Bændablaðið - 24.09.2015, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
felast ekki bara í því að tré séu felld
og öðrum plantað í staðinn. Eyðingin
veldur því að líffræðileg fjölbreytni
minnkar, jarðvegur eyðist, búsvæði
frumbyggja hverfa og magn koltví-
sýrings í andrúmslofti eykst þegar
jarðvegur er unninn.
Magn gróðurhúsalofttegunda sem
sleppa út í andrúmsloftið við fram-
leiðslu á einu tonni af pálmaolíu eru
áætluð frá 2,3 til 19,7 tonnum sem
telst ríflegt framlag til hækkunar loft-
hita á jörðinni.
Grasafræði og útbreiðsla
Olíupálmar, Elaeis guineensis, geta
náð um 25 ára aldri og 25 metra
hæð en eru sjaldnast yfir 10 metr-
ar í ræktun. Einkímblöðungar, með
trefjarót sem liggur grunnt í jarð-
vegi. Vaxtarbroddur pálma er á toppi
þeirra þannig að sé stofninn felldur
drepst plantan. Blöðin stór og allt
að sjö metrar á lengd og margskipt.
Olíupálmar bera blóm af báðum kynj-
um, blómin nokkur hundruð saman
í hnapp. Eftir frjóvgun myndast
steinaldin, tveir til fjórir sentímetrar
að lengd, með þykkri og olíuríkri
húð sem er græn í fyrstu en verða
appelsínugul við aukinn þroska.
Olíuinnihald hvers aldins er 30 til
35% þyngd þess. Kvenkynsklasarnir
geta borið 200 til 300 þroskuð aldin
hver fimm mánuðum eftir frjóvgun.
Náttúruleg útbreiðsla olíupálma
er mest að 10° norðan og sunnan
við miðbaug og þar dafnar plantan
vel í margs konar jarðvegi og við
sýrustig milli pH 4 til 7. Í ræktun vex
planta ágætlega að 20° suðlægrar
breiddar í Mið- og Austur-Asíu og á
Madagaskar. Þrátt fyrir að olíupálm-
ar þoli tímabundin flóð þrífast þeir
best í rökum en vel framræstum jarð-
vegi. Kjörhitastig er 29,5° á Celsíus.
Olíupálmum er fjölgað með fræj-
um og gefur plantan af sér um 40
kíló af pálmaolíu og rúmt tonn af
hrati eftir tvö og hálft ár til þrjú ár.
Tré á besta aldri gefa af sér aldin
á tveggja vikna fresti allan ársins
hring. Hratið er notað sem dýrafóður,
til pappírsgerðar og sem áburður.
Meðaluppskera af olíu af einum
olíupálma er um þrjú tonn af aldin-
um á ári. Þar sem olíupálmar eru
ræktaðir í stórum stíl er mikið notað
af varnaefnum eins og í annarri stór-
ræktun og eiturefnin enda að lokum
í náttúrunni. Uppskera og söfnun á
aldininu er víðast unnin með hönd-
um.
Uppruni og saga
Talið er að nytjar á pálmaolíu hafi
þekkst í að minnsta kosti 5.000
ár fyrir upphaf okkar tímatals.
Fornleifarannsóknir benda til að
Egyptar til forna hafi neytt og versl-
að með pálmaolíu árið 3000 fyrir
Krist og fundist hafa leifar olíunnar
í grafhýsum þar í landi.
Fyrstu rituðu heimildir um pálma-
olíu er að finna í dagbókum og ferða-
sögum Evrópumanna frá Vestur-
Afríku um miðja 15. öld. Samkvæmt
þeim segir að olían hafi meðal
annars verið notuð í súpur, sósur,
sem steikingarfeiti, við bakstur og til
lækninga. Úr blöðunum var unninn
þráður til spuna og vefnaðar.
Olíupálmar eru upprunnir í vest-
anverðri Afríku en voru fluttir til
Suðaustur-Asíu í upphafi 20. aldar
sem ræktunarplanta.
Á tímum iðnbyltingarinnar í
Bretlandi var eftirspurn eftir ódýrri
og hentugri jurtaolíu til að búa til
sápur og kerti mikil og pálmaolía
hentaði fullkomlega í slíka fram-
leiðslu þar sem hún er föst við
stofuhita. Pálmaolía var einnig notuð
sem smurolía á vélar.
