Morgunblaðið - 04.08.2015, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ALLAR SKREYTINGAR UNNAR
AF FAGMÖNNUM
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR RUNÓLFSSON
rafvirkjameistari,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
sunnudaginn 26. júlí. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. ágúst kl. 15. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á að láta hjúkrunarheimilið Sóltún njóta
þess.
.
Ingibjörg Elíasdóttir,
Elías Gunnarsson, Ingunn Sæmundsdóttir,
Þórdís Gunnarsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir, Jakob Þór Pétursson.
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi,
DAGBJARTUR MAJASSON
frá Leiru í Grunnavíkurhreppi,
síðast búsettur í Sydney,
Ástralíu,
lést laugardaginn 4. október 2014.
Minningarathöfn fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn
6. ágúst kl. 10.30.
.
Björk Dagbjartsdóttir, Gary Potter,
Reynir Potter,
Erika Hanrahan, Sean Hanrahan.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
AGNAR ÓSKARSSON
rafvélavirki,
Breiðuvík 37,
áður til heimilis á Akureyri,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 28. júlí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.
.
Þóra Guðjónsdóttir,
Hjördís Agnardsóttir,
Rannveig Agnarsdóttir, Ólafur Finnbogason,
Tryggvi Agnarsson, Inga Jóna Ævarsdóttir,
Brynja Agnarsdóttir, Guðfinnur Þór Newman,
Lena Haraldsdóttir, Sveinn Reynisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
RANNVEIG ÓLAFSDÓTTIR,
Lækjasmára 8,
Kópavogi,
lést fimmtudaginn 23. júlí. Útförin fer
fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 6. ágúst kl. 13.
.
Guðjón Örn Kristjánsson,
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Stefán Þórisson,
Ólafur Jón Guðjónsson, Eyrún Ásta Bergsdóttir,
Katrín Guðjónsdóttir,
Erla Björk Guðjónsdóttir, Gunnar Ólafsson,
Örn Már Guðjónsson, Sigrún Svava Gísladóttir
og fjölskyldur þeirra.
Ástkær systir okkar, mágkona og yndislega
frænka,
ELLEN THORARENSEN,
lést miðvikudaginn 29. júlí.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 7. ágúst kl. 13.
.
Gunnlaug Lydía Thorarensen, Rafn Ragnarsson,
Oddur Thorarensen, Sólrún Helgadóttir,
Hildur Thorarensen, Heiðar Ásgeirsson,
Margrét Steinunn Thorarensen, Erling Ingvason,
börn okkar og barnabörn.
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
SVANHILDUR ALBERTSDÓTTIR,
Álfheimum 36,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 6. ágúst kl. 13. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á
krabbameinslækningadeild Landspítalans eða Ljósið,
endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð.
.
Anna Margrét Albertsdóttir,
Guðrún Albertsdóttir, Páll Björnsson,
Elísabet Hildiþórsdóttir, María Hildiþórsdóttir,
Birkir Pálsson, Hildur Pálsdóttir
og fjölskyldur.
✝ Auðbjörg Stef-ánsdóttir
fæddist í Neskaup-
stað 27. júlí 1925.
Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað 21.
júlí 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Stefán
Guðmundsson, f.
14.12. 1881, d.
21.8. 1955, og Sess-
elja Jóhannesdóttir, f. 9.8. 1889,
d. 10.4. 1974. Auðbjörg var
næstyngst átta systkina sem nú
eru öll fallin frá. Systkini henn-
ar eru: Helga, f. 8.10. 1911; Jó-
hannes, f. 9.3. 1913, Ólöf Jóna,
f. 6.5. 1915, Sveinbjörg, f. 23.7.
Björg Einarsdóttir. Sonur hans
er Stefán Fannar og dóttir
hennar er Arna Eir. 2) Auð-
björg Íris, f. 9. desember 1973,
sambýlismaður Jóhann S. Frið-
leifsson. Börn þeirra eru Sara
Hlín, Birkir Ísak og Daði
Freyr. 3) Eva Rós, f. 6. janúar
1983, sambýlismaður Karl
Hilmarsson. Sonur þeirra er
Rökkvi Leó.
Auðbjörg ólst upp á Norð-
firði og bjó þar alla ævi. Fyrst
bjuggu Auðbjörg og Hall-
grímur á Sólheimi en fluttust
1957 að Þiljuvöllum 25. Þar bjó
hún þar til hún fór á
hjúkrunarheimilið Breiðablik í
Neskaupstað 2013. Auðbjörg
vann í Síldarverksmiðjunni í
Neskaupstað þangað til að hún
var nær sjötugu. Hún stundaði
nám við Húsmæðraskólann að
Laugum.
