Morgunblaðið - 04.08.2015, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
✝ Herdís Krist-jana Hervins-
dóttir fæddist í
Ólafsvík 26. mars
1928. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands 22.
júlí 2015.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Hervin Pétursson,
f. 21 ágúst 1904,
d. 30. september
1969, og Sigríður Þórð-
ardóttir, f. 30. október 1900,
d. 9. desember 1984. Herdís
var einkadóttir þeirra hjóna.
Eftirlifandi eiginmaður
Herdísar er Vigfús Kr. Vigfús-
son húsamíðameistari, f. 14.
desember 1924. Foreldrar
hans voru Vigfús Jónsson og
Kristín Jensdóttir. Börn Her-
dísar og Vigfúsar eru: 1)
Hervin Sigurður, f. 19. febr-
Kristinn og Jóhann Michael. 5)
Gunnhildur Linda, f. 14. jan-
úar 1954, maki Heiðar E.
Friðriksson, f. 20. ágúst 1954.
Börn þeirra eru Herbert Elv-
an og Herdís Kristjana. 6)
Hlynur, f. 7. desember 1963,
maki Guðný Hrafnsdóttir. Þau
slitu samvistum. Sonur þeirra
er Hrafn. Eiginkona Hlyns er
Olga Eremína, f. 29. mars
1975. Barn þeirra er Emilý
Dís. Fóstursonur Hlyns, sonur
Olgu, er Ilya. Langömmubörn-
in eru 29 talsins.
Herdís ólst upp í Ólafsvík.
Eftir hefðbundna skólagöngu í
Ólafsvík fór hún í Héraðsskól-
ann á Laugarvatni. Dísa í Vík,
eins og hún var oftast kölluð,
stofnaði verslunina Vík í
Ólafsvík ásamt Vigfúsi eig-
inmanni sínum og ráku þau
hana í yfir 30 ár. Vigfús
byggði þeim hjónum mynd-
arlegt heimili að Bæjartúni 9 í
Ólafsvík og bjó Herdís þar allt
til æviloka.
Útför Herdísar verður gerð
frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 4.
ágúst 2015, og hefst athöfnin
kl. 14.
úar 1947, d. 8.
október 2013,
maki Margrét
Skarphéðinsdóttir.
Þau slitu sam-
vistum. Börn
þeirra eru Sig-
urður Skarphéð-
inn, Herdís Krist-
jana og Ólafur
Freyr sem er lát-
inn. 2) Kristín, f.
26. febrúar 1949,
maki Björn Erlingur Jónasson,
f. 6. janúar 1950. Börn þeirra
eru Vigfús Kristinn, Lára
Jóna og Gyða Hlín. 3) Vigfús,
f. 2. júní 1950, d. 17. júlí 2013,
maki Guðrún Jóhannesdóttir,
f. 20. maí 1952. Börn þeirra
eru Fanney og Vigfús. 4) Óð-
inn Pétur, f. 29. maí 1953,
maki Sonja Riedmann, f. 20.
desember 1954. Börn þeirra
eru Alexander, Atli Pétur,
Það verður öðruvísi að koma
til Ólafsvíkur og fara í Bæjar-
túnið og enginn amma Dísa sem
tekur á móti manni. Með rjúk-
andi heitt kaffi og hlaðið borð af
heimabökuðum kræsingum.
Enda ekkert bakarísrusl í
boði hjá henni eins og hún orðaði
það.
Hjá ömmu var stöðugur
straumur af fólki allan daginn og
oft var talað um trúnaðarhornið
þar sem amma var einstaklega
góður hlustandi og þótti mörg-
um gott að leita til hennar með
hin margvíslegustu
málefni. Við fundum það alltaf
sterkt hjá ömmu hvað við skipt-
um hana miklu máli og var hún
alltaf áhugasöm um hvað við
vorum að gera og bar hag okkar
fyrir brjósti. Hún var mjög
hreinskilin og sagði meiningu
sína og hafði sterkar skoðanir á
mönnum og málefnum. Það sem
einkenndi ömmu fyrst og fremst
var hversu stórt hjarta hún hafði
og þar var pláss fyrir alla stór-
fjölskylduna. Einnig var hún
alltaf reiðubúin að hjálpa þeim
sem minna máttu sín og skipti
þar engu máli hvort um var að
ræða fólk eða dýr. Það var alltaf
gaman að hlusta á ömmu segja
frá, hún hafði svo skemmtilegan
frásagnarstíl. Hún endaði oft
sögurnar á því að segja, já, mað-
ur veit nú ýmislegt eða
það hvíslaði að mér lítill fugl.
Eins þegar við töluðum við hana
í síma þá kom allt í einu hjá
henni, jæja, ég er ekki með fleiri
lummur núna, sælar/sælir og
nánast skellti á.
Elsku amma, minningarnar
eru margar og við þær er gott að
ylja sér í sorginni. Þakkir fyrir
allar okkar góðu stundir saman
og allt það sem þú hefur gert
fyrir okkur.
Þín,
Vigfús, Lára og Gyða.
Það er með miklum söknuði
sem við hjónin kveðjum frábæra
vinkonu okkar, hana Herdísi,
eða Dísu, eins og hún var ávallt
kölluð. Þótt vitað væri að hverju
stefndi á sl. mánuðum hjá henni
er maður samt alltaf óviðbúinn.
Hún var búa sig undir að fara
vestur til Ólafsvíkur eftir sjúkra-
húslegu á Akranesi en lést áður
en af því varð.
Ég kynntist Dísu fljótlega eft-
ir að ég fluttist til Ólafsvíkur
fyrir nær fimmtíu árum. Ég átti
því láni að fagna að Dísa og mað-
ur hennar, Vigfús og fjölskyldan
öll, hafa verið okkar bestu vinir
alla tíð og fyrir það vil ég þakka.
Dísa var svo sannarlega vinur
vina sinna og það fengum við að
vita sem stóðum henni nær. Við
vorum samherjar í pólitíkinni og
studdum Framsóknarflokkinn
og okkar mann alla tíð. Hún var
hreinskiptin og hafði sterkar
skoðanir á bæði mönnum og
málefnum og það var gaman að
ræða við hana um þessi mál. Það
var ekki hægt að snúa því sem
hún sagði en það reyndi svo sem
ekki mikið á það á milli okkar
því langoftast vorum við sam-
mála um málefnin. Það var alltaf
gaman að heimsækja Dísu og þá
stóð ekki á því að boðið var í eld-
húsið og kökum og fínu meðlæti
raðað á borðið og það varð að
taka á því, annað kom ekki til
greina.
Dísa var örlát kona og gaf
ávallt þeim sem áttu erfitt og
margir hugsa vafalaust hlýlega
til hennar á þessari stundu. Það
var ekkert talið eftir sér hjá
henni að hjálpa þeim sem var
hjálparþurfi. Dísa var glaðlynd
kona og hún kunni margar sögur
og ljóð voru henni mjög hug-
leikin.
Dísa fór ekki varhluta af áföll-
um í lífinu en mörg hafa dunið
yfir hana. Þegar hún var þrettán
ára, eða árið 1941, komst Hervin
faðir hennar af í sjóslysi er bát-
urinn Dagmar fórst fyrir utan
höfnina í Ólafsvík en hann gat
bundið sig við lóðabelg og komst
þannig upp í fjöru. Í þessu slysi
fórst Pétur afi hennar ásamt
tveimur mönnum. Á síðasta sjó-
mannadag sagði hún við mig að
hún ætlaði að segja mér þessa
sögu fljótlega en það mun bíða
um sinn. Árið 2013 missti hún
tvo góða syni sína, þá Vigfús og
Hervin, með stuttu millibili og
árið eftir þá missir hún eitt
barnabarn sitt. Dísa hélt sinu
striki og sýndi mikið æðruleysi
þrátt fyrir þessu miklu áföll.
Vafalaust hefur hún átt sínar
erfiðu stundir þótt ekki sæist
það á henni. Hún var frekar í því
að hugga aðra vegna þessara
áfalla sem reyndu að sjálfsögðu
á alla fjölskylduna og nána vini.
Í gegnum öll veikindi Herdísar
undanfarið þá hefur Vigfús eig-
inmaður hennar stutt hana af
mikilli samviskusemi og staðið
sig eins og klettur, en hann og
Herdís voru mjög samrýnd alla
tíð.
Kæri Vigfús og fjölskylda. Við
hjónin sendum ykkur öllum inni-
legar samúðarkveðjur vegna frá-
falls frábærrar konu sem við
kveðjum í dag. Guð blessi minn-
ingu Herdísar Hervinsdóttur.
Mig langar til að enda þessar
línur á síðasta erindi í fallegu
ljóði eftir Matthías Jochumson:
Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bárur, brim og voðasker.
nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögru dyr
og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr.
(Matthías Jochumsson)
Pétur Steinar Jóhannsson
Herdís Kristjana
Hervinsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku langamma mín.
