Bændablaðið - 24.09.2015, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Gróðurinn er undirstaða alls
æðra lífs á jörðinni. Án gróðurins
væru ekki fiskar í sjónum, fuglar í
lofti eða fjölbreytt landdýrafána.
Ísland væri líflausir brunasand-
ar, klettaranar og hraunflákar
úti í ballarhafi. Og líkt væri farið
með aðrar eyjar og meginlönd.
Hvergi sæist í stingandi strá,
lurka eða lyng. Í gróðursnauð-
um heimi hefðu menn ekki orðið
til. Ekki heldur nein menning.
Það þarf tré til að smíða báta
til að veiða fisk. Það þarf jurta-
trefjar til að gera þráð í net eða línu
til að veiða fisk. Það þarf eldivið
til að bræða málminn í önglana
sem fiskurinn bítur á. Án tréskipa
hefði Ísland aldrei verið numið af
mönnum, þótt þeir hefðu verið til.
Það þarf menningu til að gera skip,
spinna þráð og bræða málm. Það
þarf menningu til að gera menn að
mönnum. Í gróðurlausum heimi
getur ekki orðið til menning.
En gróðurinn einn og sér er
svo sem engin undirstaða menn-
ingar. Það þarf meira til. Líkt og
ær og kýr og antilópur hefðu menn
getað látið nægja að elta bara uppi
beitina hvar sem hún bauðst. Eða
unað glaðir við sitt eins og aðrir
apar Afríku án þess að leggja í hann
yfir steppur og steina í allar áttir út
frá þróunarmiðstöð mannapanna í
sólaryl Suðurálfunnar.
Frá því að menn hófu rápið
frá frumheimkynnum sínum liðu
þúsundir ára áður en það verklag
og sú menning sem skipti sköp-
um komst á. Kynstofnar komu
fram og liðu undir lok vegna
þess að verkkunnáttu skorti til
að fást við ófyrirséðar uppákom-
ur í náttúrunni. Einn kynstofn
manna spjaraði sig þó og lagði
á endanum undir sig allar álfur
jarðar. Til þess þurfti nokkra fyr-
irhyggju og úthald umfram það
sem aðrir kynstofnar höfðu til-
einkað sér. Allt núlifandi mann-
kyn er af þessum stofni. Og þó
að samkeppnin hafi kannski verið
hörð, þá sameinuðust kynstofnarn-
ir að einhverju leyti. Ef marka
má DNA-rannsóknarniðurstöður,
þá ber sá ættleggur sem við til-
heyrum nokkra erfðaþætti frá
Neanderdalsfólki og austlægu
ættleggirnir sækja brot af sínum
erfðum til Denisovanfólksins. En
Afríkubúar sunnan Sahara hafa
alveg sloppið við slíka genameng-
un!
Þrátt fyrir að við nútímamenn
– sem við skulum kalla svo því
ekki hefur orðið nein íblöndun eða
stór stökk í erfðamenginu síðan
við lögðum undir okkur heiminn
– værum sestir að í öllum heims-
hlutum norðan Antarktíku, leið og
beið þar til nútímamenning hófst.
Það gerðist nokkurn veginn sam-
tímis á rúmlega átta svæðum um
miðbik hnattarins. Hvort það var
fyrir þrjátíu þúsund árum eða tíu,
greinir menn á um. En grafnar hafa
verið upp ævafornar mannvistar-
leifar í Asíu, Afríku og á báðum
Ameríkuflekunum sem benda til
þess að garðrækt og akuryrkja hafi
verið komnar vel á veg í þéttbýl-
iskjörnum fyrir að minnsta kosti
ellefu til þrettán þúsund árum. Á
þeim tíma var megnið af Evrópu
undir jökli, svo að Evrópumenn
geta af litlu státað í þessum efnum.
En þeirra tími kom samt síðar.
Með garðræktinni og akur-
yrkjunni hófst nútímamenningin.
Ræktunin var forsenda þéttbýlis
og fólksfjölgunar. Minni tími fór
í að leita uppi fæðuna og þótt að
kvikfénaður hafi líka verið kominn
til sögunnar á sama tíma, þá gekk
hann meira sjálfala í umsjá hirða.
Ræktunin kallaði á samvinnu og
við hana urðu meiri samskipti
manna á milli. Með ræktuninni og
þéttbýlismyndun þróaðist iðnað-
ur. Einn var flinkari en annar við
að fást við ýmis viðvik og brúks-
hluti. Með því hófst sérhæfing.
