Morgunblaðið - 04.08.2015, Page 17

Morgunblaðið - 04.08.2015, Page 17
„Ef Íran fer úr jafn- vægi er mun betra að Íranar eigi ekki kjarnavopn en að þeir eigi þau.“ John Kerry Skúli Halldórsson sh@mbl.is Bandalagsþjóðir Bandaríkjanna við Persaflóa hafa lýst yfir stuðningi við kjarnorkusamning landsins við Íran, eftir að bandarísk yfirvöld lofuðu þeim aukinni upplýsingaöflun og hraðari vopnaviðskiptum. Utanríkisráðherra Katar, Khalid al-Attiya, sagði í ræðu í gær að í samningnum fælist besti möguleik- inn á stöðugleika fyrir heimshlutann. Kom ræðan í kjölfar fundahalda með John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem hefur undanfar- ið reynt að afla stuðnings við samn- inginn meðal ríkjanna við flóann. Hafa þau sakað stjórnvöld Írans um að kynda undir óróa í Sýrlandi, Írak og Jemen. Enn fremur óttast þau að samningurinn muni aðeins hvetja Írana til að efla stuðning við hópa sem berjast gegn herliðum súnní-múslíma á svæðinu, en í Íran fara sjía-múslímar með völdin. Samningurinn hefur þurft að sæta mikilli andstöðu vestanhafs á meðal repúblikana, sem margir hafa komið fram og sagt viðræður við Íran vera glapræði. Og það er ekki bara í Washington sem stjórnvöld hafa verið gagnrýnd, þrátt fyrir að þau haldi því fram að samningurinn muni gera heimshlutann öruggari. Ríkisstjórnin í Teheran hefur ein- faldlega frjálsari hendur þegar kem- ur að því að takast á við háværa stjórnarandstöðu. Í gær bannaði hún útgáfu vikublaðs í eigu manns sem ítrekað hefur gagnrýnt samninginn. Þá gaf hún út formlega viðvörun til helsta dagblaðs íhaldsmanna fyrir meint brot á leiðbeiningarreglum um blaðamennsku í landinu. Kerry flaug á sunnudag til Katar frá Egyptalandi, þar sem hann hafði reynt að fullvissa yfirvöld í Kaíró um ágæti samningsins. Sagði Kerry við það tilefni: „Ef Íran fer úr jafnvægi er mun betra að Íranar eigi ekki kjarnavopn en að þeir eigi þau“. Styðja samning við Íran  Stjórnvöld í Teheran banna útgáfu vikublaðs í eigu gagnrýnanda samningsins FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015 TVEIR Á TILBOÐI Aðeins kr. 4.500 Póstsendum hvert á land sem er | Laugavegi 178 | Opið mán-fös 10-18 | S. 551-2070/551-3366 | www.misty.is Áður kr. 14.785 NÚ kr. 7.392 Áður kr. 15.900 NÚ kr. 7.950 Áður kr. 15.900 NÚ kr. 7.950 Áður kr. 15.900 NÚ kr. 7.950 Frábærir dömuskór úr leðri Stærðir 36–41 50% afsláttur MAYA Áður kr. 8.680 NÚ kr. 4.500 JASMINA Áður kr. 8.680 NÚ kr. 4.500 Starfsmenn ferjufyrirtækis í verkfalli hindruðu aðgang að höfninni í borginni Calais í Norður- Frakklandi um helgina, eftir að viðræður við frönsku ríkisstjórnina reyndust árangurslausar. Gríðarlegur fjöldi farandfólks er einnig kominn saman í borginni. Undanfarnar nætur hafa fleiri hundruð úr þeirra röðum reynt að finna sér leið inn í Ermarsundsgöngin í von um að komast til Bretlands, sem er álitið vera fyrirheitna landið. AFP Öngþveiti og óeirðir í Ermarsundsborginni Calais Farandfólk flykkist til Norður-Frakklands í von um að komast til Bretlands Breska lög- reglan hefur hafið formlega rannsókn á því hvers vegna lög- reglan í Wilt- shire rannsakaði ekki ásakanir um barnaníð á hendur Edward Heath, fyrrver- andi forsætisráðherra Bretlands og formanni Íhaldsflokksins. Ásakan- irnar komu fram á tíunda áratug síðustu aldar. Rannsóknin fer fram á vegum sjálfstæðrar stofnunar innan lög- reglunnar, að því er fram kemur í umfjöllun bresku dagblaðanna Guardian og Telegraph. Fleiri rannsóknir standa yfir varðandi kynferðisbrot breskra þingmanna og ráðherra, sem eiga að hafa átt sér stað á síðustu öld. Talið er að brotin hafi beinst gegn þúsundum barna. Heath lést árið 2005, 89 ára að aldri, en hann var forsætisráðherra frá 1970 til 1974. Meint kynferðisbrot forsætisráðherra Edward Heath Myndir af tals- manni Pútíns Rússlands- forseta, þar sem hann skartar for- láta úri, hafa valdið miklum ágreiningi í land- inu sem þjakað er af efnahags- kreppu. Dmitry Peskov sást með úrið um- rædda í brúðkaupi sínu sem fram fór á laugardag. Verðmæti úrsins er talið nema um 83 milljónum ís- lenskra króna, en yfirlýst árslaun Peskovs eru í kringum 19 milljónir króna. Einn helsti stjórnarandstæðingur Rússlands, lögmaðurinn Alexei Navalny, fjallar um málið á vefsíðu sinni þar sem hann bendir á að úrið sé dýrara en íbúðir flestra Rússa. Dýrt úr veldur deil- um í miðri kreppu Úrið umdeilda. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna náðu á sunnudag samkomulagi um ný sjálfbær þróunarmarkmið til ársins 2030. Bindur samkomulagið enda á tveggja vikna lotu lokavið- ræðna. Eftir þær stendur að mark- miðin, sem eru 17 að tölu, munu koma í stað hinna átta þúsaldar- markmiða sem samþykkt voru árið 2000 og áttu að nást fyrir árið 2015. „Þetta eru markmið í þágu fólks- ins og aðgerðaáætlun sem miðar að því að uppræta fátækt í öllum sín- um birtingarmyndum,“ sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna. „Þau eru óaftur- kallanleg, eiga við alls staðar og munu engan skilja eftir.“ Samþykki markmiðanna uppskar standandi lófaklapp og fagnaðar- læti viðstaddra. Susana Malcorra, skrifstofustjóri Ban Ki-moons, sagði samkomulagið vera sögulegt en varaði á sama tíma við því að gríðarmikil vinna væri fram undan. 602 billjónir króna á hverju ári Í nýju markmiðunum er enda stefnt að því að draga úr ójöfn- uðiinnan og á milli ríkja, útrýma hungri og fátækt, stuðla að heil- brigðu líferni fyrir alla og tryggja jafnrétti kynjanna. Auk þess verð- ur ráðist til aukinna aðgerða til að berjast gegn loftslagsbreytingum. Til að markmiðunum verði náð er reiknað með að eyða þurfi ár- lega í málstaðinn allt að 4,5 billj- ónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 602 billjónum íslenskra króna, að sögn fréttastofu Reuters. Til samanburðar má nefna að fjár- lög Bandaríkjanna fyrir næsta ár nema rúmlega 500 billjónum ís- lenskra króna. Leiðtogar heimsins munu koma saman í septemberlok í New York til að samþykkja markmiðin sautján formlega. Vilja útrýma fátækt fyrir 2030  Sautján ný markmið koma í stað átta þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna Bandaríska sambandssvæðinu Pú- ertó Ríkó tókst í gær ekki að greiða 58 milljóna dala afborgun af skuldabréfi. „Þetta er fyrsta tilvikið af því sem við teljum að verði mikið greiðslufall skulda Púertó Ríkó,“ sagði Emily Raimes, aðstoðar- framkvæmdastjóri matsfyrir- tækisins Moody’s, Um 3,5 milljónir manna búa á þessari eyju í Karíbahafi og hafa þurft að horfa upp á versnandi efnahag undanfarin sjö ár, en opin- berar skuldir nema um 72 millj- örðum dala. Landstjóri eyjunnar, Alejandro Garcia Padilla, sagði í júní að yfirvöld myndu reyna að endurskipuleggja opinberar skuld- ir ásamt lánardrottnum. Greiðslufall blasir við Púertó Ríkó

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.