Morgunblaðið - 05.08.2015, Síða 6
SVIÐSLJÓS
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Dimítrí Medvedev, forsætisráð-
herra Rússlands, fyrirskipaði í
Moskvu í gær að stjórnkerfið
greindi nýjustu fréttir af viðskipta-
þvingunum gegn Rússlandi og
kannaði hvort ástæða væri til þess
að Rússar beittu gagnþvingunum
gegn fleiri löndum en hingað til.
Rússar hafa þegar bannað innflutn-
ing á vörum frá Bandaríkjunum,
Evrópusambandinu, Kanada,
Ástralíu og Noregi. Það bann gildir
til 5. ágúst 2016.
Þetta kom fram á rússneska vef-
miðlinum https://news.mail.ru/poli-
tics/ í gær. Þar kom fram að rann-
sókn rússneskra stjórnvalda yrði
stýrt af Medvedev sjálfum og
myndi beinast gegn eftirtöldum
löndum: Svartfjallalandi, Albaníu,
Íslandi, Noregi, Liechtenstein,
Úkraínu og Georgíu, sem staðfestu
þátttöku sína þann 30. júlí sl. í
framlengingu á viðskiptabanni Evr-
ópusambandsins á Rússa.
Talsmaður rússneskra stjórn-
valda, Dimitry Peskov, sagði blaða-
og fréttamönnum í Moskvu í gær að
Rússland kynni að grípa til gagn-
þvingana gegn ofangreindum sjö
löndum.
Noregur beittur
viðskiptabanni
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann teldi
að þessi rússneski fréttaflutningur
væri einkennilegur og orkaði jafn-
vel tvímælis vegna þess að þau lönd
sem væru talin upp að ætti að
kanna með hugsanlegar gagnvið-
skiptaþvinganir Rússa hefðu öll áð-
ur verið þátttakendur í viðskipta-
banninu, að Georgíu undanskilinni.
Noregur væri nú þegar beittur við-
skiptabanni af hálfu Rússa.
„Þetta er enn mjög óljóst og
óljóst hvað Medvedev er að segja.
Við getum lítið annað gert en að
fylgjast með og við erum að reyna
að afla frekari upplýsinga um það
hversu mikil alvara er í þessu hjá
Rússum,“ sagði Gunnar Bragi.
Hann sagði að utanríkisráðuneyt-
ið væri að sjálfsögðu alltaf reiðubúið
að aðstoða útflytjendur. „Frá því að
þvinganirnar tóku gildi gagnvart
Rússum hefur enginn útflytjandi
óskað aðstoðar ráðuneytisins, sendi-
ráða eða Íslandsstofu við að finna
nýja markaði,“ sagði ráðherra.
„Auðvitað veldur þetta áhyggjum.
Við höfum haft áhyggjur af því allan
tímann að lenda á viðskiptabanns-
lista hjá Rússum. Þessar fréttir eru
ekki til þess fallnar að draga úr
áhyggjum okkar,“ sagði utanríkis-
ráðherra.
Jens Garðar Helgason, formaður
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi,
segir að viðskiptabannið hafi sett
mikla hagsmuni Íslands í uppnám.
Jens Garðar sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þeir hags-
munir sem væru í húfi fyrir íslensk-
an sjávarútveg á ársgrundvelli, ef
Rússar beittu viðskiptabanni gegn
Íslandi, væru á bilinu 21 til 25 millj-
arðar króna. „Í heildina erum við að
flytja út til Rússlands vörur fyrir
um 30 milljarða króna á ári og þar
af vega loðnuafurðir, síld og makríll
langmest, eða 21 til 25 milljarðar
króna, en Rússar taka um 80% af
öllum frystum loðnuafurðum okk-
ar,“ sagði Jens Garðar.
Hann segir að þetta sé í annað
skiptið sem atvinnugreinin fái frétt-
ir af viðskiptabanni gegn Rússlandi
í gegnum erlenda fjölmiðla. Fyrst
hafi það verið þegar viðskiptabannið
var samþykkt. Þá hafi SFS fengið
fréttirnar af því eftir að skrifað
hafði verið undir og sama hafi gerst
í síðustu viku, þegar framlenging
viðskiptabannsins var ákveðin. SFS
hafi fyrst frétt af málinu í gegnum
rússneska fjölmiðla. „Mér finnst að
það mættu vera aðeins liprari sam-
skipti á milli utanríkisþjónustunnar
og atvinnugreinarinnar, því að
þarna eru gríðarlegir hagsmunir í
húfi,“ sagði Jens Garðar.
Árangurslitlar þvinganir
„Mér hefur sýnst það síðustu ár
og áratugi að viðskiptaþvinganir
séu ekki að bera neinn árangur. Við
Íslendingar höfum tekið ákveðin
skref til þess að reyna að auka
verslun og viðskipti við mörg lönd,
þar á meðal við Rússland. Ég hefði
haldið að það væri betra fyrir al-
menning í Rússlandi ef landið væri
opið og það væri frjáls verslun og
viðskipti á milli landa,“ sagði Jens
Garðar.
Birgir Ármannsson, formaður
utanríkismálanefndar Alþingis, seg-
ir að í hans huga hafi ekki komið til
greina að Ísland stæði fyrir utan
framlengingu á viðskiptabanni
Evrópusambandsins, Bandaríkj-
anna og Kanada á Rússland.
Birgir sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann ætti
von á því að utanríkismálanefnd
fundaði um málið í dag eða á morg-
un.
„Þetta eru samstilltar aðgerðir
allra Vesturlanda og í mínum huga
hefði ekki komið til greina að Ís-
land stæði fyrir utan þessar aðgerð-
ir. Aðgerðirnar voru ákveðnar í
ljósi atburða sem áttu sér stað í
Úkraínu og á Krímskaga. Öll
NATO-ríkin eru með í þessum að-
gerðum og öll ríki á Evrópska efna-
hagssvæðinu. Það væri meiriháttar
stefnubreyting hjá Íslandi ef við
tækjum ekki þátt í aðgerðum af
þessu tagi,“ sagði Birgir.
Medvedev kannar gagnþvinganir
Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir gríðarlega hagsmuni í húfi fyrir íslenskan sjávar-
útveg Utanríkisráðherra telur að fréttirnar um Medvedev frá Rússlandi orki jafnvel tvímælis
Morgunblaðið/Ómar
Útflutningur Íslenskar sjávarafurðir, einkum frystar loðnuaafurðir, síld og makríll, fyrir 21-25 milljarða eru fluttar til Rússlands ár hvert.
Birgir
Ármannsson
Gunnar Bragi
Sveinsson
Jens Garðar
Helgason
Dimítrí
Medvedev
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015
„Þetta gekk mjög vel miðað við að-
stæður. Völlurinn var erfiður en
stuttu áður en ég fór inn á rigndi
hressilega og það hafði sitt að
segja. Við eigum því töluvert inni,
eins og til dæmis á yfirferðinni og á
brokki. En ég get ekki verið annað
en mjög sáttur,“ segir Guðmundur
Friðrik Björgvinsson, sem stendur
efstur eftir forkeppni í fjórgangi á
Heimsleikum íslenska hestsins í
Herning í Danmörku á stóðhest-
inum Hrímni frá Ósi með 7,47 í ein-
kunn.
Guðmundur hlakkar til að mæta í
A-úrslitin á sunnudaginn því hann
segir Hrímni vera í feikna formi og
hann virki alltaf vel í úrslitum.
Næst er þó töltkeppni hjá Hrímni
og Guðmundi á morgun.
Spennan er mikil á mótum sem
þessum jafnt meðal knapa og áhorf-
enda. Kona Guðmundar, hin norska
Eva Dyröy, hélt í sérvisku sína og
horfði ekki á eiginmann sinn í for-
keppninni. „Ég hef ekki horft á for-
keppni hjá þeim í allt sumar og
þorði því ekki að gera það heldur
núna,“ segir Eva hlæjandi en hún
ætlar þó að horfa á þá í úrslitum og
hvetja til dáða.
Í öðru til þriðja sæti í fjórgangi
eru Johanna Tryggvason á Fönix
frá Syðri-Hóli sem keppir fyrir
Þýskaland og Nils Christian Lar-
sen á Viktor fra Diisa með ein-
kunnina 7,43 og eru þeir fulltrúar
Noregs.
Þá eru Kristín Lárusdóttir og
Þokki efst í B-úrslit með 7,10 í ein-
kunn. Jóhann Skúlason á Garpi frá
Højgaarden lauk ekki keppni því að
svokallað fylliefni sem var í hófi
hestsins féll úr og því var sýning
hans stöðvuð. Íslensku ungmennin
stóðu sig vel. Guðmunda Ellen Sig-
urðardóttir og Týr frá Skálatjörn
hlutu 6,40 í einkunn og eru í fimmta
sæti í keppni ungmenna. Jóhanna
Margrét Snorradóttir á Stimpli frá
Vatni komst í B-úrslit ungmenna
með 6,33 í einkunn. Fresta þurfti
hæfileikadómum sex vetra hryssna
vegna rigningar og fer sá dómur
því fram í dag. thorunn@mbl.is
Efstur en á mikið inni fyrir úrslitin
Völlurinn nokkuð erfiður eftir rigningu Guðmunda Ellen komst í A-úrslit ungmenna og Jó-
hanna í B Kristín og Þokki efst í B-úrslitum Jóhann lauk ekki keppni því fylliefni féll úr skeifu
Ljósmynd/Eiðfaxi
Fjórgangur Guðmundur Friðrik Björgvinsson og Hrímnir frá Ósi á tölti.
Ljósmynd/Eiðfaxi
Stuð Íslenskir áhorfendur styðja vel við bakið á sínu fólki með fána á lofti.