Morgunblaðið - 04.08.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.08.2015, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. Á G Ú S T 2 0 1 5 Stofnað 1913  180. tölublað  103. árgangur  KONA MEÐ DÝRAN SMEKK FYRIR BÍLUM MYNDAR ANDLIT REYKJANES- BÆJAR ÆVINTÝRAÓPERAN BALDURSBRÁ SETT Á SVIÐ Í HÖRPU BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON 10 GUNNSTEINN TÓNSMIÐUR 30BÍLAR Meira fannst af sterkari efnum í fíkniefnaeftirliti lögreglunnar í Vestmannaeyjum um helgina en fyrri ár, en í til- kynningu lögregl- unnar kemur fram að eftirlitið hafi verið hert til muna í ár. Að sögn Heið- ars Hinrikssonar, lögregluþjóns í Vestmannaeyjum, sem hélt utan um eftirlitið, kom magn kókaíns og am- fetamíns verulega á óvart. Magn þess- ara efna var nú meira en kannabis- efna, sem er óvenjulegt. „Við áttum ekki von á því að finna svona mikið af þessu. Yfirleitt hefur verið mest af grasi og núna snerist þetta við,“ segir hann, en athygli vekur að heildar- magn kannabisefna minnkaði á móti. Skammtastærðirnar komu lög- reglu einnig á óvart að sögn Heiðars. „Við fundum meira magn á fleiri ein- staklingum. Einhverjir þeirra eru mögulegir söluskammtar,“ segir hann. Heiðar segir að líkleg ástæða fyrir magni efnanna sé einfaldlega að mikið magn þeirra sé í umferð á landinu um þessar mundir. Að sögn Heiðars verða fíkniefna- mál sem komu upp á hátíðinni nú tek- in saman og áætlað hverju er við að búast að ári liðnu. Ósamræmi miðað við þróun Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir tíðindin ekki samræmast þróuninni. „Aukin kókaínneysla kem- ur á óvart; neyslan hefur staðið í stað og dvínaði mikið eftir hrun. Þetta sá maður ekki fyrir, en ef sannarlega var meira af þessum efnum en áður má draga þá ályktun að meira verði um þessi efni á landinu þegar nær dregur haustinu,“ segir hann. jbe@mbl.is Mikið um hörð efni í Dalnum  Óvænt magn kóka- íns og amfetamíns Lögreglan Fíkni- efnaeftirlitið hert.  Fríða Hermannsdóttir upplifði úrræðaleysi í þjónustu við eldri borgara í námi sínu í hjúkrunar- fræði og einsetti sér að gera á því bragarbót. Hún rekur nú ásamt móður sinni fyrirtækið Farsæld, sem sinnir heima- og hjúkrunar- þjónustu. Hluti af þjónustu þess felst í svo- kallaðri lífssöguþjónustu. Í henni felst að tekið er saman æviágrip einstaklings á myndrænan hátt og sett fram á veggspjaldi hjá honum. Lífssöguþjónustan hefur sýnt já- kvæð áhrif á umönnun einstaklinga með heilabilun. Margir af þeim sem þjást af heilabilun verða erfiðir í samskiptum eða loka sig algjörlega af. Markmið þjónustunnar er að að- stoða umönnunaraðila við að kynn- ast skjólstæðingum sínum og sporna þannig gegn stofnana- væðingu umönnunar. »14 Lífssöguþjónusta vinnur gegn stofnana- væðingu í þjónustu hjúkrunarheimila Ljósmynd/Farsæld Farsæld Fríða Hermannsdóttir og Hall- fríður Eysteinsdóttir hjúkrunarfræðingar. Hráolíuverð hefur lækkað um nærri helming á undanförnum 12 mánuðum og svo virðist sem ekkert lát sé á þeirri þróun. Lækkaði Brent Norðursjávarolía um 2,1% í gær og olía á markaði í Bandaríkjunum lækkaði um nærri 3%. Ekki er ljóst hvaða áhrif þetta hefur á þróun eldsneytis- verðs hér á landi, en ekki náðist tal af fulltrúum olíufélag- anna í gær. „Það ber svolítið að sama ósi og áður, þau virðast vera sneggri til að hækka verðið en þegar kemur að því að lækka það,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Hann segir teikn á lofti um frekari lækkun olíuverðs og bendir á nýtt samkomulag við fjórða stærsta olíuframleiðanda heims, Íran. »17 Verð á olíu lækkar áfram Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Íslenskir korthafar eru almennt varari um sig þegar kemur að öryggi kortaupplýsinga í netviðskiptum, að sögn Bergsveins Sampsted, fram- kvæmdastjóra kortalausna hjá Val- itor, en