Morgunblaðið - 04.08.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
2.495KR
BRÖNS
Í hádeginu laugardaga,
sunnudaga og rauða daga
frá 11:30 – 15:00
g e y s i r b i s t r o . i s
Aðalstræti 2
517 4300
Svíar og Danir hafa algjörlegamisst stjórn á straumi flótta-
manna og annarra innflytjenda, að
mati margra heimamanna.
Kosningaþróunin í löndunum end-
urspeglar þann
veruleika.
Í gær sagði„RÚV“ í hádeg-
isfréttum: „Dönsk
stjórnvöld vilja
draga mikið úr
fjölda hælisleitenda
í Danmörku. Efnt verður til aug-
lýsingaherferðar í erlendum dag-
blöðum sem letja á flóttafólk frá
því að koma til Danmerkur!“
Eins og allir vita liggur sérhverflóttamaður á meðan lesbjart
er yfir blöðunum. Því má telja
öruggt að þessi herferð danskra
yfirvalda muni heppnast. En hvað
sem því líður á herferðin skilið að
fá Bjartsýnisverðlaun Bröste, og
það jafnvel þótt þau séu ekki leng-
ur til í fyrri mynd og hafi beinst
að Íslendingum á meðan þau voru
og hétu.
En það er fagnaðarefni aðheyrst hefur að embætt-
ismenn íslenska Utanríkisráðu-
neytisins hafi lagt til við sinn ráð-
herra að strax verði settur saman
kvartett úr hópi núverandi og
fyrrverandi ráðherra sem fari í
söngferð til Vladivostok.
Ferðin mun hafa yfirskriftina„Meiri makríl, krílin mín“ og
verður beint að börnum, sem
munu svo í framhaldinu vinna í
foreldrum sínum gegn innflutn-
ingsbanni sem Íslandi er hótað eft-
ir snilldartakta ráðuneytisins.
Fagmenn telja víst að sú her-ferð muni ekki skila lakari
árangri en danska auglýsinga-
herferðin.
Christiansborg
Slot
Ógnvekjandi
aðgerðir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 3.8., kl. 18.00
Reykjavík 15 skýjað
Bolungarvík 13 heiðskírt
Akureyri 12 skýjað
Nuuk 17 léttskýjað
Þórshöfn 12 skúrir
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 32 heiðskírt
Brussel 32 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 21 skýjað
París 32 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 31 heiðskírt
Berlín 32 heiðskírt
Vín 28 léttskýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 22 skýjað
Madríd 37 léttskýjað
Barcelona 28 léttskýjað
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 32 heiðskírt
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 18 léttskýjað
Montreal 22 skýjað
New York 30 léttskýjað
Chicago 26 léttskýjað
Orlando 24 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
4. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:44 22:24
ÍSAFJÖRÐUR 4:29 22:49
SIGLUFJÖRÐUR 4:11 22:33
DJÚPIVOGUR 4:09 21:59
Franskur ferða-
maður sem villt-
ist á Horn-
ströndum í gær
fannst í í gær-
kvöldi eftir um-
fangsmikla leit.
Maðurinn hafði
samband við Neyðarlínu og sagðist
villtur uppi af Lónafirði á milli Jök-
ulfjarða og Hornstranda. Lítið
skyggni var á svæðinu og maðurinn
gat illa lýst aðstæðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg var
manninum orðið kalt þegar hann
fannst en að öðru leyti var hann vel
haldinn og afþakkaði Snickers-
súkkulaðistöng þegar honum var
boðin hún.
Villtist og
afþakkaði
Snickers
Leitað að ferða-
manni á Hornströndum
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þrír dagar eru síðan flutningaskipið
Winter Bay lagði af stað frá Tromsö í
Noregi með íslenskt hvalkjöt. Förinni
er heitið til Osaka í Japan og er að
sögn Kristjáns Loftssonar, eiganda
Hvals hf., áætlað að skipið komi
þangað í fyrri hluta septembermán-
aðar. Farmurinn er 1.700 tonn af
frosnu langreyðarkjöti.
Siglt verður um Norður-Íshaf í
fyrstu þar sem ís er farinn að þiðna
sem auðveldar för. Leiðinni er heitið
norður fyrir Rússland, svokallaða
norðausturleið, en hafís getur tálmað
för skipa sem reyna að fara þessa leið.
Að sögn Kristjáns er opnað fyrir
þessa leið 1. júlí en hún verður ekki al-
mennilega fær fyrr en í ágúst. „Það er
allt að þiðna mjög hratt þarna,“ segir
Kristján. Að sögn hans ætti förin að
ganga greiðlega. „Rússarnir sjá um
allt eftirlit. Skipið fer ekki neitt nema
það sé búið undir þær aðstæður sem
eru þarna,“ segir Kristján.
Winter Bay lagði af stað frá
Hafnarfirði í byrjun júní og hélt til
Noregs. Hafði það legið við bryggju í
sex vikur áður en það fór frá höfn á
föstudaginn. Gangi áform um sigl-
ingu norður fyrir Rússland eftir
styttir það leiðina sem þarf að sigla
um 14.800 kílómetra miðað við að far-
ið sé fyrir Góðrarvonarhöfða.
Kemur til Osaka í september
Winter Bay á þriðja degi í för sinni til Japan Allt að þiðna á norðausturleið
Winter Bay 1.700 tonn eru um borð.
Hettumávar,
ekki kríur
Mynd sem birtist á baksíðu síðasta
sunnudagsblaðs Morgunblaðsins var
af hettumávum en ekki kríum eins
og sagði í texta með myndinni. Er
beðist velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT