Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 12

Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 12
SVIÐSLJÓS Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hjálmar Sveinsson, formaður um- hverfis- og skipulagsráðs Reykja- víkurborgar og hjólreiðamaður til 25 ára, kveðst taka undir ákveðin atriði í gagnrýni Gauta Grétarssonar, sjúkraþjálfara og hjólreiðamanns til 25 ára, í Morgunblaðinu fyrir helgi. „Ég er sammála því að kappakst- urshjólreiðar eiga ekki heima inni á tiltölulega þröng- um stígum, þar sem bæði eru fót- gangandi vegfar- endur og hjólandi. Ég er líka sam- mála því að það þarf að bæta um betur, en það er- um við einmitt að gera ár hvert,“ sagði Hjálmar í samtali við Morgun- blaðið. Hann segir ótækt að keppnis- hjólamenn fari á miklum hraða á stígum þar sem gangandi vegfar- endur séu einnig, og séu ekki með bjöllu. Taka verði tillit til gangandi vegfarenda. „Það þarf ugglaust að koma á meiri aga á þessum stígum, svo að ekki skapist hætta,“ sagði Hjálmar. Hann kveðst telja að sú hjólabylt- ing sem orðið hafi sé stórkostleg, ekki bara hér, heldur alls staðar. Keppnishjólamennska áberandi „Segja má að þessi bylting hér hafi orðið svolítið einsleit, að því leyti að keppnishjólamennska er áberandi og gríðarlega öflug, sem er vissulega fagnaðarefni. En hún á bara alls ekki heima inni á hinum almennu göngu- og hjólastígum, og getur þess vegna skapað þær hættur sem Gauti fjallaði um í samtali við Morgunblaðið í síð- ustu viku,“ sagði Hjálmar. Hann kvaðst hafa fengið umkvartanir frá fólki sem segði við hann að það horfði í óefni hvað varðar hraðann á keppnishjólreiðamönnum á hinum al- mennu og oft þröngu stígum. „Einn staður sem oft er nefndur við mig er Elliðaárdalurinn, vegna þess að hann er vinsæll útivistar- staður fyrir göngufólk. Þar stendur nú reyndar til í haust og næsta sumar að leggja sér stíga fyrir hjólreiðafólk, sem ég held að verði til mikilla bóta, ekki síst fyrir fótgangandi, vegna þess að þar er mikið af kröppum beygjum og blindhornum,“ sagði Hjálmar. Hjálmar bendir á að Reykjavíkur- borg hafi gert mikið til þess að bæta aðstæður göngu- og hjólreiðafólks. Umtalsvert fjármagn hafi verið sett í að bæta göngu- og hjólastíga og leggja nýja. Á þessu ári sé 350 millj- ónum króna varið í verkefnið. „Við leggjum æ aukna áherslu á að leggja sér hjólastíga og gott dæmi um það er stígarnir meðfram Ægi- síðu og allur Fossvogsdalur og stíg- arnir meðfram Sæbrautinni,“ sagði Hjálmar. Hann telur ekki þörf á því að stígar séu tvískiptir alls staðar. „Fótgang- andi og hjólandi fólk á alveg að geta deilt sama stíg, sem aðskilinn er með áberandi línu, ef farið er varlega,“ sagði Hjálmar. Bjalla nauðsynleg Ásbjörn Ólafsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna (LHM), segir að gagnrýni Gauta Grétarssonar á hjólreiðamenn á keppnishjólum sem þeysist um göngu- og hjólastíga borgarinnar á miklum hraða, án þess að vera með bjöllu, hafi vissulega verið rædd inn- an LHM. „Við höfum rætt um nauð- syn þess að vera með bjöllu á hjól- unum og að hjólreiðamenn haldi sig hægra megin á stígunum, auk þess sem við brýnum fyrir hjólreiðamönn- um að fara eftir lögum og reglum. Það vill brenna við að keppnis- hjólreiðamenn séu að hjóla of margir saman í hópi á stígunum og ganga þar með á rétt gangandi vegfarenda og í versta falli stofna þeim í hættu,“ sagði Ásbjörn í samtali við Morgun- blaðið. Keppnishjólreiðar eiga ekki við  Formaður skipulagsráðs segir ótækt að keppnishjólreiðamenn fari á miklum hraða á stígum þar sem gangandi vegfarendur eru  Úrbóta von í Elliðaárdal og lagðir verði sérstakir hjólastígar Hjálmar Sveinsson 