem sagt á myndböndum
frá Landsmótinu 2014 og er þegar
búið að vinna á þriðja hundrað
myndbönd. Í samningi okkar við
Landsmót ehf. þá er markmiðið
að vinna einnig myndbönd frá
Landsmótunum áranna 2011 og
2012. Nokkur vinna er við að
klippa hvert myndband, þar sem
hvert hross fær sitt myndband
frá viðkomandi Landsmóti skráð
í upprunaættbókina. Þar verð-
ur það varðveitt um ókomna tíð
og aðgengilegt fyrir áskrifendur
WorldFengs sem keypt hafa LM
myndbönd viðbótina. Vinna við
klippingu felst jafnframt í því að
laga hljóð og vinna myndbönd af
mismunandi upplausn og gæðum,
og svo þarf að sjálfsögðu að skrá
hvert myndband í gagnagrunn
WorldFengs, og vista á öflugum
miðlara,“ segir Jón Baldur.
Aðspurður um hvort ætlunin
væri að bæta við fleiri Landsmótum
en þeim sem þegar hafa verið
nefnd, segir Jón Baldur að það
hljóti að taka mið af viðtökum
sem og möguleikum samningsað-
ila að nálgast myndbönd frá eldri
Landsmótum. „Ávinningurinn fyrir
íslenska hrossarækt og unnendur
íslenska hestsins væri aftur á móti
óumdeildur ef myndefni frá eldri
Landsmótum yrði hluti af uppruna-
ættbókinni í framtíðinni.“
HROSS&HESTAMENNSKA Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Varðveisla myndefnis frá Landsmótum tryggð
Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra, Lárus Ástmar Hannesson, formaður LH og formaður Landsmóts
ehf., ásamt Jóni Baldri Lorange, verkefnisstjóra WorldFeng, á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Danmörku í
sumar þegar ráðherra opnaði formlega LM myndbönd í WF.
Bækur
Byggðasöfn á Íslandi:
Uppruni, saga og þróun
Rannsóknasetur í safnafræðum
við Háskóla Íslands sendi nýlega
frá sér bók þar sem fjallað er
um uppruna og sögu fjórtán
byggðasafna í landinu.
Sigurjón Baldur Hafsteinsson,
prófessor í safnafræði við Háskóla
Íslands, sem er ritstjóri bókarinnar,
segir að í henni sé að finna fjórtán
ritgerðir um jafnmörg byggðasöfn á
landinu ásamt inngangi.
„Í innganginum fjalla ég um sögu
byggðasafnanna á landinu, mótunar-
ár þeirra, hvatann fyrir stofnun þeirra
og hverjir lögðu þar hönd á plóg. Í
ritgerðunum er svo fjallað um það
hvernig starf safnanna hefur
mótast og þróast á hverjum
stað fyrir sig.“
Búnaðarsamtökin dyggir
stuðningsaðilar
Elsta safnið sem fjallað er um
í bókinni er byggðasafnið á
Ísafirði sem er stofnað 1941.
Sigurjón segir að í flestum til-
fellum sé töluverður aðdrag-
andi að stofnun byggðasafna
en að þau eigi mörg það sam-
eiginlegt að Ragnar Ásgeirsson,
ráðunautur hjá Búnaðarfélagi
Íslands, kom þar að málum.
„Ragnar var á sínum tíma ráð-
inn af Búnaðarsamtökunum til
að sinna málefnum byggðasafn-
anna og kom við sögu við
stofnun fjölmargra þeirra.
Þegar saga byggðasafnanna
er skoðuð kemur greinilega í
ljós að Búnaðarsamtökin voru
dyggir stuðningsaðilar þess að
byggðasöfnunum var komið á fót.
Þau samþykktu ályktanir þess efnis
að hið opinbera ætti að hvetja til
stofnunar byggðasafna og leggja til
fjármagn svo að slíkt væri mögulegt.
Ungmennafélögin í landinu voru
einnig hvetjandi þáttur í stofnun
margra þeirra en að mínu mati voru
Búnaðarsamtökin afgerandi hvað
það varðar.“
Sigurjón segir að byggðasöfnin
byggi oft mikið á söfnum áhuga-
samra einstaklinga sem hafi viðað
að sér alls kyns munum og flytja þá
síðan á sameiginlegt byggðasafn.
„Í raun eru byggðasöfn samsett að
munum sem þúsundir einstaklinga
um allt land hafa fært þeim að gjöf.“
Fyrsta bók af tveimur
Höfundar ritgerðanna í bókinni eru
blanda af safnafólki, safnstjórum og
fyrrverandi nemendum í safnafræði
og sérfræðingum í safnafræðum.
Að sögn Sigurjóns eru byggðasöfn
á landinu milli 30 og 40 og söfnin
sem fjallað er um í þessari séu þau
rótgrónustu.
„Hugmyndin er að gefa út
aðra svipaða bók á næstu árum
þar sem fjallað verður um fleiri
byggðasöfn og að lokum öll í
landinu. Það vantar til dæmis
tilfinnanlega umfjöllun um
byggðasöfn á Austfjörðum í
bókina, Minjasafnið á Akureyri,
Stykkishólmi og Pakkhúsið á
Ólafsfirði svo dæmi séu tekin.“
Aðspurður segir Sigurjón
að skilgreiningin á byggðasafni
sé stofnun sem sinnir söfnum og
varðveislu muna og menningararfs
í nærsamfélaginu og heimahéraði.
/VH
Sigurjón Baldur Hafsteinsson.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Frystikistur á
tilboðsverði
20% afsláttur
Tilboð gildir meðan birgðir
endast.
FR205 190L B74xD70xH95
1 karfa, læsing á loki
hjól undir kistu
FR305 278L B98xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR405 385L B128xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR505 463L B150xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR605 567L B180xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
Verð áður kr. 94.359
Verð nú kr. 75.488 m. vsk.
Verð áður kr. 108.534
Verð nú kr. 86.827 m. vsk.
Verð áður kr. 117.173
Verð nú kr. 93.738 m. vsk.
Verð áður kr. 131.820
Verð nú kr. 105.456 m. vsk.
Verð áður kr. 161.518
Verð nú kr. 129.214 m. vsk.