Það var alltaf svo
skemmtilegt að koma í
heimsókn til þín og langafa
í Ólafsvík. Alltaf þegar við
komum voru kræsingar á
borðum. En það besta var
að þú varst alltaf svo góð og
yndisleg. Ég hefði ekki get-
að hugsað mér betri lang-
ömmu. Takk fyrir allar
góðu stundirnar og minn-
ingarnar sem ég mun
geyma með mér. Þín lang-
ömmustelpa,
Ásdís Rán
Kolbeinsdóttir
Ég var svo hepp-
inn að kynnast
Bjarna þegar hann
var bara sex ára
gutti, fullur af krafti
og sköpunargleði. Það fyrsta sem
hann sagði við mig var: „Ég heiti
Bjarni og ég er höfðingi.“ Svo
stökk hann upp dyrastafinn og
klifraði upp í loft með ógnar
hraða.
Hann var uppi á öllu og ofan á
öllu alls staðar. Hann sagði mér
að hann væri foringinn í hverfinu
og í vinahópnum. Alltaf var hann
brosandi og glaður og einstaklega
uppátækjasamur.
Eftir því sem árin liðu sá ég
hvað Bjarni var listrænn og sér-
lega hugmyndaríkur drengur.
Hann var snillingur í að mála og
teikna, hann var mælskur og góð-
ur penni, frábær tónlistarmaður,
næmur fyrir góðum hljóðfæraleik
og sándi.
Hann var líka góður í íþróttum,
það var sama hvort það var fót-
bolti, línuskautar eða hjólabretti.
Hann náði góðum tökum á því
strax.
Hann spilaði á bassa og var í
hljómsveit. Það var ekki til það
sem hann gat ekki. Hann elskaði
að koma í heimsókn til mín og
stóru systur, hann elskaði að ég
bakaði og eldaði fyrir hann, þá var
hann súperglaður. Það var svo
gaman að elda fyrir hann, því
hann tók svo vel á því, allt sem ég
gerði var svo svakalega gott, ég
var besti bakari og kokkur í
heimi.
Á svona stundum var Bjarni í
essinu sínu, hugmyndir hans
komu á færibandi og allt svo
framandi og á undan sinni samtíð
að ég mátti hafa mig allan við að
halda í við hann, að skilja og sjá
fram á við. Þarna var ég svo var
Bjarni Þór
Júlíusson
✝ Bjarni Þór Júl-íusson fæddist
2. nóvember 1966.
Hann lést 11. júlí
2015.
Útför hans hefur
farið fram.
við að Bjarni var
ekki sporgöngu
maður, heldur mað-
ur sem hugsar út
fyrir rammann og
finnur nýjar leiðir.
Algjör frumkvöðull.
Vá, hvað það hefði
verið gaman að fá að
kíkja inn í huga hans
eitt augnablik og sjá
hvað hann var að
hugsa, þvílík ævin-
týraveröld.
Eftir að Bjarni missti föður
sinn, þegar hann var aðeins 14
ára, var hann meira hjá okkur og
reyndum við sem mest við gátum
að styðja hann. Alltaf stóð heimili
okkar opið. Hann leitaði mikið til
okkar sem foreldra og fyrir-
mynda.
Ófáar stundirnar sátum við
saman ég, Júlli og Tryggvi, synir
mínir, og Hrafnhildur, konan mín,
og töluðum um allt milli himins og
jarðar, gleymdum stund og stað.
Svona myndir og minningar vil ég
geyma, því Bjarni er í mínum
huga höfðingi og foringi. Bjarni
var mjög barngóður og sóttu börn
mikið til hans, því hann átti alltaf
tíma fyrir alla, unga sem aldna.
Hann átti á lífsleiðinni sjálfur
fjögur yndisleg börn sem eru gull-
molar á allan hátt og Bjarna til
fyrirmyndar. Guð blessi hann, og
fjölskyldu hans.
Takk fyrir samveruna, elsku
Bjarni, mágur minn og vinur. Guð
geymi þig.
Gústav Bergman.
Alveg frá því við munum eftir
okkur var Bjarni stór partur af lífi
okkar. Skemmtilegri mann er erf-
itt að finna hann var alltaf til í
sprell og djúpar samræður um
allt milli himins og jarðar þó kyn-
slóðarbilið væri mikið.
Það sem okkur þótti einna
vænst um var hvað hann virkilega
hlustaði á mann og sýndi fólki
skilning og áhuga.
Bjarni kom alltaf jafnt fram við
alla og tók fólki eins og það er.
Hann vildi alltaf sjá það góða í
manneskjum og var okkar fremsti
aðdáandi sem og við hans.
