Morgunblaðið - 05.08.2015, Page 2

Morgunblaðið - 05.08.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Framkvæmdir hófust í gær vegna Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal 2016. Fyrir- huguð er lagfæring keppnisvallarins og bygging nýs kynbótavallar. Fjórar manir verða búnar til sem nýtast sem áhorfendapallar. Tjaldsvæði verður að auki sett upp og ljósleiðari leiddur inn á svæðið. Kostnaður við framkvæmdirnar er um 100 milljónir en aðstaðan mun nýtast, meðal ann- ars við kennslu í Háskólanum á Hólum. Framkvæmdir hafnar á Hólum í Hjaltadal Morgunblaðið/Björn Jóhann Undirbúningur vegna Landsmóts hestamanna 2016 „Við fluttum 74.000 farþega með Herjólfi í júlí. Þetta er stærsti ein- staki mánuður í flutningum Herjólfs frá upphafi. Fyrra met var 66.000 farþegar og var frá júlí 2012. Þetta var algjör sprengju- mánuður,“ sagði Gunnlaugur Gestsson, rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eim- skip. Þá nefnir hann í þessu sam- bandi að þetta séu fleiri farþegar en Herjólfur flutti allt árið 1996. „Sumarið er búið að vera gott eftir mjög rólegt vor, þannig að við erum nánast á pari við farþegafjöldann á sama tíma í fyrra. Við erum komnir með um 4.000 fleiri farþega en fyrstu sjö mánuðina í fyrra.“ Vorið var kalt eins og landsmenn þekkja og viðraði illa til siglinga, eins og annars, fram að sumri. Þungur straumur ferðamanna Ferðamenn hafa sótt Eyjar heim í miklum mæli í ár og straumurinn af þeim hefur ekki farið framhjá Gunn- laugi. „Það eru flestir Íslendingar í júní, þá erum við með stóru fótbolta- mótin, en í júlímánuði voru þetta að miklum meirihluta erlendir ferða- menn. Þetta hefur áður verið til jafns nokkurn veginn, innlendir og erlendir ferðamenn. Okkar tilfinning nú er að hlutfallið sé svona, ásóknin sé mikil og upplifun erlendra ferða- manna í Eyjum sé góð.“ Verslunarmannavertíð lokið Gunnlaugur segist hæstánægður með nýafstaðna verslunarmanna- helgi. „Þetta tókst allt saman stór- kostlega. Við vorum að flytja síðustu gestina í dag. Við fórum sex ferðir í dag og tíu ferðir í gær, frá aðfara- nótt mánudags til miðnættis. Það gekk alveg gríðarlega vel.“ Mikil reynsla er komin á sigling- arnar fyrir Þjóðhátíð og veitir ekki af enda verkefnið stórt. „Við erum að sigla okkar sjöttu Þjóðhátíð til Landeyjahafnar. Fyrir utan áhöfn- ina og starfsmenn í landi erum við með lögreglu, björgunarsveitarfólk og öryggisverði með okkur. Ástand- ið um borð var algjörlega til fyrir- myndar. Það var mjög gaman að sjá hversu rólegt var, friður og allt með spekt um borð. Það var mikil stemn- ing og stuð á leiðinni til Eyja og á leiðinni til baka eru bara sælir og glaðir farþegar, ekkert vesen á nein- um.“ bso@mbl.is Metfjöldi með Herjólfi í júlí  Aldrei áður hafa jafnmargir farþegar farið með Herjólfi í einum mánuði  Erlendum ferðamönnum fjölgar mikið  Vel heppnuð verslunarmannahelgi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Herjólfur Hefur staðið í ströngu yfir verslunarmannahelgina.Gunnlaugur Grettisson Guðni Einarsson Sigtryggur Sigtryggsson Júlímánuður var mjög kaldur um mestallt land. Á litlu svæði um land- ið suðvestanvert var hann þó lítil- lega hlýrri en meðaltal áranna 1961 til 1990 en meira en tveimur stigum undir því víða inn til landsins um landið norðaustan- og austanvert. Hiti var undir meðallagi júlímánaða síðustu tíu ára um land allt. Þetta kemur fram í yfirliti sem Trausti Jónsson veðurfræðingur birti í gær. Óvenjuþurrt var við norðanverðan Faxaflóa, Breiðafjörð, á sunnanverðum Vestfjörðum og á stöku stað á Norðurlandi vestan- verðu. Sólarlítið var um landið norð- austanvert og mjög dauf þurrkatíð. Kaldast á byggðu bóli í júlí var í Möðrudal á Fjöllum, þar sem meðal- hitinn var 5,9 stig. Í Svartárkoti í Bárðardal var meðalhitinn 6 stig. Á Fonti og Rauðanúpi, stöðvum á lág- lendi sem ekki eru í byggð, var meðalhitinn 5,7 stig á báðum stöð- um. Á Gagnheiði gegnt Egilsstöðum, sem er í 950 metra hæð yfir sjó, var meðalhitinn ekki nema 1,6 stig. Það er lægsti meðalhiti á íslenskri veður- stöð í júlímánuði yfirleitt. Þess ber að geta að ekki var stöð á Gagnheiði og engin jafnhátt í júlí 1993 þegar var kaldara en nú. Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Reykjavíkurflugvelli, 11,4 stig. Þrjár veðurstöðvar á landinu eru svolítið sér á parti að sögn Trausta. Þær eru stöðin á Gagnheiði, Brúar- jökull, þar sem hitinn var 1,8 stig, og svo aftur Þverfjall á milli Bolungar- víkur og Ísafjarðar. Þar var hlýrra nú en austanlands. Veður var með kaldara móti í Ár- neshreppi á Ströndum í júlí. Meðal- hitinn á Gjögurflugvelli í júlí var 6,3 stig. Trausti segir að kaldara hafi verið á Gjögri 1993 og svipað kalt ár- in 1963 og 1970 í Kjörvogi, sem er næsti bær við Gjögur. Veðurathuganir voru fluttar að Litlu-Ávík árið 1995. Jón G. Guð- jónsson veðurathugunarmaður skrifaði á vef sinn (litlihjalli.is) að júlímánuður hefði verið mjög kaldur. Hitinn fór hæst í tæp níu stig. Haf- áttir voru ríkjandi allan mánuðinn, oftast hægar. Sláttur hófst ekki í Ár- neshreppi fyrr en seint í júlí. Hiti í júlí undir meðallagi um allt land Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Einkennandi fyrir júlí Börnin á Grenivík voru kappklædd þegar haldið var upp á 100 ára afmæli íþróttafélagsins Magna um miðjan mánuðinn.  Meðalhitinn á Gagnheiði gegnt Egilsstöðum var 1,6 stig  Það er lægsti meðalhiti sem mælst hefur á íslenskri veðurstöð í júlímánuði  Hafáttir voru ríkjandi á Ströndum og sláttur hófst seint Stuttum samn- ingafundi verka- lýðsfélaga starfs- manna í álverinu í Straumsvík og SA lauk hjá Ríkis- sáttasemjara um hádegisbilið í gær. Að sögn Gylfa Ingvars- sonar, talsmanns verkalýðsfélag- anna, var lagt fram tilboð eða hugmyndir að lausn á málinu á fundinum og í kjölfarið var fundi slitið. SA-menn vildu taka sér tíma til að fara yfir það sem lagt var fram. „Við lögðum fram hugmynd en svo var ákveðið að hittast aftur á morgun (í dag) til að fara yfir launa- liði en önnur mál sett á ís á meðan,“ segir Gylfi. Hann segir að á fundinum hafi forsvarsmenn starfsmanna lagt það fram hvernig þeir sæju framtíð- ina. „Það leiddi í raun eingöngu til þess að menn urðu sammála um að einbeita sér að öðrum þáttum,“ segir Gylfi. Yfirvinnubann starfsmanna í álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík hófst á miðnætti 1. ágúst. Fékk álverið undanþágur til þess að kalla til starfs- fólk í neyðartilvikum en ekki fengust upplýsingar um það hvort fyrirtækið hefði þurft að nýta sér þær. Af um 400 starfsmönnum eru 200 í verka- lýðsfélaginu Hlíf. Félögin sem standa saman að samningaviðræðunum eru Hlíf, Fit, VM og Matvís. vidar@mbl.is Launaliðir í Straums- vík ræddir Rio Tinto Alcan Viðræðum verður haldið áfram í dag.  Aftur fundað í kjaradeilu í dag Selkópnum sem strauk frá Hús- dýragarðinum og fannst við tjald- svæðið í Laugardal aðfaranótt mánudagsins hefur verið lógað. Þetta staðfesti Tómas Óskar Guð- jónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, í samtali við mbl.is. Hann segir að dýrahirðir garðs- ins taki ákvörðun í ágúst á hverju ári um hvaða kópum eigi að lóga og hverjum ekki. Ástæðan sé fyrst og fremst plássleysi og ekki sé enda- laust hægt að fjölga kópum í tjörn- inni. Eins og mbl.is greindi frá var Facebook-hópurinn „Þyrmið lífi sprettharða selkópsins“ stofnaður í gærmorgun og í gærkvöldi voru meðlimirnir rúmlega 12 hundruð. Selkópnum lógað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.