Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 21

Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015 ✝ JósafatTryggvi Jós- afatsson fæddist á Ytri-Völlum í Kirkjuhvamms- hreppi 28. nóv- ember 1930. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Hvamms- tanga að kvöldi 26. júlí. Foreldrar hans voru hjónin Guð- rún Elísabet Ebenesersdóttir, f. á Stöpum, Vatnsnesi, 25. maí 1890, d. 13. nóvember 1955 og Jósafat Hansson, f. á Litla-Ósi, Kirkjuhvamms- hreppi, 10. desember 1870, d. 8. september 1930. Jósafat var yngstur 8 systk- ina, en þau voru Ingibjörg Ebba, f. 1919, d. 2008, Frið- björn, f. 1921, d. 1999, Sesilía, f. 1923, d. 1984, Grímur, f. 1924, d. 2015, Hannes, f. 1925, d. 2006, Náttfríður, f. 1927, d. 2015 og Ragnhildur Guðrún, f. 1928, d. 1942. Jósafat var á Deildarhóli í Víðidal fyrsta hálfa aldursárið en þá flutti hann ásamt móður sinni og þremur systrum, þeim Ebbu, Sesilíu og Ragnhildi Önnu I. Hjaltalín. Börn þeirra eru Davíð, Ragnar og Guðný Elísabet. Dóttir Stefáns er Guðrún Arna, unnusti hennar er Bjarni R. Guðmundsson. Sonur Önnu er Magnús Ein- arsson. Börn hans eru Sóley Sara og Hlynur Freyr. 3) Sig- ríður sjúkraliði, f. 1. júní 1960. Börn hennar eru: a) Sigrún Birna, gift Benedikt Guðna Benediktssyni. Börn þeirra eru Rakel Jana Arnfjörð, Arn- heiður Diljá, Ástvaldur Máni og Emelía Íris. b) Sverrir, unnusta hans er Júdit Krista Jakobsdóttir. 4) Halldór Lín- dal bóndi, f. 12. mars 1968, sambýliskona hans er Kat- arina Borg. Börn þeirra eru Freyja Ebba og Tryggvi Nils. Árið 1955 hófu Jósafat og Ragnhildur saman búskap á Vatnshóli í Kirkjuhvamms- hreppi og voru þau ávallt sam- heldin í búskapnum og fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegt býli á sínum tíma. Með bú- skapnum var Jósafat öll haust í slátursvinnu á Hvamms- tanga. Eftir um 40 ár við bú- skap tók Halldór sonur þeirra við búinu og fluttu þau í húsið sitt Sjávarborg á Hvamms- tanga. Jósafat starfaði í nokk- ur ár eftir búskap hjá SKVH á Hvammstanga og vann ýmis fleiri störf. Jósafat verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju í dag, 4. ágúst 2015 kl. 14. Guðrúnu, að Vatnshóli í Kirkju- hvammshreppi þar sem hann ólst upp. Móðir hans gerðist ráðskona hjá Hall- dóri L. Magnús- syni bónda, f. 1890, d. 1967, sem bjó þar ásamt systur sinni Jón- ínu Magnúsdóttur, f. 1884, d. 1966. Jósafat giftist Ragnhildi Stefánsdóttur 19. febrúar 1956. Hún var f. á Brunngili í Bitrufirði 18. apríl 1931, d. 6. desember 2007. Foreldrar hennar voru Guðný Gísladóttir og Stefán Ó. Davíðsson. Jósafat og Ragnhildur eign- uðust fjögur börn, þau eru: 1) Guðrún, f. 20. júlí 1956, gift Magnúsi Benediktssyni. Börn þeirra eru: a) Benedikt Stein- ar, kvæntur Hrafnhildi Körlu Jónsdóttur, börn þeirra eru Magnús Indriði, Jón Illugi og Sigrún Melkorka. b) Helga Dóra, sambýlismaður hennar er Mikael Símonarson, sonur þeirra er Magnús Már. 2) Stef- án Gunnar húsasmíðameistari, f. 2. febrúar 1959, kvæntur Hátíð var í þorpinu. Appelsínugula sigraði, hverfið þitt. Eldurinn slökknaður. Sunnudagskvöld. Þú kvaddir. Sjúkrahúsdvölin varði í tæp- lega ár. Síðustu daga var ljóst að hverju stefndi. Góðar minn- ingar streyma fram úr sveitinni sem var þér svo kær. Þið mamma samheldin í búskapn- um. Torfbæir viku fyrir bygg- ingu nýrra húsa, allt var byggt upp og málað. Dugnaðurinn og snyrtimennska í hvívetna. Besta afmælisgjöfin handa mér, heimasmíðuð róla með bleikum handföngum. Þá