Bændablaðið - 24.09.2015, Side 23

Bændablaðið - 24.09.2015, Side 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Supply Chain Management. Þetta er fjögurra ára BA-nám, þar sem ég klára fyrstu 2 árin og vinn svo í flutningum eða einhverju tengdu náminu í eitt ár og kem svo aftur í skólann og klára síðasta árið. Þar er okkar kenndur grunnur í viðskipta- fræði fyrsta árið, með stærðfræði, bókhaldi, markaðsfræði, hagfræði, lögfræði í þessum almennu tímum, en á öðru ári förum við að sér- hæfa okkur meira. Þar lærum við birgðastjórnun, innkaup, þjónustu- flutninga, birgðastjórnunargreiningu og lærum hvaða tækni er í boði fyrir allt þetta. Það er mikið af hugtök- um og mun meiri hugsun á bak við þetta allt en maður heldur. Þeir kenna okkur og reyna að undirbúa okkur undir alvöruna með krefjandi verkefnum, oft í hópum og byggt á raunverulegum vandamálum. Verkefnin eru mjög oft þannig að maður velur fyrirtæki sjálfur og greinir vandamálin og reynir að koma með hentugar lausnir í þeim hlutum sem við erum að læra. Eitt skiptið áttu allir í bekkn- um að koma með dæmi um skort á einhverju og það fyrsta sem mér datt í hug var smjörskorturinn á Íslandi fyrir ein jólin. Kennarinn var í svo miklu sjokki yfir þessu að öll kennslustundin fór í að tala um mjólkurframleiðslu á Íslandi.“ Vildi tengja námið þekkingunni úr sveitinni „Þar sem ég var með mikla bak- grunnsþekkingu úr sveitinni og hef ekki unnið við margt annað en sveitastörf, vildi ég blanda því við mína vinnureynslu. Skólinn er hins vegar í miðborg Melbourne sem er lítið tengd sveitinni. Þegar ég ákvað að taka vinnuárið með í gráðuna mína fór ég og talaði við kennarann sem sá um þetta. Ég sagði honum að ég vildi vinna við flutn- ing á nautgripum, því ég hafði jú séð ótölulegan fjölda risatrukka sem voru endalaust að flytja nautgripi. Ég vildi læra hvernig það væri að vinna með trukka sérstaklega í Ástralíu, landi sem stólar á góða trukkaflutn- inga vegna stærðar.“ Eitthvað sem enginn hafði áður gert „Kennarinn vildi hjálpa mér en gerði mér grein fyrir því að svona vinnu- reynslu hefði enginn annar farið í og spurði hvort ég væri viss um þetta. Hvort ég vildi ekki sækja um vinnu hjá þessum venjulegu stóru „fínu“ fyrirtækjum í Melbourne, eins og General Motors, Nissan, Mercedes Benz, L'oreal og þess háttar. Ég sagð- ist myndi skoða þetta en innst inni vildi ég blanda sveitareynslunni inn í námið, því það er ekkert grín að flytjast úr sveit í stórborg eins og Melbourne. Ég þurfti því oft að fara í helgarferðir í gömlu sveitina mína til að ná hreinlega að draga andann, og hafa ekki endalaust af fólki, háhýsum og bílum í kringum mig. Svo var ég svo heppin að kynnast frábæru fólki frá Íslandi í Melbourne sem hafði sambönd í því sem mig langaði að gera. Það kom mér í samband við mann sem hjálpaði mér svo að finna vinnuna sem ég endaði í.“ Hóf störf hjá trukkafyrirtæki sem flytur búfé „Ég byrjaði hjá Martins Stock Haulage núna í janúar en það er trukkafyrirtæki sem flytur nautgripi og kindur, og hefur það verið þvílík reynsla. Við erum með 3 skrifstofur, aðal- skrifstofan er í Scone, NSW, önnur í Dubbo, NSW og svo þessi sem ég er á í Oakey, QLD. Frá okkar skrif- stofu erum við með í kringum 42–45 trukka sem flytja nautgripi, en hin útibúin flytja líka kindur.“ Flytjum þúsund nautgripi á dag „Í Queensland er ekki eins stór markaður og í New South Wales með kindur, allavega ekki á okkar svæði, svo öll okkar vinna er í kring- um nautgripi. Við erum að flytja þús- undir daglega. Við erum aðallega að flytja nautgripi af „stöðvum“ í „feedlot“ og svo þaðan í sláturhús eða af mörkuðum og þaðan annað- hvort á stöðvar, feedlot eða sláturhús. Hér er endalaus fjöldi af naut- gripamörkuðum þar sem viðskipti með nautgripi fara fram oft á dag. Við erum með 4 menn í fullu starfi bara í Queensland sem fara á nautgripasölur og tala við viðskipta- vinina og skipuleggja trukka eftir því hvað þeir kaupa mikið á hverjum markaði. Á stærstu mörkuðunum fara í gegn í kringum 7.000 til 8.000 gripir í hverri einustu viku nánast allt árið um kring. Stundum getur það þó verið aðeins minna og fer það eftir veðri, þurrkum og þess háttar.