Útför Auðbjargar fer fram
frá Norðfjarðarkirkju í dag, 4.
ágúst 2015, kl. 14.
1916, Karl, f. 9.11.
1919, Garðar, f.
29.2. 1924 og
Hreinn, f. 20.5.
1929.
Á gamlársdag
1948 giftist Auð-
björg Hallgrími
Þórarinssyni, f. 14.
júlí 1925. Hann lést
20. maí 2007.
Einkasonur Hall-
gríms og Auð-
bjargar er Stefán, f. 16. júlí
1948. Sambýliskona hans er
Sigrún Hv. Magnúsdóttir, f. 24.
desember 1949.
Börn hans af fyrri sambúð
eru: 1) Hallgrímur, f. 2. nóv-
ember 1970, sambýliskona Una
Elsku amma
Takk fyrir öll þau sumur er
við systkinin dvöldum hjá ykkur
afa á Norðfirði sem börn. Þið
bíðandi í dyragættinni eftir
komu okkar og svo glöð að sjá
okkur. Hlýtt faðmlag. Búið að
fylla ísskápinn af mandarínum
og kókómjólk. Farið á rúntinn,
keyptur ís, í bæjarferðir, húsin
skoðuð og sagðar sögur, í laut-
arferðir með teppi og yfirfullt
nestisbox. Heitt kakó og upp-
rúllaðar pönnukökur með sykri.
Óla frænka með í för. Náttúran
könnuð og ýmsum fróðleiksmol-
um laumað að okkur.
Takk, amma fyrir okkar sam-
töl í gegnum tíðina, um allt og
ekkert. Um Norðfjörð, fjöl-
skylduna, sögur af þér, afa og
pabba, þínum stóra systkinahóp
úr Svalbarði, jafnvel hvítu kisu.
Spánarferðir, markaðurinn og
sól. Spilandi handbolta á möl-
inni, þið vinkonurnar, þú og
Guðný, ungar konur í kjólum
með blómamynstri, svo fallegar.
Takk, amma fyrir komur þín-
ar suður nú í seinni tíð. Farið á
rúntinn, keyptur ís, húsin skoð-
uð, farið í búðarferðir, rúntað í
hjólastól um alla Smáralind og
leit að rauða litnum þínum.
Heimsóknir til vina og ættingja.
Takk, amma fyrir síðustu
samveruna okkar á pallinum
heima, í sól og blíðu, grillaðir
hamborgarar, mikið spjallað og
hlegið. Öll barnabörnin saman
komin með fjölskyldur eins þú
vildir. Enginn skilinn útundan.
Takk, amma fyrir þína um-
hyggju og hlýju, þinn áhuga á
langömmubörnunum, þolin-
mæði, hrós og lof, minnug á alla
afmælisdaga. Þitt örlæti og
gjafmildi.
Söknum þín alla tíð.
Takk, elsku amma mín.
Þín nafna,
Auðbjörg Íris.
Ég var svo ákaflega heppin
að fá að vera eitt af ljósunum í
lífinu hennar ömmu minnar.
Fjölskyldan skipti ömmu miklu
máli og hún hugsaði um okkur
barnabörnin af ást og alúð.
Amma var einstök manneskja,
einlæg, með góða nærveru og
hló alltaf af einstakri gleði sem
smitaðist yfir á nærstadda. Þótt
við amma ættum heima sitt
hvorum megin á landinu var
alltaf gott samband á milli okk-
ar, við vorum duglegar að tala
saman í síma og amma og afi
sendu mér reglulega pakka með
öllu mögulegu sem þeim datt í
hug að ég hefði gaman af. Upp
úr þessum pökkum komu
margskonar dýrgripir sem
amma hafði tekið til og alltaf
fylgdi fallegt bréf sem afi hafði
handskrifað svo listilega vel. Á
hverju sumri komu þau suður
og þá fékk ég oft að vera hjá
þeim, fara með þeim í bíltúr,
kaupa ís og skoða skipin við
höfnina. Það var alltaf áhuga-
vert að fara í bíltúr með þeim
en við keyrðum mikið um, bæði
þegar þau komu suður og líka
þegar ég heimsótti þau austur.
Amma kunni ótal sögur um
landslagið sem við keyrðum um.