var rólað áhyggjulaust. Sunnudagsbíltúrar á Willys- jeppanum, seinna Land-Rover- inn. Veiðiferðir í Reyðarlækinn og berjaferðir í Núpinn. Lífið var gott í sveitinni, fyrst við leik síðan störf. Þegar þið mamma fluttuð úr sveitinni tók Halldór bróðir við búinu. Sami dugnaðurinn heldur áfram á Vatnshóli. Þið voruð afskaplega ánægð með það. Fluttuð til Hvammstanga í húsið ykkar Sjávarborg. Ég og börnin mín og barnabörnin eigum góðar minningar þaðan. Faðmur þinn var stór, þegar ég þurfti þess með. Þú varst börnunum mín- um einstaklega góður afi. Fyrir það er ég þakklát, þau meta þig mikils. Í veikindum mömmu varstu kletturinn hennar allan tímann. Við fráfall hennar breyttist margt, djúpstæð sorg sem þú áttir erfitt með að yf- irstíga. Samt hélstu þínu striki, að halda öllu í röð og reglu. Daglegar gönguferðir meðan heilsan leyfði, lestur bóka og hlustaðir á tónlist. Þá leið þér betur. Heimsóknarvinir þínir fá mínar bestu þakkir. Takk fyrir svo margt, pabbi minn. Hvíl í friði. Þín dóttir, Sigríður Jósafatsdóttir. Margs er að minnast, margt er að þakka. Í dag 4. ágúst kveð ég elsku afa minn, sem nú hefur fengið hvíldina. Afi var mér ákaflega kær, við þurftum ekki alltaf að segja svo margt, við skildum hvort annað. Á jól- unum árið 1978 var flutt inn í nýja húsið í Vatnshól, sem afi og amma byggðu. Eftir áramót- in fæðist ég og við mamma bjuggum hjá afa, ömmu og Dóra frænda fyrst um sinn. All- ar minningar mínar úr sveitinni eru góðar og fallegar. Afi leyfði mér að hjálpa til við hin ýmsu verk úti, t.d. að mála og smíða, þó eflaust hafi ég oft gert meira ógagn en gagn. Hann sagði að ég væri lagin. Það var auðvitað toppurinn þegar ég fékk að keyra bláa Land Ro- verinn hans. Einnig skemmtum við krakkarnir okkur konung- lega þegar heyjað var í bagga. Afi var hlýr og góður maður, við Sverrir bróðir erum heppin að hafa átt svona yndislega ömmu og afa. Hjónaband afa og ömmu var kærleiksríkt og þau voru mjög samheldin. Þau áttu og ráku saman myndarleg sauðfjár- og kúabú, einnig voru þau með hesta og hænur. Búið þeirra var alltaf mjög snyrti- legt og öllu vel viðhaldið jafnt utanhúss sem innan. Halldór og Kata sinna nú búinu jafn vel og eiga þau hrós skilið. Afi leiddi mig upp að altarinu á brúð- kaupsdaginn, mér þótti vænt um það. Síðustu ár voru nokkuð erfið hjá afa, mér fannst hann aldrei ná sér eftir að amma dó. Mamma hugsaði mikið um for- eldra sína, síðustu árin hennar ömmu og ekki síst afa eftir að amma lést. Takk, mamma mín. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þennan einstaka mann að í mínu lífi, nú eru afi og amma sameinuð á ný. Hvíldu í friði, elsku afi. Þín Sigrún. Takk fyrir allar góðu stund- irnar í gegnum tíðina elsku besti afi, ég á svo dýrmætar minningar úr sveitinni frá þér og ömmu og það var svo ynd- islegt að koma til ykkar, hvort sem var í sveitina eða út á Hvammstanga þegar þið voruð flutt þangað og móttökurnar voru alltaf hlýjar og góðar. Þú varst duglegur að leika við okk- ur börnin og passaðir vel upp á að við færum okkur ekki að voða. Það voru ófá skiptin sem ég fékk að fara á hestbak þegar ég kom í heimsókn og þú leidd- ir mig upp á hóla og hæðir og mun ég aldrei gleyma þeim stundum, sem og þeim stundum sem ég átti í sveitinni þegar ég trítlaði með þér í útihúsin og út um alla sveitina og þú passaðir svo vel upp á mig. Þú hafðir gaman af börnum og er ég glöð að hann Magnús Már minn hafi fengið að hitta þig