Starfsgreinar urðu til. Og víða varð
til ritmál. Það auðveldaði dreifingu
upplýsinga. Í Kína eru til meira en
fimm þúsund ára gamlir plöntulist-
ar og prískúrantar sem gefa ekk-
ert eftir listum frá gróðrarstöðvum
nútímans eða IKEA og Quelle.
Ræktunarfólk um allan heim
lagði sig fram um að finna og velja
úr þær jurtir sem verðmætastar
voru frá næringarsjónarmiði.
Stærstu og bestu plönturnar voru
valdar til undaneldis og endrum
og eins komu upp stökkbreytingar
sem voru til bóta. Eins urðu til
kynblendingar eða að menn æxl-
uðu saman úrvalsplöntum sömu
tegundar. Smám saman urðu
ræktunarplönturnar stærri og
matarmeiri en formæður þeirra.
Stundum var líka orðið erfitt að
greina formæðurnar í hinum rækt-
uðu afkomendum. Góð dæmi um
það eru t.d. maís, hrís og aðrar
korntegundir. Í grænmetinu er
fátt líkt með melónum og gúrk-
um annað en blóm og blaðgerð,
séu aldinin borin saman við frum-
gerðirnar. Sömu sögu er að segja
um káltegundirnar sem í ræktun
eru nú á dögum. Fleira er á sömu
lund. Sítrusávextir eru allir taldir
vera komnir frá einni frumtegund
sem ekki finnst lengur og upprunn-
ir á landsvæði sem fyrir löngu er
sokkið í sæ sunnan við Indónesíu.
Eftir að Móravíumaðurinn
og ágústínaklerkurinn Gregor
Mendel setti fram kenningar sínar
um lögmál erfðafræðinnar um og
uppúr miðri nítjándu öld – en fékk
enga viðurkenningu fyrir fyrr en
hann var allur – komst skriður á
jurtakynbæturnar. Það sem áður
hafði verið háð slembilukkunni var
nú komið í skilvirkt kerfi. Nú gátu
menn raðað saman erfðaþáttum að
vild, ef þeir bara höfðu grunnþekk-
inguna. Hvarvetna spruttu upp ný
og endurbætt ræktunarafbrigði
plantna af öllu tagi, rósir, aldintré,
grænmeti, grös og korntegundir.
Nokkrir jurtakynbótamenn urðu
heimsþekktir, t.d. hinn norskætt-
aði Bandaríkjamaður Norman
Borlaug sem hrinti af stað
„Grænu byltingunni“ til að draga
úr hungursneyðinni í „þriðja heim-
inum“ – og fékk Nóbelsverðlaunin
fyrir vikið. En ekki eru allar raddir
samhljóma um ágæti framtaksins.
Plöntur Borlaugs þurftu mikinn
áburð og voru mun viðkvæmari
fyrir kvillum og pestum en hinir
fornu og aðlöguðu stofnar korn-
tegundanna sem fátæku bændurnir
höfðu ræktað áður. Þannig að upp-
skeran var rýrari og dýrari en til
stóð þegar til kastanna var komið.
Fjöldi gamalla sáðsorta glataðist,
bændur höfðu ekki ráð á að rækta
„súperkorn Borlaugs“ og flosnuðu
upp.
Annar Bandaríkjamaður
gerði líka garð sinn frægan í
orðsins fyllstu merkingu. Hann
hét Luther Burbank og er líklega
frægastur fyrir þá kartöflusort sem
hann kom á framfæri sem ungling-
ur. Árið var 1872. Frá barnæsku
hafði hann verið athugull grasa-
grúskari og velti einkum fyrir sér
sérkennilegum tilbrigðum í þeim
plöntutegundum sem hann rakst á.
Meðal annars að í einu kartöflubeði
fjölskyldunnar skar ein plantan
sig úr og hafði borið sig að því að
mynda ber. Burbank setti á sig hvar
plantan var og beið eftir því að
berið þroskaðist. Biðin tók lengri
tíma en hann hélt og einn morgun
þegar hann vitjaði um með-
gönguna var berið horfið. Hann
fyltist vonleysi fyrst og hélt að
fugl hefði étið berið. En svo lagði
hann saman tvo og tvo og fann það
út að enginn fugl gæti hafa tekið
svona eitrað ber umhugsunarlaust.
