Morgunblaðið - 04.08.2015, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér hefur unnist vel og nú er svo
komið að þú getur tekið til úrlausnar verkefni
sem lengi hefur legið í láginni. Sinntu sjálf-
um/sjálfri þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Nýir möguleikar opnast og þú ert vel í
stakk búin/n til að greina á milli og velja þá
leið sem farsælust er. Hugsaðu vel um
sjálfa/n þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú verður þú að bretta upp erm-
arnar og ganga í þau verk sem þú hefur látið
sitja á hakanum. Hugleiddu viðbrögðin vel
áður en þú leggur til atlögu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Leitaðu leiða til að bæta heimilis-
aðstæður þínar. Ef þú ákveður að gefa kost á
þér verður þú að gæta þess vandlega að sýna
tillitssemi og sveigjanleika.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það góða við að hafa tvöfaldan persónu-
leika er að þú þarft ekki að bregðast við á
einn veg. Með því að skilja þetta, öðlast þú al-
sælu í samskiptum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst vinnan frábær því hún er nú
flóknari og meiri en nokkurn tíma áður.
Hverju sem þú trúir, virðist sem þú hafir upp-
fyllt vel skyldur þínar við einhvern.
23. sept. - 22. okt.
Vog Annríki er lykilorð dagsins. Njóttu já-
kvæðni þinnar meðan hún varir og reyndu að
hitta alla sem þér er annt um í dag. Þú ert
gædd/ur ríku sjálfstrausti, hefur góða skipu-
lagshæfileika sem gera þig vel til forystu fall-
inn/fallna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það ætti að vera öruggt að veðja
á sjálfa/n sig. Reyndu að sigla milli skers og
báru svo þú náir klakklaust landi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er engin ástæða til að draga
sig í hlé þótt hugmyndir þínar slái ekki í gegn.
Ekki vera leið/ur – þetta hendir flesta, haltu
ótrauð/ur áfram.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu ekki að komast hjá því að
leggja þig alla/n fram við þau verkefni sem
þér eru falin. Reyndu að sýna þolinmæði í
samskiptum við aðra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einungis þeir sem reyna við erfið
verkefni eiga fyllilega eftir að meta dirfsku
þína núna. Einn mesti styrkur þinn er sá að
þú berð mikla virðingu fyrir öðru fólki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gerðu allt sem þú getur til þess að
koma hlutunum í skikkanlegt horf. Hvað svo
sem þú velur þá muntu feta nýja braut.
Sigurður Jónsson tannlæknirhefur gaman af því að kasta
fram tækifærisvísum. Einhverju
sinni var hann í Sundhöllinni
sem oftar og í sturtunni á undan
honum var maður sem hafði
vatnið brennheitt. Þá kom þessi
staka frá Sigurði:
Blandarðu svona baðvatnið
að boði þinna feðra
eða til að venjast við
velgjuna í neðra?
Helgi Seljan hefur gaman af
því að henda gaman að sjálfum
sér:
Ellin gjörir aldrei hlé,
að ‘enni er mikill bagi.
Held þó heilabúið sé
hartnær barasta í lagi?
Guðmundur Arnfinnsson lét
þess getið að Vaðalfjöll hefði
borið á góma í Vísnahorni – „en
þau hafði ég fyrir augum dag
hvern á heimaslóð og kvað um
þau vísu:
Vaðalfjöll í heiðið háa
hefjast tröllaukin að sjá
yfir völl og vatnið bláa
vafin öll í sólargljá.“
Nú hefur komið í fréttum að
Fiskistofa verði flutt til Akureyr-
ar á nýársdag. Hjálmar Frey-
steinsson segir á Boðnarmiði
„Akureyri – með öllu“ og síðan:
Akureyri af bæjum ber,
búsældarleg þykir mér
og fyrirmannlegt fólkið er.
Fiskistofa er líka hér!
Aðalsteinn Svanur Sigfússon
skilur hvað að baki liggur flutn-
ingnum:
Á Akureyri er aldrei neitt til miska,
til innfæddra er skemmtilegt að líta.