nokkrum sinnum, þó allt of sjaldan, en þú fylgdist vel með honum og hafðir gaman af honum um daginn þegar við komum í heimsókn þar sem hann skreið og prílaði upp á allt í herberg- inu þínu og þú sagðir að hann væri seigur, eins og þú sagðir stundum við mig. Ég mun segja honum sögur úr sveitinni og minni upplifun þar og af þér og ömmu, hvað þið voruð yndisleg og góð. Þú varst góður maður, dug- legur, hógvær og trygglyndur og er ég þakklát fyrir að hafa átt þig að. Þegar amma dó fyrir tæpum átta árum fór stór hluti af þér með henni og tók það mikið á, þið voruð alltaf sem eitt og ykkar hjónaband var til fyrirmyndar í alla staði sem samanstóð af virðingu, ást og umhyggju. Takk enn og aftur fyrir allt, hvíldu í friði elsku afi. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Þín, Helga Dóra. Jósafat Tryggvi Jósafatsson fæddist á Ytri-Völlum, V-Hún., þann 28. nóvember 1930, yngst- ur af 8 systkinum sem öll eru látin og er hann sá þriðji af þeim sem deyr á þessu ári. Hann ólst upp í Vatnshóli ásamt tveim öðrum systkinum, þar sem móðir hans (amma mín) réð sig sem ráðskonu eftir að hún missti eiginmann sinn þegar Jósafat var ófæddur. Í Vatnshól átti Jósafat skjól hjá Halldóri Magnússyni og Jónínu systur hans fyrstu 2 áratugina, en síðar var Halldór í skjóli Jósafats til dauðadags. Halldór var skapmaður og bölvaði ógurlega og lamdi með stafnum sínum í torfveggi og girðingar en lamdi aldrei skepnur eða fólk. Vatnshóll var torfbær, mér er í fersku minni hvernig sá bær var, til hægri var skemma og svo voru göng inn og í göng- unum til vinstri var hlóðaeld- hús og hægt að fara þaðan út í fjós, þegar gengið var lengra inn í göngin var skellihurð áður en komið var inn í eldhús, þar til vinstri var skilvinda og vatnsfötur, mér fannst svo spennandi að fara í brunnhúsið með Jósafat til að ná í vatn. Jósafat var giftur Ragnhildi Stefánsdóttur, d. 2007. Þau voru samhent hjón, hún ráða- góð og bæði afskaplega dugleg, ég veit að þau ræktuðu allt upp, byggðu yfir allar vélar og skepnur og 2 sinnum íbúðarhús yfir sitt fólk, þá meina ég að í heimilinu voru líka 2 gamal- menni, Halldór og Herdís, móð- ursystir Jósafats, sem hafði verið ráðskona á Gauksmýri. Það var borin virðing fyrir þeim gamalmennum, ef gestir komu sem tilheyrðu Halldóri var dekkað borð inni hjá hon- um, ef við og aðrir gestir kom- um til Jósafats í sunnudags- bíltúr var kaffihlaðborðið í eldhúsinu. Jósafat var miðdepill systk- ina sinna, öll þekktu þau Jós- afat en samt mismikið hvert annað. Ragnhildur og Jósafat brugðu búi, svo sonurinn sem vildi búa tæki við, en þau flutt- ust til Hvammstanga og enn var byggt, bílskúr og betrum- bætt hús. Jósafat var góður litli bróðir mömmu minnar og fylgdist vel með henni eftir að hún varð ekkja, þegar hríðar- og óveður geisuðu kom hann ávallt til að athuga með hana, moka frá dyrum og hvort hana vantaði eitthvað úr búð. Ég er honum þakklát fyrir umönnunina og samferðina og votta börnum hans og öðrum aðstandendum samúð mína, því miður kemst ég ekki að útför- inni sem ég hefði viljað svo gjarna. Ragnhildur Valgeirsdóttir. Þeir voru ekki sérlega marg- málir menn, pabbi og Jósafat bróðir hans. Frá því ég var barn skynjaði ég þrátt fyrir orðfæðina hlýjuna þeirra á milli í þeim stuttu en reglulegu sím- tölum sem þeir áttu sín á milli nánast alla tíð, allt þar til undir það allra síðasta. Það var ekki margt sagt, en í því ósagða lá þeim mun meira meint. Að- skilnaður