Því lagðist hann á hnén og fór að
leita og fann berið nokkurn spöl
frá plöntunni. Fræjunum úr ber-
inu sáði hann svo vorið eftir. Þau
voru 23. Ein af fræplöntunum kom
með það sem hann hafði verið að
sækjast eftir. Það voru aflangar,
stórar kartöflur. Hýðið sterkt og
hnjaskþolið. Augu grunn. Og síð-
ast en ekki síst var að innvolsið var
þétt í sér og mjölvisríkt. Burbank
fjölgaði yrkinu og kom sér upp
nokkru útsæði. Útsæðið sló í gegn
og varð þekkt undir nafni Burbanks.
Nokkrum árum síðar seldi Burbank
útsæðið og réttinn til að framleiða
það til sölu. Fyrir það fékk hann
150 bandaríkjadali. Burbank fannst
hálfpartinn að hann hefði verið plat-
aður – en upphæðin sem hann fékk
dugði honum til að flytja til Santa
Rosa í Kaliforníu og kaupa þar gott
garðland og koma upp bráðabirgða-
húsi fyrir sig. Og nú tók Burbank
til starfa. Óháskólagenginn, en
með kerfi Mendels að leiðarljósi,
lagði hann í það. Er hann lést 1926
hafði hann komið frá sér um 800
gerðum af nýjum og kynbætt-
um garðplöntum. Meðal annars
þyrnalausum fíkjukaktusi sem átti
að leysa beitarvandamál og stuðla
að arðsömum nautabúskap á eyði-
mörkum. Steinlausum plómum
fannst honum líka gagnlegt að
koma á framfæri, en hlaut dræm-
ar undirtektir plómuframleiðenda
sem seldu plómurnar eftir vikt. Þar
munaði um steininn. Og í íslensk-
um görðum eru nokkrar snotrar
garðjurtir sem rekja má til kyn-
bóta Burbanks. En kartaflan góða
'Russet Bubank‘ lifir enn í fullu
fjöri. Hún er eina kartaflan sem
McDonald‘s-hamborgarakeðjan
hefur til skamms tíma samþykkt í
„frönskurnar“ sínar – þótt hún sé nú
komin í harða samkeppni við erfða-
breytta kartöflusort sem Monsanto
hannaði fyrir keðjuna. Burbank var
mikill heimspekingur sem aldrei lá
á skoðunum sínum og oft er vitnað
í spakmæli hans. Hann var gall-
harður og sannfærður guðleysingi,
en þrátt fyrir það í miklum metum
hjá trúarpostulum og guðspeking-
um. Og iðnjöfrar og bandaríkjafor-
setar sóttust eftir félagsskap hans.
Ef við lítum okkur nær og
könnum hóp íslenskra jurtakyn-
bótamanna, þá ber nú kannski
fyrst upp á kanadíska Vestur-
Íslendinginn Baldur Stefánsson
sem ræktaði remmuna úr repjunni
og gerði þar með repjuolíu hæfa til
manneldis undir heitinu „Canola“.
Illu heilli tókst Monsanto að
sannfæra Baldur eftir að hann var
orðinn lasið gamalmenni um að
selja sér réttinn til að rækta upp
Roundup-ready repjustofn. Af því
hafa spunnist margar sorgarsögur
vegna yfirgangs- og ruddahegð-
unar Monsanto gagnvart bændum
sem vilja ekkert með erfðabreyt-
una hafa og óska einskis frekar en
að fá að halda áfram að rækta sinn
upprunalega repjustofn í friði. Út
í þá sálma fer ég ekki nánar hér.
Það væri leiðindalestur.
En til Íslands aftur. Við höfum
sannarlega ekki verið svipt snilling-
um á jurtakynbótasviðinu. Þing og
þjóð stendur í ævarandi þakkarskuld
við Jónatan Hermannsson á Korpu
sem hefur fært byggræktarmörkin
norður í Kolbeinsey að kalla má.
Veðurfarsskýrslur og spár íslensku
Veðurstofunnar, Háskólaalmanakið
og alþjóðlega atómklukkan hafa
ekki roð við honum þegar kemur
að þeim upplýsingum um veður og
tíma sem hann les úr byggökrun-
um. Og dr. Þorsteinn Tómasson er
kominn vel á veg að þróa móleitt
birki sem sker sig tilsýndar ekki
tiltakanlega í lit frá gróðursnauðu
mólendismyndinni sem skiptir svo
miklu máli fyrir ferðaiðnaðinn og
meðvitaða umhverfisunnendur. Nú
bíðum við bara með krosslagða
fingur og vonum að dr. Aðalsteinn
Sigurgeirsson komi fljótlega fram
með alaskalúpínu í gamburmosa-
litunum.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Gróður – og gáfaðir menn
Íslenskur byggakur.
Luther Burbank og þyrnalausi
fíkjukaktusinn.