Erfitt er að finna mann sem
elskaði fjölskylduna sína jafn
mikið og Bjarni gerði, hann elsk-
aði fjölskylduboð þó að honum
tækist sjaldnast að mæta á tilsett-
um tíma. Bjarni tók sér tíma að
kynnast fólkinu sínu og afmælis-
og jólagjafir voru í takt við það.
Gott dæmi um það var þegar Nína
hafði verið að prófa sig áfram við
að mála málverk snemma á árinu
án þess að segja neinum frá, þeg-
ar jólin komu fékk Nína striga og
pensla frá Bjarna ásamt hvatn-
ingarkorti.
Við erum ævinlega þakklátar
að hafa fengið að kynnast Bjarna.
Elsku Bjarni, takk fyrir allar
góðu stundirnar, takk fyrir káp-
urnar sem þú gafst okkur sem eru
okkur svo kærar og takk fyrir að
elska alltaf matinn sem við eld-
uðum fyrir þig! Þú munt alltaf lifa
í hjörtum okkar.
Þínar
María Rós og Nína Rún.
Bjarni,
Að þú sért farinn er eitthvað
svo fjarstæðukennt. Þú af öllum.
Þú sem áttir hálft lífið eftir. Þú
sem varst alltaf að reyna að gera
heiminn að betri stað, áttir ekki
skilið að þurfa fara svona
snemma.
Þegar ég var lítill varst þú mér
sem stóri bróðir af bestu gerð. Þú
kenndir mér allt mögulegt um vís-
indi og náttúruna. Við smíðuðum
flugmódel og pappírsskutlur,
flugum flugdrekum og gerðum
ýmsar vísindalegar tilraunir. Þær
voru ófáar kvöldstundirnar sem
við eyddum saman spjallandi um
hinar og þessar lausnir á vanda-
málum heimsins. Það sem ég leit
upp til þín! Þú bjóst yfir þeim
merka eiginleika að geta komið
fram við alla sem jafningja. Og
fólk (að minnsta kosti ég) var stolt
af því að vera metnir jafningjar
þínir.
Þú komst alltaf með svo
skemmtilegar og framúrstefnu-
legar hugmyndir sem að voru svo
oft langt á undan sinni samtíð.
Eitt gott dæmi um það var t.d.
þegar þú gerðist umboðsaðili fyr-
ir NeXT tölvur á Íslandi. Þú varst
ekki lengi að sjá möguleikana sem
þessar nýju tölvur buðu upp á. En
þeir voru því miður ekki margir í
heiminum sem deildu þeirri skoð-
un með ykkur Steve Jobs á þeim
tíma og því gekk þetta brösulega.
Rúmum fimm árum síðar var
þessi sama tækni innlimuð í Apple
vörurnar. Þá var heimurinn loks-
ins tilbúinn og Apple veldið reist-
ist við nánast á einum degi. ’The
rest is history’ á þeim bænum.
Á afmælinu mínu fyrr á þessu
ári, þegar þú áttir sjálfur fullt í
fangi með þinn banvæna sjúk-
dóm, tókst þú þér samt sem áður
tíma og skrifaðir þessi fallegu orð
til mín:
„Það hefur verið ryfjað upp
nokkuð undanfarið það sem ég
gerði við lungað af unglingsárun-
um mínum. Þau eru mér mjög eft-
irminnileg og kær í alla staði, og
það eigum við sameiginlegt frá
því þú fæddist að okkur fannst
eðlisfræði, efnafræði og vísindi
óþreytandi vettvangur fyrir okk-
ar náskylda huga. Á meðan aðrir
jafnaldrar mínir voru að byrja
drykkju og skemmtanir, þá kætt-
ist ég yfir þeim stundum með þér
að geta miðlað þekkingu í einn
snjallan og gáfaðan svamp og
gera eðlisfræðitilraunir með vatni
og lofti. Um tíma voru öll kvöld og
langar helgar okkar samvera
hlaðin af leikjum og fróðleik.
(þetta hélt mér frá óreglu eins og
aðrir fiktuðu við) Þú hefur auðgað
lífið mitt, fækkað unglingaveikum
áfengisblöruðum og stefnulaus-
um helgum vandræðagangs. Fyr-
ir þína tilvist, hefur það sannast
að ég er betri maður og vitrari af
þeim sökum. Þú ert mér kær og
sekur um að vera í hópi topp fimm
mestu gæðinga sem hafa auðgað
líf mitt“ – BÞJ
Ef að allir ættu frænda eins og
þig, væri heimurinn betri staður!
