Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 38

Bændablaðið - 24.09.2015, Síða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015 Frá haustinu 2013 hefur RML starfrækt fundaröð fyrir sauðfjár- bændur sem hefur gengið undir nafninu Sauðfjárskólinn. Í nokkur ár þar á undan höfðu nokkur búnaðarsambönd starfrækt sambærilega fundaröð og hefur Sauðfjárskólinn nú verið í boði fyrir sauðfjárbændur í öllum lands- hlutum. Þátttaka hefur verið góð og eru t.d. um 90 bú á Vesturlandi og Vestfjörðum sem eru að ljúka sínum fundum nú í nóvember. Á fundunum er fjallað um ýmsar hliðar sauðfjárbúskapar og reynt að fara vel yfir og ræða það sem mestu máli skiptir til að ná góðum árangri í þessari búgrein. Sauðfjárskólinn stendur í u.þ.b. eitt framleiðsluár, haldnir eru sjö fundir á þeim tíma sem standa alla jafna frá kl. 13–17. Fundirnir eru haldnir á virkum dögum. Leiðbeinendur verða fyrst og fremst starfsmenn RML á sviði sauðfjárræktar, starfsmenn RML á sviði jarðræktar, bútækni og rekstr- ar koma inn sem leiðbeinendur á staka fundi og dýralæknir verður aðalleiðbeinandi á einum fundi. Umsjónarmaður með þessu verk- efni, Sauðfjárskólanum, er Árni B. Bragason, ab@rml.is. Næsta fundaröð í Sauðfjárskólanum Starf Sauðfjárskólans hefur verið héraðabundið til þessa en þar sem nú er búið að starfrækja hann einu sinni í öllum landshlutum er ætlunin að bjóða bændum hvar sem þeir búa á landinu að skrá sig í næstu fundaröð. Sauðfjárskólinn sem nú er langt kominn kostaði 60.000 krónur á bú en fyrirsjáanlegt er að hækka þarf þátttökugjaldið eitthvað. Gjaldið þarf að greiða fyrir 20. desember 2015. Aðeins er hægt að kaupa allan pakkann en ekki einstaka fundi. Þeir bændur sem greiða búnaðargjald geta sótt um styrk í Starfsmenntasjóð bænda en hver bóndi hefur getað fengið að hámarki um 33.000 krónur í styrk vegna endurmenntunar árlega. Sjóðurinn greiðir út styrkina að námi loknu þannig að í þessu tilfelli yrði hugs- anlegur styrkur ekki greiddur fyrr en eftir rúmt ár. Frá hverju búi geta komið á fundina þeir aðilar sem standa að búrekstrinum (allt að þrír) þannig að t.d. hjón geta komið bæði eða skipst á að mæta ef það hentar. Árið 2013 gaf bókaútgáf- an Uppheimar, í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands, út veglega 300 bls. kennslubók um sauðfjárrækt. Reiknað er með að þátttakendur í Sauðfjárskólanum hafi þessa bók til aflestrar á meðan á námi stendur. Bókina er m.a. hægt að kaupa hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og verður bókin boðin til sölu á fyrsta fundi Sauðfjárskólans á hverjum stað gegn staðgreiðslu. Hér á eftir fer örstutt lýsing á áætlaðri dagskrá fundanna með fyrirvara um breytingar. 1. fundur, miður nóvember 2015 • Fóðrun og umönnun áa til frjó- semi og afurða. • Haustmeðferð og fóðuráætlun - Farið yfir niðurstöður tilrauna og almennar ráðleggingar. • Nokkur atriði um sauðfjár- sæðingar, tilgangur og leiðir til að ná góðri fangprósentu. • Frágangur á haustbók í fjárvís.is og skipulag á komandi fengitíð. 2. fundur, miður janúar 2016 • Fóðrun og markmið með fóður- öflun og haustbeit. • Kynning á skýrsluhaldi í sauð- fjárrækt og uppbyggingu þess. • Fjárvís, uppgjör síðasta árs. • Uppgjörsskýrslur, stöðumat og markmiðasetning. • Skráning fangs, fósturtalninga o.fl. 3. fundur, miður febrúar 2016 • Fóðurkostnaður, fóðuröflun og fóðurgæði, greining á kostnað- arþáttum. Sniðið að sauðfjár- búum. • Undirbúningur vorsins, áburðar- dreifing, sáningar í tún og græn- fóður. • Skipulagning vor og haustbeitar. • Sumarbeitin afréttir/heimalönd – rætt um nokkur umhugsunar- atriði. 4. fundur, miður mars 2016 • Húsvist sauðfjár, vinnuhag- ræðing á vetri, fóðrunaraðferðir. • Byggingarreglugerð, gólfgerð- ir og einangrunarefni (kostir og gallar), helstu húsgerð- ir, gjafagrindur, gjafavagnar, brynningar. • Vinnuhagræðing við gjafir, umhirðu og meðhöndlun áa á vetri. • Undirbúningur sauðburðar, flokkun áa, bólusetning og lyfja- gjöf. Vinnuskipulag á sauðburði. 5. fundur, fyrri hluti í apríl 2016 • Sauðburður, fæðingarhjálp, sjúkdómavarnir, undirvenjur, vinnulag, beitarskipulag. • Helstu sjúkdómar á sauðburði og meðhöndlun þeirra. Fjárvís. is, burðarskráning og aðrar vor- skráningar. 6. fundur, seint í ágúst 2016 • Hauststörfin, flokkun lamba og beitarskipulag og vinnulag við fjárrag haustsins. • Hagkvæmni haustbötunar, mat á væntanlegu verðmæti afurða og val á sláturtíma. • Fjárvís.is, nýting hans til undir- búnings hauststarfa og líflamba- vals. • Þuklun ásetningslamba – verk- leg kennsla 7. fundur – í lok nóvember 2016 • Rýnt í ræktun og rekstur. Helstu áhrifaþættir og helstu leiðir til að bæta afrakstur búsins? • Þátttakendur fá leiðbeiningar um hvernig þeir geta skoðað ýmsar tölur framleiðsluársins sem hér er að ljúka og metið árangurinn. Hafir þú/þið áhuga á að taka þátt í „Sauðfjárskólanum“ skaltu endilega skrá þig/ykkur fyrir 25. október 2015. Senda skal skráningu í tölvupósti á netfangið rml@rml.is eða hringja í síma 516-5000. Í skráningunni þarf að koma skýrt fram nafn bæjar og nöfn, kennitölur, símanúmer og net- föng þátttakenda frá búinu. Haft verður samband við alla sem skrá sig fyrstu dagana í nóvember en að sjálfsögðu þarf einhverja lág- marksþátttöku til þess að grundvöll- ur sé fyrir því að fara að stað með fundaröð t.d. í landsfjórðungi. Það gæti því verið upplagt að ræða þetta við aðra sauðfjárbændur í héraðinu og safna liði. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Sauðfjárskóli RML: Fræðslufundaröð fyrir sauðfjárbændur Árni Brynjar Bragason Ráðunautur í sauðfjár - rækt hjá RML ab@rml.is Kleppsförin Í síðasta Bændablaði var umfjöllun um Vinnufatabúðina sem er 75 ára um þessar mund- ir. Þar var m.a. fjallað um Daníel Daníelsson, tengdaföður Þórarins Kjartanssonar, sem stofnaði Vinnufatabúðina árið 1940. Birt var vísubrot sem blað- inu barst frá núverandi eigend- um þar sem minnst er á Daníel. Blaðinu hefur borist fjöldi ábendinga um að þetta vísubrot sé ekki alls kostar rétt með farið. Daníel Daníelsson var ljósmyndari og síðar dyravörður hjá stjórn- arráðinu. Nafn hans bar á góma nokkrum sinnum í heilum bálki sem birtist í Speglinum sáluga þann 12. maí árið 1930 og fjallaði um Jónas frá Hriflu og bar heitið Kleppsförin. Jónas var dóms- og kirkjumála- ráðherra á árunum 1927–1931 og aftur 1931–1932. Snerist málið í Speglinum um að hann vildi láta reka yfirlækninn á Kleppsspítala. Við leyfum okkur að birta þennan ljóðabálk að ósk lesenda, eins og hann birtist í Speglinum á sínum tíma og var endurbirt þar í sept- ember 1970 og er svohljóðandi: Kleppsförin Jónas vaknar af blíðum blundi, brjálaður virtist ekki par; í bælinu lengur ekki undi ók sjer og fór í brækurnar. í landhelgisbílinn brátt var náð brunað svo upp í stjórnarráð. Daníel, sem þar dyrnar passar dyrnar opnaði fljótt og vel. Jónasar gjörðust glyrnur hvassar hann gaut þeim skáhalt á Daníel: „Til setu boðið ei sýnist oss sæk, Daníel, vort besta hross". „Inn að Kleppi er óravegur, andskotastu því fljótt af stað; ríddu eins hart og hrossið dregur, - Helga rjettirðu þetta blað. Flýttu þjer nú og farðu vel". - Þá fruktaði' og spýtti Daníel. Óþverra fyltist loftið ljótum, - leðjurigning og malarjel. Veifandi' í bláinn báðum fótum bykkjuna þandi Daníel. Drótt öll á Kleppi dauðhrædd beið. - Daníel inn í húsið reið. Helgi greip blaðið báðum mundum, blekugur varð um hendurnar, undirskriftirnar eru stundum ekki meira' en svo þornaðar. Við Doktora Jónas dundar vart og Daníel getur riðið hart. Doktorinn varð sem dreyri' í framan, Dungal var þar og studdi hann. Nú sá hann eftir öllu saman að 'ann heimsótti ráðherrann. Húsi og stöðu flæmdur frá. - Hann flutti með eina lyfjaskrá. Daníel svarsins drjúgur bíður, Daníel tók í húfuna, Daníel út um dyrnar ríður, Daníel sló í merina. - Daníel tyggur drjúgum skro, Daníel spýtir á við tvo. Lyfja-fargansins fræga miðann flutti Helgi úr brúkunum. Nú fá menn trauðla að tala við hann þó tíkall hafi í lúkunum. - Hreldan og þjáðan huga ber, og Hriflu-rjettlætið móti sjer. Að þessu skaltu önd mín hyggja yfirvöldunum geðjast þú, á hnjánum báðum er best að liggja og biðja um náð í sannri trú. - Hver veit nær sorgar hefjast jel? Hver veit nær söðlar Daníel. Undir þetta ritar „Z“. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 8. október 2015

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.