bræðranna á barns- aldri og landfræðilega fjar- lægðin á fullorðinsárum breytti engu um nándina þeirra á milli. Það var ekki mulið undir þá bræður og systkini þeirra. Þeir urðu að tileinka sér þrautseigj- una og dugnaðinn sjálfir, og gerðu það. Mildina held ég hins vegar að þeir hafi báðir fengið í vöggugjöf. Jósafat byggði upp sitt bú og sína jörð að Vatnshól af útsjónarsemi og krafti. Ég fékk að vera í sveit hjá þeim Jósafat, Ragnhildi og börnum oftar en einu sinni og þær ferð- ir eru mér dýrmætar í dag. Þar leið mér vel, eins og heima hjá mér. Enn þann daginn í dag finnst mér ég finna til skyld- leikans við heimahaga pabba og systkina hans í hvert sinn sem ég á leið norður yfir heiðar. Þar er eins og heima hjá mér. Atvikin haga því þannig að ég á því miður ekki heiman- gengt að fylgja Jósafat frænda síðustu dagleiðina. Með þessum fáu orðum vil ég fá að þakka kynnin af góðum og gegnheil- um manni. Minningin lifir. Börnum hans og fjölskyldum þeirra votta ég innilega samúð. Hlynur Níels Grímsson. Jósafat Tryggvi Jósafatsson HINSTA KVEÐJA Verkin mín, Drottinn, þóknist þér, þau láttu allvel takast mér, ávaxtasöm sé iðjan mín, yfir mér vaki blessun þín. (Hallgrímur Pétursson) Þín langafabörn, Jana, Diljá, Máni og Íris. ✝ GuðmundurGunnarsson fæddist í Kon- ráðsbæ í Stykkis- hólmi 17. júní 1926. Hann and- aðist á Dval- arheimilinu í Stykkishólmi 28. júlí 2015. Foreldrar hans voru Kristensa Valdís Jónsdóttir, f. 19.6. 1899, d. 14.8. 1981, og Gunnar Backmann Guðmunds- son, f. 6.10. 1898, d. 28.10. 1986. Systkini Guðmundar voru: Inga Jónsdóttir, f. 12.9. 1922, d. 24.5. 1974 (ólst upp í Eyr- arsveit), Þórunn, f. 13.8. 1924, d. 29.10. 2007, Halldóra Mál- fríður, f. 9.9. 1927, Jórunn, f. 4.4. 1930, d. 4.8. 2002, Bjarghildur, f. 16.2. 1932, d. 28.8. 2011, Guðrún, f. 3.5. 1933, Rann- veig Hansína, f. 22.8. 1934, d. 28.5. 1992, Ingibjörg, f. 14.2. 1936, Konráð, f. 8.3. 1937, d. 25.8. 2000, Hrefna, f. 29.7. 1938, Lovísa, f. 22.8. 1939, Jónas, f. 17.11. 1940, og tvíburadreng- ir, f. 4.3. 1943, sem létust eins og fimm mánaða. Guðmundur og Jóhanna Þór- unn Gunnarsdóttir, f. 8.3. 1924, d. 2.12. 1972, frá Efrihlíð stofn- uðu heimili 1950 og bjuggu þau á Narfeyri (Aðalgötu 3) og frá 1962 á Víkurgötu 6, þar sem Guðmundur bjó til æviloka. Guðmundur og Jóhanna eignuðust tvö börn, þau eru: Matthildur Soffía, gift Ragnari Elbergssyni, börn þeirra eru: Ásbergur, f. 2.11. 1967, d. 17.6. 1971, Guðmunda Þórunn, f. 18.4. 1970, gift Hinriki Hjart- arsyni, þau eiga fjögur börn og eitt tengdabarn, Ragnar Börk- ur, f. 11.7. 1972, kvæntur Örnu Hildi Pétursdóttur, þau eiga þrjú börn. Grettir Börkur, f. 26.8. 1953, börn hans eru: Magnús Þór, f. 24.1. 1973, d. 31.1. 1979, Íris Hrund, f. 22.6. 1978. hún á tvö börn, Gunnur Rós, f. 21.12. 1980, Heiðrún Sandra, f. 7.5. 1990, sambýlis- maður Garðar Freyr Vilhjálms- son. 1979 hóf hann sambúð með Önnu Kristinsdóttur, f. 6.11. 1931, d. 9.10. 