Vinsældir pálmaolíu sem
íblöndunarefni jukust mikið á tímum
seinni heimsstyrjaldarinnar og í
kjölfar hennar. Heimsverslun með
pálmaolíu óx á árunum frá 1962 til
1982 úr 500 þúsund tonnum í 2,4
milljón tonn.
Indónesía stærsti framleiðandinn
Malasía varð snemma stærsti fram-
leiðandi pálmaolíu í heiminum og
hélt því sæti fram á sjöunda áratug
síðustu aldar þegar Indónesía skaust
fram úr og er í dag langstærsti fram-
leiðandinn. Stjórnvöld í Indónesíu
sáu að með því að rækta olíupálma
í stórum stíl var hægt að sjá fjölda
landsmanna fyrir atvinnu. Árið 2014
var áætlað að hátt í tvær milljónir
smábænda og fjölskyldur þeirra í
Indónesíu hafi framfæri af ræktun
olíupálma en um 28 milljónir íbúa í
landinu lifa undir fátæktarmörkum.
Afleiðing aukningarinnar er sú
að í dag er Indónesía efst á lista yfir
lönd þar sem skógareyðing er mest
í heiminum. Skógar eru brennd-
ir og felldir á stórum svæðum til
að fá ræktarland fyrir olíupálma.
Samanburður á gervihnattamyndum
frá 2000 og 2012 sýnir að gríðarlega
mikið skóglendi hefur verið rutt og
að um 40% af því er innan friðaðra
svæða. Talið er að rúmlega sex
milljón hektarar af skóglendi hafi
verið felldir á þessum tólf árum.
Samanburður á gervihnattamynd-
unum sýnir einnig að landsvæðin
sem eru rudd hafa verið að stækka
ár frá ári.
Áætlanir um stórfellda
ræktun í Perú
Skógareyðing í Indónesíu og
Malasíu vegna framleiðslu á pálma-
olíu er ekki einsdæmi. Fyrir skömmu
fékk matarolíuframleiðandi í Perú
leyfi yfirvalda þar í landi til að fella
23.000 hektara af skóglendi í norður-
hluta Amason-skógarins til að rækta
olíupálma.
Skógarnir sem á að fella eru
85% frumskógar. Til skamms tíma
hefur framleiðsla á pálmaolíu verið
minni í Perú en í nágrannaríkjunum,
Ekvador og Kólumbíu. Aukningin
undanfarin ár er þó umtalsverð og
útlit fyrir að pálmaolía verði ræktuð
á 1,5 milljón hekturum lands í Perú
eftir nokkur ár.
Samkvæmt lögum í Perú eru
frumskógar Amason friðaðir en þrátt
fyrir það eru þeir felldir á báða bóga
og segja skógfriðunarsinnar að mat-
vælafyrirtæki notfæri sér göt í lögum
og mútur til að ná sínu fram.
Bandaríska bananarækt-
andinn United Fruit Company,
ChiquitaFyffes í dag, mun hafa
flutt fyrstu fræ olíupálma til
Suður-Ameríku árið 1920. Fyrst
til Gvatemala en síðan Panama og
Hondúras. Fyrirtækið ætlaði sér út
í stórframleiðslu á pálmaolíu eftir að
sveppasýking lék bananaframleiðsl-
una illa. Fyrstu árin gekk treglega
að finna hentug ræktunarsvæði fyrir
pálmann og þeir viðkvæmir fyrir
sjúkdómum.
Spilling í útgáfu vottorða
Stórfyrirtæki í matvæla- og snyrti-
vöruiðnaði eins og Unilever, Cargill,
Procter & Gamble, Nestle, Kraft
og Burger King, hafa síðustu ár
mætt vaxandi gagnrýni fyrir óhóf-
lega notkun á pálmaolíu við fram-
leiðslu sína og ýta þannig undir
skógareyðingu. Sum fyrirtækjanna
hétu því fyrir nokkrum árum að
hætta að nota pálmaolíu sem ekki
fylgir vottorð um sjálfbæra ræktun
fyrir árið 2015.
Mörg þessara fyrirtækja reiða sig
á samtök sem kallast Roundtable on
Sustainable Palm Oil þegar kemur
að vottun olíunnar en samtökin hafa
þráfaldlega verið sökuð um að gefa
út fölsuð vottorð.
Árið 2014 var áætlað að hátt í tvær milljónir smábænda og fjölskyldur þeirra