Morgunblaðið - 04.08.2015, Page 27

Morgunblaðið - 04.08.2015, Page 27
hefur auk þess ritað fjölda blaða- og tímaritsgreina. Það verður ekki sagt um Stein- grím að hann skorti áhugamál: „Ég hef haft áhuga á fjallgöngum, hlaupum og útivist almennt, nánast alla tíð. Þessi áhugamál hafa svo tengst jarðfræðinni, almennum áhuga á náttúrunni og náttúru- vernd. Auk þess hef ég lengi haft áhuga á íþróttum og þá einkum blaki. Ég hef alltaf haft yndi af ferða- lögum og hestaferðum og er fljótur að detta niður í bók ef ekkert að- kallandi liggur fyrir. Síðan ber mér að viðurkenna það hreinskilnislega að ég hef alltaf verið veikur fyrir erfiðisvinnu ýmiss konar, svo sem byggingavinnu, skógrækt, heyskap, smalamennsku og göngum. En þetta er nú kannski sveitamaðurinn í mér. Nýjasta og mikilvægasta hlut- verkið í augnablikinu er að vera ný- bakaður afi. Stjórnmálin eru mér svo hvoru tveggja, lífsstarf og brennandi áhugamál.“ Hvaða lífsreynsla er það sem stendur upp úr Steingrímur, þegar þú lítur um öxl yfir fyrstu 60 árin? „Meðal þess sem telja má áhug- verða lífsreynslu var líklega að ganga yfir skáhallt endilangt Ísland 2005, frá Reykjanestá á Langanes- font, vera fjármálaráðherra Íslands 2009-2011 og byrja að vinna á sláturhúsi átta ára að aldri.“ Fjölskylda Steingrímur kvæntist 18.1. 1985 Bergnýju Marvinsdóttur, f. 4.12. 1956, lækni. Foreldrar hennar: Marvin Frímannsson, f. 4.11. 1928, d. 2.2. 1991, bifvélavirki og Ingi- björg Helgadóttir, f. 23.5. 1925, húsfreyja. Börn Steingríms og Bergnýjar eru Sigfús, f. 29.11. 1984, ferðamálafræðingur, en sambýlis- kona hans er Bergþóra Benedikts- dóttir mannauðsstjóri og dóttir þeirra er Móeiður, f. 4.6. 2015; Brynjólfur, f. 23.3. 1988, há- skólanemi; Bjartur f. 4.8. 1992, há- skólanemi en kærasta hans er Una Hildardóttir háskólanemi, og Vala, f. 4.10. 1998, menntaskólanemi. Systkini Steingríms eru Kristín Sigfúsdóttir, f. 13.3. 1949, fram- haldsskólakennari og fyrrv. bæjar- fulltrúi á Akureyri; Jóhannes Sig- fússon, f. 14.5. 1953, bóndi á Gunnarsstöðum og fyrrv. formaður Landssambands sauðfjárbænda og oddviti Svalbarðshrepps til 24 ára; Árni Sigfússon, f. 22.7. 1957, tækni- fræðingur hjá Norconsult í Osló; Ragnar Már Sigfússon, f. 20.10. 1959, fyrrv. bóndi á Gunnars- stöðum, nú búsettur í Hörgár- byggð, og Aðalbjörg Þuríður Sig- fúsdóttir, f. 18.8. 1967, dagmóðir á Sauðárkróki. Foreldrar Steingríms voru Sigfús A. Jóhannsson, f. 5.6. 1926, d. 2.8. 2007, bóndi á Gunnarsstöðum, og Sigríður Jóhannesdóttir, f. 10.6. 1926, d. 15.10. 2007, húsfreyja. Úr frændgarði Steingríms J. Sigfússonar Steingrímur Jóhann Sigfússon Sigríður Davíðsdóttir húsfr. í Ytri-Brekkum Vilhjálmur Guðmundsson b. í Ytri-Brekkum Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir húsfr. og ljósmóðir á Gunnarsstöðum Jóhannes Árnason b. á Gunnarsstöðum Sigríður Jóhannesdóttir húsfr. á Gunnarsstöðum Arnbjörg Jóhannesdóttir húsfr. á Gunnarsstöðum Árni Davíðsson b. á Gunnarsstöðum Aðalbjörg Jónasdóttir húsfr. í Hvammi Sigfús Vigfússon b. í Hvammi Kristín Sigfúsdóttir húsfr. í Hvammi Jóhann Ólafur Jónsson b. í Hvammi Sigfús A. Jóhannsson b. og vörubifreiðarstj. á Gunnarsstöðum Ólöf Pálína Arngrímsdóttir húsfr. á Hávarðsstöðum Hreggviður Jónsson form. Viðskiptaráðs Rafn Jónsson verksmiðjustj. á Þórshöfn Jóhann A. Jónsson fyrrv. framkv.stj. Hraðfrystistöðvar Þórshafnar Jón Kr. Jóhannsson verslunarstj. á Þórshöfn Sigrún Helgadóttir, kennari, landvörður, umhv.verndar- sinni og rithöfundur Áróra Kristinsdóttir Andrés Kristinn Jónsson í Reykjavík Aðalsteinn Jónsson (Alli ríki) forstj. á Eskifirði. Eiríka Guðrún Þorkelsdóttir húsfr. í Eskifjarðarseli Sigurveig Samsonardóttir húsfr. á Seltjarnarn. og í Eyjum Jón Samsonarson b. og skáld á Hávarðsstöðum Björn Teitsson fyrrv. skólameistari á Ísafirði Ari Teitsson ráðunautur og fyrrv formaður Bændasamtakanna. Elín Aradóttir húsfr. á Brún Sigríður Árnadóttir húsfr. á Grýtubakka Snædís Hjartardóttir Áslaug Hjartardóttir Bryndís Snæbjörnsdóttir í Reykjavík Guðný Halldórsdóttir húsfr. í Reynihlíð Þuríður Árnadóttir húsfr. á Gunnars- stöðum Anna Guðný Guðmundsd. píanóleikari Aagot Árnadóttir fulltr. á Vopnafirði Árni Vilhjálmsson ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015 Árni Ragnar fæddist á Ísafirði4.8. 1941, sonur Árna Ólafs-sonar skrifstofustjóra og Ragnhildar Ólafsdóttur húsfreyju. Árni var sonur Ólafs Pálssonar, prófasts í Vatnsfirði, og Ásthildar S. Sigurðardóttur, en Ragnhildur var dóttir Ólafs Helga Hjálmarssonar, útvegsbónda að Látrum í Aðalvík, og Sigríðar Jónu Þorbergsdóttur. Eftirlifandi eiginkona Árna Ragnars er Guðlaug P. Eiríksdóttir og eignuðust þau fjögur börn. Árni ólst upp á Ísafirði, í Aðalvík og við Ísafjarðardjúp, gekk í Barna- skóla og Gagnfræðaskóla Ísafjarð- ar, lauk landsprófi frá Gagnfræða- skóla Keflavíkur 1957 og lauk síðan prófi frá Samvinnuskólanum 1960. Árni starfaði hjá Sparisjóðnum í Keflavík, var útibússtjóri Versl- unarbanka Íslands 1966-71, rak um árabil bókhaldsstofu í Keflavík með útibú víða 1971-85, starfaði síðan hjá Varnarliðinu, var fjármálastjóri þar 1985-88 og deildarstjóri 1988- 91. Árni Ragnar var formaður Heim- is, félags ungra sjálfstæðismanna í Keflavík, 1966-71, sat í stjórn SUS 1969-74, átti sæti í fulltrúaráði sjálf- stæðisfélaganna í Keflavík, síðar Reykjanesbæ, frá 1964 og var for- maður þess 1987-91, sat í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi, síðar Suður- kjördæmi, frá 1966 og var bæjar- fulltrúi í Keflavík 1970-78. Árni Ragnar var fyrst kosinn á Alþingi árið 1991 sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi. Hann var þingmaður Suðurkjördæmis frá 2003 til dánar- dægurs. Á Alþingi átti Árni sæti í fjöl- mörgum fastanefndum og var fulltrúi þingflokksins í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Árni Ragnar var einn af stofn- endum JC Suðurnesja og fyrsti for- seti þess og landsforseti JC Íslands 1976-77. Hann var sæmdur öllum æðstu viðurkenningum JC- hreyfingarinnar á Íslandi og út- nefndur heiðursfélagi JC Íslands og Senators. Árni lést 16.8. 