Nú á að skoða þessa furðufiska
og finna út hvort stofninn megi nýta.
Guðmundur Halldórsson hefur
næmt fegurðarskyn:
Akureyri af bæjum ber
í búsæld öðrum fremur,
feiki verður fallegt hér
er Fiskistofa kemur.
Þorsteinn Erlingsson orti 27.
júlí 1908:
Margra hunda og manna dygð
má sér aftur veita
en þegar ég tapa þinni tryggð
þýðir ei neitt að leita.
Þessi staka kallast á við stöku
Jóns S. Bergmanns, sem hann orti
jólakvöldið 1918 þegar hann hafði
ekki annað gesta en kött einn:
Þótt mér bregðist hyllin hlý
hæfir ekki að kvarta
meðan ég á ítök í
einu kattarhjarta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Elli kerlingu og Fiskistofu
Í klípu
„HALTU ÞÉR FAST FYRIR SNÚNINGINN
– SJÁLFSTÆTT FRAMHALD
ÞVOTTAVÉLARINNAR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VAKNAÐU, PABBI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hugsa svipað.
HVAÐ MYNDI ÉG GERA EF
LÍSA SEGÐI MÉR UPP?
ER ÞETTA
NÝTT FRANSKT
VOPN?
KANNSKI GETUM
VIÐ NOTAÐ ÞAÐ
TIL AÐ GRILLA
SYKURPÚÐA!
LÍTUR ÚT EINS
OG STÓR
TANNSTÖNGULL!
EN GARDE,
VÍKINGA-
SVÍN!
HMMM... ÞÚ LÍTUR ÚT EINS
OG GRÁTARI.Snemma í júnímánuði ár hvertdregur Víkverji sig í hlé og hverf-
ur í annan heim þar sem hann hleður
rafhlöðurnar eftir íslenskan vetur.
Þegar hann snýr aftur er hann endur-
nærður á sál og líkama og á móti hon-
um taka laufguð tré og grænir reitir.
Þá er komið sumar.
x x x
Bið Víkverja eftir lóu á leiti ogblómi í haga hefst yfirleitt í febr-
úar, þeim bölvanlega leiðinlega mán-
uði. Þá hafa jólaljósin verið myrkvuð
og kertaljós og kósýheit megna vart
að bægja frá skammdegisþunglyndi
hinna nöpru norðurslóða.
x x x
Samt er það svo að þegar sumri ferað halla er Víkverji jafnan farinn
að þrá veturinn; myrkrið, frostið og
norðurljósin. Hann kann að daðra við
sólina en Vetur konungur er lífs-
förunautur hans.
x x x
En nú bregður við nýjan tón. Sumarið hefur verið Víkverja
gott; það hefur vafið hann mildum
örmum og bægt hinum nístandi Kára
frá, og aldrei þessu vant lætur sökn-
uðurinn eftir vetri ekki á sér kræla.
x x x
Víkverji sér það nú í rósrauðumbjarma að rækta jurtir í blóma-
pottum, fjárfesta í almennilegu grilli
og iðka golf. Hann hlakkar til Hinseg-
in daga og Menningarnætur og hugs-
ar vart til haustsins. Þráin eftir
rökkrinu er víðsfjarri.
x x x
Það er þó ekki svo að Víkverji hafisagt skilið við raunveruleikann.
Hann veit sem er að sumarið er svik-
ult og að rok og rigning og válynd
veður gætu allt eins beðið handan
næstu helgar. En þess nú heldur að
njóta á meðan er.
x x x
Ef til vill er það lykillinn að farsæl-um árstíðaskiptum; að lifa í núinu
og njóta þess sem manni er gefið.
Víkverji vitnar í Chekhov: Fólk gætir
ekki að því hvort það er vetur eða
sumar þegar það höndlar hamingj-
una. víkverji@mbl.is
Víkverji
Yður er í dag frelsari fæddur, sem er
Kristur Drottinn, í borg Davíðs.
Lúkasarguðspjall 2:11