framin kortasvik hér á landi eru einungis þriðjungur af sambæri- legum tilvikum erlendis. „Við erum býsna vel upplýst þegar kemur að upplýsingaöryggi og per- sónuvernd. Aðgengi Íslendinga að heimabönkum er líka gott og fólk sér strax ef inn koma skrýtnar færslur. Við erum fljót að bregðast við og get- um skoðað hlutina í víðara samhengi, hvort málið varði fleiri korthafa,“ segir Bergsveinn. Hann segir netviðskipti ekki orðin jafn örugg og viðskipti með posum, en örgjörvar og pin-númer hafa leyst öryggisvandamál í posaviðskiptum. „Netviðskipti eru ekki sambæri- leg viðskiptum yfir borðið. Það sem við sjáum fyrir okkur er að auðkenn- ingarkröfur muni aukast í netvið- skiptum,“ segir Bergsveinn, en að hans mati eru líkur á að í framtíðinni aukist auðkenningarkrafa til kort- hafa sem eigi í viðskiptum yfir netið. Að mati Bergsveins búa Íslend- ingar vel landfræðilega þegar kemur að vörnum við kortasvikum á netinu, en einnig spilar inn í fæð fólks hér á landi. Þannig er auðvelt að halda ut- an um undarlegar kortafærslur og starfsfólk kortafyrirtækjanna getur brugðist skjótt við. »4 Íslendingar vel upplýstir um kortaöryggi  Fáir íslenskir korthafar láta blekkjast af fölskum póstsendingum tölvuþrjóta Kortaöryggi » Fjölgað hefur tölvupóst- sendingum tölvuþrjóta sem dulbúnar eru sem tölvupóstar frá fyrirtækjum. » Íslendingar eru illseldir þeg- ar kemur að gylliboðum um að láta af hendi viðkvæmar korta- upplýsingar sínar. » Aukin auðkenningarkrafa til korthafa kann að sporna við hættunni af netviðskiptum. Þeir virtust þreyttir, ferðalangarnir sem biðu eftir strætó í Mjóddinni í gær um leið og þeir yljuðu sér við sólargeislana. Kannski voru þeir meðal þeirra þúsunda sem komu af Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir þunga umferð gekk hún hvarvetna vel ef undan eru skilin lítilsháttar óhöpp vestan við Strákagöng og á Suðurstrandarvegi. »9 Morgunblaðið/Eggert Yljuðu sér og biðu eftir strætó í Mjóddinni Umferð gekk stóráfallalaust fyrir sig  Tíðni svonefndra þungbura hér á landi hefur lækkað eftir að farið var að skima fyrir meðgöngu- sykursýki. Bendir það til þess að stór hluti þungburanna sem fædd- ust hér hafi ekki bara verið stór vegna erfðaeiginleika heldur hafi meðgöngusykursýki mæðranna stuðlað að óeðlilega miklum vexti margra þessara barna. Fæðingarþungi barna á Íslandi er að meðaltali með því hæsta sem þekkist í heiminum og árið 2001 töldust 7% nýbura á Íslandi vera þungburar (þyngri en 4.500 grömm) Hlutfall þungbura hér- lendis var 7,2% á árunum 1998 og 1999 en lækkaði síðan niður í 4,6% á þrettán árum. Á sama tímabili þyngdust Íslendingar almennt. Ragnheiður I. Bjarnadóttir, yfir- læknir mæðraverndar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að ástæða lækkandi tíðni þungbura sé sennilega sú að á undanförnum ár- um hafi verið farið að leita betur að meðgöngusykursýki hjá verðandi mæðrum. „Ef mæðurnar eru með ómeð- höndlaða meðgöngusykursýki eru þær með of háan blóðsykur sem fer yfir fylgjuna til barnsins. Barnið, sem ekki er sjálft með sykursýki, framleiðir því aukið insúlín og hleð- ur upp fituvef og stækkar því meira en það myndi gera annars.“ »6 Tíðni þungbura hefur lækkað eftir að farið var að skima fyrir meðgöngusykursýki  Samningur milli Ormsson og danska raftækjaframleiðandans Bang & Olufsen var undirritaður í mars og verður sérstök Bang & Olufsen-verslun opnuð í Lágmúla 8 í Reykjavík næstkomandi laugar- dag. Að sögn Vals Kristóferssonar, sölustjóra Bang & Olufsen á Ís- landi, brást fyrirtækið við efna- hagshruninu með því m.a. að leggja áherslu á svonefnda Beo Play-línu, sem er stíluð á yngri kaupenda- hópinn með tækjum á borð við heyrnartól og bluetooth-hátalara. »16 Bang & Olufsen- verslun opnuð í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.