Augun í mér hafa eflaust
stækkað umtalsvert þar sem ég
sat í aftursætinu en hún fram í
og sagði frá afturgöngum sem
reikuðu um í austfjarðaþokunni.
Við vorum líka dugleg að skoða
í myndaalbúmin og þar átti líka
hver og einn sína sögu sem
amma sagði af næmi. Ég man
að ég undi mér alltaf vel hjá
þeim, í rónni fyrir austan fékk
ég næði til að teikna og lesa og
þótt við værum oftast bara þrjú
leiddist mér aldrei. Ég var allt-
af velkomin til þeirra og mikið
dekrað við mig. Amma var svo
mikill sælkeri og var dugleg að
elda. Hennar sérgrein var samt
að steikja pönnukökur, sem við
barnabörnin röðuðum í okkur í
tugatali og afi var heppinn ef
hann náði nokkrum. Amma og
afi voru ákaflega samrýmd og
þegar afi féll frá fyrir átta árum
var augljóst að amma hafði
misst hluta af sjálfri sér líka. Í
dag leggjum við ömmu við hlið
afa og þótt við söknum hennar
veit ég að hann er ánægður að
sjá hana aftur og að þau munu
una sér vel saman úti á Bakka-
bakka í fallega firðinum sínum.
Takk fyrir allt elsku amma. Öll
sú ást og væntumþykja sem þið
sýnduð mér er ljós sem ég ber
með mér alla ævi.
Eva Rós Stefánsdóttir.
Eitt sinn glöddust englar
Drottins svo mikið að þeir
sendu einn af sínum gæsluvörð-
um kvenlegs yndisþokka til
jarðar. Ekki til að dreifa jafnt í
þetta sinn. Nei, þeir völdu lítinn
fjöllum girtan fjörð með fátæka
og ríka, og daga bjarta og
dimma. För þeirra barst að litlu
húsi. Þar tóku þeir af sér pinkla
og poka, útdeildu gjöfum sínum
þar sem ungu hjónin Stefán og
Sesselja bjuggu við þeirra tíma
kjör. Gjafirnar skyldu börn
þeirra prýða í fyllingu tímans.
Börnin létu ekki eftir sér bíða.
Þau eignuðust átta börn. Fjórar
dætur sem hver fékk sína gjöf.
Fjóra karlmannlega drengi.
Gestir og gangandi virtu fyrir
sér þessar gjafir Drottins er
birtust í börnum þeirra og dá-
sömuðu og mæltu í hversdags-
leika dagsins. – Stefán og Sess-
elja, eignist fleiri börn. – Árin
liðu og dæturnar urðu augna-
yndi ólofaðra manna og rólynd-
issíldarskipstjóra sem gátu í
blíðskaparveðri og vaðandi síld
tekið net sín upp og siglt til
hafnar, ef fréttist af þeim á
balli. En tíminn líður og tekur
sitt gjald og nú hefur síðasta
barn ömmu og afa, Auðbjörg,
kvatt þennan heim. Á úlnliðum
hennar voru ekki glitrandi arm-
bönd úr skíra gulli né men á
hálsi úr skrautsteinum. Hún
þurfti þess ekki með. Ungi pilt-
urinn úr Skaftafellssýslu, Hall-
grímur, dökkur á brún og brá,
sá þessa blómarós, þau urðu
hjón og bjuggu alla tíð fyrir
austan á Neskaupstað. Elsta
systirin, móðir mín, bjó líka í
faðmi fjalla blárra en fyrir vest-
an. Þangað voru vondir vegir, ef
nokkrir, á sínum tíma. Auð-
björg heimsótti hana og öll
systkinin. Hallgrímur elskaði
vélar og bíla, ók hratt yfir vötn
og vöð með aðra hönd á stýri,
beygði til hægri og vinstri, var
allt í einu kominn á leiðarenda.
Lögreglan stöðvaði hann fyrir
vestan og spurði hvar væri
hægt að kaupa svona bíl. Nú er
fjörður afa og ömmu og barna
þeirra ekki lengur hnit í lífi
mínu. En orðin á milli lína sem
enginn sér lifa og auðga eins og
nafn hennar, Auðbjörg. Hún
bar höfuðið hátt og lét aldrei
bugast þó á móti blési. Ég kveð
þig með þessum línum mínum
og fjörðinn þinn sem tók svo vel
á móti okkur á æskudögum
liðnum.
Stefán Finnsson.
Auðbjörg
Stefánsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar