Morgunblaðið - 04.08.2015, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2015
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
MICHELLE ADAM SEAN
MONAGHAN SANDLER BEAN
POWERSÝNING
KL. 10:35
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
EIN STÆRSTA FJÖLSKYLDUMYND ÁRSINS
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
» Eins og fyrri daginn varmargt um að vera á
Akureyri um verslunar-
mannahelgina en þar var
fagnað hátíðinni Einni með
öllu. Leikhópar, tónlistar-
atriði og íþróttakeppnir
voru hluti af dagskránni
auk þess sem gestir hátíð-
arinnar gátu notið tívólís
sem var í Skipagötunni.
Hátíðin Ein með öllu fór fram í Akureyrarbæ um verslunarmannahelgina
Fallegar kökur Að venju var hægt að kaupa dýrindis bollakökur í Lystigarðinum og styrkja gott málefni í leiðinni.
Hoppukastali Þessum hnátum þótti ekki amalegt að hoppa og skoppa.Kandífloss Þessum börnum þótti gott að gæða sér á sykri.
Á fleygiferð Það er vissara að halda sér fast í tívolítækjunum.
Morgunblaðið/Karl Eskil Pálsson
Búningur leikarans Leonards
Nimoy, sem lék hinn rökvísa en
undir niðri tilfinningaríka Spock í
þáttunum Star Trek: The Orginal
Series frá 1967 til 1968, hefur verið
settur á uppboð í Bretlandi.
Leonard Nimoy dó í febrúar á
þessu ári og telja sérfræðingar að
búningurinn hans muni fara á um
70 þúsund pund eða tæpar 15 milj-
ónir íslenskra króna.
Aðdáendur Star Trek um allan
heim munu eflaust vera spenntir að
sjá hvað búningurinn fer á.
AFP
Leikari Leonard Nimoy úr Star Trek.
15 milljónir króna fyrir bláa búninginn
Bobbi Kristina Brown, dóttir tónlist-
arfólksins Whitney Houston og
Bobby Brown, verður jörðuð við hlið
móður sinnar í Westfield-kirkjugarð-
inum í New Jersey í Bandaríkjunum.
Ekki er vitað hvenær greftrunin fer
fram, en tvær útfararathafnir verða
haldnar, önnur í Atlanta þar sem fjöl-
skylda og vinir Bobbi búa, en hin í
New Jersey.
Bobbi lést 27. júlí sl., en hún fannst
meðvitundarlaus í baðkari á heimili
sínu í Atlanta í Georgíu 31. janúar sl.,
en hún var aðeins 22 ára gömul.
Jörðuð við hlið móður sinnar
AFP
Sorg Bobbi Kristina dóttir Whitney Hou-
ston fær að hvíla við hlið móður sinnar.
Og svo kom stríðið… eru næstu
tónleikar í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar. Tónleikarnir verða í
kvöld, þriðjudaginn 4. ágúst, klukk-
an 20:30.
Sagnir og söngvar frá stríðinu
eru á dagskrá tónleikanna en það
er gert í tilefni þess að nú eru liðin
70 ár frá lokum síðari heimsstyrj-
aldarinnar. Meðal annars verður
flutt Áfram veginn, Katjusha, Lily
Marlene, The White Cliffs of Dover
og Tennesse Waltz.
Alexandra Chernyshova sópran,
Ásgeir Páll Ágústsson barítón, Jón-
ína Erna Arnardóttir, píanó, og
Guðrún Ásmundsdóttir sögumaður
koma fram á tónleikunum og
skemmta gestum. Áhugafólk um
stríðið og menningarlíf þess, sem
þá var kannski aldrei mikilvægara,
ætti ekki að láta þessa tónleika
fram hjá sér fara.
Morgunblaðið/Jim Smart
List Konumyndir Sigurjóns Ólafssonar.
Menning og saga síðari heimsstyrjaldar-
innar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar