Morgunblaðið - 04.08.2015, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.08.2015, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015 SMÁRALIND • 2 HÆÐ Verð 26.995 Verð 19.995 LYTDS® VANDAÐIR ÍTALSKIR GÖNGU- OG ÚTIVISTARSKÓR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Útrásar var ýtt úr vör arðs með vilja ríkan en enga gerði frægðarför fjórmenningaklíkan. Lentu bak við lás og slá landsins stærstu bossar þó að sumum sætu á stórriddarakrossar. Formaður orðunefndar lofaði því strax í mars sl. að á næsta fundi yrði skorið úr um hæfi þeirra einstak- linga til áframhaldandi orðuburðar sem hlotið höfðu þungan refsidóm. Síðan hefur bæst árs fangelsis- dómur á herðar viðkomandi og enn er ekkert lífsmark með orðunefnd. Um leið og ég hvet GÁ til skjótra og skýrra svara um hvað valdi þessu seinlæti minni ég hann á vísuna gömlu og góðu: Orður og krossar ónýt þing eins og dæmin sanna þjóna oft sem uppfylling í eyður verðleikanna. Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Fyrirspurn til Guðna Ágústssonar fm. orðunefndar Fálkaorðan Orðan var stofnuð af Kristjáni X. þann 3. júlí 1921. Fornleifafræðin er merkileg fyrir margra hluta sakir, og eins og svo marg- ar fræðigreinar hefur hún þróast nokkuð langt frá uppruna sínum. Á nítjándu öld þyrptust fræðimenn til Austurlanda og hófu leit að minjum sem staðfesta áttu orð Biblíunnar um hermenn og hetjur fornaldar. Aldrei náðist það markmið, þannig að fræðin misstu hluta tengsla sinna við almennan áhuga. Það var því opin leið fyrir áróðursmeistara þriðja ríkisins, þegar kenningar þeirra um hinna arísku ofurþjóð hleypti nýju blóði inn í fornleifafræðina. Útsendarar nasista hófu rannsóknir í Himalaja og á Indlandi, í leit sinni að upp- runa kennisetninga sinna, og al- menningur um allan heim fylgdist með í ofvæni, því sífellt birtust nýjar „uppgötvanir“ um tilvist hins hreina kynþáttar. Styrjöldin batt síðan enda á þennan leikþátt fáránleikans, en einhverra hluta vegna eru kenningarnar enn furðu lífseigar. Í lok síðustu aldar fundust ein- hverjar elstu byggingaleifar heimsins, í suðurhluta Tyrklands (Göbekli Tebe). Fjórtán þúsund ára gamlar rústir í landi þar sem ræktun hveitis hófst í heiminum og lagði grunninn að því sem við köllum borgarsamfélag. Þarna þróaðist samfélag, sem gat brauð- fætt fleira fólk en áður þekktist, og fólksfjölgunin var meiri þarna en annars staðar. Líkur má að því færa, að þegar jarðvegurinn á svæðinu gaf eftir í þeim efnum sem til hveitiræktar þarf, hafi fólkið flutt burt. Allt hveiti í heim- inum á uppruna sinn að rekja til Litlu-Asíu. Hveitirækt breiddist út um heiminn, og miklar líkur benda til þess, að hið indóevrópska mál hafi breiðst út með henni. Áður var talið, að mál þetta hafi til orðið á sléttunum norður af Svartahafi, og jafnvel átt upphaf sitt á Indlandi. Þegar hins vegar er leitað að orð- um í tungumálum, sem eiga sam- eiginlegan uppruna í hinu indóevr- ópska máli, þá kemur í ljós, að til eru ótal orð um fjöll og dali, sem eiga sameig- inlegan uppruna, en hins vegar að sama skapi fá um víðáttur og sléttur, sem auðvit- að segir margt til um upprunann. Ótrúlegar margar þjóðir eiga sér fornar sagnir um uppruna sinn í fjalladölum Litlu-Asíu, og þær eiga sér sameiginlegan málstofn. Þar vill þó sem svo víða verður, að fræg staðarheiti og mannanöfn blandast seinna inn í sagnirnar. Þannig röktu Rómverjar ættir sín- ar til Eneasar frá Tróju, en það gerðu Englendingar og Írar einn- ig. Þjóðverjar, Danir og Svíar geymdu sagnir um þjóð þessa, sem flutti með sér gróanda og betra líf. Gyðingar rekja uppruna sinn til þessara fjallahéraða, og það gerir Snorri Sturluson í bókum sínum. Í áratugi hafa áhugamenn íslenskir tínt til orð og athafnir, sem líkt er með gyðingum og Íslendingum, án þess að geta þess, að báðar þjóð- irnar eru indóevrópskar. Til dæm- is nefna þeir kveðjuna „sæll“ sem hljómar eins og shalom, og einnig má nefna þann sið beggja þjóð- anna, að kasta steinum á leiði lát- inna, sem ekki hvíla í kristinni vígðri mold. Þarna segir upprun- inn til sín. Þessi fáu orð skrifa ég vegna þess, að hér á landi er enginn vettvangur til umræðu um land og þjóð, sögu þess, uppruna, þróun og menningu, einnig til þess, að kanna áhuga á því að skapa um- ræðuvettvang með haustinu, til dæmis í formi umræðuhóps. Íslendingar, uppruni og erfðir Eftir Kristján Hall Kristján Hall » Að þeir sem áhuga hafa, gætu safnast saman og rætt þessi áhugamál sín í litlum eða stórum hóp Höfundur er áhugamaður um sögu lands og þjóðar, vega@vortex.is Rík ástæða er til að senda Öldungaráði Reykjavíkur velfarn- aðar- og hamingju- óskir, með von um að störf þess öll megi skapa, styrkja og styðja heillavænt um- hverfi fyrir eldri borg- ara í höfuðborginni. Aldraðir vona auðvitað að borgarfulltrúar nýti ráðið til ráðgjafar í sínu þýðing- armikla starfi. En áður en við miss- um tár af gleði við meðlæti borg- arinnar verðum við að huga að mótlæti og harmi fortíðar. Því þegar við skyggnumst bak við tjöldin þá sjáum við að sjálfsprotin félög eru fyrst og fremst gerendur velferðar- mála aldraðra og öryrkja. Við sáum þetta staðfest með ótrúlegu og end- urteknu sjálfboðastarfi og fjármögn- un Oddfellow-hreyfingarinnar við stækkun líknardeildar í Kópavogi. Við, sem nú erum í þeim sporum að vera þolendur og notendur þjónustu vegna öldrunar og örorku, hljótum að segja við Oddfellowa og aðra þá sem brautirnar ryðja og eiga að ryðja, takk fyrir gagnleg verk. Við erum hreykin af ykkur. Já, Íslendingar all- ir mega vera hreyknir af ykkur. Sú leið sem Svíar hafa farið í vel- ferðarvakt sinni er mjög athyglisverð og sýnir að gagnkvæm virðing þarf að ríkja milli aðila í velferðarumræðu öldrunarmála. Það er meginnið- urstaða rannsókna Davids Feltenius. Þar kemur fram að áhrifamáttur aldraðra hafi aukist svo um munar við nýskipan velferðarmála aldraðra í Svíþjóð. En rannsóknin sýnir að góður ár- angur í velferðarmálum eldri borgara í Svíþjóð er tilkominn vegna aukins pólitísks samræðustyrks þeirra tveggja eftirlaunafélaga sem starfa að þeim málum þar í landi og stjórn- valda. Það er einkum tvennt sem skapar jákvæðni sænskra stjórn- valda, þar er fyrst að nefna störf öld- ungaráðs sérfræðinga í félagsmála- ráðuneytinu og akademískra sérfræðinga í nefndum félaganna tveggja og að sænskir stjórnmálaflokkar eru í viðbragðsstöðu vegna fjölgunar aldraðra. Aldraðir eru orðnir „magtfaktorar“ í sænskri pólitík og þar með fengið bros og aukna hlutdeild í tann- lækna- og augnlækna- kostnaði. Og húsnæðis- styrkir hafa verið auknir og fleira gott í poka. Sem sagt, stjórn- málamenn nenna að ræða við aldraða, ef aldraðir nýta sér þeirra „tungumál“ og sýna jafnframt sinn pólitíska umræðustyrk. Ljóst er öllum þeim sem huga að velferðar- vernd aldraðra í íslensku umhverfi væri mikill hvati ef samtök vinnandi fólks í landinu væru bakhjarl félaga- samtaka aldraðra, og ekki síst að líf- eyrissjóðirnir væru það líka. Hins- vegar er í raun svo, að samtök vinnandi fólks hafa ekki haft vilja til að styðja hina öldruðu á neinn hátt, aldraða sem voru þó brautryðjendur og stofnendur samtaka vinnandi fólks í landinu og lífeyrissjóðanna. Aldraðir verða flestir máldofa þegar þeir upplifa þessa staðreynd. Flestir þeirra (Rafiðnaðarsambandið er und- antekningin) eru frekar sviptir eign- arrétti, t.d. í orlofshúsum sem við aldraðir vorum brautryðjendur að að byggja og borga fyrir með auka- framlagi og orlofssjóði okkar og líka því sem alvöruþenkjandi stofnendum hefur væntanlega þótt mikilvægast, að fá bakstuðning við vinnulok, t.d. við að standa vörð um sömu þróun í framfærslugetu sem félagsmenn vinnandi stétta berjast fyrir og fá á hverjum tíma. Það má með sanni segja að alþýðu- sambönd landsmanna og lífeyr- issjóðir hafi vísað á dyr öllum vænt- ingu hinna vinnandi stétta eftir vinnulok og gera enn. Stjórn Sam- taka aldraðra sendi því ályktun til Landsambands eldri borgara haustið 2009 að fengnum upplýsingum frá Svíum. Engin svör eða viðbrögð hafa borist. Það er sárt og verulega ámæl- isvert að sá aðili sem stjórnvöld leita til um umsagnir um stjórnvalds- aðgerðir sem bitna á gamlingjunum, skjólstæðingum LEB, megi ekki vera að því að íhuga heima fyrir vinnulag Svía í samræðu við stjórn- völd og ábendingum um hvernig sé staðið að öflugri og jákvæðri velferð- arvakt eldri borgara í Svíþjóð. Menn verða að hætta að þykjast, en krefja sjálfa sig og aðra að hafa í frammi vinnubrögð nútímasamskipta. Öldr- unarmál eru pólitísk mál að sjálf- sögðu og halda áfram að vera til eilífðarnóns. Kjaftstoppssvör ráðandi afla eru oftast þau að nýir vendir sópi ekki vel og menn skilji ekki að meira en einn sannleikur er til í pólitík. Það er ekki bara svart og hvítt, heldur líka ekki neitt. Tvenndarkenningin fær þar ekki staðist. Sennilega má vera að sannleikur virðulegu sjálfstæðisfrúarinnar frá Eskifirði hafi verið „góður“ sann- leikur. En hún var ásamt mér og Sig- urði Blöndal skógræktarmanni í við- talsþætti í ríkisútvarpinu frá Egils- stöðum fyrir margt löngu, þar sem ein spurning stjórnanda var „hvað væri hægt að gera fyrir gamla fólkið til bóta á ævikvöldi?“ Svöruðum við Sigurður báðir að „ungmennafélags- hætti“ og sögðum að skrefin til að bæta væru einföld en ekki nægilega mörg, af þó nokkrum sannfæring- arkrafti, en frúin sagði og sleit þar með frekari umræðu um málið: „Við skulum láta gamla fólkið í friði.“ Skiljanlegt svar nú, því reyndu fólki er ljóst að langar þrætubækur valda aðeins brestum í sálarkytru okkar nytsamra sakleysingja og enda oftast í mjög alvarlegu þunglyndi. Aldraðir verða að eignast vildarvini Eftir Erling Garðar Jónasson » Það má með sanni segja að Alþýðu- sambönd landsmanna og lífeyrissjóðir hafi vís- að á dyr öllum vænt- ingum hinna vinnandi stétta eftir vinnulok og gera enn. Erling Garðar Jónasson Höfundur er fv. formaður Samtaka aldraðra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.