Morgunblaðið - 04.08.2015, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.08.2015, Qupperneq 6
Morgunblaðið/Golli Minjar Hafnargarðurinn verður endurbættur en ætlunin er að fella hann að hluta inn í nýbyggingu á reitnum. Bjarni Steinar Ottósson Kjartan Kjartansson Gamli steinhlaðni hafnargarðurinn í Reykjavíkurhöfn komst aftur í dagsljósið nýlega, en verið er að grafa fyrir nýbyggingu á Austur- bakka þar sem garðurinn stóð. Garðurinn var byggður á árunum 1913-1917, á tíma fyrri heimsstyrj- aldar, en lagðist undir landfyllingu í upphafi seinna stríðs, árið 1939. Fyrirtækið Landstólpar stendur að nýbyggingu á reitnum sem ætluð er undir íbúðar- og verslunarhús- næði. Bílakjallari verður undir hús- inu sem tengist sameiginlegu bíla- stæðahúsi á svæðinu sem nær undir Hörpuna. Garðurinn er meira en aldar gamall en í ljósi aldurs hans gerir Minjastofnun kröfu um að garður- inn verði varðveittur í núverandi mynd, a.m.k. að hluta, og verði áfram sýnilegur í borgarmyndinni. Garðurinn teljist heilt mannvirki en ekki rústir og því beri að varðveita hann. Merkar söguminjar Pétur H. Ármannsson, sviðstjóri hjá Minjastofnun, lýsir garðinum sem stærstu og merkustu fram- kvæmd sem hafði verið ráðist í á þeim tíma. Þetta sé fyrsta og eina framkvæmd á Íslandi sem járn- brautarlest hafi verið nýtt við, en hún flutti efni frá Skólavörðuholti og Öskjuhlíð niður á höfn. Pétur segir um merkilegan fund að ræða. „Menn vissu svo sem af þessum garði og bent var á áður en skipu- lagið á reitnum var gert að hafnar- garðurinn væri sennilega þarna undir. Menn gerðu sér kannski ekki grein fyrir því að hann væri svona heillegur og fallegur.“ Felldur inn í byggingaráform Garðurinn tengdist steinbryggju við enda Pósthússtrætis og myndaði að sögn Péturs eins konar hlið inn í landið sem allir aðkomumenn í höf- uðstaðnum fóru um. Stjórnarformaður Landstólpa, Gísli Steinar Gíslason, segir standa til að garðurinn fái að vera áfram, a.m.k. að hluta, og samstarf sé við Minjastofnun um það. Hann vonast vil þess að garð- urinn verði sýnilegur áfram og hluti af bílakjallaranum. „Við erum svolítið að vinna með söguna á svæðinu þannig að þetta getur komið skemmtilega inn í hönnun hjá okkur þarna. Markmið- ið er að reyna að hafa hann alveg óhreyfðan þar sem hann heldur sér,“ segir Gísli. Hann sér fyrir sér að hluti garðs- ins muni þurfa að víkja en hluti hans verði eftir og sýnilegur úr bíla- kjallara og úr göngugötu á svæðinu. Verklok eru áætluð 2018 en Pétur segir garðinn óhjákvæmilega munu raska byggingaráformum eitthvað. Hugsanlega verði að gefa eftir varð- andi stærð bílakjallarans. Hafnargarður á sínum stað  Grafinn 1939 og gengur nú í endurnýjun lífdaga  Kemur betur undan landfyllingu en búist var við  Hluti garðsins fær að standa og verður sýnilegur á ný úr bílakjallara og göngugötu 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fæðingarþungi barna á Íslandi er að meðaltali með því hæsta sem þekkist í heiminum. Hér fæddust t.d. hlutfallslega mun fleiri þung- burar (þyngri en 4.500 grömm) ár- ið 2001 en í Bandaríkjunum. Það ár töldust 7% nýbura á Íslandi vera þungburar en 1,4% í Banda- ríkjunum. Tíðni þungbura var einnig hærri hér en annars staðar í Evrópu. Hlutfall mjög þungra barna (þyngri en 5.000 grömm) var 0,8% hér miðað við 0,1% í Bandaríkjunum. Þetta kemur m.a. fram í fræði- grein Hörpu Viðarsdóttur, læknis og doktorsnema, um áhættu sem fylgir meðgöngu og fæðingu mjög þungra barna fyrir börnin sjálf og mæður þeirra. Greinin birtist í American Journal of Obstetrics & Gynecology árið 2011. Ástæður fyrir þungburum Þar kemur einnig fram að hlut- fall mjög þungra barna í Samein- uðu arabísku furstadæmunum var 0,24% og í Svíþjóð 0,45%. Ekki er að fullu vitað hvers vegna íslensk börn eru svona þung en þó er vitað um þætti sem stuðla að aukinni þyngd nýbura. Þannig eru vísbendingar um að mæður þungbura hafi tilhneigingu til að vera þyngri og þyngjast meira á meðgöngu en þær sem fæða börn í algengustu þyngd- arflokkunum. Eins er vitað að meðgöngusykursýki mæðra hefur áhrif á þyngd barnanna. Fjallað var um tengsl mikillar fæðingarþyngdar barna við þyngd mæðra í Morgunblaðinu 28. júlí sl. Á læknaþingi um frjósemi á Norðurlöndum, sem haldið er í Hörpu 3.-5. ágúst, er m.a. fjallað um þung börn og þungar mæður. „Meðalþyngd íslenskra barna er meiri en annars staðar á Norður- löndunum. Árið 2012 voru 4,6% ís- lenskra barna yfir 4.500 grömm (þungburar) en aðeins 2,5% danskra barna, 2,5% finnskra barna, 2,9% norskra barna og 3,5% sænskra barna,“ sagði Ragnheið- ur I. Bjarnadótt- ir, yfirlæknir mæðraverndar Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins. Hún ber einnig ábyrgð á fæðinga- skráningunni. Ragnheiður sagði almennt ekki slæmt að börn væru stór og kröftug við fæðingu. Meðalþyngd íslenskra barna er í kringum 3.700 grömm og hérlendis eru tiltölulega lág tíðni fyrirbura og vaxtarskertra barna. „En það geta fylgt vandamál bæði fyrir móður og barn þegar barnið er komið yfir 4.500 grömm,“ sagði Ragnheiður. Hún sagði að hlutfall þungbura (yfir 4.500 grömm) hefði verið enn hærra hér fyrr á árum. Hlutfall þungbura hérlendis var 7,2% á árunum 1998 og 1999 en lækkaði síðan niður í 4,6% á þrettán árum. Á sama tíma- bili þyngdust Íslendingar almennt og verðandi mæður þar á meðal. Leita að meðgöngusykursýki Ragnheiður sagði að ástæða lækkandi tíðni þungbura væri sennilega sú að á undanförnum ár- um hefði verið farið að leita betur að meðgöngusykursýki hjá verð- andi mæðrum. „Ef mæðurnar eru með ómeð- höndlaða meðgöngusykursýki eru þær með of háan blóðsykur sem fer yfir fylgjuna til barnsins. Barnið, sem ekki er sjálft með sykursýki, framleiðir því aukið in- súlín og hleður upp fituvef og stækkar því meira en það myndi gera annars. Ein af ástæðum þess að við skimum fyrir meðgöngusykursýki hjá konum í áhættuhópi, meðal annars konum sem eru of þungar, er að við erum að reyna að koma í veg fyrir að börnin verði of þung og stór,“ sagði Ragnheiður. Mæðrunum er ráðlagt að passa upp á blóðsykurinn. Þær fara á sérstakt mataræði og nota jafnvel insúlín, ef mataræðið dugar ekki, til að halda blóðsykurmagninu í skefjum og koma þannig í veg fyr- ir að barnið verði mjög stórt. Það getur valdið ýmsum vanda í fæð- ingu ef barnið er of svert. Börn sykursjúkra mæðra eru yfirleitt hlutfallslega þung miðað við lengd, og stærri en þau ættu að verða erfðanna vegna. Þessi börn geta t.d. frekar lent í svonefndri axlar- klemmu en jafnþungir nýburar með eðlilegt holdafar, þ.e. börn sem eru stór vegna erfða sem eru oftast líka löng og höfuðstór. Þannig má skipta þungburum í tvo hópa: þau sem eru stór vegna erfða og þau sem eru stór vegna ómeðhöndlaðrar meðgöngusyk- ursýki, en mun minna er um vandamál hjá fyrri hópnum. Það hve tíðni þungbura lækkaði eftir að farið var að skima fyrir meðgöngusykursýki bendir til þess að stór hluti þungburanna sem fæddust hér hafi ekki bara verið stór vegna erfðaeiginleika heldur hafi meðgöngusykursýki mæðranna stuðlað að óeðlilega miklum vexti margra þessara barna, að mati Ragnheiðar. Fæðingum þungbura fækkaði  Eftirlit með meðgöngusykursýki hjá verðandi mæðrum leiddi til þess að færri þungburar fæddust  Hlutfallslega fæðast fleiri þungburar hér en annars staðar á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum Morgunblaðið/Golli Nýr Íslendingur Íslensk börn eru að meðaltali þyngri en börn á meðal annarra þjóða. Bæði er hlutfall þungbura (yfir 4.500 grömm) hærra hér en víða annars staðar og eins hlutfall mjög þungra nýbura (yfir 5.000 grömm). Ragnheiður Bjarnadóttir „Það hafa fæðst nokkur börn yfir sex kílóum (24 merkur) á Íslandi,“ sagði Reynir Tómas Geirsson, fæðingalæknir á Landspítalanum og prófessor. Hann er leiðbeinandi Hörpu Viðarsdóttur doktorsnema. Reyni minnti að þyngsta barn sem fæðst hafði hér á landi og sögur fóru af hefði verið 6,7 kíló (tæplega 27 merkur). Sjálfur tók hann einu sinni á móti barni sem var tæplega 6,3 kíló (25 merkur) við fæðingu. Barnið var tekið með keisaraskurði til að koma í veg fyrir að það skaddaðist í fæðingu. „Ég sagði við móðurina að hún gæti bara sent barnið strax í skóla,“ sagði Reynir. Þyngsta barnið var 6,7 kg NOKKRIR NÝBURAR YFIR SEX KÍLÓUM AÐ ÞYNGD Reynir Tómas Geirsson Hafnarmál Reykjavíkur voru lengst af bágborin þó að fullt tilefni væri til þess að ráðast í framkvæmdir. Úr því varð loks árið 1913 að gufuskipið Edvard kom í höfn með stórvirk vinnu- tæki og verkfræðinginn N.P. Kirk sem hafði yfirumsjón með framkvæmdinni. Járnbraut var lögð og gat lestin ferjað bygg- ingarefni 25 ferðir daglega. Milli 100 og 140 manns stóðu að framkvæmdinni milli 1913 og 1917 sem var mikil inn- spýting í efnahag borgarinnar. Umbylting LANGÞRÁÐ FRAMKVÆMD

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.