2004. Merkir Íslendingar Árni Ragnar Árnason 90 ára Guðrún Anney Guðjónsdóttir Ingibjörg E. Beck Páll Garðar Ólafsson 85 ára Ágústa Þorbjörg Hannesdóttir Jóhanna Björnsdóttir Nanna Hlín Pétursdóttir Ragnar Heiðar Eiríksson 80 ára Einar Jónas Ingólfsson Halldór Guðmundsson 75 ára Baldvin Einarsson Guðrún Guðmundsdóttir Óskar Karl Þórhallsson 70 ára Dýrunn Steindórsdóttir Ingiríður Þórisdóttir Kristinn Hermannsson Margrét Isaksen Óskar Björgvinsson Svanfríður Guðrún Gísladóttir Unnur Sigtryggsdóttir Þorbjörg Jenny Ólafsdóttir Þórdís Valdimarsdóttir Þórey Þórarinsdóttir Ævar Þór Sigurvinsson 60 ára Aðalbjörg Kristinsdóttir Agnes Svavarsdóttir Birna Ágústsdóttir Birna Kristjánsdóttir Einar Benediktsson Jensína Kristín Jensdóttir Kristján Hringsson Logi Már Einarsson Olgeir Hávarðsson Óskar Sverrisson Sigrún Steinunn Sigurðardóttir Sigurður Sigurðsson Tryggvi Sveinbjörnsson Valdís Ella Finnsdóttir 50 ára Alvar Alvarsson Anton Guðmundsson Árný Vaka Jónsdóttir Claus Hofmann Pedersen Guðbjörg Pétursdóttir Ingigerður Sigr. Júlíusdóttir Ingimar Tryggvason Íris Aðalsteinsdóttir Kári Bjarnason Margrét Benediktsdóttir Patcharee Srikongkaew Tryggvi M. Baldvinsson Þóra Jakobína Hrafnsdóttir 40 ára Elfa Ingibergsdóttir Helga Dóra Jóhannesdóttir Hildur Einarsdóttir Mariola Blajeszczak Mircea Condor Rafn Hermannsson Sigurður Óskar Guðmundsson Stefán Sandholt Haraldsson Vilborg María Ástráðsdóttir Þórdís Eva Sigurðardóttir 30 ára Ari Már Gunnarsson Bjarni Ólafur Stefánsson Elwira Elzbieta Kacprzycka Fanney Sigurðardóttir Halldóra María H. Skowronski Hildur Magnúsdóttir Lísa Rún Guðlaugsdóttir Valgerður Guðsteinsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Þórleifur ólst upp í Garðabæ, býr þar, lauk BSc-prófi í iðnðarverk- fræði frá HÍ og starfar nú við garðyrkju- og véla- vinnu. Systkini: Jón Gunnar, f. 1986; Andri og Björgvin, f. 1987; Aron Ingi, f. 1997, og Nana Daðey Haralds- börn, f. 1998. Foreldrar: Sigríður Scheving Þorleifsdóttir, f. 1960, og Haraldur Brynjarsson, f. 1959. Þórleifur Sch. Haraldsson 30 ára Júlíus ólst upp á Litlu-Brekku í Skagafirði, býr í Hafnarfirði, lauk MS- prófi í rafmagnstækni- fræði frá HR og starfar hjá VSB verkfræðistofu. Maki: Sigrún Eva Helga- dóttir, f. 1991, í fæðingar- orlofi. Foreldrar: Bjarni Axels- son, f. 1959, verkamaður hjá Skaganum, og Birna Júlíusdóttir, f. 1966, sjúkraliði. Júlíus Helgi Bjarnason 30 ára Bragi býr í Reykja- vík, lauk meistaraprófi í bifvélavirkjun og rekur Eðalbíla ehf. Maki: Hafdís Guðlaugs- dóttir, f. 1985, hár- greiðslukona. Synir: Guðlaugur, f. 2008, og Alexander, f. 2014. Foreldrar: Páll Sigurðs- son, f. 1961, lög- reglumaður, og Anna Björg Björnsdóttir, f. 1962, saumakona. Bragi Þór Pálsson Bíla- og vélavörur ...sem þola álagið! Það borgar sig að nota það besta! Viftur HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir Stýrisendar og spindilkúlurViftu- og tímareimar Kúplingar- og höggdeyfar Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.