Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 36

Morgunblaðið - 04.08.2015, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 216. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Hefur þú séð þennan mann? 2. „Ég er einn í klefanum núna“ 3. Selur á tjaldstæðinu í Laugardal 4. Ránsfengurinn hleypur á milljónum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Fimmtudaginn 6. ágúst opnar Georg Óskar sína tíundu einkasýn- ingu, myndlistarsýninguna „Lust for life“, í SÍM-salnum, Hafnarstræti 16. Opnunin sjálf er klukkan 17.00- 19.00. Georg (f. 1985) er frá Akureyri, kláraði Myndlistaskólann á Akureyri árið 2009 og stundar nú masters- nám við Listaháskólann í Bergen í Noregi. Lust for life í SÍM- salnum á fimmtudag  Í kvöld verður fyrsti kvöldviðburður Hinsegin daga í Iðnó og ber hann heitið Stellukvöld í Iðnó. Viðburður- inn hefst klukkan 21.00 en húsið verður opnað klukkan 20.30. Tónlistar- og baráttukonan Stella Hauks lést í janúar síðastliðnum. Tónlist Stellu verður í fyrirrúmi ásamt minningabrotum vina og fé- laga. Stella barðist fyrir konur – með konum, fyrir réttlæti gegn óréttlæti, og mátti oft hljóta bágt fyrir. Söng um ástir kvenna til kvenna. Hljómsveit Tomma Tomm & Andrea Gylfa, Dísa Hreiðars & band, Bogga Ísleifs & band, Hörður Torfa og Bjart- mar Guðlaugs koma fram. Fyrsti viðburður Hin- segin daga í kvöld Á miðvikudag Norðaustan 8-15 m/s, hvassast austast. Rigning á Austurlandi, dálítil súld á annesjum á norðvesturlandi en bjart með köflum á Suðvesturlandi. Hiti 8 til 18 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-18 m/s hvassast á Suðaust- urlandi og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Rigning á austanverðu landinu en skýjað með köflum fyrir vestan. Hiti 8 til 19 stig. VEÐUR „Mér líður virkilega vel,“ sagði Hrafnhildur Lúthers- dóttir meðal annars við Morgunblaðið, en hún synd- ir í kvöld fyrst íslenskra kvenna til úrslita á HM í Kazan. Eftir tvo keppnis- daga hafa þegar fallið þrjú Íslandsmet auk þess sem Anton Sveinn Mckee náði lágmarki inn á Ólympíu- leika. Bæði nefndu þau hversu góður andi væri í ís- lenska hópnum ytra. »1 Hrafnhildur synd- ir til úrslita á HM Alex Oxlade-Chamberlain var hetja Arsenal þegar hann tryggði liðinu 1:0 sigur á Chelsea í leiknum um Sam- félagsskjöldinn sem markar upphaf nýs tímabils í ensku úrvalsdeildinni. Fram að sigrinum hafði Arsenal ekki haft betur gegn Chelsea í þrettán síðustu til- raunum sínum. »3 Chamberlain tryggði Arsenal skjöldinn á ný Blikur eru á lofti um að þátttaka Ís- landsmeistara KR í Evrópukeppninni í körfuknattleik sé í uppnámi. Í til- kynningu sem Evrópska körfuknatt- leikssambandið gaf út í gærkvöldi er ekkert íslenskt félagslið skráð til leiks, en svo virðist sem keppnis- fyrirkomulagi hafi verið breytt og lið- um fækkað. Farið er yfir málið í Morgunblaðinu í dag. »1 Þátttaka KR-inga í Evrópu í uppnámi? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Taugarnar hingað vestur á Strandir eru sterkar og hafa alltaf haldist,“ segir Gunnar Þórðarson tónskáld. „Hér er ég fæddur og ólst upp fyrstu árin, þar til fjölskyldan flutti til Keflavíkur. Það var einhver tilfinningasemi sem greip mig árið 2001 þegar ég frétti að æskuheimili mitt væri til sölu. Þá stóðst ég ekki mátið og keypti húsið, sem var í mikilli niðurníðslu. Ég fékk iðnaðarmenn til að sinna endurbótum og ýmsu gat ég sinnt sjálfur. Og nú hefur húsið fengið alveg nýjan svip og hér hef ég verið löngum stundum síð- ustu árin.“ Gunnarshólmi við Kópanesbraut á Hólmavík er eitt af reisulegri húsunum í kauptúninu. Það var reist árið 1913 og er í hefðbundn- um stíl síns tíma, það er kjallari, hæð og ris. Það var lengi kallað Björnshús en núverandi eigandi nefnir það Gunnarshólma. „Hér bjuggu afi minn og amma og síðar foreldrar mínir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Þórður Björnsson. Það var svo árið 1952 sem síldin hvarf og um líkt leyti kom varnarliðið og allir gátu fengið vinnu á Keflavíkurflugvelli. Það lá því nokkuð beint við að flytja á Suðurnesin, eins og margir héðan af Ströndunum gerðu. Þar suð- ur frá átti ég heima fram á þrítugsaldurinn en hef verið í fjörutíu ár í höfuðborginni.“ Gítarinn er alltaf nærri Gunnar Þórðarson er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðar- innar. Lögin hans skipta hundruðum; eða hver kannast ekki við Fyrsta kossinn, Bláu augun þín, Við Reykjavíkurtjörn, Vetrarsól, Þitt fyrsta bros, Himin og jörð og svo mætti lengi áfram telja. Síð- ari árin hefur Gunnar í ríkari mæli sinnt útsetningum og tón- smíðum og þar hefur gamli popparinn róið á mið sem fáir hefðu séð fyrir. Þar er skemmst að minnast óperunnar Ragnheiðar eftir Gunnar og Friðrik Erlingsson, sem flutt var fyrir tveimur árum. Þar var lagt út frá ævi Ragnheiðar Brynjólfsdóttur biskupsdóttur í Skálholti og vakti þessi nálgun á örlagasögu hennar mikla athygli og var góður rómur gerður að. „Að skrifa út óperu er tveggja til þriggja ára verkefni. Ragn- heiði vann ég að stórum hluta hér fyrir vestan. Og þetta er orðið ósköp þægilegt þegar maður hefur tölvuna og vinnur tónlistina þannig þó að gítarinn sé auðvitað alltaf nærri,“ segir Gunnar kím- inn á svip. Hann upplýsir að um þessar mundir vinni hann að gerð annarrar óperu, hvar sótt er í hinn sögulega arf. Hann vill þó ekki upplýsa nánar hver efniviðurinn sé. Hér vinnst mér vel „Oft er ég hér eina til tvær vikur í senn og hér vinnst mér vel,“ segir Gunnar. Bætir við að ekki sé nema þriggja og hálfs tíma akstur úr Reykjavík um Dali. Þar muni um nýlegan veg yfir Þröskulda og á þeirri leið er farið um höfuðból Dalasýslunnar – en það tengist nafni Gunnars sem er höfundur hins vinsæla lags Er ég kem heim í Búðardal sem allt eins gæti verið um Hólmavík. Er ég kem heim á Hólmavík  Gunnar Þórðarson situr við og semur nýja óperu í húsi bernsku sinnar norður á Ströndum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tónskáld „Tilfinningasemi greip mig þegar ég frétti að æskuheimili mitt væri til sölu,“ segir Gunnar Þórðarson, sem er með mörg járn í eldinum sem endranær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.