Morgunblaðið - 05.08.2015, Síða 30

Morgunblaðið - 05.08.2015, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2015 - Þín brú til betri heilsu Taktu í taumana og finndu þitt jafnvægi – Eru kílóin að hlaðast á? – Er svefninn í ólagi? – Ertu með verki? – Líður þér illa andlega? – Ertu ekki að hreyfa þig reglulega? – ....eða er hreinlega allt í rugli? www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er núna haldinn í 15. sinn og fer hátíðin fram dagana 7. til 9. ágúst á Dalvík. Að venju er allur matur og skemmtun á hátíðinni ókeypis. „Rauði þráðurinn er að allt skal vera ókeypis þennan dag og það hef- ur líka orðið til þess að fólk gengur alveg ótrúlega vel um miðað við að 20 til 30 þúsund manns sækja hátíðina heim árlega,“ segir Friðrik Ómar Hjörleifsson, söngvari og einn skipu- leggjenda tónleikanna sem fram fara á laugardagskvöldinu. „Sjálfur Fiskidagurinn mikli er milli 11 og 17 á laugardeginum og þó að aðrir viðburðir í kringum hann tengist vissulega deginum sjálfum eru þeir ekki beinn hluti af honum. Tónleikarnir eru vissulega nátengdir Fiskideginum og alltaf gífurleg stemning á þeim enda leggja margir listamenn mikið á sig til að koma og vera með. Dæmi eru að sumir komi sérstaklega heim frá útlöndum til að syngja á tónleikunum.“ Risa ættarmót „Allir syngja með“ gæti verið slag- orð tónleikanna en Friðrik Ómar segir stemninguna vera líka því sem gerist á ættarmótum. „Þetta er ekki vettvangur fyrir listamenn til að kynna eigið efni í öll- um lögum heldur miðum við við að taka lög þannig að fólk geti sungið með. Ég hef lýst þessu sem risa ættarmóti, þar sem fólk er komið saman til að skemmta sér og syngja lög sem það þekkir. Og fólk tekur svo sannarlega undir með okkur svo að heyra má sönginn til næstu bæja.“ Meðal þess sem verður á dag- skránni er tónlist Vilhjálms Vil- hjálmssonar, Tinu Turner, AC/DC, Tom Jones, Elton John, Deep Purple, Billy Joel og fleira. Íslensku tónlistarmennirnir sem flytja lögin eru heldur ekki af verri endanum enda margir af þekktustu tónlistar- mönnum landsins. Auk heimamanns- ins Friðriks Ómars verða Matti Matt og Eyþór Ingi Gunnlaugsson og gríðarsterkur hópur með þeim Reg- ínu Ósk, Stefáni Jakobssyni, Stef- aníu Svavarsdóttur, Heru Björk, Bryndísi Ásmundsdóttur, Siggu Beinteins, Jógvani Hansen, Ingó Geirdal, Margréti Eir, danshópur undir stjórn Yesmine Olsson og 11 manna stórhljómsveit skipuð lands- liði hljóðfæraleikara að sögn Frið- riks Ómars. Mömmulagið sungið Fiskidagurinn mikli er ekkert ef ekki falleg og fjölskylduvæn hátíð. Ein af mörgum skemmtilegum hefð- um hátíðarinnar er flutningur lags- ins Mamma, en söguna á bak við lag- ið og flutninginn á Mömmulaginu segir Friðrik Ómar vera mjög skemmtilega og lýsandi fyrir hátíð- ina. „Við flytjum Mömmulagið á föstu- deginum og er það gert í sambandi við hugmynd sem kviknaði fyrir nokkrum árum hjá Fiskidagsnefnd- inni. Hugmynd var að mynda vin- áttukeðju þar sem fólk átti bara að hittast og haldin ein hátíðarvináttu- ræða, sem t.d. biskup Íslands hefur flutt og fleiri flottir gestir. Árið 2007 fékk ég sendan textann Mamma, en hann er eftir einn stofnenda hátíðar- innar og fjallar um Móður jörð, sem er upphafið að þessu öllu saman. Lagið fluttum við svo öllum að óvör- um og það var mjög tilfinningaleg stund og falleg.“ Flutningur lagsins er núna árleg- ur viðburður og fastur liður Fiski- dagsins, en Friðrik Ómar hefur flutt það á hverju ári með Gyðu Jóhannes- dóttur. Börnin ekki út undan Fiskidagurinn mikli er fjölskyldu- hátíð og því er að venju vel hugsað um börnin og fjölskylduna alla. Með- al dagskrárliða sem eru sérstaklega hugsaðir fyrir börn eru Brúðubíllinn, Íþróttaálfurinn, Siggi sæti, Solla stirða og Söngvaborg. Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu gulu hænuna, teikniveröld og kúlufótboltaspil verða í boði og fleira og fleira. Þá flæðir allt í fiskisúpum og öðru góðgæti sem hafið hefur upp á að bjóða og eins og Friðrik Ómar segir á fólk ekki að þurfa að taka upp vesk- ið. Syngja lögin sem allir þekkja Ljósmyndari/Helgi Steinar Tónleikar Frá tónleikum Fiskidagsins mikla, en Friðrik Ómar segir söngin heyrast til næstu bæja.  Margir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar koma fram á Fiskideginum mikla  Lög eftir Tinu Turner, AC/DC, Tom Jones, Elton John, Deep Purple o.fl. spiluð og allir syngja með Comissura nefnist sirkusverk sem leikhópurinn Patricia Pardo frá Spáni sýnir í Tjarnarbíói annað kvöld, fimmtudag, og á föstudags- kvöld kl. 20 bæði kvöld. Sýningin er sú fyrsta sem sýnd er í Tjarnarbíói eftir breytingar á bæði sal og tækni- búnaði hússins. „Sirkusverkið Comissura inni- heldur nærbuxnalausan loftfimleika- mann í rólu, ótrúan slagverksleik- ara, konu þakta 20 lítrum af vaxi og ríkulegan fátækling,“ segir m.a. í til- kynningu frá Tjarnarbíói. Þar kem- ur fram að Comissura sé sirkusverk sem samanstandi af sjö trúða- atriðum. Sýningin fjalli um kröfurnar sem fólk geri til eigin líkama. „Um hversu óhæf við erum til að þekkja muninn á þörf og óseðjanleika, um morð og móðureðli (eða hvernig neysluþjóðfélagið lætur okkur éta upp börnin okkar), um hraðann og hvernig við töpum fyrir eigin skrið- þunga, um fegurðina í ástarsorg (mikla fegurð í ástarsorg), um svart- sýni sem notuð er til að hafa áhrif á áhorfendur, um afbrýðisemi og rugl- inginn milli svika og rétt fólks til einkalífs. Comissura tengir okkur við melankólíuna sem felst í að átta okkur á að við lifum í gleði, og skringilegheitin sem felast í tilveru okkar, þversögnum og blendnum til- finningum.“ Endurbótum lokið Tjarnarbíó hefur verið lokað síð- ustu vikurnar meðan nauðsynlegar endurbætur fóru þar fram. Sam- kvæmt upplýsingum frá Guðmundi Inga Þorvaldssyni, framkvæmda- stjóra Tjarnarbíós, voru fyrir breyt- ingu aðeins um 70 góð sæti í húsinu þar sem sjónlínur af svölum hússins voru ekki ákjósanlegar. Með endur- bótunum fjölgar góðum sætum í rúm 180. Í sumar var ljósabúnaður bætt- ur auk þess sem klárað var að setja upp nauðsynleg sviðtjöld. Á síðast- liðnu leikári sýndu 60 listahópar sýningar sínar í Tjarnarbíói. Á kom- andi leikári er ráðgert að frumsýna eina sýningu í fullri lengd í hverjum mánuði að janúar undanskildum auk þess sem sýndar verða ýmsar gesta- sýningar og eldri sýningar. Um kröfur til eigin líkama  Spænskt sirkusverk fyrsta sýning haustsins í endurbættu Tjarnarbíói kl. 11:00 – Setning kl. 11:05 – Fiskidagslagið með Matta og Friðriki Ómari kl. 11:10 – Litla Fiskidagsmessan kl. 11:20 – Nemendur í Tónlistar- skóla Dalvíkurbyggðar koma fram kl. 11:45 – A. Mar les frumsamin ljóð úr ljóðabók sinni kl. 11:55 – Leik- og sönghópurinn „Næsta leikrit“ kl. 12:05 – Fiskidagslagið Matti, Friðrik Ómar + dans kl. 12:10 – Solla stirða, Siggi sæti og Íþróttaálfurinn kl. 12:40 – Kristjana Rós úr Ís- land got talent kl. 12.50 – Karlakór Dalvíkur kl. 13:15 – Hera Björk syngur kl. 13:30 – Ratleiks- og göngu- verðlaunaafhending kl. 13:45 – Leikhópurinn Lotta kl. 14:00 – Heiðrun: Umsjón Guðný S. Ólafsdóttir kl. 14:10 – Ræðumaður dagsins: Dóroþea Reimarsdóttir kl. 14:20 – Söngvaborg – Sigga Beinteins og María Björk kl. 14:40 – Hinir sönnu Greifar kl. 15.00 – Mið-Ísland kl. 15:10 – Jógvan Hansen og Vignir Snær ásamt gestum kl. 15:25 – Fiskidagslagið með Matta og Friðriki Ómari + dans kl. 15:30 – Aron Birkir ásamt hljómsveit kl. 15:55 – Eyþór Ingi Gunn- laugsson og Atómskáldin kl. 16:20 – Baldursfjölskyldan. Rokkkveðja frá Keflavík kl. 16.50 – Fiskidagslagið með Matta og Friðriki Ómari + dans kl. 16.55 – Lokaorð – Fram- kvæmdastjóri Fiskidagsins mikla Fiskidag- urinn mikli DAGSKRÁ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.