“ Mest flutt á B-Double trukkum „Stærðirnar hérna á öllu eru svaka- legar. Við erum að flytja yfir 300 gripi daglega fyrir suma í sláturhús. Flestir trukkarnir eru svokallað- ir B-Double en það er algengasta trukkasamsetningin í Ástralíu fyrir lengri flutninga. Aftan í hvern trukk er hengdur 20 feta vagn að framan og 40 feta vagn að aftan. Slík æki eru leyfð á langflestum vegum. Þegar bílarnir eru ekki að fara í borgir eða á staði með stærðartakmörkum, sem sagt lengra vestur eða norður þaðan sem við erum, þá eru þeir oft B-Triple. Sú samsetning er 20 feta vagn, 20 eða 30 feta vagn og aftast 40 feta vagn. Þegar þeir fara svo enn lengra vestur verða þeir oft „roadtrain“ en þá eru þeir með tvo til þrjá 40 feta vagna og þegar þeir eru fullhlaðnir eru þeir oft að brenna 1 lítra af dísilolíu á hverja 850 metra. Ég hef verið heppin með vinnuna mína, að því leyti að mér hefur verið sýnt allt, eða svo marga hluti af fyr- irtækinu. Ég byrjaði þar sem flutn- ingarnir eru skipulagðir og flutti mig svo í bókhaldið, þar sem ég aðstoðaði við reikninga, sá um alla pappírs- vinnuna frá bílstjórunum og fleira. Nú er ég komin aftur í skipulagn- inguna. Þótt ég geti ekki enn gert það sjálf, fylgist ég með og læri á alla staðina. Þetta er allt gert upp úr einni bók deginum áður en verkefnin eru bókuð. Þar eru verkefnin skráð niður og tekið fram hversu marga trukka þarf. Svo eru ferðir trukkanna skipulagðar eftir því hvar þeir voru deginum áður og hvernig planið þeirra er. Okkar stærstu dagar eru sunnu- dagar og sumir bílstjórar fara ekki heim í mánuð en það er yfirleitt þeirra val. Oftast er þó miðað við frí aðra hverja helgi. Takmarkið er auðvitað að láta þá keyra sem minnst tóma og passa upp á að þeir fari ekki yfir hvíldartímana sína í akstri. Þeir eru oft að fara svakalegar vegalengd- ir. Sumir gripir eru því að ferðast í flutningabíl í kringum 2.000 kíló- metra, bara til að fara í sláturhús. Um daginn fór einn bílstjóri 4.000 kílómetra með naut en slíkt gerist víst einu sinni á ári. Við flytjum ekki gripi sem fara í útflutning. Það þarf alls konar leyfi, eins og fyrir gripi til Evrópu, Rússlands eða Sádí-Arabíu. Þeir fara þó yfirleitt í sláturhúsið fyrst og kjöt- ið er svo selt í útflutningi. Við erum með verkstæði þar sem eru 14 bifvélavirkjar og suðumenn eru í fullri vinnu, bara við að skoða trukkana og vagnana og laga það sem þarf. Hver trukkur er skoðaður að meðaltali einu sinni í mánuði en það fer eftir aldri, það er alltaf verið að endurnýja og fá nýja inn.“ Allt landsbyggðarfólkið í kúrekastígvélum, gallabuxum og með kúrekahatt Til að fylla inn í helgarnar er mikið um rodeo og þess háttar, og hér eru allir bændur og fólk „úti á landi“ í kúrekastígvélum, gallabuxum, skyrt- um og með kúrekahatt. Margir af okkar bílstjórum eru til dæmis með gömul meiðsli eftir að hafa dottið af nautum þegar þeir kepptu í rodeo og hér hlusta nánast allir á kántrítónlist. Þetta er stundum bara alveg eins og maður hefur séð í bíómyndum. Svona er lífið allavega hérna núna. Þetta ár hefur mikið farið í að elta uppi rodeo, útihátíðir og kántrítón- leikahátíðir. Ég hef ekki enn ákveðið hvað ég stefni á eftir að ég útskrifast, ætla að láta það ráðast. Það væri gaman að fá meiri reynslu og kunnáttu í þessu, en Ástralía er mjög langt í burtu. Ég sé því bara til hvort ég færi mig kannski aðeins nær þegar ég hef fengið meiri reynslu,“ segir þessi eldhressa, unga sunnlenska kona. /HKr. Auður Olga Arnarsdóttir, önnur frá hægri, með samnemendum sínum í RMIT-háskólanum í Melbourne í Ástralíu og uppáhalds kennaranum. Frá sveitabænum þar sem Auður starfaði í hartnær eitt og hálft ár, en þar voru mest um 900 mjólkurkýr. Auður og „gamli maðurinn í sveitinni“, Kerry. Skítugur dagur. Litlu krakkarnir í sveitinni, Mia, Jack og Taylor, að aðstoða Auði við fóðurgjöf.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.