Þó svo að stóra verkefni þitt
síðasta rúma áratugar hafi ekki
náð að líta dagsins ljós á þínum líf-
tíma, skilur þú hins vegar eftir þig
mikla arfleifð í formi fjögurra frá-
bærra barna. Þau voru heldur
betur stolt þitt enda hverju öðru
vandaðri. Ef að ég fæ einhvern
tíma að vera þeim til staðar eins
og þú varst fyrir mig, þá yrði ég
heiðraður.
Takk fyrir allt kallinn minn og
hvíldu í friði. Þér verður ekki
gleymt!
Júlíus Bergmann Gústafsson
Ég minnist
Ragnars Sig-
björnssonar með
mikilli virðingu og
þakklæti fyrir samstarfið.
Hann var fyrsti forstöðumaður
Rannsóknarmiðstöðvar Há-
skóla Íslands í jarðskjálfta-
verkfræði sem sett var á stofn
á Selfossi um síðustu aldamót.
Þá var ég skólameistari við
Fjölbrautaskóla Suðurlands og
áttu stofnanirnar tvær fljót-
lega nokkurt samstarf varð-
andi starfsmannamál, en það
var hins vegar með tilkomu
Háskólafélags Suðurlands að
samstarf okkar varð nánara.
Fyrstu misserin í starfi mínu
hjá Háskólafélaginu var það
reyndar varnarbarátta fyrir
hönd jarðskjálftamiðstöðvar-
innar þar sem ítrekað voru
sérgreind framlög til hennar
skorin niður í fjárlagafrum-
vörpum í kjölfar bankahruns-
ins. Með öflugum stuðningi
þingmanna Suðurkjördæmis,
Sambands sunnlenskra sveit-
arfélaga og rektors Háskóla
Íslands tókst að verja tilveru
stofnunarinnar á Selfossi. Við
þessar aðstæður er mér minn-
isstætt að Ragnar taldi að sókn
væri besta vörnin og við tók
tímabil uppbyggingar stað-
bundins meistara- og doktors-
náms á Selfossi. Ragnar var
ekki aðeins vísindamaður í
fremstu röð á sínu sviði í heim-
inum heldur einnig einn af
brautryðjendum þeirrar hugs-
unar að rannsóknartengdu
framhaldsnámi á sérsviði hans
væri best fyrirkomið sem næst
vettvangi þeirra atburða sem
fræðigreinin fæst við, þ.e. að
skilja þá margvíslegu áraun
Ragnar
Sigbjörnsson
✝ Ragnar Sig-björnsson
fæddist 7. maí
1944. Hann lést 15.
júlí 2015.
Ragnar var jarð-
sunginn 23. júlí
2015.
sem mannvirki
þurfa að þola
vegna stórra jarð-
skjálfta og að und-
irbúa samfélög
fyrir slíka atburði.
Vorið 2011 varð
að veruleika fyrsta
alþjóðlega meist-
aranámið í sam-
vinnu Rannsóknar-
miðstöðvarinnar
og Háskólafélags-
ins. Rannsóknarmiðstöðin og
Háskóli Íslands lögðu til sér-
þekkinguna varðandi kennslu
nemenda og vottun námskeið-
anna en Háskólafélagið lagðist
á árar með Rannsóknarmið-
stöðinni að kynna og markaðs-
setja námið, hélt utan um gist-
ingu og önnur praktísk atriði
varðandi dvöl nemendanna og
sá um innheimtu nauðsynlegra
gjalda í þessu sambandi. Síðan
hafa árlega verið haldin slík
námskeið hér á Selfossi þar til
nú í vor að ekki reyndist næg
eftirspurn eftir slíku námi.
Þetta uppbyggingarstarf var
unnið undir dyggri forystu
Ragnars og þar skipti miklu
hversu vel kynntur Ragnar var
á sínu fræðasviði erlendis. Það
hvílir nú á herðum okkar sam-
starfsmanna Ragnars að halda
merki hans um framhaldsnám í
héraði á lofti. Honum entist því
miður ekki aldur til að koma
fjármögnun slíks náms í höfn í
gegnum evrópska og alþjóð-
lega samstarfssamninga en
reynsla undanfarinna ára
bendir til þess að slíkt fyr-
irkomulag sé nauðsynlegt til
að auðvelda erlendum úrvals-
nemendum að sækja hingað
slíkt nám, og gera það um leið
aðgengilegt fyrir þá fáu ís-
lensku nemendur sem leggja
slíkt nám fyrir sig.
Ég votta fjölskyldu Ragnars
samúð vegna ótímabærs frá-
falls hans. Minningin um góðan
dreng og mikilhæfan vísinda-
mann lifir.
Sigurður Sigursveinsson.