Bændablaðið - 24.09.2015, Qupperneq 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 24. september 2015
Lesendabás
Kveikjan að því að ég set þess-
ar hugleiðingar á blað eru tvær
greinar eftir Önnu Guðrúnu
Þórhallsdóttur í Bændablaðinu
um þessi mál. Einnig fréttir af
sveitarfélögum sem eru að berj-
ast við þennan vágest utan þeirra
girðinga sem þeim er ætlað í flóru
þessa lands.
Þær eiga það allar sameiginlegt
að vera öflugar og hávaxta og eyða
öllum lágróðri í vistkerfinu, þar sem
þær fá að þróast frjálsar. Lúpínan
er dásamleg uppgræðslujurt og
auðgar landið af lífrænum efnum,
þar sem hún á við í uppgræðslu á
örfoka landi.
Kerfillinn var fluttur til landsins
sem skrautjurt í garða, þokkalegur
þar, en alger plága þar fyrir utan og
bætir ekki landið. Ætihvönnin er
íslensk jurt og ein af okkar bestu
lækningajurtum sem íslensk grasa-
flóra hefur upp á að bjóða en er hrein
plága í friðuðu landi þar sem sauð-
fé er ekki beitt á landið,en þar sem
sauðfé gengur frjálst sést hún ekki,
hún er eins og aðrar áðurnefndar
plöntur, hún eyðir öllum lágróðri
þar sem hún fær að valsa í frjósömu
landi. Í friðuðu landi þar sem ofan-
greindar jurtir eru ekki til staðar er
sinan mesti bölvaldurinn, rýrir flór-
una og heldur frosti of lengi í jörðu
og landið þar hvimleitt yfirferðar.
Við Anna Guðrún áttum ekki
samleið í beitarmálum er hún var
nýskriðin út úr skólanum og var
heltekin af kenningum skógrækt-
armanna, landgræðslunnar og
frændum mínum Andresi og Ólafi
Arndals sem öll börðust á móti
sauðfjárbeit og þó einkum á móti
hrossabeit á grónum afréttum, en
samkvæmt skrifum hennar nú hefur
hún snúið við blaðinu og tekur undir
það sem ég hélt alltaf fram er ég var
í forystu hrossa- og sauðfjárbænda.
„Hófleg blönduð beit er hagabót“,
þetta eru engin ný vísindi, þetta
er gömul reynsla eldri kynslóða
og hef ég sömu reynslu af starfi
mínu sem bóndi og bústjóri í rúm
60 ár. Þetta byggist einfaldlega á
því að hinar ólíku búfjártegundir
velja mismunandi jurtir úr vist-
kerfinu. Það sem opnaði augu mín
í upphafi fyrir þessu var grein um
hrossarækt í bandarísku tímariti, þar
sem hrossabóndi segir reynslu sína.
Hann ræktaði veðhlaupahross og var
aðeins með hross á búgarði sínum,
en hross frá honum stóðu oftast í
fremstu línu á veðhlaupabrautum, en
svo fóru þau að hætta að ná þessum
árangri þrátt fyrir strangt kynbóta-
starf, höfðu einfaldlega ekki nægt
úthald til að sigra löngu hlaupin.
Hvað var að?
Skólabróðir hans sem var mennt-
aður líffræðingur og plöntusér-
fræðingur kom eitt sinn í heimsókn
til hans á búgarðinn og hrosseig-
andinn ræddi þessi vandamál sín í
hrossaræktinni og hann bauðst til að
fara með honum að skoða stóðið og
hagana. Hann sá mjög fljótt að gróð-
urinn í högunum var orðinn mjög
einhæfur og mest af plöntum sem
hrossin hrifust ekki af. Hann ráð-
lagði honum að fá sér holdanaut og
sauðfé og beita á þessa sömu haga,
á nokkrum árum breyttist vistkerfið
og smátt og smátt skilaði það sér í
meiri afköstum hrossanna.
Annað dæmi sem ég upplifði á
Hesti í Borgarfirði var að Hestbúið
leigði Hrossaræktarsambandinu
og Nautastöðinni allstórt land í
Mávahlíð, þar voru stóðhestar og
kynbótanaut á sumrin. Snemma á
vorin er fé var hleypt af húsi, fylltist
þessi girðing af fé, þó mikill gróður
á samsortar landi væri til staðar allt í
kring, en nær eingöngu beitt sauðfé.
Þetta munstur sá ég mjög víða er ég
fór um sem ráðunautur. Þessi dæmi
voru til þess að Félag hrossabænda
barðist fyrir því að leyfa hrossabeit á
afréttum til landbóta, þar sem gróð-
urþekja var allgóð.
En með hvaða ráðum eigum við
að verja fjölbreytni íslensku flór-
unnar til að sporna við útbreiðslu
þessarar freku jurta ef þær fara út
fyrir sitt athafnasvæði, í þéttbýli, í
friðlöndum og stöðum, vítt og breitt,
þar sem gjafaáburður og fræi var
dreift og náði að þroskast? Núna
eru nokkur sveitarfélög og áhuga-
menn farnir að berjast gegn þessum
óboðna gesti í umhverfi sínu. Reynt
hefur verið að nota plöntueitur, en
gallinn er sá að það drepur allan
grænan gróður, er dýrt í innkaup-
um en fræin lifa í áratugi í jörðinni.
Önnur leið er sú að slá þessar
plöntur áður en þær fella fræ, þetta
er mjög vinnufrek aðferð og þar af
leiðandi mjög dýr í framkvæmd og
oft erfitt að koma tækjum að, nema
helst í vegköntum en þar er oft erf-
iðleikum bundið að koma beit við.
Besta aðferðin til að halda þessum
jurtum niðri er að beita þær. Þar
erum við Anna Guðrún sammála. Í
sama Bændablaði frá 23. júlí er frétt
skráð af blaðamanni blaðsins, V.H.,
af baráttu þeirra í Nýja-Englandi í
Bandaríkjunum að útrýma og halda
í skefjum innfluttum plöntum sem
eru að yfirtaka sjávarfitjar þar í rík-
inu. Niðurstaðan var beit, allt annað
gefur engan eða mjög lítinn árangur,
þar reyndust geitur afkastamestar en
þær þurfa mjög öflugar girðingar.
Hugleiðingar Önnu Guðrúnar
í Bændablaðinu 13. ágúst sl. um
þessi mál er að sauðfjárbeit sé
besti kosturinn en hún sér þann
annmarka á henni helstan að erfitt
muni reynast að fá sauðfjáreigendur
til að leigja fé til þessara starfa. Hún
telur eituráhrif lúpínu það lítil að
það skaði ekki ef beitarfénaðurinn
hafi önnur grös að bíta með.
Hugmynd mín til þerra sveitar-
félaga, félagasamtaka og annarra
sem vilja verja íslenskt gróðurlendi,
þjóðgarða okkar og önnur gróin
svæði sem þessar plöntur eru að
leggja undir sig án vilja eigendanna
á viðkomandi landi.
Girða hólf um þær og skipuleggja
sauðfjárbeit í þeim, girðingin er dýr-
asti þátturinn við hugmyndina en
hana þarf bara að framkvæma í upp-
hafi átaksins. Anna Guðrún bendir
á að erfitt gæti reynst að semja við
bændur um beitarpening, það er
rétt hjá henni, ég þekki það vanda-
mál frá því ég var tilraunastjóri á
Hesti. Einn möguleiki væri að leysa
það með því að viðkomandi fram-
kvæmdaraðili kaupi smáhrútlömb
á haustin sem ekki eru í sláturhæfu
ástandi af bændum og semji við
þá um að láta gelda þau og ala þau
síðan upp með sínum gemlingum
og afhendi þau eiganda í maílok. Í
byrjun gróanda á að byrja að beita
hólfin, en mikið atriði er að beita á
nýgræðinginn og halda gróðrinum
niðri fram yfir mitt sumar en eftir
það ná þær ekki að þroska fræ en
hólfin verða þá að fá frið svo gróð-
urinn fái tíma til að safna forða til
vetrarkomu.
Til að leysa vetrarhirðinguna
á sauðunum er best að semja við
bændur sem eiga gömul ónotuð fjár-
hús að fóðra þá, með því að láta
þá liggja við opið. Þessi fóðurað-
ferð kostar mjög litla vinnu og er
heilsusamleg fyrir sauðina. Þegar
þarf að endurnýja í stofninum er best
að farga þeim 3ja vetra, þá er gott
verð á þeim og skipta þá við bónda á
sauð og framgengu geltu smálambi,
þetta er beggja hagur og sjálfbær
endurnýjun. Vandamálin eru að nota
þessa aðferð inni á milli húsa í þétt-
býli og á vegarköntum þar sem ekki
er hægt að koma sláttuvél að.
Er ég var ungur maður og hafði
ekki land til umráða nálægt vinnu
og dvalarstað en átti þá þegar mörg
hross, tjóðraði ég þau hross sem ég
var með í brúkun á smá blettum og
vegköntum á Hvanneyri. Á ferð-
um mínum erlendis hef ég víða séð
vegkanta nýtta á þennan hátt. Anna
Guðrún bendir á að hrosseigandi
einn sem vildi eyða lúpínu úr landi
sínu beitti það svo hart að hrossin
kröfsuðu upp rætur hennar og átu,
ekki mæli ég með þessu, þetta getur
ekki verið góð meðferð á hrossunum
en aftur á móti myndi ég ráðleggja
þessu fólki að fá sér grísi, en svín
eru upplögð til þessa en það er eðli
þeirra að grafa með trýninu eftir
rótarávöxtum. Ég vann um tíma á
stóru svínabúi í Danmörku þar sem
bóndinn beitti gyltunum á með-
göngunni úti, þeim til heilsubóta
og hafði sérstök beitarhólf til þessa
brúks, þetta þótti gefast vel.
Syðra-Skörðugil 20. ágúst 2015.
Einar E. Gíslason.
Lúpína í Ljósavatnsskarði. Mynd / HKr.
Lúpína, kerfill og ætihvönn:
Eru þetta skaðvaldar?
Einar E. Gíslason.
Fljótafé til sýnis og sölu
Minnum á að Fljótamenn verða með opið hús á
Helgustöðum í Austur-Fljótum laugardaginn 3. október,
kl. 13:30. Þar verður hægt væri að kaupa kynbótalömb.
Athugið að einungis má selja innan Tröllaskagahólfs að
Svarfaðardal undanskildum.