Morgunblaðið - 05.08.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
Sjálfvirk rennibraut inn á heimili
Ekki er vitað til þess að framfari keppni í heiminum um
frumlegustu verðlaunaveitingar í
þágu friðar og mannúðar.
En væri það gert standa líkurtil þess að Sukarno-stofnunin
væri vel sett í baráttunni um
fyrsta sætið.
Stofnunin erkennd við Suk-
arno, fyrsta forseta
Indónesíu, og er
barnabarn hans í
forsæti hennar.
Nefndin komst að þeirri niður-stöðu að rétt væri að heiðra
Kim Jong-un, hinn unga einvald
Norður-Kóreu, að þessu sinni:
Við veitum Kim Jong-un þessiverðlaun vegna þess að hann
hefur verið samkvæmur sjálfum
sér og breitt út boðskap hins mikla
leiðtoga, Kim Il-sung, og barist
gegn heimsvaldastefnu,“ sagði
Rachmawati Soekarnoputri, for-
maður Sukarno-stofnunarinnar.
Ekki er laust við að stundumhafi ríkt nokkur undrun yfir
sumum ákvörðunum virðulegustu
nefndar á þessu sviði í heiminum,
þeirri sem Norðmenn hýsa og sér
um að veita verðlaun árlega úr
sjóðum kenndum við Nóbel
sprengjugerðarmann.
En hinir prúðu nefndarmenn íOsló líta út eins og hvítskúr-
aðir englar við hliðina á hinni
frumlegu friðarnefnd Sukarnos.
Það er auðvitað hverju orðisannara að Kim Jong-un er
algjörlega samkvæmur sjálfum
sér. En þegar horft er til verka
hans er það varla tilefni til verð-
launa.
Kim Jong-un
Frumleg friðardúfa
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.8., kl. 18.00
Reykjavík 16 skýjað
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 15 skýjað
Þórshöfn 12 skúrir
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 25 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 20 heiðskírt
Lúxemborg 20 skýjað
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 16 skúrir
Glasgow 15 skýjað
London 21 skýjað
París 23 heiðskírt
Amsterdam 20 léttskýjað
Hamborg 22 skúrir
Berlín 33 heiðskírt
Vín 32 léttskýjað
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 32 heiðskírt
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 17 skýjað
Montreal 23 skýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 26 skýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:48 22:21
ÍSAFJÖRÐUR 4:33 22:45
SIGLUFJÖRÐUR 4:15 22:29
DJÚPIVOGUR 4:12 21:55
Tvö kynferðisbrot sem upp komu á
Þjóðhátíð hafa verið kærð til lögregl-
unnar í Vestmannaeyjum. Í gær
fékk embættið upplýsingar um að
þriðja brotið yrði kært. Samkvæmt
upplýsingum frá neyðarmóttöku fyr-
ir þolendur kynferðisofbeldis höfðu í
gærmorgun borist þrjár tilkynning-
ar um kynferðisbrot um verslunar-
mannahelgina.
Spurð í samtali við mbl.is hvort
hún sé ósátt við að starfsmaður
neyðarmóttökunnar hafi greint frá
kynferðisbrotunum segist Páley
Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Eyj-
um, skilja þá ákvörðun en segir jafn-
framt að betra hefði verið að bíða
með upplýsingarnar. „Það hefði ver-
ið betra með tilliti til rannsóknar-
hagsmuna að geyma þetta lengur,“
sagði Páley í samtali við mbl.is.
Fram kom í tilkynningu lögreglunn-
ar í gær að einn maður hefði verið
handtekinn í tengslum við kynferðis-
brot á Þjóðhátíð. Honum var sleppt
að lokinni skýrslutöku.
Kynferðisbrot á Vestfjörðum
Lögreglunni á Vestfjörðum barst
ein tilkynning um kynferðisbrot um
verslunarmannahelgina. Vegna
rannsóknahagsmuna voru engar
nánari upplýsingar gefnar um málið
að svo komnu.
Tvö kynferðisbrot verið kærð
Þriðja kæran á leiðinni Eitt kyn-
ferðisbrot rannsakað á Vestfjörðum
Morgunblaðið/GSH
Þjóðhátíð Tvö kynferðisbrot hafa
verið kærð eftir Þjóðhátíðina.
Tvö dótturfélög
Orkuveitu
Reykjavíkur,
Veitur ohf. og
Vatns- og frá-
veita ohf., birtu
auglýsingu í dag-
blöðunum um
helgina þar sem
þau biðja um til-
boð í raforkukaup
frá ársbyrjun
2016 til ársloka 2017.
„Veiturekstur Orkuveitunnar þarf
talsvert mikla raforku. Það eru eink-
um dælur í hitaveitukerfum, vatns-
veitum og fráveitum sem þurfa raf-
magn, en svo þarf rafveitan líka að
kaupa á móti töpum í dreifikerfinu,“
segir Eiríkur Hjálmarsson, upplýs-
ingafulltrúi OR, í samtali við Morg-
unblaðið. Hann segir að eftir lög-
boðna uppskiptingu Orkuveitunnar,
þegar veitu- og virkjanarekstur fór
hvor í sitt fyrirtækið (OR-Veitur og
Orku náttúrunnar), hafi það verið
metið svo út frá raforkulögum og
lögum um innkaup opinberra aðila
að Veitum væri skylt að bjóða þessi
kaup út. „Það hefur nú verið gert og
ef til vill sjáum við önnur veitufyr-
irtæki fylgja í kjölfarið,“ segir Eirík-
ur.
Eiríkur
Hjálmarsson
Skylt að
bjóða út
OR biður um til-
boð í raforkukaup