Morgunblaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015 Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN Snjallara heyrnartæki Beltone First™ Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Þessi mál eru mjög laus í reip- unum og óvissa um hvað verður,“ segir Özur Lárusson, framkvæmda- stjóri Bílgreinasambandsins, um opinberar ívilnanir í þágu rafbíla hér á landi. Fram kom í Morgun- blaðinu í gær að slíkar ívilnanir virt- ust á útleið í sumum nágrannaland- anna. Að öllum líkindum falla þær úr gildi í Danmörku um næstu ára- mót. „Enda má segja að það sé ekkert réttlæti í því fólgið að hægt sé að aka rafbílum frítt um vegi landsins en eigendur bensín- og dísilbíla þurfi að greiða full gjöld,“ segir Öz- ur. Hann tekur þó fram að Bíl- greinasambandið sé mjög jákvætt gagnvart rafbílum eins og allri nýrri tækni en í þessu efni verði sann- girnissjónarmið að ráða ferðinni. Hér á landi eru rafbílar undan- þegnir öllum gjöldum, svo sem virðisaukaskatti, vörugjöldum og bifreiðagjöldum. Kveðið er á um þetta í reglugerð sem endurnýjuð hefur verið árlega, síðast í desem- ber í fyrra. Ákvæðið fellur úr gildi verði það ekki endurnýjað í desem- ber á þessu ári eða fyrr. Endurskoðun fyrirhuguð Özur segir að forsvarsmenn Bíl- greinasambandsins hafi heyrt að til standi að endurskoða allar reglur um gjöld á bifreiðar en þeir hafa engar upplýsingar fengið um það hvar sú endurskoðun er stödd eða hvað haft er að leiðarljósi við hana. Ef marka má ummæli sem Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra lét falla á Alþingi fyr- ir nokkrum vikum hyggjast stjórnvöld áfram styðja við rafbíla- væðinguna með einhverjum hætti. „Ég er eindregið þeirrar skoð- unar að stjórnvöld ættu að halda áfram eins og þau hafa verið að gera að undanförnu, að stuðla að fjölgun vistvænna bíla á Íslandi með jákvæðum hvötum. Það er sérstak- lega ánægjulegt að sjá hversu hröð og góð þróun hefur átt sér stað hvað varðar rafbílana, reyndar á öðrum sviðum líka, en rafbílum hefur fjölgað töluvert á skömmum tíma þótt við vildum auðvitað sjá enn þá meiri hraða í fjölgun. En allt bendir til þess að sú fjölgun muni halda áfram enda eru þessir bílar smátt og smátt að verða bæði hagkvæmari, áreiðanlegri og ódýr- ari og verða því mjög samkeppn- ishæfir við bensín- og dísilbíla,“ sagði ráðherrann. Özur segir að rafbílar hafi varla byrjað að hreyfast í sölu fyrr en virðisaukaskatturinn var felldur niður. „Það má segja að við núver- andi aðstæður séu þessir bílar ókaupandi með fullum gjöldum,“ segir hann. Þeir séu það dýrir. Áframhaldandi rafbílavæðing nýtur stuðnings víða í þjóðfélaginu. Í desember í fyrra skilaði starfs- hópur innan Verkfræðingafélags Ís- lands skýrslu, sem afhent var ríkis- stjórninni, þar sem segir að fjölgun rafbíla yrði til þess að draga veru- lega úr losun gróðurhúsaloftteg- unda og nýta vistvæna innlenda orkugjafa með tilheyrandi bættum þjóðarhag. Styðja rafbílavæðingu Í skýrslunni er m.a. lögð fram til- laga að stefnumótun ríkisstjórnar- innar um rafbílavæðingu Íslands sem felur meðal annars í sér að vist- vænar samgöngur verði efldar. Þar er áréttuð sú sérstaða Íslendinga að hafa aðgengi að endurnýjanlegum vistvænum auðlindum sem geri okk- ur fært að vera í fararbroddi í um- hverfismálum með því að nýta „grænt eldsneyti“ eins og raforku fyrir bílaflota landsmanna.Verk- fræðingarnir vilja stefna að því að rafbílar verði 10% bílaflotans á næstu árum og skuli þeir vera und- anþegnir öllum gjöldum eins og nú í allt að tíu ár til viðbótar til að ná þessu markmiði. Þeir leggja einnig til að enginn virðisaukaskattur verði greiddur af rekstrarleigu rafbíla og enginn