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015                                     Arnþór Helgason hjólreiðamaður hefur ýmislegt út á göngu- og hjólastíga borgarinnar að setja og hjól- reiðamenningu sem þar sést allt of oft að hans mati. Arnþór og kona hans, Elín Árnadóttir, hafa ánægju af að hjóla saman á tveggja manna hjólinu sínu, hvort sem er á hjólastígum borgarinnar eða utan Reykjavíkur. „Þegar hjól þeysist fram úr manni á 40 til 50 kíló- metra hraða á hjólastíg bregður manni óneitanlega í brún,“ sagði Arnþór í samtali við Morgunblaðið. Áður en hjólanotkun hafi orðið jafnalmenn og hún er í dag hafi menn yfirleitt gefið aðvörunarmerki með því að klingja bjöllu en það sé hending nú orðið ef menn á keppnishjólum séu með bjöllu á hjólinu. Arnþór segir marga vegfarendur uggandi út af þessari hröðu umferð á stígunum. Hann vill að há- markshraði verði ákveðinn á hjólastígunum og lög- regla sinni sýnilegu eftirliti með umferðinni þar, og leiðbeini fólki um aksturslag. Arnþór segir að hættur og slysagildrur leynist á ákveðnum stöðum á göngu- og hjólastígum borgar- innar og nefnir sérstaklega hjólreiðastíginn meðfram Suðurgötunni, þar sem hjólreiðarmenn fari oft yfir á göngustíginn og hjóli svo á mikilli ferð, jafnvel þar sem blindhorn er, og af því skapist oft mikil hætta. Loks bendir Arnþór á að víða í Reykjavík séu úr- tökur í gangstéttum mjög lélegar og af því geti einn- ig skapast mikil hætta. Ljósmynd/Ragnheiður Jósúadóttir Á einu hjóli Hjónin Arnþór Helgason og Elín Árnadóttir hafa ánægju af hjólreiðum en hjólastígana mætti bæta. Eru uggandi vegna hraðans  Vill reglur um hámarkshraða á hjólastígum og löggæslu Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Löggiltir fasteignasalar í júlí eru orðnir 52 en til samanburðar var að- eins einn sem fékk löggildingu í júlí- mánuði í fyrra. Það sem af er árinu hafa því 69 fengið löggildingu á rétt- indum til fasteignasölu en allt árið í fyrra voru þeir 38. Þessa miklu fjölg- un má rekja til breytinga á lögum um fasteignasala, en í þeim er komið í veg fyrir að lögmenn geti fengið rétt- indi sem fasteignasalar í grundvelli menntunar sinnar. Nú þurfa lög- menn að setjast á skólabekk til þess að geta öðlast réttindi. Því nýttu margir lögfræðingar tímann áður en breytingin tók gildi til þess að öðlast löggildingu. Í lögunum eru einnig gerð strang- ari skilyrði um aðkomu löggiltra fasteignsala að fasteignamiðlun, en áður fyrr höfðu sölumenn sem ekki höfðu slík réttindi sinnt stórum hluta miðlunarinnar. Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteigna- sala, segir að þetta séu breytingarn- ar sem koma skuli, nú séu löggiltir fasteignasalar að koma inn í stað ófaglærðra sölumanna. Talsvert sé um að ófaglærðir séu að fara út úr greininni eða hyggi að námi nú í haust. Nokkrir sviptir á ári hverju Í Lögbirtingablaðinu má sjá að á ári hverju eru nokkrir fasteignasalar sviptir réttindum sínum, yfirleitt tímabundið. Aðspurður segir Grétar að fyrst og fremst sé ástæðan fyrir því tvíþætt. Annars vegar gerist það ef fasteignasalar skili ekki inn stað- festingu á því að þeir hafi lögboðnar tryggingar að baki sér og hins vegar ef þeir skili ekki inn upplýsingum um vörslufjárreikninga. Þegar því sé komið í lag sé leyfunum úthlutað að nýju. Grétar segir þó að einstaka til- vik komi upp þar sem fasteignasalar hafi brotið það alvarlega gegn neyt- endum að þeir séu sviptir réttindum ótímabundið. Þau mál séu þó sem betur fer sjaldgæf. 52 löggiltir fast- eignasalar í júlí Morgunblaðið/Ómar Hús 52 einstaklingar fengu löggild- ingu sem fasteignasalar í júlí.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.