1996, hún átti þrjú börn og sonurinn Eggert Ólafur ólst upp á Víkurgötunni hjá þeim. Vinkona Guðmundar síðustu árin er Svana Þórðar- dóttir. Guðmundur ólst upp í Fögru- hlíð frá 1929 og fór hann ungur að hjálpa til í lífsbaráttunni, byrjaði 10 ára að vinna á fisk- reitnum og keypti síðan 15 ára húsið sem fjölskyldan bjó í. Hann vann fyrst við ýmsa fisk- vinnu til lands og sjávar. Þá tók hann bílpróf 1944 og varð síðar hluthafi í Bifreiðastöð Stykkis- hólms, keyrði rútur og flutningabíla á milli Stykkis- hólms og Reykjavíkur og víða til ársins 1970. Hann var einnig í langferðum á rútunum í mörg sumur. Þá vann hann í tvö ár við pípulagnir hjá Sigurði Sig- geirssyni. Og síðustu 29 árin af starfsævinni var hann hjá Skel- vinnslu Sigurðar Ágústssonar og hætti þar vinnu 75 ára gam- all. Þá tók við að hugsa um hús- ið, garðinn, bílinn og hitta kall- ana í viktarskúrnum, Bensó og bílaverkstæðinu. Útför Guðmundar fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag, 4. ágúst 2015, og hefst athöfnin kl. 14. Fallinn er frá Guðmundur Gunnarsson kenndur við Fögru- hlíð í Stykkishólmi. Hann starf- aði sem bílstjóri í 50 ár eða meira, einn af eigendum Bif- reiðastöðvar Stykkishólms. Sem ungur drengur í sveitinni heyrði ég talað um þessa menn sem keyrðu áætlunarbílana hér vest- ur á Snæfellsnes sem nokkurs- konar ofurmenni. Guðmundur var einn þeirra allra hraustustu. Guðmundi kynnist ég svo um 1960 þegar ég hóf störf sem veghefilsstjóri. Hann var alltaf hress og kátur, kvartaði aldrei þótt ófærð væri og vegurinn slæmur. Oft var vinnudagurinn langur á veturna. Þá var ekki mokað á hverjum degi, var það bara skóflan sem notuð var og handmokað. Ferðir milli Reykjavíkur og Stykkishólms gátu tekið allt frá 5 klst. upp í 10 klst. eða meira og stundum varð allt ófært. Var þá farið á næsta bæ og beiðst gistingar. Mjög oft var gist á Vegamótum. Þegar Kerlingarskarðið var ófært, var hringt í ungu menn- ina í Miklaholtshreppi og þeir fengnir til að handmoka fjallið. Svo komu menn frá Stykkis- hólmi til að moka upp sveitina að norðanverðu. Nokkuð góð samvinna það. Guðmundur var lengst af mjög heilsuhraustur, bjó einn í sínu húsi síðustu árin, eldaði sjálfur og undi því vel. Fyrir nokkrum árum fékk hann hjartaáfall og „kíkti aðeins yfir“ eins og hann sagði, en þeir voru ekki tilbúnir að taka við mér þá, sagði hann. Það var mjög gam- an og gefandi að heimsækja Guðmund, við spjölluðum og rifjaði hann upp ýmsar ferðir sem hann fór um landið og lenti þá í ýmsum ævintýrum, t.d. að fram undir 1955 þurfti að sæta sjávarföllum til þess að komast í Grundarfjörð, í Hraunsfirði, Kolgrafarfirði og Grundarbotni. Það þýðir ekki að segja unga fólkinu þetta í dag, það heldur nú bara að maður sé að ljúga, sagði hann. Þegar Guðmundur var á sjúkrahúsinu í vetur heimsótti ég hann sem oftar. Þá sagði hann: Heyrðu, hann Haukur heimsótti mig í gær, hann var á rútu frá Guðmundi Jónassyni. Er Haukur að keyra ennþá, spyr ég. Já, já, hann hélt það nú, hann væri ekki nema 78 ára. Ég spurði Guðmund hvort honum hafi ekki oft verið kalt í vetrarferðum þegar þurfti að handmoka sig í gegnum skafl- ana. Aldrei kalt, sagði hann, alltaf í prjónuðum nærfötum frá Ingibjörgu á Miðhrauni. Hann var mikill Bens-aðdáandi og átti slíkan bíl síðustu árin. Þegar hann kom með hann vestur kom hann til mín á Dekk og Smur og fékk mig til að prófa Bensann. Við keyrðum upp í sveit. Svo segir hann allt í einu: Hvað er þetta drengur, á bara að keyra á veghefilshraða, gefðu honum duglega inn, maður. Ég heim- sótti hann tæpri viku áður en hann dó, var hann þá mjög hress og leið vel. Hann var mjög ánægður á dvalarheim- ilinu, hældi starfsfólkinu. Ég held ég geti farið að koma í kaffi á Dekk og Smur fljótlega, sagði hann. Kæri vinur, ég kveð þig með virðingu og þakklæti fyrir þína vináttu. Aðstandendum votta ég sam- úð mína. Sigurþór Hjörleifsson. Guðmundur Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.