virðisaukaskattur verði greiddur af bílaleigu rafbíla. Kerfið er mjög laust í reipunum  Danir og fleiri þjóðir líklega að hætta ívilnunum í þágu rafbíla  Ívilnanir gilda til eins árs í senn hér á landi  Forsætisráðherra vill fjölga rafbílum með jákvæðum hvötum frá stjórnvöldum Ljósmynd/Sigrún Sólmundardóttir Rafbíll Fjölgun rafbíla nýtur stuðnings stjórnvalda, sem fellt hafa niður öll opinber gjöld á þá. Rafbílar eru taldir umhverfisvænir. Óvissa ríkir hins vegar um það hve lengi sú skipan gildir. Unnið er að endurskoðun þessara mála. Rafbílar » Fjárhagslegar ívilnanir í þágu rafbíla eru á undanhaldi í nágrannalöndunum. » Ívilnanir sem rafbílar njóta á Íslandi eru til eins árs í senn. » Ákveða þarf framhaldið hér á landi ekki síðar en í desem- ber á þessu ári. » Unnið er að heildar- endurskoðun opinberra gjalda á bifreiðar. Rafbílum hefur fjölgað umtalsvert hér á landi á þessu ári, en eru enn aðeins lítið brot af bílaflota landsmanna. Samkvæmt upplýsingum frá Önnu Margréti Björnsdóttur á Samgöngustofu eru þeir orðnir 521. Þar af eru nýskrán- ingar á þessu ári, miðað við 31. júlí, 206. Heildarfjöldi ökutækja á skrá er 323.115. Er hlutfall rafbílanna 0,16%. Hér er átt við hreina rafbíla. Blendingsbílar sem nýta rafmagn að einhverju leyti sem orkugjafa eru fleiri. Þeir eru 1.557 til viðbótar. Bílar sem nota rafmagn að öllu eða einhverju leyti eru samkvæmt þessu 0,6% heildarflot- ans. Frá 2005 til 2011 voru aðeins 13 til 15 hreinir rafbílar skráðir á Íslandi, en árið 2012 rúmlega tvöfaldaðist fjöldi þeirra og þrefaldaðist síðan á milli 2012 og 2013 og 2013 og 2014. Lítið brot af bílaflotanum RAFBÍLAR Á ÍSLANDI ERU NÚ ORÐNIR 521 Þróun Rafbílum fjölgar á Íslandi, en það gerist hægt. Hrafn Tulinius læknir lést að morgni föstu- dagsins 31. júlí sl., 84 ára að aldri. Hrafn Tulinius fæddist í Reykjavík, 20. apríl 1931, sonur hjónanna Hallgríms A. Tulinius stórkaup- manns og Margrétar Jóhannsdóttur Tul- inius. Hrafn nam lækn- isfræði við Háskóla Ís- lands og fór í sérnám í meinafræði í Þýska- landi og Bandaríkj- unum. Eftir að námi lauk kenndi hann við læknadeild Albany Medi- cal College í New York í nokkur ár og starfaði um skeið við Rann- sóknastofu Háskólans við Baróns- stíg. Árið 1969 var hann ráðinn til starfa sem vísindamaður við Int- ernational Agency for Research on Cancer (Alþjóðlegu krabbameins- stofnunina) sem heyrir undir World Health Organization, Alþjóðlega heilbrigðismálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Þar starfaði hann að rannsóknum á faraldsfræði krabba- meina þar til hann flutti til Íslands 1975 til að taka við stöðum yfir- læknis Krabbameinsskrár Krabba- meinsfélags Íslands og prófessors í heil- brigðisfræði við læknadeild Háskóla Íslands. Þeim stöðum gegndi hann þar til hann hætti störfum fyrir aldurs sakir. Hrafn var leiðandi í rannsóknum á sviði faraldsfræði krabba- meina hér á landi um árabil, og undir stjórn hans efldist Krabba- meinsskráin, m.a. með víðtæku alþjóðlegu og norrænu samstarfi. Rannsóknir hans og samstarfsfólks hans á faraldsfræði og erfðum brjóstakrabbameins á Íslandi eru kunnar á alþjóðlegum vettvangi. Hrafn var höfundur fjölmargra vís- indagreina og bókarkafla. Eftirlifandi eiginkona Hrafns er Helga Brynjólfsdóttir Tulinius. Börn þeirra eru Már, prófessor í barnalækningum við Gautaborg- arháskóla, Torfi, prófessor í ís- lenskum miðaldafræðum við Há- skóla Íslands, Þór, leikari og leikstjóri, og Sif Margrét, annar konsertmeistari við Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Guðný Helga dóttir þeirra lést 1986. Andlát Hrafn Tulinius krabbameinslæknir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.